Morgunblaðið - 22.12.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
31
Nýr her heíur verið stofnaður í Libanaon, skipaður bæði kristnum
mönnum og múhameðstrúar. Ef til vill er það skref í átt til
sameiningar þjóðarinnar að nýju. Þessi nýi her tók þátt í
hátiðahöldunum á þjóðhátiðardaginn 22. nóv.
I fyrsta sinn
í fimm ár
í fyrsta skipti í fimm ár var
þjóðhátiðardagur Libana hald-
inn hátiðlegur þann 22. nóvemb-
er síðast liðinn. En nú var hann
haldinn á öðrum stað en vanal-
ega. Á stað sem enginn hafði
vogað sér að stíga fæti áður fyrr.
Það var fyrir framan safnið
„BARBEER", þar sem aldrei
hafði verið lát á eldflaugum og
sprengjum í fimm ár. Staðurinn
var landamæri kristinna og
múhameðstrúarmanna í miðborg
höfuðborgarinnar, Beirut.
Þjóðhátíðardagurinn var stór-
fenglegur, allur herinn var sam-
ankominn, fólk af öllum trúar-
brögðum, stjórnmálamenn og
skátar. Líbanska varnarliðið og
„United Arab Forces" gættu stað-
arins vandlega, því þetta var
langhættulegasti staðurinn í sögu
stríðsins. Forseti landsins var
mættur með herliði sínu og þing-
menn og ráðherrar fjölmenntu.
Eftir einnar mínútu þögn hélt
forsetinn mikla ræðu, þar sem
hann reyndi að koma á sáttum
milli trúarhópanna og fylla hjörtu
þeirra friði. Síðan lagði forsætis-
ráðherrann blómsveig á styttu
óþekkta hermannsins.
Þennan dag fékk forsetinn
heillaskeyti frá leiðtogum margra
þjóða. Þar á meðal frá páfanum í
Róm, Jimmy Carter, Leonid
Brezhnew og Gishard d’Estaing.
— Páfinn óskaði eftir sameiningu
þjóðarinnar og var áhyggjufullur
útaf öryggi landsins. Carter lagði
hornsteininn að vinfengi Banda-
ríkjanna og Líbanons og sagði að
Bandaríkin stæðu við hlið þjóðar-
innar með öllum sínum mætti og
veldi. Brezhnev sagðist einnig
standa við hlið Líbanon af öllum
mætti ef beðið yrði um hjálp. En
Gishard d’Estaing sagði, að
franska þjóðin stæði með Líbön-
um og myndi veita alla þá hjálp
sem í þeirra valdi stæði til að
friður kæmist á í landinu.
Robert Mazmanian.
Rakarastofan Fígaró hefur fyrir nokkru flutt sig um set í Reykjavík.
Er hún nú til húsa að Laugavegi 51 og hefur verið tekið í notkun
rúmgott pláss fyrir stólana, en þeir eru alls 12. Eru þeir á efri hæðinni
á 260 fermetra svæði en niðri eru seldar snyrtivörur á um 50 fermetra
svæði. Gunnar Guðjónsson eigandi Fígaró kvað húsnæðið mjög
rúmgott og þægilega aðstöðu fyrir viðskiptavini meðan þeir biða, en
þeir geta einnig pantað tíma og sagði hann það vel liðið af
viðskiptavinum. Tólf hárskerar starfa hjá Fígaró og kvað Gunnar
miklar annir hafa verið nú siðustu dagana fyrir jólin.
hafa
heimsótt
jólamagasí
frá opnun m.
DAGSKRÁ SKEMMTIPALLS
í DAG ER:
★ Baldur Brjánsson töframaöur kl. 4, 6 og 9.
★ Jólasveinar koma í heimsókn 4.30 og 6.30.
★ Jónas Þórir leikur jólalög frá kl. 4—8.
★ Heimilistæki h.f. býöur upp á safaríkar steikur af nýja
teinagrillinu sem er til sölu á sérstöku kynningarverði.
★ Brunaveröir sýna meöferð slökkvitækja.
30
500
VERSLANIR MEÐ GOÐAR
JÓLAVÖRUR BJÓÐA
YKKUR VELKOMIN.
BILASTÆÐI.
Syningahöllinni.
Bíldshöfða 20, Sími 81410.