Morgunblaðið - 15.01.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980
27
r
UNDIRBÚNINGUR að íþrótta-
hátíð ÍSÍ er nú í fullum gangi, en
íþróttahátíðin mun skiptast í
vetrariþróttahátið sem haldin
verður á Akureyri og sumar-
íþróttahátíð sem haldin verður í
Reykjavík, sumarið 1980. Er
Íetta önnur iþróttahátiðin sem
SÍ gengst fyrir en hin fyrri var
haldin veturinn og sumarið 1970,
og þótti heppnast mað afbrigðum
vel. Aðaltilgangurinn með
íþróttahátíðinni er að vekja at-
hygli á hinu fjölbreytta íþrótta-
starfi sem fram fer í landinu og
glæða almennan áhuga á íþrótt-
um. Hefur íþróttahátíðarnefnd í
hyggju að reyna að fá sem allra
flesta til beinnar eða óbeinnar
þáttöku i hátiðinni, og munu
fulitrúar sérsambandanna innan
ÍSÍ taka virkan þátt í undirbún-
ingnum.
Iþróttahátíðarnefnd var skipuð
í ársbyrjun 1978 og eiga eftirtaldir
sæti í henni: Sveinn Björnsson,
varaforseti ÍSÍ, sem jafnframt er
formaður nefndarinnar; Hermann
Sigtryggsson, Akureyri; Óskar
Ágústsson, Laugum; Sigurjón
Bjarnason, Egilsstöðum, Þórður
Þorkelsson, Reykjavík; Þröstur
Stefánsson, Akranesi; Hörður
Óskarsson, Selfossi; Ingvi Rafn
Baldvinsson, Hafnarfirði; Jón
Guðjónsson, Veðraá; Þorsteinn
Einarsson, íþróttafulltrúi ríkisins
og Sigurgeir Guðmannsson,
Reykjavík.
Íþróttahátíðarnefnd valdi sér
síðan framkvæmdanefnd og eiga
sæti í henni þeir Sveinn Björns-
son, Þorsteinn Einarsson og Þórð-
ur Þorkelsson. Framkvæmdastjóri
hátíðarinnar verður Sigurður
Magnússon, skrifstofustjóri ISI.
-O-
Hnefaleikakappinn Muhammed
AIi er nú loks hættur að keppa.
Hann er orðinn 37 ára gamall og
býr í Los Angeles. Ali trimmar
þó þegar hann hefur tima til, þvi
að hann eins og fleiri á hans aldri
á við það vandamál að striða að
gildna um of. Á myndinni er Ali
sjálfsagt að athuga hvort einhver
árangur hafi orðið af trimminu.
Vetrarhátíðin á Akureyri
Svo sem fyrr segir verður vetr-
arhátíðin haldin á Akureyri. Verð-
ur þar starfandi sérstök hátíðar-
nefnd og eiga sæti í henni þeir
Hermann Sigtryggsson, ívar Sig-
mundsson, Guðmundur Pétursson,
Magnús Ingólfsson og Gísli Kr.
Lorenzson.
Vetrarhátíðin fer fram dagar.a
28. febrúar til 2. marz. Er allur
undirbúningur í fullum gangi og
margt er á döfinni sem greint
verður síðar frá.
- þr-
Akrueyrarmótinu í innanhússknattspyrnu er nýlokið. Þar var keppt i
öllum flokkum og var keppnin afarjöfn og spennandi eins og fram
hefur komið á iþróttasíðu blaðsins. Hér að ofan eru sigurvegarar í
tveimur flokkum. Á eftir myndinni eru piltar sem skipa 2. flokk hjá
Þór ásamt liðsstjóra sínum og á neðri myndinni eru sigurvegarar í 4.
flokki. ungir Þórsarar, sem eflaust eiga eftir að iáta meira að sér
kveða.
Ljósm. SOR.
• Hér má sjá Gúnther Lohre frá
Vestur-Þýskalandi hefja sig til
flugs í stangarstökkinu og yfir
5,52 metra og var þetta sjötti
besti árangur sem náðist í stang-
arstökki árið 1979. Lohre, sem er
fyrirliði landsliðs Þjóðverja í
frjálsum íþróttum, hefur sett
stefnuna á Ólympíugull næsta
sumars, hyggst hann þar setja
heimsmet. Teija fróðir menn ekki
loku fyrir það skotið.
Tvíburabræður:
Það fór vel á með þeim tvíburabræðrum Óskari og Þráni þegar þeir
mættust í kappleik í Vestmannaeyjum nú fyrir skömmu. Báðir eru
þeir miklir handknattleiksmenn. Ánnar þeirra leikur með Tý frá
Vestmannaeyjum en hinn með Ármanni. Myndin var tekin er liðin
mættust í bikarleik fyrir skömmu og hafði Týr betur í viðureigninni.
sigraði með 26 mörkum gegn 21.
Ljósm. Sigurgeir.
Erlendu leikmennirnir
vinsælir
MIKLAR umræður hafa spunnist
í dagblöðunum í vetur um erlendu
þjálfarana sem hér á landi dvelja,
og hafa þær ekki allar verið
jákvæðar. Voru því vinsældir
þeirra kannaðar hjá áhorfendum.
í áðurnefndri könnun var yfir-
gnæfandi meirihluti áhorfenda
fylgjandi erlendum þjálfurum og
leikmönnum, eða 94%. Einungis
3% voru andvígir.
Vinsældir amerísku leikmann-
anna meðal áhorfenda eru því
hafnar yfir allan grun, líkt og hin
aukna aðsókn á körfuknattleiks-
leiki benti til.
íslenska drengjalandsliðið í knattspyrnu, sem gerði garðinn frægan milli jóla og nýárs í Frakklandi, en
þar náðu drengirnir góðum árangri. Lengst til vinstri er þjálfari liðsins, Lárus Loftsson, og lengst til
hægri er Gyifi Þórðarson.
ÞEGAR Valur og KR léku í
Úrvaldseildinni fyrir jólin var
gerð könnun meðal áhorfenda.
400 blöðum með 9 spurningum
var dreift meðal áhorfenda, sem
voru um 900 talsins. 100 blöðum
var skilað útfylltum.
KR-ingar voru i meirihluta
meðal áhorfenda að þessum marg-
fræga leik, eða 56%. Valsaðdáend-
ur voru einungis 21%, en 23%
fylgdu öðrum liðum.
Leikur Vals og Hauka í hand-
knattleik þetta sama kvöld hefur
ef til viH dregið eitthvað úr
aðsókn.
Við töldum víst að körfuknatt-
leikur væri hvað vinsælastur með-
al ungs fólks, en þrátt fyrir það
kom okkur mjög á óvart að flestir
áhorfenda voru á aldrinum frá
fermingu að tvítugu.
Einnig kom okkur skemmtilega
á óvart hversu kvenþjóðin var
fjölmenn á leiknum, en þriðji hver
áhorfandi var kvenkyns.
• Það er orðin tiska um næstum
alian heim að skokka sér tii
heilsubótar. Mynd þessi er af
möppudýrum í Hannover í Vest-
ur-Þiskalandi, en gæti verið tekin
hvar sem er á Vesturlöndum eða í
Bandarikjunum og jafnvel víðar.
Þeir sem hafa ráð á því, brosa í
kampinn og segja að mennirnir
séu á fiótta undan hjartabilun.
Flestir áhorfenda, eða 60%,
horfa oft á körfuknattleik, 35%
horfa „stundum" og 5% sjaldan á
körfuknattleiksleiki.
Mikill meirihluti áhorfenda
fylgist með öðrum boltaíþróttum.
Flestir, eða 85%, horfa á knatt-
spyrnu en færri á handknattleik,
eða um 60%.
Þegar litið er nánar á þann hóp
áhorfenda sem fylgist jafnframt
með handknattleik kemur í ljós,
að meðal þeirra eru allir þeir sem
„sjaldan" koma á körfuknattleiki
og 65% þeirra sem „stundum"
mæta og fylgjast með körfubolta.
Það virðist engin goðgá að
draga þá ályktun af því sem hér
hefur verið tekið fram, að við
körfuknattleiksmenn eigum okkur
nokkuð tryggan hóp áhorfenda,
sem koma reglulega á kappleiki.
Einnig má álykta að stór hópur
íþróttaunnenda horfi jöfnum
höndum á leiki í handknattleik og
körfuknattleik, það er helstu úr-
slitaleiki.
J