Morgunblaðið - 22.12.1979, Qupperneq 48
f2
til jóla
<£uU& jÉ>ílfur,
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979
Sími á afgreiöslu:
83033
JH*T0iinbInfcib
Ástandið betra en
ætlað hafði verið
Hafrannsóknastofnunin leggur til að þorskafli
fari ekki yfir 300 þúsund tonn á næsta ári
Hafrannsóknastofnunin
hefur mælt með því, að
þorskafli fari ekki yfir 300
þúsund tonn á næsta ári,
en þessar upplýsingar
komu fram á fundi sjávar-
útvegsráðherra með hags-
munaaðilum í sjávarút-
vegi í gærmorgun. Fiski-
fræðingar lögðu til að á
þessu ári færi þorskafli
ekki yfir 250 þúsund lest-
ir, en ljóst er að hann
verður 80—90 þúsund lest-
um meiri. I tillögum, sem
komu frá Hafrannsókna-
stofnun í byrjun þessa árs,
var ennfremur lagt til, að
þorskafli færi ekki yfir
270 þúsund lestir á næsta
ári, en nú hafa þær tillög-
ur verið hækkaðar í 300
þúsund lestir.
— Þetta er gleðileg frétt
og greinilegt að ástandið er
betra, en fiskifræðingar
höfðu ætlað, sagði Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ
í samtali við Mbl. í gær. —
Samkvæmt upplýsingdm
sem ég hef fengið byggjast
þessar tillögur fyrst og
fremst á því að árgangarn-
ir frá 1973 og 1976 eru enn
sterkari en ætlað var. Ar-
gangurinn frá 1974 er að
vísu lélegri en ætlað var, en
’73 árgangurinn kemur inn
í hrygningarstofninn í vet-
ur og hann verður því
uppistaðan í aflanum
næstu tvær vertíðar, sagði
Kristján.
Á fundi hagsmunaaðila,
fulltrúum Hafrannsókna-
stofnunar og sjávarútvegs-
ráðherra í gær var fjallað
um valkosti í þorskveiðum
á næsta ári.
Á litlu jólunum í Hólabrekkuskóla.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Steingrímur skilaði stjórnarmyndunarumboðinu aftur:
Ákvörðunin mun
ekki dragast lengi
— segir forseti Islands herra Kristján Eldjárn um
fyrirætlanir sínar i stjórnarmyndunarmálinu
„MÉR ER það auðvitað
kappsmál, að þetta geti
gengið og ekki standi á
mér, en hins vegar er ég
ekki reiðubúinn að svo
stöddu að segja hvenær
þetta, verður,“ sagði for-
seti íslands, herra Krist-
ján Eldjárn, í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi,
er Morgunblaðið spurðist
fyrir um fyrirætlanir hans
í stjórnarmyndunarmál-
inu, hverjum hann myndi
fela umboð til stjórnar-
myndunar. „Þetta er ekki
stórt atriði, þar sem jólin
eru nú alveg að koma, og
þingmennirnir komnir um
land allt. En samt sem
áður mun þetta ekki drag-
ast lengi.“
Geirfinnsmálið:
Opinber rannsókn á
gerð leirmyndarinnar
RANNSÓKN fer nú fram á
tilurð og gerð leirmyndarinnar
margfrægu í Geirfinnsmálinu.
Leirmynd þessi var gerð í upp-
hafi rannsóknarinnar á hvarfi
Geirfinns Einarssonar í nóv-
ember 1974 og var höfundur
hennar kona í Keflavík. Það
kom fram hjá rannsóknaraðil-
um á sínum tíma að myndin
væri gerð eftir lýsingu af-
greiðslustúlkna í Hafnarbúð-
inni á bílstjóranum, sem þang-
að kom og hringdi kvöldið sem
Geirfinnur hvarf en þessa
manns var ákaft leitað i upp-
hafi rannsóknarinnar.
Leirmyndin þótti í upphafi
líkjast mjög einum þeirra fjög-
urra manna, sem seinna voru
handteknir og úrskurðaðir í
gæzluvarðhald í Geirfinnsmál-
inu, Magnúsi Leopoldssyni, en
eins og alþjóð veit kom síðar í
ljós að fjórmenningarnir voru á
Leirmyndin, sem gerð var í
upphafi rannsóknarinnar og
kölluð var „Leirfinnur“ í dag-
legu tali fólks.
engan hátt við málið riðnir. Eiga
fjórmenningarnir nú í málaferl-
um við ríkissjóð vegna gæzlu-
varðhalds að ósekju eins og fram
hefur komið.
Hafsteinn Baldvinsson hrl.,
lögmaður Magnúsar, fór þess á
leit við Þórð Björnsson ríkis-
saksóknara í haust að fram færi
rannsókn á tilurð og gerð leir-
myndarinnar og eftir fyrirsögn
hverra hún var gerð. Saksóknari
varð við þessari ósk lögmannsins
og mælti fyrir um rannsóknina.
Eftir því sem Morgunblaðið hef-
ur komizt næst er rannsókninni
m.a. ætlað að leiða fram hvort
einhver hefur hugsanlega haft
þau áhrif á gerð myndarinnar að
hún líktist ákveðnum manni.
Rannsóknarlögregla ríkisins
annast rannsóknina og stjórnar
Þórir Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóri henni. Þórir vildi
sem minnst um málið segja í
gær. Nokkrir aðilar málsins
hefðu verið yfirheyrðir en hann
vildi ekkert segja um það hvort
einhverjar nýjar upplýsingar
hefðu komið fram í málinu.
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
gekk á fund forseta íslands í
gærmorgun og skilaði því umboði,
sem hann fékk 5. desember síðast-
liðinn til myndunar meirihluta-
stjórnar. í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagði Steingrímur, að
hann hefði, á fimmtudagskvöld að
loknum viðræðum við forystu-
menn hinna vinstri flokkanna sitt
í hvoru lagi, komizt að þeirri
niðurstöðu, að ekki væri að svo
stöddu grundvöllur fyrir myndun
vinstri stjórnar. Steingrímur úti-
lokaði þó ekki slíkt stjórnarsam-
starf á síðari stigum. Síðasti
fundur vinstri flokkanna hófst í
Þórshamri klukkan 09 í gærmorg-
un og tilkynnti Steingrímur full-
trúum hinna flokkanna þar
ákvörðun sína.
Gert er ráð fyrir, að ákvörðun
forseta íslands falli á þá leið að
fela Geir Hallgrímssyni umboð til
myndunar meirihlutastjórnar.
Morgunblaðið spurði Geir Hall-
grímsson að því í gærkveldi,
hvernig hann myndi haga málum,
er umboðið væri komið í hans
hendur. Kvaðst Geir telja rétt, að
forseti íslands fengi ráðrúm til
þess að taka ákvörðun sína, áður
en menn færu að ræða nýja
stj órnarmyndunarmöguleika.
Sjá frásögn af blaðamanna-
fundi Steingríms Hermannsson-
ar á bls. 22 og samtöl við
Benedikt Gröndal, Lúðvik
Jósepsson og Geir Ilallgrímsson
á bis. 25.
Leigubíl-
ar hækka
RÍKISSTJÓRNIN hefur
heimilað 9% hækkun á töxt-
um leigubíia og tók hækkun-
in gildi í gær. Þá hækkar
startgjald einnig úr 1150 í
1250 krónur
Rekstur Flug-
leiða í sama stíl
Hugsanlega aukinn samdráttur
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Sigurð Helgason
forstjóra Flugleiða og innti hann
frétta af rekstri flugfélagsins, en
málið var m.a. rætt á stjórnar-
fundi Flugleiða í fyrradag.
„Það var rætt almennt um
stöðuna og reksturinn á Atlants-
hafi,“ sagði Sigurður, „en engar
nýjar ákvarðanir teknar í málinu.
Staðan var metin og rædd.“
„Hver er niðurstaða matsins?"
„Það er ljóst að það er við
áframhaldandi erfiðleika að glíma
í rekstrinum, en það er búið að
gera vissar ráðstafanir í sam-
drætti og aðlögunaraðgerðum og
þeim verður haldið áfram eins og
ráðgert hefur verið. Reksturinn
verður með svipuðum hætti og
verið hefur á Flugleiðum, en
hugsanlega verður eitthvað fært
saman eftir því sem ástæður
þykja."