Morgunblaðið - 15.01.1980, Side 25

Morgunblaðið - 15.01.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 33 Frumvarp um Húsnæðismálastofnun: „Er vita gagnslaust í því sem mestu varðar — sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson 66 Þorvaldur Garðar Krist- jánsson (S) og Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) gagnrýndu harðlega framkomið stjórnar- frumvarp um Húsnæðismála- stofnun ríkisins í efri deild Alþingis í gær. borvaldur sagði að þungamiðjuna. það er fjármagnsútvegunina, vantaði í frumvarpið, og Ólafur Ragn- ar að það væri á ýmsa grein meingallað og spor afturábak. Tíu gagnrýnisatriði Ólafur Ragnar Grímsson (Abl) sagði húsnæðisfrumvarp það, sem Magnús H. Magnússon félagsmálaráðherra hefði ný- lega mælt fyrir, væri gallað á marga lund og raunar spor afturábak. — Gagnrýnisatriði ólRGr voru 10 talsins og efnis- lega þessi: 6. Það markmið að Vz íbúðar- húsnæðis félli undir félagslegar framkvæmdir væri sett of langt fram í tímann. 7. Þróun leiguíbúðarhúsnæðis væru settar alltof þröngar skorður. 8. í frumvarpið vantaði meiri sveigjanleika, varðandi félags- legt húsnæði, sem þyrfti að ná til raðhúsa og einbýlishúsa, eins og fjölbýlishúsa. 9. Frumvarpið seinkaði en flýtti ekki útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis. atriði í frumvarpinu — svo ótrúlegt sem það þó væri. Hann rakti í ítarlegu máli þróun húsnæðislöggjafar, bæði al- menna veðlánakerfisins og verkamannabústaða. Hann minnti á að öllum breytingum á þessu kerfi, sem máli skiptu, hefðu fylgt samsvarandi fjár- mögnunarákvæði, eins og þegar skyldusparnaður og síðar launaskattur voru upp teknir. Nú væri horft fram hjá þessu meginatriði í frumvarpinu. ÞGKr sagði lánahlutfall mið- að við byggingarkostnað hafa verið 30% þegar 1955, er al- Þorvaldur Garðar Kristjánsson Gölluð ákvæði, spor aftur- ábak, sagði Olafur Ragnar 1. Lánakjör yrðu mun verri en þau nú væru. 2. Ákvæði frumvarpsins og fjárhagsstaða sveitarfélaga væru á þá lund, að draga hlyti úr félagslegum íbúðarbygging- um. 3.1 frumvarpinu væru ákveðnar hindranir í vegi þeirra sem vildu kaupa og/eða endurbæta eldra húsnæði. 4. Itök og áhrif verkalýðshreyf- ingar í meðferð húsnæðismála væru skert til muna. 5. Stjórnunarbákn húsnæðis- mála væri stóraukið í frum- varpinu — væntanlega til að bæta fleiri silkihúfum á jötuna. 10. í frumvarpið skorti ákvæði, sem kvæði á um hlutfallslegt hámark greiðslubyrði lánþega með lægri laun. Þá fjallaði ÓIRGr um stefnu- mörkun, sem Alþýðubandalagið vildi setja á oddinn í húsnæðis- málum, og draga ætti úr stétta- mismun á þeim vettvangi. Mikið vantar þegar f jármögnnina vantar Þorvaldur Garðar Kristjáns- son (S) sagði m.a. að frumvarp- ið væri vita gagnslaust í því sem mestu varðaði, þ.e. í fjár- mögnun húsnæðismálakerfis- ins. Um þetta efni væri ekki eitt ólafur R. Grimsson menna lánakerfinu var komið á fót. Þetta lánahlutfall hafi verið komið í 40—50% fyrir 10 árum en síðan hafi aftur sigið á hinn verri veg. Lánahlutfallið væri nú ekki hærra en i upphafi. Samkvæmt þessu frumvarpi væri verkefnum bætt á lána- kerfið og stefnt að hækkun í 80%, sem væri góðra gjalda vert, og mark sem þyrfti að nást á skemmri tíma en áratug, en naumast marktæk nema fjár- mögnun fylgdi. Raunar skorti fjármagn til að standa undir núverandi lagaákvæðum, hvað þá viðbótum. Samkvæmt grein- argerð með frumvarpinu skorti 2lÆ milljarð króna þegar í ár, til viðbótar núverandi tekjum lánakerfis, ef standa ætti við ákvæði þessa frumvarps og 10 milljarða 1990, þó miðað væri við sama Verðlag þá og nú. Hvergi í frumvarpinu væri þó að finna viðbótarfjármögnun. ÞGKr sagði hins vegar ábendingar í þessa átt, óljósar þó, í greinargerð. Þar væri ráðgert að V2 tekna kæmi úr ríkissjóði, án þess að fjallað væri um tekjur þar á móti, og V2 úr lífeyrissjóðakerfi, án þess að gera frekari grein fyrir, með hvaða hætti það ætti að gera. Með lögbindingu? Samkomu- lagi? Eða frjálsum verðbréfa- markaði? — spurði ræðumaður. ÞGKr sagði að skv. frum- varpinu yrðu lánakjör hagstæð- ari fyrstu 7 árin (miðað við reglur nú) en lakari á síðari hluta lánstíma. Það væri og miður að lánstími væri styttur úr 26 í 21 ár. Lánstími væri og styttur varðandi verkamanna- bústaði en þar væru vaxtakjör bætt. Greiðslubyrði væri einnig þar hagstæðari fyrstu 2 til 4 árin en þyngdust síðan. Varð- andi leiguíbúðir væri lánstími- styttur úr 33 árum í 15, vextir hækkaðir úr 2% í 3,5% og lánahlutfall lækkað úr 80 í 70%. Þetta er ekki framfaraátt sagði hann. ÞGKr sagði að lánabyrðin ætti að vera með þeim hætti að almenningur gæti undir henni staðið með almennum launa- tekjum. Hann tók undir gagn- rýni ÓlRGr varðandi það, að stefnt væri að stækkun „bákns- ins“ með frumvarpinu. Athug- andi væri að færa aimenna veðlánakerfið yfir í bar.kakerfið og gera ýmsar skipulagsbreyt- ingar til að einfalda fyrirkomu- lag allt. Þá bæri allt eins að manna samstarfsnefnd um fé- lagslegar byggingar fulitrúum VMSI og Sambands ísi. sveit- arfélaga eins og BSRR og ASÍ. Umræðu var frestað. Þingfréttir í stuttu máli Pálmi Jónsson: Byggðasjóður og bú- vöruframleiðslan Nýr þingmaður Bogi Sigurbjörnsson, skatt- endurskoðandi í Siglufirði, hef- ur tekið sæti á Alþingi í fjar- veru Ingólfs Guðnasonar, þing- manns Framsóknarflokksins af Norðurlandi vestra, vegna anna hins síðarnefnda. Bogi hefur ekki setið áður á Alþingi. Byggðasjóður og óverðtryggður útflutningur Pálmi Jónsson (S) mælti í gær fyrir frumvarpi til laga, sem flutt er af 9 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, um útveg- un 3ja milljarða króna til að bæta bændum að nokkru halla af óverðtryggðum útflutningi landbúnaðarvara á síðasta verð- lagsári og til að greiða fyrir sölu Bogi Sigurbjörnsson á þeim búvörubirgðum, sem óseldar voru við upphaf þessa verðlagsárs. Tveimur milljörð- um skal varið til endurgreiðslu á verðjöfnunargjaldi, sem Fram- leiðsluráð landbúnaðarins inn- heimti af framleiðslu síðasta verðlagsárs, en einum milljarði til þess að greiða fyrir sölu á birgðum og framleiðslu búvöru fyrri hluta þessa verðlagsárs. Byggðasjóði verði gert að leggja fram einn milljarð króna á ári að hámarki á næstu þremur árum til endurgreiðslu á láni sem tekið verði í þessu skyni. Vandi landbúnaðar Pálmi Jónsson (S) ger.ði grein fyrir vanda landbúnaðar, sem stafaði m.a. af því að ekki hefði fengizt fullt verð. fyrir fram- leiðslu síðasta verðlagsárs, vegna halla á útflutningi bú- vara. Þar við hafi bætzt gífur- legt tjón, sem stafað hafi af harðindum, er gengu yfir landið Pálmi Jónsson í vor og sumar. Heyfengur væri verulega minni en um árabil. Dilkar væru óvenjurýrir, víða allt að 2 kg léttari en í fyrra, kýr mjólkuðu minna vegna tíðra hrakviðra og við blasti sam- dráttur í búvöruframleiðslu og versnandi afkoma bænda. I júnímánuði hafi landbúnað- arráðherra skipað nefnd til að gera tillögur um „lausn á vanda- málum bænda vegna söluerfið- leika erlendis á umframfram- leiðslu landbúnaðarafurða, þannig að tekjuskerðing bænda verði sem minnst". Frumvarp þetta væri alfarið byggt á tillög- um meirihluta nefndarinnar, sem myndaður var fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsoknar- flokks og Alþýðubandalags. Nokkrar umræður urðu um málið og skoðanir skiptar. Elli- og örorku- þegar og húsnæðislán Jóhanna Sigurðardóttir (A) mælti í gær fyrir frumvarpi um breytingu á lánakjörum elli- og örorkuþega hjá Húsnæðismála- stofnun ríkisins. Gerir frum- varpið ráð fyrir heimild til að lána elli- og örorkulífeyrisþeg- um til endurbóta á eigin hús- næði þeirra, með sérstokum kjörum. Sagði Jóhanna að reynslan væri sú að eili- og örorkuþegar nýttu ekki ián af þessu tagi vegna lánakjara, sem þeir fengju ekki við ráðið. Alexander Stefánsson (F) sagði frumvarp þetta betur komið sem breytingartillögu við frumvarp félagsmálaráðherra um Húsnæðismálastofnun, sem væri til umræðu 1 efri deild þennan sama dag. Johanna sagði eðlilegt að ræða frumvarp sitt samhliða frumvarpi ráð- herra, í viðkomandi þingnefnd- um, en hún sæi ekki ástæðu að draga frumvarp sitt til baka eins og Alexander hefði farið fram á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.