Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980
13
nú vart við sig hjá ýmsum þeim
sem hafa hugleitt þessi mál.
Nú þegar ríkið er að vasast í
öllum mögulegum og ómögu-
legum sviðum magnast sú krafa
að það geri upp við sig eftirfar-
andi spurningu. Hvað er það í
þessu þjóðfélagi sem hið opin-
bera getur gert betur en nokkur
annar aðili og hvað geta ein-
staklingar og samtök þeirra gert
eins vel eða betur?
Mitt svar er á þessa leið: Ríkið
er eini aðilinn sem getur stutt
lista- og vísindastarfsemi. Það
er einnig eini aðilinn sem getur
haldið uppi stórum hluta heil-
brigðis- og menntakerfis og
ýmiss konar annarri þjónustu.
Það er jafnframt eini aðilinn
sem getur haldið uppi öflugu
eftirliti með þeim fyrirtækjum
sem eru í eigu einstaklinga eða
félagasamtaka.
En ríkið er ekki eini aðilinn
sem getur rekið atvinnufyrir-
tæki sem framleiða neysluvörur
fyrir almennan markað. Slík
fyrirtæki þurfa ekki annað að
gera en að framleiða þá vöru
sem neytandinn óskar eftir í
samræmi við ákveðnar reglur.
Þetta geta einstaklingar og sam-
tök þeirra oftast gert eins vel
eða betur en ríkið.
Ef gera þarf kerfisbreytingar
til þess að hliðra til fyrir lista-
og vísindamönnum hlýtur það að
koma niður á óþörfum ríkis-
rekstri af þessu tagi. En hvernig
sem þessu verkefni verður hrint
í framkvæmd er kominn tími til
þess að ríkið taki forystu í
menningarmálum í stað þess að
vera til athlægis á þessu sviði
eins og nú er.
Að lokum. Góðir listamenn
eru dýrmætasta eign sjálfstæðr-
ar þjóðar. Aðeins með því að
veita þeim dyggan stuðning geta
stjórnmálamenn vænst þess að
þjóðin nái þeim markmiðum sem
frumkvöðlar sjálfstæðisbarátt-
unnar settu henni.
Er ekki orðið tímabært að
þeir stjórnmálamenn sem helst
hafa áhuga á að auka þessi
tengsl — og listamenn — tækju
að ræða saman um lausn á
þessum vanda.
Ný kennslubók í
íslenzkri málfræði
ÚT er komin á, vegum IÐ-
UNNAR bókin íslensk mál-
fræði, kennslubók handa
framhaldsskólum. Þetta er
fyrri hluti bókarinnar. Höf-
undur er Kristján Árnason.
Hann lauk fyrir fáum árum
doktorsprófi í málvísindum í
Bretlandi og kennir nú mál-
fræði við Háskóla íslands.
íslensk málfræði skiptist í
þrjá aðalkafla sem hver um
sig greinist í marga undir-
kafla. í fyrsta kafla er fjallað
almennt um málfræði, eðli
hennar og sögu. í öðrum kafla
er gerð grein fyrir setninga-
fræði og sagt frá stofnhlutum
setninga, stofnhlutareglum
og ummyndunum og samsett-
um setningum. Þriðji kafli er
stílfræði og er það nýlunda í
málfræðikennslubókum. — í
seinni hluta bókarinnar sem
út kemur í vor verður beyg-
ingafræði, málsaga og hljóð-
fræði.
í formála höfundar er kom-
ist svo að orði: „Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan
Kristján Árnason
bók Halldórs Halldórssonar,
Islensk málfræði handa æðri
skólum, kom út. Hvort
tveggja er, að aðstæður hafa
breyst í fræðiheimi málfræð-
innar, og þá ekki síður í
menntakerfinu íslenska, hvað
varðar ytra skipulag og hug-
myndir um móðurmála-
kennslu. Ný kennslubók í
málfræði er því löngu tíma-
bær... Þetta kver er fyrst og
fremst tilraun, og ég vona að
menn séu reiðubúnir að taka
henni með velvilja, en þó
strangri gagnrýni, þannig að
reynsla af notkun kversins
geti leitt til einhverra fram-
fara í fræðslu um málfræði og
móðurmál á framhaldsskóla-
stigi".
Islensk málfræði er 133
bls. Prentrún sf prentaði.
■■■■
þetta
er ekkert
veró
Splunkunýr Skoda 1980
á kr. 2.690.000.-
á meöan gengið helst óbreytt.
— þetta er ekkert verð -
Á þessu frábæra verði bjóöast aðeins
örfáir bílar, svo nú er um að
gera að panta strax. tsm
JÖFUR
HF
Þú hringir eða kemur og hann
Rúnar Skarphéðins tekur einn
frá fyrir þig.
Umboösm. Akureyri: Sniðill h.f. Óseyri 8.
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600