Morgunblaðið - 22.12.1979, Page 14

Morgunblaðið - 22.12.1979, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 Landið var vanrækt, en býður upp á næg tækifæri í RAUN og veru gerði ég mér litla grein fyrir út í hvað ég var að fara, en okkur líkar vel í Malawi og verðum þar að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Það er skipaskoð- unarstjórinn í Malawi, sem mælir þessi orð. Sá er ekki svartur í húð og hár eins og flestir inn- fæddir, heldur þéttvax- inn íslendingur, Ólafur G. Oddsson úr Reykjavík, sem m.a. kenndi við Vél- skólann á ísafirði, áður en hann lagði í langferð suður á bóginn, ásamt fjölskyldu sinni, fyrir um fiórum árum. Hér er Olafur nú í jólaleyfi ásamt konu sinni og tveimur börnum. Það er ekki ofsögum sagt af útþrá íslendinga og á líklegum sem ólíkleg- ,um stöðum er að finna íslendinga, sem margir hafa lagt land undir fót af ævintýraþránni einni saman og ferðast landa á milli til að kynnast nýju fólki og siðum þeirra í áður ókunnum löndum. Annars eru ástæður þess að landinn leggst í ferðalög margar og mis- jafnar, en það verður stöð- ugt algengara að hólm- inn í norðri er kvaddur og íslendingar ferðast til f jarlægra landa til að miðla vanþróuðum af þekkingu sinni og reynslu. Þannig er þessu farið með Ólaf G. Oddsson, en hann er bæði mennt- aður vélstjóri og skipa- tæknifræðingur. Ég er í Malawi á vegum danska ríkisins eða Danida, sem er sú stofnun í Danmörku, sem hefur með þróunarhjálp að gera, segir Ólafur. — Upphafið að þessu var auglýsing í tækniblaði, sem vakti áhuga minn. Bróðir minn, Þórður Oddsson, var þá erlendis í nokkuð svipuðu, en hann er skipstjóri. Á sínum tíma byggði Bátalón í Hafnarfirði tvo báta fyrir Ind- verja og fór hann með öðrum bátnum. Óneitanlega hafði hann sín áhrif á, að ég ákvað að slá til. Hann er búinn að vera úti um hvippinn og hvappinn síðan og er núna í Indlandi á vegum Danida að kenna innfæddum að fiska. Hann er tiltölulega nýbyrjaður og ég hef lítið frétt frá honum að undanförnu. — Starf mitt er mjög fjölþætt, en fyrst og fremst fólgið í því, að fylgjast með að allur skipakostur- inn sé í sjófæru ástandi og því fylgir skráning á öllum skipum og bátum. Fleyturnar eru margar og eftir því misjafnar. Stærsta skipið er’farþegaskip, sem hefur áætlun- Ólafur G. Oddsson ásamt Ragnhildi konu sinni og Arndísi dóttur þeirra. Jóhann sonur þeirra var cnn í Maiawi þegar þetta var skrifað, en væntanlegur heim í jólaleyfi úr skólanum. Ekki sagðist ólafur tala mikið í Chichewa, sem er helzta málýska innfæddra, en ságði hins vegar, að bornin kynnu talsvert fyrir sér í þessu framandi máli. (Ljósm. RAX) Rætt við Ólaf G. Oddsson skipa- skoðunar- stjóra í Malawi í Mið-Afríku arferðir á vatninu og það getur flutt um 450 farþega, en er þó ekki nema um 620 rúmlestir. Stærsti fiskibáturinn er um 25 tonn, en þarna er mikið af smáskeljum og allt þetta minna eru trébátar, t.d. margir eintjáningar, en stærri bátarnir eru úr stáli. — Töluvert hefur verið gert í því að byggja upp bátaflotann og fiskveiðar í Malawi á undanförn- um árum. Á vegum Sameinuðu þjóðanna var sett upp bátasmíða- stöð í landinu og þeir hafa verið að smíða smátogara ef við getum kallað þá því nafni, en þetta eru bátar, sem eru innan við 10 metrar á lengd. Yfirleitt er notuð botnvarpa við veiðarnar, meira að segja á smátrillum, en að sjálf- sögðu er stærð varpanna í hlut- falli við stærð bátanna. Árstíðirnar and- stætt því sem er hér á landi Þegar hér er komið í spjallinu við Ólaf finnst okkur tímabært að rifja upp ýmislegt í landafræði og sögu Malawi. Malawi hét áður Nyasaland og er um 95 þúsund ferkílómetrar að flatarmáli, að frátöldum vöthum, sem eru sam- tals 17 þúsund ferkílómetrar. Af vötnunum er Lake Malawi, eða Lake Nyasa eins og sumir kalla það ennþá, langstærst. Það er um 550 kílómetrar að lengd og 50— 100 km á breidd. Til viðmiðunar má benda á að lengd vatnsins er svipuð og vegalengdin frá Reykjavík norður á Langanes. Landið er álíka stórt og Island, en það er tiltölulega slétt. Mestur hluti þess er í um þúsund metra hæð yfir sjávarmáli. Loftslag þyk- ir þægilegt og þar sem landið er sunnan við miðbaug eru árstíðirn- ar andstætt því sem er hér á landi. Rigningatíminn er frá þvi í nóv- ember og fram í miðjan apríl. Á þessum tíma er þó ekki stöðug rigning, heldur koma annað slagið hressilegar dembur. í aprílmánuði fer yfirleitt að kólna í veðri og finnst heimamönnum oft ansi napurt í maí og júní og þá kemur fyrir að verði næturfrost, en þó sjaldan. Upp úr júlí fer aftur að hlýna og er heitast í veðri í október og nóvember. Hitastig er að meðaltali 25—28 gráður yfir árið, en það segir þó ekki allt, því taka verður tillit til rakans. Heimamönnum finnst kalt ef hiti fer niður fyrir 18 gráður. Tals- verður munur er á veðurfari nyrzt í landinu og syðst. Næstu ná- grannar Malawi eru Mosambique og Tanzanía, sem einnig eiga lönd að vatninu, og svo Zambía að vestanverðu. Malawi var áður nýlenda Breta, en hafði sjálfstjórn í mörg ár áður en landið hlaut sjálfstæði 1964. Helzti baráttumaður fyrir sjálf- stæði Malawi var dr. Hastings Banda, sem þá var starfandi læknir í Bretlandi. Að mestu fyrir hans atorku var Mið-Afríku- sambandinu, sambandsríki Ród- esíu og Malawi, slitið árið 1963, en það hafði verið stofnað 1953. Zimbabve hafði fjármagnið í þessu sambandsríki, Zambía var auðug af málmum, en Malawi eða Nyasaland hafði vinnuaflið. Dr. Banda sneri til heimalands sína 6. júlí 1958 eftir margra ára veru erlendis, við nám í Banda- ríkjunum og Skotlandi og sem starfandi læknir í Lundúnum. Þúsundir manna tóku á móti honum á flugvellinum, hann var leiðtoginn, sem þjóðin þarfnaðist. Hvar sem hann fór fögnuðu hon- um þúsundir, en Bretum þótti nóg um þessi fagnaðarlæti og áhrif þessa eina manns og hnepptu hann í fangelsi í rúmt ár. Malawi fékk síðan sjálfstæði 1964 og að sjálfsögðu varð dr. Banda fyrsti forseti landsins eftir að lýðveldi var stofnað 1966. Árið 1970 var hann valinn forseti til eilífðar og er hans titill nú þessi: „Sigurveg- arinn, lífstíðarforsetinn, hans há- tign dr. H. Kamuzu Banda." ólafur kaupir fisk í soðid af innfæddum. Arndis litla heldur við eintrjánunginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.