Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 29

Morgunblaðið - 18.09.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 37 • Tíu þúsund kr. fyrir langa símasnúru Kona nokkur kom að máli við Velvakanda og sagði frá því að fyrir nokkru hefði hún fengið langa snúru á símann sinn. Um s.l. mánaðamót kom svo reikningur- inn sem hljóðaði upp á 10.500 krónur. Snúran sjálf var 8 metra löng og kostaði 4.000 kr., vinnan kostaði 1.700 og ferðakostnaður- inn var 4.000 kr. Ofan á þetta kom svo 800 króna söluskattur. Konan kvað viðgerðarmanninn hafa verið 5 mínútur að því að setja nýju snúruna á og þar að auki hefði hann hringt tvö símtöl, án þess að biðja um leyfi eða að þau kæmu fram á reikningnum. Ferðakostnaðurinn var sá kostnaðarliður sem konunni blöskraði mest þar sem þetta var ekki eini staðurinn sem viðgerðar- maðurinn kom við á leið sinni í þessu hverfi. PÓST- OG Sí MAMÁLASTC"r.'UNIN Simstjorinn i V FYLGISKJAL MEÐ REIKNINGI 79 ■ 26/7 1 stk. snúra 8 netrar. Ferðakostr.aður, Söluskattur 20?o af kr, 000 -.CCO * .700 .700 e:o Reykjavík, . 1/9 19 79 I 10,300 Þessir hringdu . . . • „Óánægðir með opnum Tónabæjar“ íbúi við Skaftahlíð hringdi til Velvakanda: „Mig langar til að bera fram kvörtun fyrir hönd okkar íbúanna við Skaftahlíð. Við erum mjög óánægð yfir að Tónabær skuli hafa verið opnaður að nýju. Ekki nóg með allan þann hávaða sem af honum stafar, heldur verður að sópa götuna á morgnana eftir dansleiki þar sem allt er þakið glerbrotum. Bílar íbúanna verða líka stundum fyrir barðinu á unglingunum þegar þeir taka sig til og láta fætur eða hnefa dynja á þeim.“ Þá vildi „íbúi við Skaftahlíð" þakka sjónvarpinu fyrir þáttinn sem sýndur var á sunnudagskvöld- ið „Diskó, diskó, diskó". Kvað hann þetta hafa verið mjög góðan þátt sem margir hefðu haft gaman af. En að sama skapi var hann mjög óánægður með norska fram- haldsþáttinn sem sýndur er á laugardagskvöldi í sjónvarpinu. Sagði íbúinn þann þátt vera „ein- tóma vitleysu". • Óánægð með sögu í „Morgunstund barnanna“ Móðir hringdi til Velvakanda og kvaðst vera mjög óánægð með söguna „Flutningarnir" eftir Ingi- björgu Jónsdóttur sem Gunnvör Braga las í „Morgunstund barn- anna" 8.1. tvær vikur. „Atburðaráð sögunnar var allt- of hæg til þess að börn hefðu gaman af henni. Alla vega gáfust mín börn upp við að hlusta á hana. Sagan sem var þar á undan, „Sumar á Heimsenda", var aftur á móti mjög góð og lestur hennar var frábær. Margrét Guðmunds- dóttir ætti að lesa fleiri sögur í útvarpið, hún er mun betur til þess fallin en margir þeir sem af og til hafa lesið í útvarpið í mörg ár.“ Þá vildi „Móðir" koma því á framfæri að sjónvarpið sýndi fleiri þætti álíka og þýska skemmtiþáttinn „Diskó, diskó, diskó, sem var sýndur s.l. sunnu- dag. „Mín börn sem komin voru á táningaaldur höfðu mjög gaman af þessum þætti og ég sjálf reynd- ar líka. Slíkir þættir halda fjöl- skyldunni saman og unglingunum inni. Sjónvarpið mætti því gjarn- an sýna fleiri álíka þætti í stað þeirra er bæði eru illa gerðir og leiðinlegir en alltof oft eru á skjánum." SKÁK Umsjón: Margeir Pótursson Á alþjóðlega skákmótinu í Man- chester í Englandi sem lauk fyrir skömmu kom þessi staða upp í skák Englendinganna Orr, sem hafði hvítt og átti leik, og Farrands. 21. Hxc6!! - dxc6, 22. Bxc6! - Rxc6, 23. Dxd5+ - Kh8 (Nú blasir hið sígilda kæfingarmát við, en svartur var gjörsamlega varn- arlaus eftir 21. Hxc6) 24. Rf7+ — Kg8, 25. Rh6++ - Kh8, 26. Dg8+! — IIxg8, 27. Rf7 mát. HÖGNI HREKKVÍSI DALE CARNEGIE Kynningarfundur veröur haldinn fimmtudagskvöld 20. sept. kl. 20.30, aö Síöumúla 35 uppi. Námskeiöið mun hjálpa þér að: Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFS- TRAUST. Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staöreyndir. Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐ- INGU og VIÐURKENNINGU. Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. Veröa hæfari aö taka viö meiri ÁBYRGÐ án óþarfa spennu og kvíða. Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale Carnegie námskeiöinu. í dag er þitt tækifæri. Hringiö eöa skrifiö eftir upplýsingum í sima. 82411 [tíg Einkaleyfi á íslandi STJÓRNUNARSKÓLINN DALE CARNEGIE nAmskeiðin Konráö Adolphsson. § ii MMMMMi ; * « mm*m, i * * k fttttgniiÞlfifrifr símanúmer 10100 AUGLYSIN MUULToinuitn; 22480 t RCf DC .*• C*' II. | ArunclUoLA: 83033

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.