Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIDfiAUGARBAGUR 22, DESEMBER 1979 21 i okkar vegum, er framleitt og unnið hjá okkur, í stúdíói hér í Osló. Auk þessa höfum við síðar bætt við okkur dagskrárgerð á öðrum málum og sendum m.a. dagskrá til Austur-Evrópulanda, sendum til Japans og Taiwan og fleiri landa gegnum stöðvar í þeim löndum eða nálægum löndum, en í dag eru unnar dagskrár á okkar vegum á 20 tungumálum. Þá er nýlega byrjað að senda út sér- staka dagskrá fyrir unglinga í Noregi gegnum Radio Luxemborg daglega kl. 19:45 til 20. Við höfum vissu fyrir því að ná til margra gegnum þetta útvarpskristniboð eins og við nefnum það, en það hefur sitt sérstaka nafn, Norea Radio. Er reyndar gefið út lítið blað með sama nafni er greinir frá því helsta sem er að gerast í þessum málum og er sent til velunnara okkar. — Hvernig náið þið til hlust- enda, hafið þið hugmynd um hversu margir hlusta á þessar útsendingar? — Við fáum á hverju ári fjöl- mörg bréf frá hlustendum og gerum okkur líka far um að svara þeim, því oft bera þeir fram ýmsar spurningar tengdar efni sem hefur verið flutt, þeir vilja fá svar við vandamálum í trúarlífinu, vilja vita meira um kristindóminn, spyrjast fyrir um kristniboðsstarf og yfirleitt hvað eina, sem drepið hefur verið á í þáttunum. Þá má nefna að samtals fær Trans World Radio útvarpið um hálfa milljón hlustendabréfa á ári, en stöðvar þess eru nú m.a. í Suður-Ameríku, Sri Lanka, Asíu og víðar, en stöðin í Monte Carlo nær til landa í Afríku og Austur-Evrópu. Hefur þessi stöð verið starfrækt í 25 ár. Norea Radio fær árlega 2—4 þúsund bréf frá hlustendum og alls er talið að nú séu starfræktar í heiminum 65 útvarpsstöðvar er eingöngu hafa kristilegt efni á dagskrá sinni, auk þeirra er fá inni með dagskrár hjá hinum og þessum útvarpsstöðvum víða um heim. Kristilegar útvarpsstöðvar ná einnig til þeirra landa er útiloka kristniboðsstarf, en nú eru það talin kringum 44 lönd með alls 1,7 milljörðum íbúa. Meðal annars fyrir þær sakir er oftast talað um útvarpskristniboð í þessu sam- hengi. — Reynt er að vinna allt dagskrárefni þannig að menn frá þeim löndum er senda á til hafi alla umsjón með því, þeir vita best hvað landar þeirra vilja heyra og hvers konar efni myndi best henta og erum við því með í okkar þjónustu menn víða að úr heimin- um. Auk þessa starfs reynum við að kaupa sendingartíma hjá öðr- um útvarpsstöðvum og ná þannig til enn fleiri og oft eru yfirvöld líka þakklát fyrir að við viljum koma kristilegum boðskap á fram- færi. — Enn er ónefnd ein leið, sem NLM notar til að koma boðskap kristninnar á framfæri en það eru hljómplötur og snældur. Heitir fyrirtækið er annast þá hlið Lynor og hefur farið vaxandi ár frá ári og kvað Asbjörn þessa leið ekki þá þýðingarminnstu, á þeim vett- vangi væri hægt að ná til manna langt út yfir það sem predikun, bók eða blað nær. — í sumar var ákveðið að koma upp sérstökum fjölmiðlaskóla á vegum NLM og verður hann í Kristiansand, stað er nefnist Gimlekollen. Mun Asbjörn Kval- Norea Radio framleiðir kristilegar dagskrár til sendingar í útvarp viða um heim. Sýnishorn af tímaritunum sem norska kristniboðssambandið gefur út. bein veita honum forstöðu en þar verður unnt að fá menntun í hvers kyns fjölmiðlun, blaðamennsku, þáttagerð fyrir útvarp og sjón- varp. Verður um að ræða eins vetrar námskeið og eru þau m.a. ætluð þeim er starfa vilja fyrir NLM að fjölmiðlun og öllum þeim er kynnast vilja þessum störfum og búa sig undir það að takast þau á hendur. — Byggingarframkvæmdir hefjast eftir áramót og verður rúm fyrir 50 nemendur og auk þess að hýsa skólann um Gimle- kollen hafa að geyma alla starf- semi NLM að útvarps- og upp- tökumálum, m.a. plötur o.fl. Verð- ur sú starfsemi þá komin á einn stað og gefur nemendum skólans um leið tækifæri til verklegra æfinga. — Skóli þessi hefur verið viður- kenndur af norska ríkinu og starfa við hann 5 fastir kennarar í fullu starfi auk skólastjóra, en starfs- menn Norea og Lynor koma einnig við sögu og taka að sér ákveðna þætti í verklegri kennslu. — Við erum kristniboðar og viljum færa fagnaðarerindi Biblí- unnar út til fólksins hvort heldur það er í Noregi eða öðrum löndum og þess vegna leggjum við áherslu á að fara þær leiðir er við náum til fólksins með. NLM rekur skóla fyrir kristniboða, biblíuskóla víða um landið fyrir þá sem vilja kynnast efni Biblíunnar, barna- heimili þar sem kristileg uppeld- isáhrif sitja í fyrirrúmi og þannig mætti lengi telja. Fjölmiðlun hvers konar fer vaxandi í nútíma- þjóðfélagi og við teljum nauðsyn- legt að kristileg viðhorf komist að hvar sem er í fjölmiðlum og nái til fólksins. j Bókmenntlr eftir SIGURÐ HAUK GUÐJÓNSSON Náttpabbi Náttpabbi Höfundur: Maria Gripe Myndskreyting: Hrald Gripe Þýðing: Vilborg Dagbjarts- dóttir Setning og prentun: Guðjón ó hf. Skreyting og filmuvinna: Prentþjónustan hf. Bókband: Bókfell hf. Útgefandi: Mál og menning ÞETTA er saga um unga telpu, Júlíu, föðurleysingja, og ungan mann, sem ráðinn er t.þ.a. gæta hennar um nætur, meðan móðirin er bundin við verk. Höfundur lýsir skiptum þeirra, hvernig telpan reynir að fylla tóm tilfinninga sinna, draga til sín drauminn um föður, og klæða vaktmanninn í hann. Ungi maðurinn er að efna til bókar, taldi þvflétt verk að gæta sofandi barns, en hug- myndaflug telpunnar veitir honum nýja lífssýn, nýjan skilning. Um sviðið svífur Smugla, ugla, sem, eins og náttpabbinn, sefur um daga en vakir um nætur. Eg hefi á tilfinningunni að frúin, höfundurinn, hafi viljað gera gott verk, hafi lagt sig alla fram, en samt vantar þetta sem breytir þokkalegu efni í góða sögu. Neistann vantar. Teikningar eru góðar, sumar bráð skemmtilegar. Þýðing Vilborgar er góð og frágangur prentiðnaðarins einnig. Jihi i^Bl iféwJ; SAMBYGGT STERÍÓSETT Verð sem þu trúir ekki am m f Strax eftir jól trúir þú því ekki aö hafa fengiö hljómtæki meö Rlík tonnnaRÖi fvrir «?vnn?i lítiö \/P>rö SHARP SG320 KR. 327.000.- aö hafa fengið hljómtæki meö slík toppgæöi fyrir svona lítiö verö SHARP SG330 KR. 395.000.- SG-320 SAMBYGGT STERIÓSETT TÆKNtLEGAR UPPLYSINGAR: MAGNARAR: 2 ■ 15 WÖTT R M S ÚTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR. FM, FM STERIO, LW, MW, SW PLÖTUSPILARI: HÁLFSJALFVIRKUR, S-ARMUR. SEGULBAND. MEÐ ^ AP8S SJALFLBITARA HÁTALARAR: 2 STK. 40 WÖTT, R.M.S. 40 OHM. SG-330 SAMBYGGT STERIÓSETT TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR MAGNARAR 2 • 20 WÖTT R M S. UTVARP 4 UTVARPSBYLGJUR. FM, FM STERIO, LW. MW. SW PLÖTUSPILARI: HÁLFSJÁLFVIRKUR S-ARMUR. SEGULBAND MEÐ ÁÞgS SJALFLEITARA HÁTALARAR. 2 STK. 40 WÖTT R.M.S. 4 OHM. _ MAGNETÍSKT PICK UP. _ _ Bestu kaupin nvemig sem a er litið! HLJÓMDEILD ULii) KARNABÆR Laugavegi 66, 1. hæð. Sími frá skiptiborði 85055

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.