Morgunblaðið - 10.10.1979, Page 1
32 SIÐUR
222. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ullsten með
utanríkismál
Frá Sigrúnu Gísladóttur.
íréttaritara Mbl. í Svíþjóð.
— 9. október.
STJÓRNARMYNDUN borgara-
flokkanna er komin á lokastig.
Unnið var sleitulaust alla helgina
og í gærkvöld virtust endar vera
að ná saman og flokkarnir töldu
stjórnarmyndun komna í höfn.
Leiðtogar borgaraflokkanna
þriggja, Thorbjörn Fálldin.
Gösta Bohman og Ola Ullsten,
gengu í morgun á fund Ingmund
Bengtson þingforseta og skýrðu
honum frá niðurstöðunum. bað
sem talið er að hafi dregið
viðræðurnar á langinn eru skipt-
ingar ráðuneyta milli flokkanna
Flugstjóri
ákærður
Aþrnu. 9. okt. Reutor.
FLUGSTJÓRI svissnesku far-
þegavélarinnar, sem hlekktist á
eftir lendingu á Hellenikonvelli
á sunnudagskvöld hefur verið
ákærður fyir manndráp af gá
leysi og vanrækslu við stjórnun.
Saksóknari Grikklands skýrði
frá þessu í kvöld. Flugstjórinn
sætir einnig kæru fyrir að valda
líkamsmeiðslum, tefja umferð
um völlinn og eyðileggja verð-
mæti. Svo virðist sem flugstjór-
anum hafi mistekizt að stöðva
vélina eftir að hún var lent. í
dag var verið að rannsaka
svarta kassa vélarinnar til að
heyra hvað hefði farið á milli
flugstjóra og flugturns í þann
mund að atburðurinn varð.
þriggja og skipan mikilvægra
ráðherraembætta. Þjóðarflokk-
urinn stóð lengst af fast á að Ola
Ullsten héldi forsætisráðherra-
embættinu en um helgina varð
ljóst að Hægri flokkurinn studdi
Thorbjörn Fálldin. formann næst
stærsta flokksins, Miðflokksins,
— og sú varð raunin.
Talið er að Hægri flokkurinn og
Gösta Bohman, formaður flokks-
ins, hafi ekki gleymt því sem
gerðist þegar stjórnin sprakk fyrir
einu ári. í stað þess að mynda
stjórn með Hægri flokknum
myndaði Ola Ullsten minnihluta-
stjórn Þjóðarflokksins. Þá deildu
flokkarnir um skiptingu ráðu-
neyta. Bohman lýsti því yfir að
skiptingin ætti að fara fram eftir
stærðarhlutfalli flokkanna, þann-
ig að Hægri flokkurinn fengi 8
ráðuneyti, Miðflokkurinn sjö og
Þjóðarflokkurinn fimm.
Þjóðarflokkurinn setti sig á
móti þessari skipan en Miðflokk-
urinn studdi Bohman. Talið er
fullvíst að Ola Ullsten verði utan-
ríkisráðherra og Bohman verði
fjármálaráðherra. Ekki verður
skipað í embætti orkumálaráð-
herra fyrr en að lokinni þjóðar-
atkvæðagreiðslu um kjarnorkuna.
Þá er að sjá hvort Fálldin muni
ganga betur að halda stjórninni
saman en fyrir ári þegar deilan
um rekstur kjarnorkuvera varð
stjórn hans að falli. A fimmtudag
verður Fálldin formlega valinn af
þinginu og á föstudag mun hann
leggja fram ráðherralista sinn og
málefnasamning hinnar nýju
stjórnar borgaraflokkanna.
ólafur Jóhannesson forsætisráðherra og Benedikt Gröndal utanríkisráð-
herra ganga af ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Á milli þeirra er Magnús
Torfi ólafsson blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar, en hann var ritari á
ríkisstjórnarfundinum. Ljósm 01KM
r
Ayatollah um byltingarverði í Iran:
Nauðsynlegt að hreins-
að verði til hið bráðasta
Teheran. París. 9. okt. Reuter. AP.
ÍSLAMSKIR byltingarverðir í
borginni Tabriz í Norðvestur-
tran hafa hegðað sér ámóta
þokkalega og hin illræmda leyni-
þjónusta keisarans, SAVAK,
sagði ayatollah Tabatabai.
trúarleiðtogi borgarinnar, í við-
tali i dag. Hann sagði að hylt-
ingarverðirnir hlýddu engu og
gerðu það sem þeim byði við að
horfa. Ayatollahann greindi ekki
frá því hvort byltingarverðir
myndu leiddir fyrir rétt, en hann
Carter á blaðamannafundi:
Mesta ógnunin er verðbólgan
Washington. 9. okt. AP. Reuter.
JIMMY Carter forseti Bandaríkj-
anna sagði á blaðamannafundi í
kvöid, að hann ætlaði að fylgja
harðskeyttri stefnu i fjármálum
til að berjast gegn verðbólgu í
Bandaríkjunum, jafnvel þótt það
kynni að skaða hann pólitiskt.
Ilann sagði, að ekki væri vafi í
huga sinum um að verðbólgan
væri mestaógnunin við bandariskt
efnahagslif og því væri brýnast
að bcrjast við hana. Hann sagði
ennfremur það trú sina, að SALT
Il-samningurinn myndi verða
staðfestur á þessu ári i öldunga-
deildinni og að hann liti svo á, að
ógnunin, sem hefði staðið af veru
sovézkra hermanna á Kúbu hefði
verið einangruð og þar með gerð
hættulaus.
Carter hélt uppi mjög eindreg-
inni vörn fyrir SALT II, taldi kosti
hans ótvíræða. Hann sagði að leysa
yrði nokkur vandamál í því sam-
bandi, en ýmsir þingmenn hafa sett
Bandaríkin hétu að
flytja her til Evrópu
— frá Asíu og Kyrrahafi ef til innrásar Rússa kæmi
New York, 9. október. AP.
BANDARÍKIN hafa í 25 ár skuldbundið sig til að flytja herafla sinn frá Asíu og Kyrrahafi til
Evrópu ef til innrásar Sovétríkjanna í V-Evrópu kæmi. Þetta kom fram í skýrslu sem
varnarmálaráðuneytið í Washington hefur unnið fyrir Ilarold Brown varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna og var skýrt fraíþessu í bandaríska stórblaðinu New York Times í dag.
I skýrslu varnarmálaráðu- varnarsamstarf okkar við Japan varnarmálaráðherra, heldur
ef opinber yrði“. Samkomulag
Bandaríkjanna og annarra ríkja
V-Evrópu var samþykkt af öllum
ríkisstjórnum innan NATO á
sínum tíma. Harold Brown,
neytisins segir, að þessi skuld-
binding hafi haft jákvæð áhrif á
ríki V-Evrópu en „gæti grafið
undan áliti og áreiðanleika okk-
ar í Asíu og orðið hnekkir fyrir
síðar í þessum mánuði til Japans
þar sem hann mun ræða varnar-
samstarf Bandaríkjanna og Jap-
ans.
þau skilyrði fyrir samþykkt samn-
ingsins, að meira fé yrði þá varið
til varnarmála.
Um önnur mál sem rædd voru á
blaðamannafundinum sagði Carter
að heimsókn páfa hefði haft mikil
áhrif á bandarísku þjóðina og
heimsókn hans hefði verið einhver
hin stórkostlegasta í sögu Banda-
ríkjanna.
Varðandi stjórnmál sagði Carter
aðspurður, að hann hefði ekki átt
við Chappaquidickslysið sem
Edward Kennedy lenti í fyrir tíu
árum, þegar hann lét hafa eftir sér
fyrir nokkru, að hann sjálfur
„brysti ekki á örlagastundum".
Carter sagðist alls ekki hafa verið
með þann atburð í huga og hann
hefði engan hug á að fjalla um hann
frekar nú. Hann neitaði að svara
nokkru um það hvort hann væri
fáanlegur til að taka þátt í kapp-
ræðu af einhverju tagi við Kennedy
eða aðra sem sæktust eftir útnefn-
ingu flokksins. Kvaðst hann hugsa
gott til kosningabaráttunnar og
væri fullur sjálfstrausts og
baráttugleði. Carter sagði aðspurð-
ur, að hann hefði ekki minnstu
ástæðu til að sækjast eftir að
annar yrði varaforsetaefni sitt en
Mondale, enda hefði samvinna
þeirra verið hin ágætasta.
gagnrýndi einnig mjög harðlega
allt starí byltingarnefndanna á
sínu yfirráðasvæði og sagði að
nauðsynlegt væri að þar yrði
hreinsað til hið bráðasta.
Einnig hefur iðja byltingarvarð-
anna sætt gagnrýni í bænum
Arak, þar sem þeir tóku meðal
annars lögreglustöðina á sitt vald,
trufluðu störf bænda og höfðu
uppi hvers kyns ofbeldi að sögn
Reuterfréttastofunnar.
Gagnrýni ayatollah Tabatabai
þykir tíðindum sæta því að hann
er sérlegur fulltrúi Khomeinis í
Tabriz, þriðju stærstu borg lands-
ins.
Þá sagði í fréttum frá íran í
dag, að þar væri farinn að verða
tilfinnanlegur skortur á ýmsum
matvælum, svo sem eggjum, sykri,
hrísgrjónum og hveiti og ýmsum
hreinlætisvörum. Viðskiptaráð-
herra landsins, Reza Sadr, sagði í
viðtali við íranska útvarpið, að
gera yrði tafarlausar ráðstafanir
til að fá varning keyptan erlendis.
Hækka
olíuverð
Kuwait. Mexico. 9. okt. AP.
KUWAIT hækkaði í dag verð á
olíu um tíu prósent og kom
mörgum á óvart, þar sem Kuwait
hefur verið meðal þeirra ríkja,
sem sýnt hafa töluverða hófsemi í
olíuverðsmálum. Hækkaði Ku-
wait-tunna af olíu í 21,43 dollara
úr 19,49 dollurum. Kuwait fram-
leiðir um það bil tvær milijónir
tunna af olíu á dag. Nýja verðið er
engu að síður undir þaki því sem
OPEC setti á olíuverðið.