Morgunblaðið - 18.09.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.09.1979, Blaðsíða 32
Sími á afgreiðslu: 83033 m»T0iinbInt>it> ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1979 T veir menn f ór- ust í bflslysi Seyðisfirði 17. september. TVEIR menn íórust er jeppabifreið valt út af veginum á Fjarðarheiði á sunnudaK. Mennirnir hétu Þorvaldur WaaKÍjörð. 27 ára. Iloltsbúð 16. Garðabæ. ok Örn Ileljíi InKÓlfsson. 23 ára. Álftamýri 16. Reykjavík. Þorvaldur lætur eftir sík 3 börn ok Örn eitt. Fimm aðrir voru í jeppanum, en enjíinn þeirra hlaut teijandi meiðsli. borvaldur ojj Örn voru skipverjar á Gullveri ok voru að mæta til skips að loknu leyfi. Slysið varð um klukkan eitt á sunnudaK- Mennirnir voru á leið frá EKÍlsstöðum til Seyðisfjarð- ar. Mikil hálka var á veKÍnum ok rétt austan við Heiðarvatn missti ökumaðurinn stjórn á jeppanum, sem virðist hafa oltið þrjár veltur niður bratta brekku. Skömmu síðar bar að bíl frá Seyðisfirði ok ók ökumaður hans einum þeirra, sem í jepp- anum var, í sæluhúsið á mið- heiðinni ok hrinKdi hann í Iök- reKluna á Seyðisfirði ok til- kynnti um slysið. Læknar og löKreglumenn frá Seyðisfirði og Egilsstöðum komu fljótlega á slysstað. Þá var einn farþeginn í jeppanum látinn og annar var fluttur í skyndi í sjúkrahúsið á Egilsstöðum, þar sem hann lézt. Jeppinn, sem er af Blazer-gerð, er talinn gjörónýt- ur. Sveinn. Skúli óskarsson varð Norðurlandameistari í 75 kg. flokki á Norðurlandameistaramótinu í kraftlyfting- um um helgina. Skúli setti nýtt Norðurlandamet í hnébeygju lyfti 300 kg. Sjá nánar um mótið á bls. 17 og 19._________________________________ Allt að 32% hækkunágos- drykkjum og öli VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa heimilað nýtt verð á gos- drykkjum og tók hið nýja verð gildi í gær. Er hækkunin á bilinu 26,7—32,6%. Sem dæmi um hækkanir á einstökum tegundum má nefna að 19 cl Egils appelsín hækkar úr 88 í 115 krónur eða um 30,6%, 20cl seven up flaska hækkar úr 70 í 100 krónur eða um 28,2%, Egils pilsner hækk- ar úr 147 í 195 krónur eða um 32,6% og Thule öl hækkar úr 189 í 250 krónur flaskan eða um 32,3%. Þessar hækkanir eru vegna aukins framleiðslukostnaðar, og hækkunar á smásöluálagn- ingu, vörugjaldi og söluskatti. Þá hækka ennfremur tóm gler, minni flöskur úr 80 í 100 krónur og lítersgler úr 160 í 200 krónur. Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ, um búvöruverðshækkunina: Mikil fagnaðarlæti voru í Vestmannaeyjum þegar lið íþróttabandalags Vestmannaeyja kom heim með Herjólfi með íslandsmeistarabikarinn i knattspyrnu. Myndin var tekin skömmu eftir að Herjólfur lagðist að bryggju í Eyjum. Þúsund Eyjamenn voru á bryggiunni að fagna þeim og færa þeim blóm, gjafir og góðar óskir. Á myndinni eru nokkrir liðsmanna ÍBV, frá vinstri: Páll Pálmason, Jóhann Olafsson, Jóhann Georgsson, Þórður Ilallgrimsson fyrirliði, Örn Óskarsson, Kjartan Másson aðstoðarþjálfari, Viktor Helgason þjálfari með blómvendi og bikarinn og að baki honum stendur Ómar Jóhannsson. Sjá grein Og frásögn á bls. 18. Ljósmynd Mbl. Arm Johnscn Launamálastefnan hefur verið brotin „MÉR finnst óeðlilegt, að stærstu aðilar vinnumarkaðarins skuli ekki vera hafðir með í ráðum, þegar slíkar ákvarðanir eru teknar,“ sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambands íslands, er Morgunblaðið spurði hann um hækkun launaliðar i búvöru- verðshækkuninni, sem gildi tók i gær, „Þessi ákvörðun hefur veru- lega þýðingu fyrir þróun launam- álanna og sýnist mér að þarna hafi stefnan verið brotin, sem sett hefur verið um þróun laun- amála á þessu ári. Tel ég það óeðlilegt miðað við það sem á undan er gengið.“ Morgunblaðið spurði Þorstein hve miklu munaði þar og hvað Vinnuveitendasambandinu teldist til að hækkun til bænda væri miklu hærri en launahækkanir annarra stétta. Um það vildi hann ekki segja nákvæmlega, en hann bætti við: „Þarna sýnast hafa verið teknar ákvarðanir, sem fara út fyrir þessa afmörkuðu launa- málastefnu.sem fylgt hefur verið og hefur það áhrif á vinnumarkað- inn í heild. Því er eðlilegt að stærstu aðilar hans séu hafðir með í ráðum." Vidurkenndi naudgunartil- raun á Spáni UNGUR maður játaði við yfir- heyrslur um helgina hjá Rann- sóknarlögreglu rikisins að hafa ráðist að íslenzkri stúlku á hóteli á Mallorka á Spáni fyrir þremur vikum og gert tilraun til þess að nauðga henni. Atburður þessi gerðist að kvöld- lagi í herbergi á hótelinu Magasol á Mallorka. Vildi maðurinn fá stúlkuna til lags við sig en hún var ekki tilkippileg. Vildi maðurinn þá neyta aflsmunar en ekki tókst honum að koma fram vilja sínum en hins vegar meiddist stúlkan talsvert í átökunum, einkum þó í andliti. Stúlkan kærði ekki atburðinn til þarlendra yfirvalda en er hún kom heim til Islands viku seinna kærði hún manninn til RLR. Maðurinn dvaldi hins vegar í sólinni hálfum mánuði lengur en þegar hann kom heim til ættjarðarinnar aðfarar- nótt s.l. laugardags biðu lögreglu- menn eftir honum á flugvellinum og handtóku hann. Þorvaldur Waagfjörð Örn Helgi Ingólfsson Þingflokkur AlbÝðuflokksins: Afdráttarlaus and- staða við búvöruverðið „í ÞESSARI ályktun er engin bein hótun önnur en sú að viðhafa máiatilbúnað á Aiþingi. í henni felst ekki hótun um stjórnarslit cða neitt þvílíkt.“ sagði Magnús II. Magnús- son, félagsmálaráðherra, er Morgun- hlaðið spurði hann um ályktun þingflokks og framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins, sem samþykkt var í gær. Þar lýsir þingflokkur Alþýðu- flokksins yfir afdráttarlausri and- stöðu við þá ákvörðun ráðherra Alþýðubandalagsins og Framsókn- arflokks að fallas.* athugasemda- laust á niðurstöður sexmannanefnd- ar með þeim „afleiðingum. að launa- fólk í landinu hefur orðið fyrir stórfelldri kjaraskerðingu og hraði verðbólgunnar hefur enn aukizt.“ í ályktuninni segir, að samstarfs- flokkar Alþýðuflokksins í ríkisstjórn hafi knúið fram afgreiðslu malsins í ríkisstjórn, í viðkvæmu stórmáli. Það geri flokkar, sem hafa minnihluta Alþingis á bak við sig og taki ákvörðun í krafti meirihlutavalds, sem þeir hafa ekki. „Alþýðuflokkur- inn fordæmir slík vinnubrögð og telur með öilu fráleitt að byggja stjórn- valdsathafnir og samstarf flokka á slíkum málatilbúnaði." Þá segir í lok ályktunarinnar að þingflokkur Alþýðuflokksins muni strax í þingbyrjun beita sér fyrir breytingu á verðlagningu búvara og leita eftir samstöðu um slíka breyt- ingu. Magnús H. Magnússon félagsmála- ráðherra sagði í samtaii við Mbl. í gær, að ákvarðanir sem þessar, gætu ávallt leitt til stjórnarslita, þ.e.a.s., þegar einn þriggja flokka er borinn ofurliði. Hins vegar kvað hann þetta mái ekki verða til þess úr þessu að samstarf stjórnarflokkanna rofnaði. „Líf ': narinnar veltur nú á því, h monnum tekst að móta ein- hverja stefnu í baráttunni gegn verðbólgunni. Ef það ekki tekst, held ég að allir séu sammála um, að hún eigi varla miklu lengri tilverurétt. En ég held, að menn vilji þó verulega mikið á sig leggja til þess, a.m.k. hef ég þá trú. Stóra spurningin er því, hvort menn verða sammála um ein- hverja leið.“ ., . Sjá ályktun Alþýðuflokks- ins á miðsiðu Mbl. í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.