Morgunblaðið - 18.09.1979, Page 40

Morgunblaðið - 18.09.1979, Page 40
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 Stórtap hjá Forest Man. Utd. á toppinn Manchester Utd tók forystuna í 1. deild ensku deildarkeppninnar með lítt sannfærandi sigri gegn Derby á heimaveili sinum Old Trafford. á sama tíma og Nott- ingham Forest var tekið til bæna gegn Norwich, tapaði 1—3 sínum fyrsta leik á keppnistímabilinu. Nú eru aðeins tvö lið eftir í deildinni, sem ekki hafa tapað leik, efsta liðið Manchester Utd og nýliðarnir Crystal Palace. Enn er allt of snemmt að spá hver framvinda mála verður við topp deildarinnar og vist er, að mörg þeirra liða sem eru við toppinn, eiga eftir að sigla upp í fjöru og stranda áður en langt um iiður. Englandstitillinn vinnst aðeins með því að hala inn stig reglulega yfir 42 umferðir, það er ekki á færi allra liða. Sama er að segja um baráttuna á hotninum, allt á eftir að gerast. Greinilegt er þó, að bæði Manchester City og Tottenham eiga eftir að berjast i bökkum ef að likum lætur. En lítum á leiki helgarinnar. United á toppinn Manchester Utd hefur komið sterkt út úr fyrstu umferðunum og spurningin er aðeins sú, hvort liðið sé nú orðið nógu sterkt til að halda strikinu í allan vetur. Sigur- inn gegn Derby var lítt sannfær- andi. Að vísu sótti liðið án afláts, en framlínan var ekki á skotskón- um. Eina markið var auk þess heppnismark. írinn ungi, Ashley Grimes, tók þá aukaspyrnu af löngu færi. Firnafast skot hans breytti um stefnu af höfði Gordon Hill og plataði þannig markvörð- inn. Forest í kennslustund Það kom að því að eitthvert liðið tæki sig til og sýndi Nottingham Forest í tvo heimana. Lið Norwich hefur komið verulega á óvart það sem af er hausti fyrir góða leiþeim 1. DEILD Manchester Udt 6 4 2 0 9 2 ; 10 Nott. Forest 6 4 1 1 12 5 9 Norwich City 6 4 0 2 13 7 8 Crystal Palace 6 2 4 0 8 2 8 Southampton 6 3 2 1 11 7 8 Middlesbr. 6 3 1 2 9 6 7 I Wolverhampton 5 3 1 1 8 5 7 Liverpool 5 2 2 1 10 5 6 Arsenal 6 2 2 2 9 6 6 Brintol C 6 2 2 2 7 6 6 Leeds Utd 6 1 4 1 7 6 6 Ipswich Town 6 3 0 3 6 7 6 Coventry C 6 3 0 3 11 13 6 Stoke City 6 2 1 3 9 10 5 Everton 6 2 1 3 9 12 5 Bolton 6 1 3 2 5 8 5 BrÍKhton 6 2 0 4 9 12 4 WBA 6' 1 2 3 6 10 4 Aston Villa 6 1 2 3 4 10 4 Tottenham 6 2 0 4 8 17 4 Derby County 6 1 1 4 3 9 3 Manchester C 6 1 1 4 4 12 3 2. DEILD Newcastle 6 4 1 1 13 8 9 Luton Town 6 3 2 1 13 6 8 Notts County 6 3 2 1 7 3 8 Wrexham 6 4 0 2 9 8 8 Leicester 6 3 12 11 8 7 CambridKe 6 2 3 1 10 8 7 BirminKham 6 3 1 2 9 9 7 Fulham 6 3 1 2 9 9 7 Sunderland 6 3 1 2 6 6 7 Cardiff 6 3 1 2 6 7 7 Preston 6 2 2 2 8 6 6 QPR 6 3 0 3 8 7 6 Watford 6 1 4 1 6 6 6 Bristol R 6 2 2 2 8 11 6 Swansea City 6 2 2 2 6 9 6 Oldham 6 2 1 3 11 10 5 West Ham 6 2 1 3 4 5 5 Chelsea 6 2 1 3 6 8 5 Shrewsbury 6 1 1 4 6 8 3 Burnley 6 0 3 3 6 10 3 Orient 6 0 3 3 6 11 3 Charlton 6 0 3 3 4 9 3 Manchester Utd (dökkum búningum) er í efsta sætinu eins og er, en Arsenal er skammt undan og bíður færis. Bæði liðin unnu góða sigra um helgina. Csy . ■■ ^fl fyrri, einstefna Norwich, og Keith Robson skoraði fljótlega þriðja markið, þriðji skallinn. Forest sótti sig nokkuð undir lokin og nokkrum mínútum fyrir leikslok skoraði Tony Woodcock eina mark Forest. Leeds jafnaði á elleftu stundu Liverpool hefur farið heldur rólega af stað að þessu sinni, en verið að koma nokkuð til að undanförnu. Liðið var frekar óheppið að tapa stigi gegn Leeds að þessu sinni. Leeds sótti og sótti, en Liverpool lék rólega og yfir- vegað og gaf engin færi á marki sínu. Það var síðan 10 mínútum fyrir leikslok, að ein af skyndi- sóknum Liverpool bar árangur og Terry McDermott skoraði. Leeds tókst þó að jafna á síðustu mínút- unum og var þar að verki velski landsliðsmaðurinn Alan Curtis. Palace og Southampton koma á óvart Geta ofangreindra liða hefur komið verulega á óvart, einkum geta Southampton, en margir höfðu spáð Palace nokkrum frama. Leikmenn Southampton hentu gaman að lélegri vörn Tottenham, komust þar í feitan bita. Tottenham var að vísu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og hafði eftir hann forystu með marki Glenn Hoddle. Phil Boyer jafnaði rétt eftir hlé og þó að Chris Jones skoraði aftur fyrir Tottenham og var það gegn gangi leiksins og Nick Holmes var fljótur að jafna metin. Holmes skoraði síðan annað mark sitt, Graham Baker og Mick Channon bættu síðan mörkum við og sigur- inn var síst of stór miðað við þann urmul færa sem leikmenn Sout- hampton sköpuðu sér. Palace vann Aston Villa auð- veldlega 2—0. Gerry Murphy skoraði bæði mörk Palace, eitt í hvorum hálfleik og var síðan borinn af leikvelli illa slasaður á fæti, eftirminnilegur laugardagur það! Lið Villa var afspyrnuslakt og átti varla markskot í leiknum. Hughes þurfti lögregluvernd! Það kom heldur betur til stympinga þegar Úlfarnir unnu 3— 2 sigur á Everton á Goodison Park í Liverpool. Tveimur mínútum fyrir leikslok rak Emlyn Hughes tána fyrir Andy King og felldi hann harkalega. Brást King illa við og sló frá sér. Vísaði dómarinn honum þá umsvifalaust af leikvelli og það líkaði hvorki Andy King né áhangendum Everton, sem ætluðu sér að jafna um Hughes gamla er hann yfirgaf leikvanginn. Varð lögregluvörður loks að slá hring um Hughes meðan hann trítlaði upp í rútubíl Úlfanna. Everton hafði forystu í hálfleik, 1—0, Brian Kidd skoraði. Andy Gray, nýi maðurinn frá Aston Villa, skoraði fyrir Úlfana og Peter Daniel kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu. Trevor Ross jafnaði fyrir Everton með annarri vítaspyrnu, en John Richard átti síðasta orðið í þess- um fjöruga leik, er hann skoraði sigurmark Úlfanna skömmu fyrir leikslok. WBA á uppleið WBA vann sinn fyrsta sigur á haustinu er liðið fékk Manchester City í heimsókn. Sigurinn var stór, 4— 0, þegar upp var staðið, en sannast sagna hefði hann getað orðið þrisvar sinnum stærri. Hið unga lið MC var leikið sundur og saman. Ally Brown skoraði strax á 13. mínútu og Garry Owen skoraði annað markið, gegn sínu gamla félagi, á 35. mínútu. Tvö mörk í síðari hálfleik frá Brian Robson ráku smiðshöggið á gott dagsverk hjá WBA og leikmenn MC riðu ekki feitum hesti af svæðinu. Wallace ómissandi Ian Wallace, skoski sóknarmað- urinn hjá Coventry, lék sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu fyrir lið sitt og skoraði tvívegis, auk þess sem hann fiskaði víti, er Coventry sökkti Bolton með manni og mús. Barry Powell skor- aði úr vítinu, en eina mark Bolton skoraði gamla kempan Willy Morgan á síðustu mínútum leiks- ins. Aðrir leikir Arsenal átti í litlum erfiðleikum með lið Middlesborough, sem virð- ist eitthvað ætla að dala eftir sterka byrjun. Leikmenn Arsenal fóru illa með mörg ágæt tækifæri, en skoruðu þó tvívegis og það nægði. Alan Sunderland skoraði í fyrri hálfleik og Frank Stapelton í þeim síðari. Brighton nældi sér í býsna dýrmæt stig með frekar óvæntum sigri á hinu hálfhollenska liði Ipswich. Paul Clarke skoraði snemma leiks fyrir Brighton, sem lék sinn besta leik á haustinu. Mark í síðari hálfleik frá Gerry Ryan innsiglaði sigurinn. Bristol City var heppið að tapa ekki á heimavelli sínum gegn Stoke, sem átti öll bestu og hættu- legustu færi leiksins. John Shaw í marki BC sá til þess að Garth Crookes skoraði ekki úr einu dauðafæri og Adrian nokkur Heath í liði Stoke átti annað mjög gott færi, en Shaw eyðilagði allt fyrir honum með því að flækjast fyrir. 2. deild: Newcastle hefur sem stendur forystuna í 2. deild, en ekki er gott að segja hvort sú dýrð stendur lengi, því að allt er í einum graut í þeirri deild. Leikir deildarinnar fóru þannig: Birmingham 1 (Lynex) — Charlton 0 Cambridge 4 (Street, Spriggs, Smith, Biley) — Bristol R. 1 (Williams) Fulham 3 (Davies 2, Lock) — Burnley 1 (Noble) Newcastle 3 (Shoulder 2, Cart- wright) — Leicester 2 (Smith 2) Notts County 0 — Luton 0 Oldham 3 (Heaton, Stainrod, Steel) — Preston 2 (Thomson 2) Shrewsbury 3 (Biggins, Mann, Kaye) — Chelsea 0 Swansea 1 (Charles — QPR 2 (Burke, Stevenson sj.m.) Watford 1 (Train) — Cardiff 1 (Stevens) West Ham 2 (Cross, Pearson) — Sunderland 0 Wrexham 2 (Hill, Vinter) — Ori- ent 1 (Mayo) Knatt- spyrnu urslit ENGLAND, 1. DEILD: Arsenal — Middlesbr. 2—0 Brighton — Ipswich 2—0 Bristol C — Stoke 0—0 Coventry — Bo’ton 3—1 Crystal P — Aston V. 2—0 Everton — Wolves 2—3 Leeds — Liverpool 1 — 1 Manch. Utd — Derby 1—0 Norw. — Nott. Forest 3—1 Southampton — Tottenh. 5-2 WBA — Manch. City 4-0 ENGLAND, 2. DEILD: Birmingham — Charlton 1—0 Cambridge — Bristol R4 —1 Fulham — Burnley 3—1 Newcastle — Leicester 3—2 Notts County — Luton 0—0 Oldham — Preston 3—2 Shrewsbury — Chelsea 3—0 Swansea — QPR 1—2 Watford — Cardiff 1 — 1 West Ham — Sunderl. 2—0 Wrexham — Orient 2—1 ENGLAND, 3. DEILD: Blackburn — Southend 1 — 1 Blackpool — Rotherham 3—2 Brentford — Grimsby 1—0 Colchester — Sheff. Wed. 0-0 Gillingham — Chester 2—2 Mansfield — Oxford 1—0 Millwall — Exeter 5—1 Plymouth — Wimbledon 3—0 Reading — Carlisle 2—0 Sheff. Utd. — Barnsley 2—0 Swindon — Chesterf. 2—1 SKOTLAND, ÚRVALSDEILD: Aberdeen — Rangers 3—1 Dundee — Morton 4—3 Hibernian — Celtie 1—3 Partick — Kilmarnock 0—0 St.Mirren — Dundee Utd 3-2 hað ttenKur upp og ofan hjá Tcitl bórðarsyni og félöxum hans hjá HU'nska mcistaraiiðinu öster frá Vexjö. Um helgina varð liðið að láta sér iynda jafntefli á heimavelli gegn einu af efstu liðunum Eifsborg frá Boras. 1—1. öster er nú i 7. sæti sem fyrr. llrslit leikja i sænsku deiidar- keppninni urðu sem hér segir. Djurgarden — Halmstad 1—1 Halmia — Kalmar 2—2 Landskrona — Sundsvail 3—0 Atvfdaberg — Norrköping 1—0 öster — Elfsborg 1—1 AIK — liammarby 1—1 Gautaborg — Malmö 1—1 Halmstad hefur forystuna i deild- inni, 28 stig eftir 21 umferð. Forystan er naum, þvi’að Gautaborg. Elfsborg og Malmö FF hafa öil hiotlð 27 stig og Hammarby 26 stig. Real Madrid. Real Soeiedad og Sportlng Gijon sigruðu öll i lefkjum sinum i annarri umferð spænsku deildarkeppninnar og eru þvi efst með fullt hús stlga eins og er. Úrslit á Spáni á sunnudaginn urðu sem hér segir. Malaga — Espanol 1—2 Atletiro Madrid — Gijon 1—3 Las Palmas — Alicante 2—1 Biibao — Real Sociedad 0—1 Valencia — Salamanca 2—2 Rayo Vallecano — Real Madrid 1—2 Barceiona — BetÍB 5—0 Almeria — Zaragoza 1—0 Sevilla — Burgos 6—1 Norsku Vikingarnir undir stjórn Tony Knapp náðu altur forystunni i norsku deildarkeppninni. en liðið féll niður i 2. sætið eftir siðustu umferð- ina. Vikingur vann nú Start frá Kristjanssandi 1—0 og nægði það til að skjótast tveim stigum fram úr næstu lióum, einmitt Start og Moss. Það þurfti þó sjálfsmark Kay Ljosdal til að tryggja Viking sigur. ÍJrslit leikja i norsku deildarkeppninni urðu sem hér seglr. BodöGllnt - Skeid 0-0 Lilleström — Bryne 1—1 Moss — Rosenborg 1—1 Mjöndalen — Hamkam 3—1 Viking — Start 1—0 Vaalerengen — Brann 3—1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.