Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979
23
'
Á MORGUN miðvikudag fer
fram fyrri leikur Vals og Ham-
burger SV í Evrópukeppni meist-
araliða í knattspyrnu, leikurinn
fer fram á Laugardalsvellinum
og hefst kl. 18.15.
í ár tekur Valur þátt í Evrópu-
keppni í níunda sinn, þ.e. árin
1966, 67, 68, 69, 74, 75, 77, 78, 79.
Valur hefur oftast tekið þátt í
Evrópukeppni íslenskra liða.
Árið 1967 komst Valur fyrst
íslenskra liða í aðra umferð.
Valur hefur því leikið 18 leiki
þar af 11 á útivelli. Af þessum 18
leikjum hefur Valur unnið einn
leik, sex sinnum verið gerð jafn-
tefli og tapað tíu sinnum. Marka-
hlutfall 10-58 (18 1 - 6 - 11 10
- 58).
Valur hefur leikið sjö sinnum í
Reykjavík, unnið einn leik, gert
fimm jafntefli og tapað einum
leik. Markahlutfall 4 — 5 (7 1 — 5
- 14 - 5).
Lið það sem Valur mætir í 1.
umferð í Evrópumeistarakeppni
félagsliða í knattspyrnu, Ham-
burger SV, er ekki með öllu
óþekkt hér á landi, þar sem það
mætti liði Keflavikur fyrir
nokkrum árum i Evrópukeppni.
Styrkleiki liðsins er þó allur
annar þar sem nú er valinn
maður í hverri stöðu. í hinu
sterka liði H.S.V. eru nokkrir af
kunnustu leikmönnum Evrópu.
og hafa ellefu þeirra leikið lands-
leiki.
Eins og fram hefur komið er
valinn maður í hverri stöðu í liði
Hamburger. Þetta hófst allt árið
1974. Þá hóf félagið mikil kaup á
leikmönnum með það fyrir augum
að gera félagið að stórveldi. Willi
Reimann var keyptur frá Hannov-
er fyrir 225 þúsund pund. Tveimur
árum síðar var Feliz Magath
keyptur fyrir 125 þúsund pund, og
ívan Buljan frá Júgóslavíu fyrir
150 þúsund pund. William Hartvig
einn efnilegasti leikmaðurinn í
Þýzkalandi var keyptur fyrir
sama verð. Og rúsínan í pylsuenda
voru svo kaupin á Kevin Keegan á
500 þúsund sterlingspund.
Fyrir það tímabil sem nú er að
hefjast var aðeins einn leikmaður
keyptur. Varnarmaðurinn Diet-
mar Jakobs 25 ára geysisterkur.
Kaupverð hans var 250 þúsund
pund. Hann mun eiga að leysa
fyrirliða liðsins Peter Nogly af
hólmi í framtíðinni.
Það eru ekki mörg félög í
Vestur-Þýzkalandi sem hafa jafn-
góðar tekjur og Hamburg SV.
Meðalaðsókn að leikum liðsins eru
45 þúsund manns. Þá hafa þeir
svimandi tekjur af auglýsingum
og fyrir keppnistímabilið sem nú
er nýhafið gerðu þeir auglýsinga-
samning við olíufélagið BP. Fyrir
að leika með stafi félagsins á
búningum fær félagið 750 þúsund
pund á ári. (675 milljónir ísl.
króna).
Rudi Kargus — markvörður, 26
ára, 1.83 m — 76 kg. Hefur leikið 3
A-landsleiki, 10 B-landsleiki og 8
unglingalandsleiki.
Manfred Kaltz — varnarmaður,
25 ára, 1.84 m — 77 kg; einn
sterkasti leikmaður liðsins, og
þykir mjög sókndjarfur. Hefur
leikið 29 A-landsleiki, 3 B-lands-
leiki og 10 unglingalandsleiki.
Dietmar Jakobs — varnarmaður,
25 ára, 1.86 m — 79 kg. Hefur
leikið 4 unglingalandsleiki.
Peter Nogly — fyrirliði liðsins, 31
árs, 1.84 m — 84 kg. Ákaflega
öruggur og traustur varnarleik-
maður, með mikla yfirferð. Hefur
leikið 4 A-landsleiki og 1 ungl-
ingalandsleik.
Feliz Magath — tengiliður, 25
ára, 1.72 m — 74 kg. Hefur leikið 2
A-landsleiki og 4 B-landsleiki.
Horst Hrubesch — framherji, 28
ára, 1.93 m — 87 kg. mesti
markaskorari liðsins; hefur skor-
að 80 mörk síðustu þrjú keppnis-
tímabil. Geysisterkur i skallaein-
vígum. Leikmaður sem vert er að
veita athygli. Hefur leikið 3
B-landsleiki.
Gúnther Plucken — framherji, 23
ára, 1.71 m — 70 kg.
Peter Hidien — varnarmaður, 25
ára, 1.78 m — 80 kg. Hefur leikið 2
unglingalandsleiki.
Casper Memmering — varnar-
maður, 25 ára, 1.78 m — 72 kg.
Hefur leikið 2 A-landsleiki, 6
B-landsleiki og 4 unglingalands-
leiki. Sókndjarfur og leikinn leik-
maður.
Ivan Buljan — tengiliður, 29 ára,
1.86 m — 86 kg. Júgóslavi. Hefur
leikið 30 A-landsleiki fyrir Júgó-
slavíu. Heimsklassa leikmaður
sem leikur betur og betur.
WiIIiam Hartwig — tengiliður, 22
ára, 1.87 m — 82 kg. Hefur leikið 2
A-landsleiki og 3 B-landsleiki. Ört
vaxandi leikmaður, einn sá efni-
legasti í V-Þýzkalandi.
Horst Berti — tengiliður, 30 ára,
1.78 m — 73 kg. Hefur leikið 1
unglingalandsleik.
Kevin Keegan — framherji, 28
ára, 1.70 m — 68 kg. Knattspyrnu-
maður Evrópu 1978. Einn snjall-
asti leikmaður í heiminum í dag,
og stærsta stjarna H.S.V. Hefur
leikið 44 A-landsleiki fyrir Eng-
land og er fyrirliði enska lands-
liðsins.
Bernd Gorski — tengiliður, 20
ára, 1.83 m — 74 kg. Hefur leikið
16 unglingalandsleiki.
Willi Reimann — framherji, 30
ára, 170 m — 68 kg. Hefur leikið 2
B-landsleiki og 7 unglingalands-
leiki.
Jurgen Stars — varamarkvörður,
31 árs, 1.82 m — 75 kg.
Magath,
Plucken,
Gorski.
Beginski, Keegan.
Kaltz. Memmer-
ing.
Kargus,
Jakobs.
Ilartwig.
Hamburger SV
í heimsókn
Síðastliðinn föstudag var formaður golfsambands íslands sæmdur silfurkrossi ÍSÍ, hér sést Gísli
Halldórsson sæma Pál orðunni. Ljösmynd: Krístján.
Eftirfarandi tafla cr yfirlit yfir þátttöku Vals í
Evrópukcppnum:
KEPPNI ÁR HEIMA ÚTI ANDSTÆÐINGUR VÖLLUR VÖLL
Evrópuk. bikarm. 1966 Standard Liege — Belgiu 1-1 1 S
Evrópuk. meistaral. 1967 Jeunesse d’Esch Luxemb. 1-1 3—„
Evrópuk. meistaral. 1967 Vasas — Ungverjal. 0-6 1-5 0-8
Evrópuk. meistaral. 1968 Benfica — Portugal 0-0
Evrópuk. félagsl. 1969 Anderlecht — Belgiu 0-6 0-2 1-2
Evrópuk. félagsl. 1974 Partadow — N-írl. 0-0
Evrópuk. bikarm. 1975 Celtic — Skotl. 0-2 0-7
Evrópuk. bikarm. 1977 Glentoran — N-írl. 1-0 0-2
Evrópuk. meistaral. 1978 Magdeburg — A-Þýzkal. 1-1 0-4
2 með 11 rétta
í 2. leikviku Getrauna komu fram 5 raðir með 11 réttum og var
vinningur fyrir hverja kr. 155.000.- Með 10 rétta voru 91 röð og
vinningur fyrir hverja kr. 3.600-
í 3. leikviku komu fram 2 raðir með 11 réttum og vinningur fyrir
hverja kr. 130.000.- og með 10 rétta voru 12 raðir og fyrir hverja röð
koma kr. 8.700,- Annar seðillinn með 11 rétta var keríisseðill og koma
því einnig 4 raðir með 10 réttum og vinningur þá alls um kr. 165.000,-