Morgunblaðið - 09.11.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1979
7
Ráöherrann
féll —
Verkalýösfor-
inginn féll
Prófkjörsniöurstaöa Al-
þýðuflokksins í Norður-
landskjördaemi eystra
hefur skapaö honum
tröllvaxin vandamál.
Bragi Sigurjónsson land-
búnaöarráðherra, sem
skipaöi efsta sæti fram-
boðslista flokksins í
síðustu kosningum, féll
úr fyrsta sæti framboðs-
Bragi SigurjAnsson.
lista flokksins í síðustu
kosningum, féll úr fyrsta
sæti — og út af listanum.
Jón Helgason, formaöur
Verkalýösfélagsins Ein-
ingar, en félagssvið þess
nær um allan Eyjafjörð,
var í kjöri til 2. sætis, en
féll — út af listanum.
Tveir sunnanmenn
skipa því efstu sætin nú:
Árni Gunnarsson, sem
Bragi kippti með sér inn
á þing vorið 1978, og Jón
Ármann Héðinsson,
fyrrverandi þingmaður úr
Reykjanesi, er ekki hlaut
náð hjá flokksbræðrum
sínum þar, er framboð
var ráöiö 1978. Heima-
mennirnir féllu, bæði ráð-
herrann og verkalýðsfor-
inginn. Hefur þessi niður-
staða skapað verulega
ólgu meðal stuðnings-
manna Alþýðuflokksins í
kjördæminu og einsýnt
þykir, að framboöslistinn
hafi verulega minna að-
dráttarafl en ella.
Neita aö taka
heiðurssætin
Er kjördæmisráð Al-
Jón Helgason.
þýðuflokksins lagði loka-
hönd á listagerð sína
voru þeim Braga Sigur-
jónssyni og Jóni Helga-
syni boöin svokölluð
heiðurssæti á listanum.
Venja er hjá stjórnmála-
ftokkum, er forystumenn
hverfa úr líklegum þing-
mannssætum á fram-
boðslistum, í sátt og
samlyndi, að þeir skipi
neðstu sæti þeirra sem
heiðursfulltrúar, fram-
boöinu til halds og
trausts. En báðir höfnuðu
boðinu. Ráðherrann og
verkalýösforinginn veröa
því ekki á framboðslista
flokksins.
Þessi neitun opinberar,
svo að ekki verður um
villst, að umtalsverður
klofningur er kominn upp
í röðum krata á Norður-
landi eystra.
Helgi og
Stefán
Þegar Björn Jónsson,
forseti ASÍ, yfirgaf Al-
Ámi Gunnarsson.
þýðubandalagiö á sinni
tíð, var staöa þess á
Norðurlandi eystra lakleg
um sinn. i þeirri lægð var
Stefán fréttamaður
Jónsson nýttur sem blóm
í hnappagat framboða
flokksins. Nú hefur Al-
þýðubandalagið nyrðra
náð hluta af vopnum
sínum á ný, en lánsblóm-
ið er fölnað. Helgi Guð-
mundsson, trésmiður á
Akureyri, harðlínumaður,
og skoðanabræður hans,
eru ekki sáttir viö þjóö-
ernisrómantík frétta-
mannsins, og vilja
„ómengaða“ alræðis-
hyggju. Þykjast þeir af
Stefáni bera, bæöi sem
heimamenn og marxist-
ar, og vilja þakka honum
pólitíska gistiheimsókn
og fylgja honum út á
tröppur. Þetta tókst þeim
hérumbil en ekki að fullu.
Þótt fréttamaður teljist
enn í forystu framboðs-
ins á Norðurlandi eystra,
er liðið súrt að baki hans.
Og ber er hver aö baki
nema sér bróður eigi.
Jón Ármann Héóinsson.
Hespulopi
í nýjum og fallegum litum
Nú bjóðum við hespulopann í 39
litum.
Yfir 100 mismunandi uppskriftir fá-
anlegar í versluninni og þar við má
að sjálfsögðu bæta eigin hugmynd-
um og sköpunargáfu.
Leitaðu óhikað hollra ráða -
Við munum gera okkar allra besta.
Vió minnum á verólaunasamkeppnina
Verólaun aó verómæti kr. 500.000
ék ^lafossbúöin
VE STURGOTU 2 - SIMI 13404
húsgögn
í barna- og
unglingaherbergi
Opiö til 8 föstudag
og laugardag
9—12.
Vörumarkaðuripn hf„
IÁrmúid 1A — Húsgagna- og heimilisd.
S: 86112.
oufhs
Gallabuxur
Verö: 13.200
Flauelsbuxur
Verö: 13.500
6 litir.
sími: 27211
Austurstræti 10