Morgunblaðið - 15.01.1980, Side 30

Morgunblaðið - 15.01.1980, Side 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1980 + Eiginmaöur minn, ÓSKAR SNORRASON, Eyjahrauni 41, Þorlákshöfn, andaöist á Borgarspítalanum 13. janúar. Margrét Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, HELGI SÍMONARSON Grænukinn 18, Hafnarfirði, lést á Borgarspítalanum þann 12. janúar. Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna Jóhanna Bjarnadóttir. + Sonur minn, faöir okkar og bróöir, ÁRNI HLÖOVER ÁRNASON, lést 11. janúar. Kristín Bjarnadóttir, Sigurgeir Árnason, Reynir Árnason. + Faðir okkar, GUNNAR JÚLÍUSSON, lést í Landakotsspítalanum 13. janúar. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd vandamanna, Dagrún Gunnarsdóttir, Hjalti Gunnarsson. + Eiginmaöur minn, SÆMUNDUR SÍMONARSON, fyrrv. símritarí Dunhaga 11, andaöist í Landspftalanum 11. janúar. Svanhildur Guðmundsdóttír. + SALVÖR ÁGÚSTA ÓFEIGSDÓTTIR fré Borgarkoti, Skeiðum, andaöist aö morgni 13. janúar á Landspítaianum. Aðstandendur. + Konan mín, GUOBJÖRG BRYNJÓLFSDÓTTIR, Austurgötu 19, Keflavík sem andaöist 8. janúar, veröur jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 16. janúar kl. 2 e.h. Siguröur Sigurðsson. Sonur okkar og bróöir, JÓHANNES OLSEN, Meistaravöllum 25 er lést af slysförum 7. janúar, verður jarðsunginn frá Neskirkju miövikudaginn 16. janúar kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Þeir, sem vilja minnast hans, láti Ýr, fjölskyldufélag Landhelgisgæslumanna, njóta þess. Karl H. Olsen, Anna Jóhannesdóttir, og systkini hins létna. Minning: Ólafur Björns- son kaupmaður Fæddur 18. marz 1920. Dáinn 28. des. 1979. Kveðja írá systkinum Ólafur Björnsson, bróðir minn, var næst-yngstur okkar systkin- anna sem erum Hrefna, Einar Örn, Hjalti, Ari og Fjölnir, einnig tvö hálfsystkini frá fyrra hjóna- bandi föður okkar, Leifur og Kristín, sem bæði eru látin. Ólafur var fæddur að Stóra-Sandfelli í Skriðdal, S-Múl., 18. marz 1920. Foreldrar voru Guðrún Einars- dóttir og Björn Antoníusson. Þau fluttu að Mýnesi í Eiðaþinghá vorið 1921 og var þá Ólafur rúmlega eins árs. Þar ólst hann upp með foreldrum og systkinum en var liðlega 10 ára gamall er faðir hans lézt í Reykjavík vorið 1930. Það var mikið áfall fyrir okkur systkinin, móður okkar og móðursystur, en ákveðið var að halda áfram búskap og reyna með þeim hætti að varðveita sam- heldni fjölskyldunnar. Það tókst þótt dökkt væri í álinn og reyndi hver og einn að vinna heimilinu eftir beztu getu. Kreppuárin og afleiðingar þeirra voru hlutskipti fólksins í sveitunum á fjórða áratugnum en samheldni, elja og atgervi svarið til að halda velli og hafa fram- tíðarsýn um betra og bjartara líf. í þessu andrúmslofti. ólst Ólafur upp í hópi systkina og foreldra sem sýndu okkur mikla alúð og umhyggju sem endurspeglaðist í fögru umhverfi og víðum sjón- hring á okkar fagra Héraði, en Mýnes stendur í miðju þess austan Lagarfljóts. Stóra-Sandfell var fæðingarstaðurinn og æskuheimili móður okkar en hún var af hinni kunnu vefaraætt. Faðir okkar var ættaður frá Flögustöðum í Álfta- firði. Snemma bar á fjölbreyttum hæfileikum Ólafs í öllu starfi, allt lék í höndum hans og móðir okkar kenndi honum á orgel og kom honum í nám hjá Matthildi Matthíasson Einarsdóttur Kvar- an, er kenndi honum píanóleik og fleira enda var Ólafur músíkalsk- ur og söngvinn svo af bar. Ólafur flutti til Reykjavíkur 1941 og stundaði fyrstu árin alls konar störf, meðal annars leigubílaakst- ur og akstur strætisvagna. Vann hann að píanóviðgerðum, stilling- um hljóðfæra og uppsetningu kirkjuorgela með Pálmari ísólfs- syni. Einnig vann hann sjálfstætt. En aðalævistörf Ólafs voru verzl- Kveðja: Vignir Andrésson Vignir Andrésson, vinur og skólabróðir, lést 31. desember 1979 og hafa birst eftirmælisgreinar um hérveru hans í þessu lífi í Morgunblaðinu og Dagblaðinu sem ég hefi ekki neinu við að bæta. Þessar greinar rekja ævifer- il Vignis vel viðvíkjandi ætterni, uppeldi, menntun og ævistarfi, þar til heilsa hans varð svo aum, að starfskraftar hans voru þrotn- ir. Ég þarf hér engu við að bæta, ætla aðeins með þessum fáu línum að lýsa nokkuð fyrstu kynnum okkar Vignis og hvernig vinátta og virðing fyrir hverjum öðrum hélst þar til „kallið" kom fyrir hann á undan mér. Við Vignir hittumst fyrst í heimavist Gagnfræðaskóla Akur- eyrar 1921 og vorum við, endan- lega, sérstaklega nátengdir her- bergisfélögum mínum á suðurvist skólans, Bergi Björnssyni, Þor- steini Símonarsyni og Sigurmoni Hartmannssyni. (Veit, að Þor- steinn er dáinn, en bið Berg og Sigurmon (Mona) að minnast Vignis ef þeir eru ennþá lifandi.) Eftir skólavistina á Akureyri skildu leiðir okkar Vignis um hríð, en við mættumst aftur sem ná- búar, hann með konu sinni Þór- unni á Egilsgötu 22 og ég með konu minni, Elnu, í næsta núsi nr. 24. Vantar hér orð til að lýsa fögnuði mínum að hafa Vigni og Tótu sem nábúa, en sambúðin entist ekki nema frá 1938 til 1944, er konan mín og ég fluttum til Ameríku og vorum þar í 23 ár. Samt sem áður héldum við vin- áttutengslum okkar við, því við Elna komum vanalega á hverju ári til íslands og bar þá oftast t Þökkum auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu RAGNHILDAR ÓLAFAR GOTTSKÁLKSDÓTTUR, Tjarnargötu 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum viö kór Frímúrarareglunnar. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar SKARPHÉÐINS VEMUNDSSONAR sem lést 31. des. síöastliöinn. Sérstakar þakkir til allra vina hans, sem heimsóttu hann og hjálpuöu í veikindum hans. Bragi, Þráinn og Ómar Skarphéöinssynir. t Þakka af alhug auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför sonar míns GÍSLA DAN DANÍELSSONAR. Sérstakar þakkir vil ég færa verkstjórum og starfsfólki fsbjarnarins hf. Dýrley Siguröardóttir. unarstörf og rak hann umfangs- mikinn verzlunarrekstur í skó- fatnaði hér í borg í meira en tvo áratugi. Kona hans, Jörgína R. Júlíusdóttir, var við hlið hans og hvatti til dáða allt sem var til hags í hinum mikla verzlunar- rekstri og þjónustu við viðskipta- vini. Umsvif Ólafs voru honum aflgjafi í þeirri viðleitni að láta muna um sig og láta ekki deigan síga. Þetta er saga sveitadrengs er kom úr heimahögum með hug- myndir sínar og atgervi að leiðar- ljósi. Fyrri kona Ólafs var Ragnhild- ur Ölafsdóttir en þau slitu sam- vistum. Börn þeirra eru Kristín, Ragnheiður, Bergþór og Anna. Seinni kona hans var Jörgína R. Júlíusdóttir en hún lézt hinn 5. maí 1976. Börn þeirra eru Jú.líus og Alma. Á ferðum mínum til Reykja- víkur kom ég ævinlega til Ólafs og Ragnhildar og átti þar góðu að fagna. Einnig kom ég á heimili þeirra Gínu og Ólafs í hvert sinn er ég var hér á ferð og átti þar margar ánægjulegar stundir. Þar var spilað og sungið og málin rædd og margt geft að gamni sínu. Við systkini Ölafs þökkum hon- um samveruna og vitum að lífið heldur áfram sinni för og lifir í eftirkomendunum og viðkynningu við gott fólk. Þess vegna tek ég undir þessi orð „Við lifum þótt við deyjum". Við sendum börnum Ólafs og barnabörnum innilegar samúð- arkveðjur og biðjum þeim bless- unar á komandi tíð. Einnig send- um við venzlafólki hans hugheilar kveðjur og samúð. Blessuð sé minningin um Ólaf og Gínu konu hans. Þökk fyrir allt. Reykjavík, 10. janúar 1980. Einar Örn Björnsson Mýnesi. Útför Ólafs Björnssonar fer fram í Fossvogskirkju þriðjudag- inn 15. þessa mánaðar klukkan 13.30. fundum saman. Við töluðum þá mest um að hafa verið skólabræð- ur og nábúar og að vinskapurinn hefði haldist í svo mörg ár. Ætlunin var að halda öllu í sama horfi þegar Elna og ég kæmum heim eftir útivistina í Ameríku. Því miður, við Elna komum of seint heim, heilsa Vignis var á niðurleið. Við nutum samt í nokk- ur ár hans óumræðanlega krafts í að vera þjóðfélaginu til góðs og okkur til skemmtunar og blessun- ar. Hann kenndi síðustu ár sín slökunaræfingar og var ég einn af nemendum hans. Nú er vinur minn Vignir And- résson, horfinn af sjónarsviði mannlegs lífs. Ég og fjölskylda mín sakna hans, þar sem nú verður ekki um samverustundir að ræða. Að endalokum vil ég taka mér „bessaleyfi" og vitna í ljóðlín- ur í lok kvæðis Einars Benedikts- sonar, „Norðurljós": . Hve voldugt og djúpt er ei himinsins haf og voldugar snekkj- ur, sem leiðina þreyta." Minn gamli vinur var alltaf voldug snekkja, sem leitaði að höfn við sitt hæfi og nú hefur hann fundið þá höfn er honum hæfir, íslenskri mold er hann óx upp úr og nú endanlega vefur hann að sér. Þökkum gömul kynni og óskum Tótu alls hins besta. Elna og Bjarni Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.