Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980
35
ensku, þótt væntanlega verði skot-
ið inn einu og einu lagi á íslenzku,
svona rétt til að leyfa hlustendum
að heyra málið.
í fyrra fóru tveir Islendingar á
ráðstefnuna, þeir Jón Ólafsson og
Ómar Valdimarsson, og var það í
fyrsta skiptið, sem Islendingar
höfðu átt fulltrúa á henni. Að-
spurður sagði Jón að þeir hefðu
haldið út með nokkur lög, sem þeir
hefðu siðan kynnt og árangur
þeirrar kynningar væri nú að
koma í ljós. „Okkur var einnig
boðið að leika i fjórum öðrum
löndum, en vegna anna gátum við
ekki komið því við núna,“ sagði
Jón. Ætlunin er þó að halda síðar
í fjögurra landa hljómleikaferða-
lag, og sagði Jón að vel mætti
hugsa sér það ferðalag svipað því
sem Þursarnir fóru í fyrra.
Einhverjum kann að finnast
skrítið að það sé fyrst núna, sem
íslendingar sýni MIDEM einhvern
áhuga, með tilliti til þess að oft
hafa innlendir tónlistarmenn
reynt að kvnna tónlist sína á
erlendum vettvangi og óneitanlega
virðist sem ráðstefna á borð við
þessa sé kjörið tækifæri til þannig
kynningar. En að sögn Jóns er það
mikið fyrirtæki að leggja land
undir fót og halda suður til
Cannes með 16 manna lið. Kostn-
aðurinn við ferðina er áætlaður í
kringum 16 milljónir og er þá allt
reiknað með, svo sem leiga á
sýningarbás og flutningskostn-
aður á hljóðfærum. Jón kvað þetta
vera nokkurt ævintýri, þar sem
svo geti farið að Hljómplötuútgáf-
an færi á hausinn, ef ekkert kæmi
út úr ferðinni. Hins vegar kvaðst
Jón vonast til að einhver árangur
yrði af henni, þótt aldrei væri
hægt að segja hvenær hann kæmi
í ljós, það gæti orðið eftir eitt ár
eða tvö. Jón sagði að Hljómplötu-
útgáfan hefði sótt um fjárstyrk
frá ríkinu vegna ferðarinnar, en
það hefði ekki séð sér fært að
verða við þeirri ósk. „Við höfðum
gert okkur vonir um að ríkið
greiddi allt að helmingi,“ sagði
Jón, „og kannski hefði ríkið styrkt
okkur, ef við hefðum verið annars
konar tónlistarmenn en poptón-
listarmenn."
Alls fara 16 manns til Cannes og
verður haldið af stað næsta mið-
vikudag, en óvíst er hvenær komið
verður til baka. Nokkrar breyt-
ingar hafa orðið á Brunaliðinu
vegna fararinnar, en gítarleikarar
verða Björgvin Halldórsson og
Þórður Arnason. Að öðru leyti er
skipan hljómsveitarinnar óbreytt. I
Knattspyrnu-
menn gefa út
hljómplötu
Knattspyrnufélagiö
KR hefur látiö frá sér
fara fyrstu plötu með
knattspyrnuliði hér-
lendis.
Á plötunni eru tvö
lög eftir Árna Sigurös-
son, fyrrum söngvara
Eikarinnar, en þau
heita „Áfram KR“ og
„Mörk“. Sérstakur kór
KR-manna syngur, en
auk þess koma fram á
plötunni Stefán S. Stef-
ánsson, Þorleifur
Gíslason, Árni Sigurðs-
son, Jónas Þórir, Ragn-
ar Sigurösson og Guð-
jón B. Hilmarsson, en
hann er jafnframt út-
gefandi plötunnar.
Þar sem líklegt er að poppar-
ar hérlendis haldi Kampútseu-
konsert er ekki úr vegi að segja frá
framlagi breskra kollega þeirra.
Um áramótin voru haldnir
fernir hljómleikar í Hammer-
smith Odeon til styrktar Kampút-
seu. Ekki komu Beatles fram en
þó bjuggust allir við því að þeir
létu sjá sig ókynntir.
Þeir sem Iéku á þessum
hljómleikum voru Wings (já. alla-
vega einn Bítill), Queen. Who. Ian
Dury & The Blockheads, Clash,
Elvis Costello & The Attrac-
tions, Rockpile, Pretenders, Spe-
cials og Matumbi.
Queen léku fyrsta kvöldið fyrir
fullu húsi enda mjög vinsælir í
heimalandi sínu, þó þeir séu hlut-
fallslega vinsælli hér. Þeir hafa nú
minnkað skrautið á sviðinu og
byggja víst meira á tónlistnni, en
síðasta plata þeirra, „Crazy Little
Thing Called Love“, er t.d. hreint
gamaldags rokk.
Á fimmtudagskvöldinu léku Ian
Dury & félagar auk Clash og
Matumbi. Matumbi er tíu manna
svört hljómsveit, sem flytur sina
eigin blöndu af reggae og soul.
Clash éru aftur á móti þekktir
Beatles
urðua
-
sem svar pönksíns við Rolling Ston-
es en á hljómleikunum kynntu þeir
m.a. lög af nýrri breiðskífu, London
Calling, sem þykir nær Rolling
Stones en Rolling Stones sjálfir. En
þeir eru ekkert hrifnir af þessari
samlíkingu sjálfir.
Ian Dury og Blockheads eru samt
enn vinsælli en Clash í London og
áttu þeir að mestu unglingana í
salnum, en aðallagasmiður þeirra,
Chaz Jenkel, er nú hættur ög þrátt
fyrir það að hafa leikið mikið í
Bretlandi í sumar var ekkert nýtt
lag í dagskránni. Á föstudeginum
komu fram Who, Specials og Pre-
tenders.
Pretenders hafa vakið áhuga
margra með þremur mjög góðum
smáskífum, „Stop Your Sobbing",
„Kid“ og „Brass In Pocket", og bíða
margir eftir fyrstu breiðskífu
þeirra, þ.á m. undirritaður. í Pret-
enders er hress söngkona sem heitir
Chrissié Hynde, en hún sjálf er
fyrrum blaðamaður hjá Melody
Maker. Hljómsveitin er ekta pop/
rokk hljómsveit, sem gæti ógnað
vinsældum Blondie þegar fram líða
stundir.
Specials er allt annar handleggur.
Hljómsveitin er blönduð hvítum og
svörtum Bretum sem leika rock,
Á þessari mynd eru Plant, Laine, McCartney, Thomas, Edmunds og
Linda Mc, en Wings-blásararnir sjást á upphækkun fyrir aftan. Þetta
er hluti af Rockestra.
Clash.
reggae og dansmúsík. Þeir hafa náð
miklum vinsældum vegna sviðs-
framkomu.
Who fengu ekki mikið lof fyrir
sinn hlut sérstaklega vegna þess að
nú leika með þeim hljómborðsleik-
arar og blásarar sem hafa ekki
hingað til verið með í þeirri gömlu
góðu grúppu.
Lokahljómleikarnir voru síðan
laugardagskvöldið. Þá léku Wings,
Elvis Costello og Rockpile. Og Billy
Connolly kynnti og reitti af sér
brandara í allar áttir.
Rockpile léku fyrstir, en hljóm-
sveitin sem er ein sú besta í seinni
tíð, er skipuð Dave Edmunds og
Nick Lowe, sem báðir gefa út
sólóplötur, Billy Bremner og Terry
Williams, einum af bestu trommu-
leikurunum. Þeir fengu á sviðið gest
á þessum hljómleikum, engan annan
en Led Zeppelin-kempuna Robert
Plant sem söng með þeim gamla
Prestley-lagið „Little Sister".
Elvis Costello var næstur og þótti
hressari en oft áður með nýjar
útgáfur á eldri lög og nýrri lög eins
og t.d. „I Can’t Stand Up For Falling
Down“ sem verður víst á næstu
smáskífu hans.
Wings var óneitanlega líkt við
hugsanlegt framlag Beatles. Enda
lét Paul McCartney það eftir sér að
stríða áhorfendum með því að byrja
á gömlu Beatles-lagi, „Got To Get
You Into My Life“. Á síðustu
breiðskífu Wings var lag þar sem
ýmsir af þekktari hljóðfæraleikur-
um Breta komu fram,
Þegar Wings höfðu lokið sér af
kom þessi risarokkgrúppa fram
undir heitinu Rockestra og stjórn
McCartneys en í sveitinni voru í
þetta sinn Pete Townshend (gítar/
Who), Kenny Jones (trommur/
Who), Jim Honeyman-Scott (gítar/
Pretenders), Robert Plant (gítar/
Led Zeppelin), John Bonham
(trommur/Led Zeppelin)?, John
Paul Jones (bassagítar/Les Zeppe-
lin), Nick Lowe (gítar/Rockpile),
Dave Edmunds (gítar/Rockpile) og
Bruce Thomas (bassagítar/
Attractions). Þeir léku þrjú lög,
„Rockestra Theme“, „Let It Be“ og
„Lucille".
Ekki kom fram í þeirri frétt sem
hér er stuðst við hve mikið safnaðist
fyrir Kampútseu, en húsfyllir var
öll kvöldin.
IIIA