Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980
7
Takmarkanir
efnahags-
ráögjafar
Þjóöviljinn fjallar í leið-
ara á laugardag um tak-
markanir efnahagsráö-
gjafar. Orörétt segir blaö-
ió:
„Undir þaö skal tekið
meö Morgunbtaðinu að
þaó er mjög varasamt
fyrir stjórnmálaflokka aó
afhenda sérfræðistofnun-
um úrslitamat á tillögu-
geró sinni. Þess í stað
ber að leggja áherzlu á
stjórnsýslusjónarmið og
að hlutverk stofnunar
eins og Þjóöhagsstofnun-
ar sé fyrst og fremst að
veita sem gleggstar upp-
lýsíngar um stöðu og
horfur í efnahagsmálum,
og hugsanleg áhrif tiltek-
inna stjórnvaldsgerða.
Stefnumótunin sjálf á
síöan að vera í höndum
flokkanna sjálfra ...“
„í þessu sambandi er
vert að minna á að af
hálfu ýmissa forystu-
manna Alþýðubanda-
lagsins hefur verið gagn-
rýnt hversu takmörkuö
reiknilíkön Þjóðhags-
stofnunar eru í rauninni
... í umsögnum Þjóð-
hagsstofnunar um tillög-
ur flokkanna úir og grúir
af fyrirvörum, óútreikn-
anlegum, ófyrirséðum
eða óframkomnum frá
flokkunum, þannig að í
raun eru talnadæmin
sem birt hafa veriö að
mestu út í hött og segja
lítið um hugsanlega
framvindu."
í lok leiöarans segir:
„Afskipti Þjóðhags-
stofnunar af stefnumótun
í efnahagsmálum eru sér-
stakt mál að þessu sinni
... og þeir eru margir
sem halda því fram líkt
og Morgunblaðið að hún
hafi frekar spillt fyrir eðli-
legum samskiptamögu-
leikum í stjórnarsam-
starfi, stjórnarmyndun-
arviðræðum og sam-
skiptum aðila vinnu-
markaöarins en hitt. Því
hlýtur það aö vera til
skoðunar að brjóta upp
núverandi kerfi í efna-
hagsráðgjöf, sem fyrir
utan allt annað er sundr-
aö í margar og dýrar
einingar í miklu stofn-
anabákni."
Rannsókn á
landgrunni
íslands
Eyjólfur Konráð Jóns-
son hefur borið fram
fyrirspurnir á Alþingi
varðandi framkvæmd á
ályktun, sem hann fékk
samþykkta á síðasta
þingi, um rannsókn á
landgrunni íslands o.fl.
Spurningarnar eru born-
ar fram við iðnaðarráð-
herra og hljóða svo:
• 1. Hvað hefur ríkis-
stjórnin gert til að fram-
fylgja ályktun Alþingis frá
22. desember 1978 um
rannsókn á iandgrunni
íslands?
• 2. Hvaða íslenzkir sér-
fræðingar hafa verið
ráðnir og hvað hafa þeir
gert?
• 3. Hvaða erlendir sér-
fræðingar hafa verið
ráðnir og hvað hafa þeir
gert?
• 4. Telur ríkisstjórnin
nægilega unnið að öflun
upplýsinga um land-
grunn islands og afstöðu
til landgrunns nálægra
ríkja til að íslenzkra
hagsmuna verði gætt til
hins ítrasta á Hafréttar-
ráðstefnunni eða í samn-
ingum viö önnur ríki?
Engum dylst að þær
rannsóknir, sem fram á
var farið í ályktun Alþing-
is, eru eða verða rökrétt
framhald þeirrar hags-
munatryggingar þjóðar-
heildarinnar, sem fólust í
landhelgisbaráttunni og
viðleitni til að tryggja
hámarksarö af nytjafisk-
um okkar, þ.e. veiðisókn í
samræmi við veiðiþol og
stofnstærðir. Nauðsyn-
legt er að kanna og
þekkja þá möguleika,
sem hugsanleg verðmæti
í landgrunni fela í sér,
sem við verði stuöst í
nauðsynlegri stefnu-
mörkun, m.a. á hafrétt-
arráðstefnu og í samn-
ingum við önnur ríki.
í þessu sambandi má
og minna á nauðsyn set-
lagarannsókna við island
og stefnumörkunar í olíu-
leitarmálum, sem furðu
hljótt hefur verið um,
eins og mál hafa þróazt á
olíumörkuðum síðustu
misserin.
Fróðlegt verður að
heyra svör viðkomandi
ráðherra þegar fyrir-
spurnir þessar koma til
umræðu á Alþingi, vænt-
anlega fyrr en síðar.
Eldur sem
tortímir
Magnús Kjartansson:
ELDS ER ÞÖRF
Ræður og greinar
írá 1947 til 1949.
Árni Bergmann, Einar Laxness
og óskar Halldórsson völdu efnið.
Mál og menning 1979.
í formála Elds er þörf fjallar
Árni Bergmann um efnisval bókar-
innar og segir: „Ekkert hefði verið
auðveldara en að bæta við einu
bindi eða tveim jafngildum af
greinum og ræðum þess manns
sem stýrt hefur orðsins brandi af
meiri atorku, snerpu og hugviti en
menn eiga að venjast á vettvangi
íslenskrar blaðamennsku og
stjórnmála."
Þetta eru hástemmd orð og
verða varla skoðuð öðruvísi en sem
skylduskrif. Enda kemur að því í
formálanum að Árni nefnir kvöl,
en hún er sú „að við treystum
okkur ekki til að velja af skyn-
samlegu viti úr hinum markvissu
skeytum, sem Magnús Kjartansson
sendi árum saman út í þjóðlífið
undir fyrirsögninni Frá degi til
dags“. Hér er átt við Austragrein-
ar Magnúsar sem dag hvern voru
fullar af rangfærslum, aðdróttun-
um og öfund. Árna má minna á að
Austri hefur nú eignast lærisvein
þar sem er Svarthöfði Vísis. Skrif
Svarthöfða í Tímanum voru í
fyrstu andsvör við ýmsu sem
Austri bar á torg fyrir trúgjarnan
söfnuð. En hvergi er merki lágkúru
í skoðunum haldið dyggilegar á
lofti en í þessum spegli andlegs lífs
ritstjóra Vísis. Austri og Svart-
höfði eiga það að vísu sameiginlegt
að geta orðað hugsanir sfnar lag-
lega þegar best lætur, en ekki
treysti ég mér til að kalla það
snerpu og allra síst hugvit. En
Árni Bergmann hlýtur að gleðjast
yfir framlagi lærisveins meistara
síns. Þjóðernisrómantík íslenskra
sósíalista finnum við í orðum Árna
um „þann vanda sem okkur er
stærstur: að vera íslendingur" og
þegar hann segir um framlag
Magnúsar til íslenskrar þjóðfé-
lagsumræðu: „það framlag hefur
ætíð nærst af eldi þeirra hugsjóna
sem skærast hafa ljómað á okkar
þverstæðuríku öld“. Hefur ekki
blotnað í þessu púðri?
í viðtalinu Þjóðviljinn kveðji
saman alþingi götunnar segir
Magnús hispurslaust og hrein-
skilnislega frá sjálfum sér og ferli
sínum á vettvangi blaðamennsku
og stjórnmála. Hann játar að
enginn einn maður hafi haft eins
mikil áhrif á sig og Jón Helgason
prófessor og skáld í Kaupmanna-
höfn. Magnús talar um „brennandi
metnað" Jóns „fyrir hönd íslend-
inga“. Þessi metnaður mun þó
stundum hafa birst með kynlegum
hætti því að þegar Jón las fyrir
hina ungu íslensku stúdenta valdi
hann úr bókaskáp sínum „ekki síst
dæmi um yfirborðsmennsku, hé-
gómaskap og loddaralæti sem hon-
um fannst um of einkenna íslenskt
Bðkmenntlr
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
þjóðfélag og kunni þá að ydda mál
sitt hvassar en aðrir menn sem ég
hef kynnst". Einkennilega er þetta
orðalag líkt því sem Árni Berg-
mann notar um Magnús Kjart-
ansson í fyrrgreindum formála.
Þótt auðvelt sé að vera ósam-
mála Magnúsi Kjartanssyni um
flest ber því ekki að neita að hann
er góður stílisti og honum tekst
víða að verja sinn málstað. Hann
stendur til dæmis dyggan vörð um
vinstri sinnaða listamenn og rit-
höfunda og slátrar hreinlega þeim
sem ekki hlýða dagskipunum.
Illkvittni hans í garð andstæðinga
er stundum töluverð íþrótta-
mennska. Hann vegur til dæmis
oft að pólitískum mótherjum og
getur verið meinhæðinn í þeim
deilum. Meðal þeirra sem hann var
sífellt að kljást við var Bjarni
Benediktsson. í Bjarna fann Magn-
ús verðugan fulltrúa þeirra skoð-
ana sem hann fyrirleit. En það er
einföldun pólitískrar umræðu að
birta í bók rök annars stríðsaðil-
ans en geta að engu þess sem hinn
hafði fram að færa. Áreiðanlega
hefur Magnúsi oft sviðið undan
ádrepum Bjarna. Þetta getum við
meðal annars skilið þegar lesin eru
skrif Magnúsar um Tékkóslóvakíu:
Hvað er að gerast í Tékkóslóvakíu?
Magnús heldur dauðahaldi
drukknandi manns í sinn marx-
isma enda þótt efinn um hann
skíni í gegn eftir hrakfarirnar í
Tékkóslóvakíu 1968. Bjarna varð
tíðrætt um skaðsemi kenninga
Marx og þróun mála í Austur-
Evrópu reyndist samkvæm því sem
Bjarni hélt fram, en setti einatt
Magnús og meðreiðarsveina hans í
varnarstöðu. í ræðu Magnúsar um
Tékkóslóvakíu á fundi í Tékknesk-
íslenska menningarfélaginu 10.
júní 1969 hefur Magnús í rauninni
ekkert annað að boða en aftur-
hvarf til hins útópíska sósíalisma
sem kunnur var fyrir daga Karls
Marx. í þeirri staðreynd er sárs-
auki fólginn.
Og þegar menn finna til í
stormum samtíðar sinnar og vilja
bæta þrátt fyrir þráhyggju sína á
að virða slíkt. Kannski hefur
Magnúsi aldrei heppnast betur en í
sókn sinni fyrir því að ýmsir hópar
olnbogabarna þjóðfélagsins fái að
lifa eðlilegu lífi: lamaðir og fatlað-
ir, þroskaheftir. í lok bókarinnar
vitnar hann í Stein Steinarr sem
orti um hinn einskisverða mann:
Lífið sjálft sem stendur af sér alla
veðra gný. Sú tilvitnun er valin af
smekkvísi manns sem hefði getað
orðið liðtækur bókmenntamaður.
En má minna á orð Steins Stein-
arrs í Orðsendingu til ritstjóra
Þjóðviljans sem birtist í Alþýðu-
blaðinu -2. október 1956 þegar
aðalritstjórinn „sannaði" að skáld-
ið hefði selt auðvaldinu sál sína og
sannfæringu eftir Rússlandsreis-
una frægu: „Og þykir mér sárt til
þess að vita, ef svo gáfaður og
skemmtilegur piltur sem Magnús
Kjartansson er, á ekki eftir að
skrifa öllu snöfurmannlegri
blaðagreinar í náinni framtíð".
Það er líklega kaldhæðni örlag-
anna að ekki skuli meira hafa
orðið úr gáfum þessa manns en
Elds er þörf vitnar um. Flest í
bókinni er aðeins dæmi Um póli-
tískt þraf og þverlyndi kverúlants.
Hver man þetta lengur og hver
hefur gaman af að rifja það upp?
Heimild um dapurleg kaldastríðs-
ár er þessi bók eflaust, en varla
annað og meira.
STJÓRNUNARFRÆÐSLAN
FRAMLEIÐSLUHAGRÆÐING
Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiös um
Framleiösluhagræðingu í fyrirlestrarsal félagsins
aö Síöumúla 23 og stendur þaö yfir sem hér segir:
17.—18. janúar kl. 13:30—17:30
21.—23. janúar kl. 14:30—17:30
Markmið námskeiðsins er að kynna
algeng vandamál í framleiðslufyrirtækj-
um og auka hæfni manna til aö koma
auga á slfk vandamál og benda á
úrlausnir.
Efni:
1. Inngangur: Kynnt veröur einfalt líkan
af fyrirtæki og það notað til að
skilgreina markmið þess. Líkanið verð-
ur síðan notað til að skilgreina verk-
efnasvið hagræðingar.
2. Framleiðsluaðstaða: Kynnt veröur
hvernig niöurröðun véla og vinnuað-
staöa, skipulagning flutninga, einföldun
vinnuaðferöa og vélvæöing geta haft
áhrif á framleiðni fyrirtækis.
3. Stýring: Rekstrarfjárskortur er al-
gengt vandamál íslenskra framleiöslu-
fyrirtækja. Stytting gegnumgangstíma
er mikilvæg lausn þess vanda. Skýrt
verður hvernig beita má stýringu inn-
kaupa, birgða, gæða og framleiðslu í
þessu skyni.
— Lögð verður áhersla á notkun
raunverulegra dæma og lausn hagnýtra
verkefna.
Námskeið þetta er einkum ætlaö ákvörðunaraöil-
um (framkvæmdastjórum, framleiðslustjórum) í
framleiöslufyrirtækjum. Æskilegt er aö verkstjóri
sæki námskeiðiö sem annar þátttakandi fyrirtækis.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar á
skrifstofu Stjórnunarfélags íslands, sími 82930.
Helgi G. Þóröarson
vélaverkfræöingur
Dr. Ingjalóur
Hannibalsson
iönaöarverkfræöingur
J^STJ *1 INUNARFÉLA ÍSLANDS » G 23 - Sfmt 82930
HUSNÆÐI
ÖSKAST
Tvo teiknara vantar
gott húsnæði fyrir
teiknistofu, sem næst
miðbænum. Vinsam-
legast hringið milli kl.
'1-6 sími 22866,
CoatsDrima
tvinninn hentar í öll efni.
195 litir á 100 yarda spólum.
Fæst í verzlunum um land allt.
coats Drima
Heildsölubirgðir.
Davíö S. Jónsson og Co, h.f.
Sími 24333.