Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 C?fí' MORödN-'y^ KAFC/NL) ' ! (f' nM(L__ GRANI GÖSLARI Þessi sjón verður nú til þess að ég mun leita mér frekari framhaldsmenntunar! Ég hef ákveðið að fara að heiman Jeims, viltu hringja á bíl fyrir mig? vera skemmtiferð! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Hvernig fékk hann tíu slagi, spurði suður sveitarfélaga sína við samanburð að loknum leik þegar fram kom, að á hinu borðinu höfðu norður og suður fengið 420 fyrir spilið. Ég gat ekki fengið nema fimm slagi á tromp, ásana þrjá og á tígulkónginn, hélt hann áfram. Skýringarnar komu að vörmu spori. Suður gaf, allir utan hættu. Vestur S. KD86 H. G1086 T. DG10 L. G3 Norður S. G954 H. K54 T. 85 L. 1087 Austur S. 1072 H. 3 T. 97632 L. KD96 COSPER 8205 COSPER Feginn er ég að þessu flugi er lokið! Um barnasögur og áratuginn 9 „Mér finnst, ásamt fleirum, all undarlegt að saga Gunnars M. Magnúss skuli lesin fyrir börn. Hans eigin orð um söguna eru að hún sé ekki samin sérstaklega fyrir börn, hún sé af einkenni- legum manni og á köflum floga- veikum. Nú mætti ætla að nærtækara væri efni við hæfi barna en saga af flogaveikum manni. Mér finnst að menntamálaráð ætti að taka hér í taumana. Ég, sem þessar línur rita, hef samið smásögur sem ætlaðar eru til aflestrar fyrir börn og unglinga. Þar er ekki að finna eitt orð hvað þá setningar sem hneykslað eða sært gæti börn eða ungmenni. Þessar sögur eru enn í handriti, en vel læsilegar. Þar er að finna bæði spennandi og fögur ævintýri. Ég get engum öðrum kennt um en mér, að sögur þessar skuli enn vera óprentaðar og því öllum ókunnugar. Aðalorsökin er sú, að ég á eftir að vélrita þær. Þá langar mig að minnast á greinarkorn, sem ég rakst á í Morgunblaðinu þann 4. jan., eftir Helga Hálfdanarson. Þar virðist mér hann reyna að skýra eigin villu og heldur því fram að níundi áratugurinn væri ekki byrjaður. Eftir hans útreikningi er ellefu ár í hans áratug. Þá rifjar Helgi upp gömul grýlukvæði. En að setja þau í samband við áratug fæ ég ekki skilið. Þar virðist enginn skyld- leiki vera á milli. Ég lærði þessar vísur og kvæði um Grýlu og Leppalúða þegar ég var barn að aldri: Suður S. Á3 H. ÁD972 T. ÁK4 L. Á54 Lokasögnin varð fjögur hjörtu á báðum borðum og út kom tígul- drottning. Sá sem tapaði spilinu tók strax á trompás og kóng, legan kom í ljós og spiiið í reynd tapað. Á hinu borðinu tók suður á spaðaás eftir að hafa tekið fyrsta slaginn á tígul. Síðan spilaði hann spaðaþristinum en með þessu gaf hann sér örlítið meiri möguleika til að fá slagi á smáspilin í trompinu. Vestur tók á spaða- drottninguna, spilaði aftur tígli, sem suður tók, tók síðan á tromp- ás og spilaði tromptvisti á kóng- inn. Þá kom legan í ljós og ef spilið átti að vinnast varð vestur að hafa átt fjögur spil í spaðanum í upphafi. Sagnhafi trompaði því spaða heima með sjöinu og þá var loks tímabært að trompa tígulspilið í borðinu. Og þegar tókst að trompa fjórða spaðann með níunni urðu trompslagirnir í allt sex og háspil- in í hinum litunum gerðu slagina tíu. Maigret og vínkaupmaöurinn Eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslensku 19 — Afsakið, sagði hann. — En ég þarf að hitta jr. Louceck. — Nafnið með leyfi? Hún rétti honum blokk þar sem stóð: Eftirnafn, fornafn og i næstu linu: „Tilgangur heim- sóknar.“ Hann lét duga að skrifa Maigret iögreglufulltrúi. Stúlkan hvarf á braut um hríð. Reyndar var hún drjúga stund í burtu. Svo kom hún aftur og visaði honum inn á biðstofu sem var minni en sú fyrsta en ekki síður vel búin. — Hr. Louceck tekur á móti yður eftir augnablik. Hann er í sintanum. Þeir þurftu ekki að biða lengi. önnur ung stúlka kom til þeirra og vfsaði þeim inn á stóra og nýtízkulega skrifstofu eins og allt var svo sem hér. Lávaxinn maður reis á fætur og kom tii þeirra með útrétta hðnd. — Maigret lögregluforingi? - Já. — Stephane Louceck. Gerið svo vel að fá yður sæti. Maigret kynnti fylgdarmann sinn: — Lapointe rannsóknarlög- reglumaður. — Fáið yður sæti herra Lap- ointe. Hann var sérstaklega ljótur og það sem verra var. svo langt frá þvi að vera fallega Jjótur eins og raunin er með margt ófritt fólk. Hann hafði firna- stórt nef sem var biáleitt nokk- uð og svört hár löfðu út úr eyrum hans og nösum. Auga- brúnirnar voru breiðar og gáfu andliti hans hörkulegt yfir- bragð. Fötin voru drusluleg og háisbindið skakkt. — Þér eruð náttúrulega hér vegna morðsins? — Vist er svo. — Ég hafði búizt við að lögreglan kæmi fyrr. Ég les aidrei morgunblöðin. vegnu þess að ég byrja mjög snemma störf mfn og ég heyrði ekkert um morðið fyrr en frú Chabut hringdi til min. — Ég vissi ekki um þessar skrifstofur. Við fórum fyrst í gamla húsnæðið. Mér skilst að Oscar Chabut hafi verið þar mestanpart. — Hann kom hingað dag hvern. Hann var þeirrar gjörð- ar að hann vildi fylgjast með öllu. Andlit hans var hlutlaust og svipbrigðalaust og meira að segja rödd hans hafði engin blæbrigði. — Leyfist mér að spyrja, hvort þér haldið að hann hafi átt f jendur? — Ekki eftir þvf sem ég bezt veit. — Hann var þekktur maður og meðan hann var að vinna sig upp hlýtur hann óhjákvæmi- lega að hafa stigið yfir ein- hverja. — Ég þckki ekki það mál. — Mér heíur verið tjáð að hann hafi verið ákaflega hrif- inn af konum. — Ég hef engin afskipti af einkalifi hans. — Hvar er skrifstofan hans? — Hann hafði enga skrií- stofu, hann notaði borðið hérna á móti minu. — Kom hann hingað með einkaritara sinn? — Nei. Hér er nægilegt starfslið svo að þess gerðist ekki þörf. Hann gerði sér ekki það ómak að brosa eða yfirleitt sýna nokkrar tilfinningar. — Hafið þér unnið lengi hjá honum? — Ég vann hjá honum áður en þessar skrifstofur hér voru teknar til starfa. — Hvað voruð þér fyrir þann tima? — Eins konar efnahags- ráðgjafi? — Þér hafið þá séð um að gera skattaframtal hans? — Já, það var eitt af þvi sem var í minum verkahring. Maigret varð enn á ný að gripa til snýtuklútsins og hann fann svitann á enninu á sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.