Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 31 Viðræðurnar gagnlegar enginn möguleiki útilokaður — segir Steingrímur Hermannsson MORGUNBLAÐIÐ ræddi í gær við þá Steingrím Hermannsson og Benedikt Gröndal um þjóðstjórnar- viðræðurnar og það, sem nú tekur við. Blaðinu tókst ekki að ná tali af Lúðvík Jósepssyni, formanni Alþýðubandalagsins, en svör hinna fara hér á eftir: „Þessar viðræður, sem Geir gekkst fyrir, voru gagnlegar og þær leiddu til margvíslegra upp- lýsinga, sem ég tel spor í áttina," sagði Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins, er Mbl. ræddi við hann í gær eftir að Geir Hallgrímsson hafði skilað forseta Islands aftur stjórnarmyndunarumboðinu. „Geir lagði reyndar áherzlu á, að hann vonaði að þjóðstjórnar- möguleikinn kæmi upp aftur, þannig að segja mætti að hann sofi bara núna, og það kann að vera rétt. Þjóðstjórn er að mínu mati sá möguleiki, sem menn ræða fyrst í alvöru, þegar allt annað er búið. Það leiðir af eðli þjóðstjórnar að hún myndi ná mjög litlum áfanga í verðbólgumálunum, því svo mikið ber í milli flokkanna, að ef menn losa sig við öll deilumálin, þá stendur harla lítið eftir. Ég hygg að Geir hafi komizt að sömu niðurstöðu og ég í mínum vinstri viðræðum; að það ætti að vera hægt að ná hlutunum saman, ef viljinn væri fyrir hendi. En það er út af fyrir sig eðlilegt að menn vilji full- kanna þá möguleika, þar sem þeir þurfa ef til vill að slá minna af, áður en þeir í alvöru taka höndum saman um þann mögu- leikann, sem mesta málamiðlun- in er fólgin í.“ Mbl. spurði Steingrím, hvort þetta þýddi, að hann teldi ein- hverja aðra möguleika á vinstri stjórn nú en þegar hann hætti stjórnarmyndunartilraun sinni. „Það er það sem maður vonar,“ sagði Steingrímur. „Alþýðu- bandalagið hefur nú unnið upp tillögur i efnahagsmálum og ég fagna því. Þær verða eflaust lagðar fram á næstunni og við framsóknarmenn munum skoða þær vandlega. Ef við teljum þær spor í rétta átt munum við vafalaust vilja ræða málið.“ — Við Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokk? „Ég vil ekkert út af fyrir sig útiloka slíkar viðræður." Viðhorf Benedikts Benedikt Gröndal sagði: „Það er lítið um þessar þjóðstjórnar- viðræður að segja annað en það, að það reyndist ekki almennur vilji og þar af leiðandi náðust endarnir ekki saman. En Geir hefur nefnt, að hann vonaði, að menn útilokuðu þó ekki þjóð- stjórnarmöguleikann hér með.“ Mbl. spurði Benedikt, hvað hann héldi um framhaldið og kvaðst hann ekki vilja gerast spámaður í þeim efnum. Varð- andi nýjar vinstri viðræður sagði hann: „Ég hef ekki séð tillögur Alþýðubandalagsins, þannig að ég get ekkert um það sagt. Ef þeir eru við sama heygarðshornið, þá er nú vonin ekki sterk. Ef þeir aftur á móti eru komnir niður á jörðina, þá getur vel verið að tilefni sé til alvarlegra umræðna um vinstri stjórn." Mbl. spurði Benedikt um fund flokksstjórnar Alþýðuflokksins í gær og sagði hann að fundurinn hefði verið ákveðinn fyrir all- löngu þannig að tímasetningin ætti ekkert skylt við þau þátta- skil í stjórnarmyndunarviðræð- um, sem nú eru. „Þetta voru mjög almennar umræður um stjórnmálaástandið og stjórn- armyndunarviðræður, svona al- mennt eldhús," sagði Benedikt og hann kvað enga ályktun hafa verið gerða né neinar ákveðnar línur lagðar fyrir framtíðina. Alþýðubandalagið með tillögur í efnahagsmálum: Fjölsótt kveðju- athöfn um Hákon Guð- mundsson SÍÐASTLIÐINN laugardag fór fram á Selfossi kveðjuathöfn um Hákon Guðmundsson fyrrver- andi yfirborgardómara og flutti séra Sigurður Sigurðarson minn- ingarræðuna. Skógræktarmenn komu austur og skreyttu kirkj- una fagurlega með barri. en Hákon var mikill baráttumaður fyrir islenzkri skógrækt. Þá komu hæstaréttardómarar og borgardómarar ásamt fleira fólki til Selfoss, en Hákon var vel metinn lögfræðingur. Tveir leik- menn fluttu ávörp í kirkjunni, þeir Stefán Már Stefánsson borg- ardómari og Hákon Bjarnason fyrrverandi skógræktarstjóri. 16 félagar úr Karlakór Selfoss sungu undir stjórn Ásgeirs Sigurðsson- ar. Sigríður Ella Magnúsdóttir söngkona söng, en organleikari var Ólafur Sigurjónsson Forsæth. Kveðjuathöfnin var fjölsótt. Nýtt skip til Húsavíkur Grænlandsvaka í Norræna húsinu í NORRÆNA húsinu standa nú yfir tvær sýningar frá Grænlandi — listsýningin „Land mann- anna“ og grænlensk bókasýning í bókasafni hússins — af þessu tilefni svo og vegna Norræna málaárðins efna Grænlandsvina- félagið INUIT og Norræna félag- ið á íslandi til Grænlandsvöku fimmtudaginn 17. janúar kl. 20.30 í Norræna húsinu. Dagskrá verður á þá lund að Hjálmar Ólafsson form. Norræna félagsins flytur ávarp — Bene- dikta Þorsteinsson — grænlensk kona, sem er við nám hér í háskólanum, talar um tungu Grænlendinga — Kynnt verður grænlensk tónlist — Ási í Bæ flytur stemningar frá Grænlandi. — Árni Johnsen kynnir græn- lenska söngva. Loks sýnir Páll Steingrímsson litskyggnur frá Grænlandi. Báðar sýningar — listsýningin og bókasýning verða opnar þetta kvöld. Öllum er heimill aðgangur, meðan húsrúm leyfir. íslandskynning í Hong Kong Fyrir skömmu var haldin í Hong Kong matar- og landkynning m.a. með sérstakri íslandsviku. World Trade Center þar í borg átti frumkvæðið að kynningu þessari og fóru héðan Hilmar Jónsson veitingastjóri Hóteis Loftleiða og Sylvia Briem fulltrúi Ferðamálaráðs með 1500 kg af íslenskum mat, m.a. hangikjöt, lambahrygg, lax, síld, loðnu, skötusel, fjallagrös, saltkjöt og skyr. Ferðamálaráð sá um að koma íslandsbæklingum og öðrum gögnum til Hong Kong og klæddist Sylvia upphlut við öll tækifæri við kynninguna. NÝTT fiskiskip sem hefur hlotið nafnið Geiri Péturs, hefur bæst í fiskiskipaflota Húsavíkur. Skipið er 138 lestir og keypt frá Hafnar- firði. Það hét áður Sigurbergur, en kaupandinn er útgerðarfélagið Korri á Húsavík. Skipstjóri verður Sigurður Olgeirsson og vélstjóri Agnar Harðarson. Skipið fer á línuveiðar í mánaðarlokin. Fréttaritari. Hættir sem rekstrarstjóri Þjóðviljans ÚLFAR Þormóðsson rekstrar- stjóri Þjóðviljans hefur sagt starfi sínu lausu. I samtali við Úlfar í gær sagðist hann hafa verið í tæp tvö ár í þessu staríi, en ekki kvaðst hann ákveðinn í því hvað hann tæki sér fyrir hendur. hjöðnun verðbólgu, eflingu at- vinnuveganna og jöfnun lífskjara til fyrri hluta árs 1983. Meginefni skammtímaaðgerð- anna munu vera niðurfærsluað- gerðir í efnahagsmálum. Alþýðu- bandalagsmenn leggja til breyt- ingar á ríkisfjárlögunum 1980 og eru þær upp á 20—24 milljarða króna bæði tekju- og gjaldamegin. Þeir setja ársfjórðungsleg mörk á verðlagsþróunina og vilja halda breytingum á bilinu 5—6%. Fisk- verðsákvörðun vilja þeir leysa án þess að hróflað verði við genginu. í kjaramálum telja alþýðubanda- lagsmenn að tillögur þeirra hafi enga kjaraskerðingu í för með sér. Loks eru tillögur í landbúnaðar- málum. Síðari hlutinn er í 9 meginköfl- um. Þar er fyrst fjallað um framleiðsluaukningu í sjávarút- vegi og iðnaði og munu takmörkin vera 7% framleiðniaukning í sjáv- arútvegi á þessu ári og 10% í iðnaði. Alþýðubandalagsmenn vilja breytt skipulag efnahagsstofnana og eru m.a. með tillögur um breytingar á Framkvæmdastofn- un ríkisins og Þjóðhagsstofnun. Síðari kaflar fjalla um fjárfest- ingarmál, sparnað í hagkerfinu, ríkisfjármálin, félagslegar um- bætur, orkumál og samgöngumál. MIÐSTJÓRN Alþýðubandalags- ins samþykkti um helgina tillög- ur Alþýðubandalagsins í efna- hagsmálum. Tillögurnar eru í tveimur meginköflum; annars vegar um aðgerðir í efnahags- málum á næstunni, sem eiga að færa verðbólguna niður fyrir 30% í lok þessa árs og hins vegar fjalla þær um 3ja ára áætlun um ís nálgast loðnumiðin GÓÐ loðnuveiði var hjá loðnu- skipunum um helgina og er aflinn nú orðinn liðlega 33 þús- und lestir. Ágætt veður var á miðunum í gær, en í gærkvöldi var vindur orðinn vestanstæður og ísinn farinn að nálgast miðin. Eftirtalin skip hafa tilkynnt loðnunefnd um afla síðan um hádegi á laugardag: Laugardagur: Gígja 480, Júpít- er 700, Dagfari 110. Alls á laugar- dag 27 skip með 13000 lestir. Sunnudagur: Ljósfari 500, Al- bert 470, Arsæll 280, Örn 430. Alls 4 skip með 1680 lestir. Mánudagur: Víkingur 900, Skírnir 250, Guðmundur 900, Hrafn 650, Gullberg 600, Hákon 750, Pétur Jónsson 600, ísleifur 440, Náttfari 520, Þórður Jónasson 460, Helga II 530, Súlan 650, Hafrún 180. Mestu hefur verið landað á Siglufirði, en einnig í Krossanesi og á Bolungarvík, þrjú skip hafa siglt með afla sinn til Faxaflóa- hafna, en ekkert skip hefur t.d. enn landað á Raufarhöfn. Eiga að f æra verðbólguna niður fyrir 30% á árinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.