Morgunblaðið - 15.01.1980, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980
Sprenging hjá
sovézka flugfé-
laginu Aeroflot
Ncw York. 11. jan. AP.
Sprengjusérfræðingar
vinna nú að rannsóknum á
sprengjubrotum úr sprengj-
unni miklu. sem olli miklum
spjollum á húsnæði sovézka
flugfélagsins Aeroflot í New
York á sunnudag. en í
sprengingunni særðust þrír
vegfarendur. tveir karlar og
kona.
Að sogn lögreglunnar var
það brúnklæddur maður bú-
inn skíðagrímu, sem kom
Þriggja
lesta
árekstur
Kaíró. 14. jan. AP.
Á MESTÁ annatímanum í morg-
un varð það slys um 30 km fyrir
sunnan Kaíró að farþegalest var
ekið á fullri ferð á tvær farþega-
lestir aðrar, sem voru kyrrstæðar
á sömu sporum. Fórst einn í
árekstrinum, en 96 særðust.
Verið er að rannsaka hvað olli
slysinu, hvort um hemlabilun hafi
verið að ræða, eða hvort lestar-
stjórinn hafi ekki séð stöðvunar-
merki.
Við áreksturinn urðu nokkrar
skemmdir á járnbrautarvögnun-
um, sem voru fimm í hverri lest,
en enginn vagn valt út af sporinu.
sprengjunni fyrir við útidyr
skrifstofu flugfélagsins
klukkan rúmlega scx síðdegis
á sunnudag, og sást maður-
inn hverfa fyrir horn.
Nokkru síðar var ónafn-
greindur maður handtekinn
spölkorn þar frá, en honum
síðar sleppt eftir sex klukku-
stunda yfirheyrslu.
Sprengjan var allöflug og möl-
braut sýningarglugga Aeroflot, og
einnig rúður í nærliggjandi húsum
og hjá flugfélögunum British Air-
lines og Quantas Airlines handan
götunnar. Þeir sem særðust voru
tveir franskir ferðamenn og kona
búsett í New York, en sár þeirra
reyndust smávægileg.
Eftir sprenginguna hringdu
tveir aðilar til stöðva Associated
Press fréttastofunnar í New York.
Annar sagðist vera fulltrúi Gyð-
ingasamtakanna Jewish Defence
League, en hinn Omega-7, sem eru
samtök andstæðinga Castros á
Kúbu. Sögðust báðir hafa staðið
fyrir sprengjutilræðinu. Seinna
bar formaður Gyðingasamtak-
anna til baka fregnina um aðild að
árásinni, en bætti því við að
samtökin væru innilega ánægð
með árangurinn.
Aeroflot átti einnig í útistöðum
við samtök flutningaverkamanna í
New York, sem hótuðu verkfalli
hjá Pan Am flugfélaginu meðan
það annaðist afgreiðslu fyrir
Aeroflot. Úr rættist þegar starfs-
menn Aeroflot tóku sjálfir við
afgreiðslu véla sinna á flugvöHum
við New York og Washington.
Hafa þessar aðgerðir valdið
nokkrum seinkunum á ferðum
Aeroflot.
Sexburarn-
ir dafna vel
Flórenz. Italiu. M. jan. AP.
SEXBURARNIR, sem fæddust í
Flórenz (Firenze) á Ítalíu á föstu-
dag í fyrri viku dafna vel, að þvi
er læknar sögðu í dag, og er talið
að móðir þeirra geti fengið þá til
sin í vikulokin. Börnin sex —
fjórir drengir og tvær stúlkur —
eru enn í súrefniskössum, en
móðirin, frú Rosann Cavigli
Giannini, er að jafna sig í fæð-
ingardeild Careggi-sjúkrahúss-
ins, þar sem börnin voru tekin
með keisaraskurði á 35. viku
meðgöngutimans. Hjúkrunar-
konur, sem annast sexburana.
segja að við fæðingu hafi þeir
verið 5—7 merkur, og séu nú
hressir og kátir, og drekki mjólk
úr pelum sinum með mikilli
áfergju.
Móðirin er gagnfræðaskóla-
kennari í Arezzo. Hafði hún tekið
hormónalyf, og vissi fyrirfram á
hverju var von. Faðirinn, Franco
Giannini, vinnur á flutningaskrif-
stofu. Segist hann hafa selt rétt-
inn til að taka myndir af börnun-
um af „efnahagsástæðum", og fá
því engir aðrir en ljósmyndarar
ónefnds tímarits að mynda sex-
burana fyrst um sinn.
Þetta gerðist
1979 — Mesti snjór í Chicago í
manna minnum. Allmargir lát-
ast í hörkubyl.
1978 — Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti kemur til Teheran
til fundar við íranskeisara.
1973 - Páll páfi VI skýrir
Goldu Meir, forsætisráðherra |
ísraels, frá því að Páfagarður
styðji alþjóðlega stjórnun yfir
Jerúsalem. Nixon skipar að hætt
skuli hernaðaraðgerðum gegn
Norður-Víetnam.
1949 — Kínverska borgin
Tientsin fellur í hendur Kínverj-
um.
1943 — Japanir eru hraktir frá
Guadacanal.
1922 — írskt fríríki undir stjórn
Michaei Collings komið á stofn.
1919 — Paderewski verður
fyrsti forsætisráðherra nýstofn-
aðs lýðveldis, Póllands.
1896 — Frakkar og Bretar gera
með sér samning um Síam
(Thailand).
1877 — Austurríki ákveður
hlutleysi í hugsanlegum átökum
Tyrkja og Rússa.
I Afmæli — Moliere, franskur
I leikritahöfundur, 1622—1673. —
Franz Griilparzer, austurrískur
leikari, 1791-1872.
Oleg A. Troyanovsky sendiherra Sovétríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum fylgist með umræðum i
Allsherjarþinginu, en þegar myndin var tekin talaði sendiherra Afghanistans. Allsherjarþingið kom
saman til sérstaks fundar til að fjalla um innrás og hcrnaðaríhlutun Sovétmanna í Afghanistan.
Oryggisráðið hafði áður fjallað um málið, en gat ekkert látið til sín taka þar sem Sovétmenn beittu
neitunarvaldi sinu i ráðinu.
Rússar beita neitunarvaldi hjá S.Þ.:
Einungis A-Þjóð-
verjar studdu þá
Sovétríkin beittu neitun-
arvaldi sínu í örygtíisráði
Sameinuðu þjóðanna á
sunnudagskvöldið til að
koma í veg íyrir, að sam-
þykkt yrði tiliaga um efna-
hagslegar refsiaðgerðir
gegn Iran vegna banda-
rísku gíslanna, sem þar eru
enn í haldi. Var þetta í
annað sinn í sömu vikunni,
sem Sovétríkin beita neit-
unarvaldi sínu í öryggisráð-
inu. í fyrra sinnið komu
þau í veg fyrir samþykkt
tillögu, þar sem krafist var
brottflutnings alls erlends
herliðs frá Afghanistan.
I afgreiðslu öryggisráðsins á
tillögunni um Iran féllu atkvæði
þannig, að 10 voru samþykkir
refsiaðgerðum: Bandaríkin, Bret-
land, Frakkland, Portúgal, Jam-
aica, Noregur, Zambía, Túnis,
Níger og Filippseyjar. Austur-
Þýskaland greiddi atkvæði með
Sovétríkjunum á móti, Mexíkó og
úrð fólk er
fjórtán áraá þaoeSiaforeldra.
Andlát - 1815 - Emma, lafði
Hamilton, hjákona Nelsons lá-
varðar.
Innlent - 1886 d. Hilmar Fin-
sen — 1888 fyrirlestur Hannesar
Hafsteins um rómantík og real-
isma í Góðtemplarahúsinu —
1934 Skýrt frá málshöfðun gegn
lögreglustjóra í „kollumálinu" -
1935 Mjólkursamsalan tekur við
allri mjólkursölu i Reykjavík —
1979 Tveir bátar fórust á Skjálf-
anda - 1902 f. Valur Gíslason
leikari.
Bangladesh sátu hjá og Kína tók
ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.
Eftir að atkvæði höfðu verið
greidd sagði Donald F. McHenry
sendiherra Bandaríkjanna, að af-
staða Sovétríkjanna væri „nötur-
leg og óábyrg“. Hann sagði, að
afstaða þeirra mótaðist af póli-
tískri tækifærismennsku, sem
miðaði að því að kaupa þögn Irana
um innrásina í Afghanistan. Taldi
McHenry líklegt, að Iranir myndu
átta sig á hræsni Sovétmanna
„jafnvel þótt ringulreið virðist
ríkja í því landi“.
Chen Chu sendiherra Kína sak-
aði Sovétríkin um að afla sér
pólitísks ávinnings með ómerki-
legum hætti, um leið og þau héldu
uppi víðtækum hernaðaraðgerðum
gegn Afghanistan, sem hefðu í för
með sér mikla hættu fyrir íran.
Og hann bætti við: „Eg er þeirrar
skoðunar, að Iranir og aðrir mú-
hameðstrúarmenn átti sig á svika-
brögðum Sovétmanna, sem kmiða
að því að skapa sundurlyndi og
dorga í gruggugu vatni.“
Á blaðamannafundi sagði Don-
ald F. McHenry, að Bandaríkin
ætluðu að grípa til flestra þeirra
ráðstafana, sem nefndar eru í
tillögunni, sem Sovétmenn felldu.
Vísaði hann til ályktunar Samein-
uðu þjóðanna frá 31. desember,
sem hann sagði að stæði óhögguð.
Hastingsmótið:
Andersson og
Nunn sigruðu
Ilastings. 14. janúar. AP.
SKÁKMÓTINU í Hast-
ings á Englandi lauk í
gærkvöldi með sigri
þeirra Ulf Anderssons frá
Svíþjóð og John Nunns
frá Bretlandi, sem báðir
hlutu tíu vinninga, og
skipta með sér 1. og 2.
Missir
Tító
fótinn?
Belgrað. 14. janúar. AP.
LÆKNAR sem annast haía Tító
Júgóslavíuforseta skýrðu frá
því í dag að fyrsta aðgerð til að
lagfæra æðakerfið í vinstra fæti
forsetans hefði ekki tekist sem
skyldi og líkast til yrði forset-
inn að gangast undir aðra
aðgerð þar sem lyfjagjöf dygði
ekki.
Áreiðanlegar heimildir
verðlaununum, samtals
1.700 sterlingspundum,
eða andvirði um 1.520.000
króna íslenzkra.
Þriðj i varð Sovét-
maðurinn Sergei Makary-
chev með níu vinninga, en
verðlaun hans nema 500
sterlingspundum.
Tító
hermdu að óttast væri að taka
þyrfti fótinn af þar sem ella
væri hætta á að drep myndaðist
í fætinum. Heilsa forsetans var
að öðru leyti sögð hin bezta.