Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 2

Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1980 Suðureyri: Báran eyðilagð- ist í eldsvoða SALTFISKVERKUNARSTÖÐIN Bára á Suðureyri við Súganda- fjörð eyðilagðist í eldi á sunnu- dag, en eldur kom upp þegar verið var að þíða leiðslu með gastæki. Eldurinn breiddist fljótt út þannig að slökkviliðinu gekk mjög erfiðlega að hemja hann, sérstak- lega þar sem mikið hvassviðri var á Vestfjörðum um helgina. Tjónið er gífurlega mikið, en ekki var lokið könnun á því í gærdag. Hjá fyrirtækinu unnu að jafnaði 6—8 starfsmenn, sem við þetta missa atvinnuna, en tveir heimabátar lögðu upp hjá Bár- unni. Kristján Pálsson sveitarstjóri á Súgandafirði sagði að tjónið væri mikið og kæmi hart niðri á starfsmönnunum, en væntanlega yrði hægt að koma bátunum tveimur að annars staðar. Fjölmargar hækkunarbeiðnir opinberra þjónustufyrirtækja: Hitaveitur 37% - Landsvirkjun 43% - Póstur og simi 30% - Strætisvagnar 56% Guðlaugur í leyfi? „ÉG HEF rætt þessi mál við fulltrúa vinnumarkaðarins og við menn í ráðuneytinu og ákvörðunar af því er að vænta innan tíðar,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, sáttasemjari ríkisins, er Mbl. innti hann eftir því hvort hann myndi taka sér frí frá störfum meðan hann stæði í kosningabaráttunni vegna forsetakjörs í sumar. MIKILL fjöldi hækkunarbeiðna liggur nú fyrir til afgreiðslu frá ríkisfyrirtækjum víðs vegar um land og gera þær flestar ráð fyrir meiri hækkunum heidur en geng- ið er út frá í áætlun Hagstofunn- ar um hækkun framfærsluvísi- tölu 1. febrúar n.k. Samkvæmt upplýsingum Krist- mundar Halldórssonar hjá iðnað- arráðuneytinu liggja beiðnir fyrir frá Landsvirkjun um 43% hækkun á heildsöluverði raforku og frá hitaveitum um 37% hækkun, en ekki hafa fengist hækkanir til handa þessum aðilum síðan í ágústmánuði sl. hjá Landsvirkjun og í maí hjá hitaveitum. Öllum hækkunum var frestað 1. nóvem- ber s.l. — 43% hækkun á heildsöluverði raforku myndi hafa í för með sér 17,7% hækkun á smásöluverði. Hitaveitan sækir nú um 37% hækkun eins og getið er að framan, enda hefur jafnvægið milli hitaveitu og raforku raskast mjög síðan í maí s.l. vegna síhækkandi olíuverðs. Rafmagnsveita Reykjavíkur fer ekki fram á neina sérstaka hækk- un, aðeins hækkun sem leiðir af hugsanlegri hækkun á heildsölu- verði. Síðan 1977 hefur verið miðað við að opinberar hækkanir kæmu á þriggja mánaða fresti, þannig að samkvæmt því verður að taka ákvörðun varðandi þessar beiðnir fyrir 1. febrúar n.k. Þess má og geta að Póstur og sími hefur farið fram á 30% meðaltalshækkun og Strætisvagn- ar Reykjavíkur um 56%. Þjóðhagsstofnun um tillögur Alþýðubandalags: Alvarlegur halli á ríkissjóði og misvægi á lánamarkaði — Engar grunnkauphækkanir ráðgerðar skv. tillögunum „ENGINN vafi er á, að með aðgerðum af þessu tagi má draga verulega úr hækkun framfærsluvísitölu um sinn, en hins vcgar hlýtur að fylgja þeim alvarlegur halli á ríkissjóði og misvægi á lánamarkaði, sem kæmi fram í viðskiptahaila og/eða verðhækkunum síðar.“ Þetta er niðurstaða Þjóðhagsstofnunar i umsögn um tillögur Alþýðubanda- lagsms í efnahagsmalum, en umsögn afhenta á viðræðufundi sl. Þjóðhagsstofnun segir, að kjarninn í tillögum Alþýðubanda- lagsins sé sá að freista þess að draga úr verðbólgu með auknum niðurgreiðslum, lækkun skatta og vaxta, auk þess sem framlög til félags-, trygginga- og landbúnað- armála verðí aukin verulega. í umsögn Þjóðhagsstofnunar segir, að í árslok 1980 gæti verð- að vinstn viðræðum fengu þessa laugardag. bólguhraðinn samkvæmt þessum tillögum verið kominn nálægt 30—35% en strax og kæmi fram á árið 1981 yrðu bein áhrif aukinna niðurgreiðslna og annarra niður- færsluráðstafana búin og við tækju verðbreytingar, sem réðust fyrst og fremst af grundvallarskil- yrðum í þjóðarbúskapnum, bæði ytri og innri, þ.e. erlendum verð- breytingum og innlendri eftir- spurn. í umsögn Þjóðhagsstofnunar kemur fram, að í tillögum Alþýðu- bandalagsins sé ekki gert ráð fyrir grunnkaupshækkunum á þessu ári. Niðurstaðan varðandi kaup- máttinn er sú, að kaupmáttur kauptaxta muni minnka um 2% milli áranna 1979 og 1980 en að kaupmáttur ráðstöfunartekna ein- staklinga minnki að meðaltali um 'h % til 1 ‘h % eftir því hvort miðað sé við tekjuskattlagningu skv. fjárlagafrv. frá október eða des- emberfrumvarpi. Þjóðhagsstofnun: Verðlag á ýmsum frystiafurðum stendur hölliun fæti í umsögn þeirri, sem Þjóð- hagsstofnun hefur gefið um tillögur Alþýðubandalags- ins í efnahagsmálum kem- ur fram, að framundan virðist hætta á hækkun olíuverðs og jafnframt seg- ir að „verðlag á ýmsum frystiafurðum á Banda- ríkjamarkaði er talið standa höllum fæti“. Svavar Gestsson: „Mun skýra frá við- ræðunum i einstök- um atriðum síðar44 Steingrímur Hermannsson: Vinstri stjórnar viðræðurnar í gær. „Maður segir ekki drukkn- andi manni að greiða sér44 LjAsmynd Mbl. ól.K.M. AÐ loknum stuttum fundi viðræðunefnda Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks í Þórs- hamri á sjöunda tímanum í gærkvöldi sagði Svavar Gestsson alþingismaður sem stýrði stjórnarmyndun- arviðræðum um skipan vinstri stjórnar að menn hefðu gert upp stöðuna á fundinum. „Ég mun ræða við forseta íslands í fyrramálið um gang viðræðnanna og stöðuna", sagði Svavar en ekki vildi hann segja af eða á um það hvort stjórnarmyndunartil- raunum hans væri lokið. Aðspurður um undirtektir Alþýðuflokksmanna og Framsóknarmanna við til- lögum Alþýðubandalagsins sagði Svavar að þær hefðu verið dræmar, „en ég mun síðar skýra frá því í einstök- um atriðum hvernig það gekk fyrir sig.“ „VIÐ höfum skoðað tillögur Al- þýðubandalagsmanna mjög vel.“ sagði Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins i samtali við Mbl. í gærkvöldi,“ og í ákveðnum málaflokkum sem okkur þykja skipta miklu máli höfum við kallað á ýmsa menn sem vel þekkja til og spurt þá álits. í þessum tillögum er til dæmis fjallað um aukna framleiðni, það er fjallað um niðurfærslu í verzl- un og vexti. Margt í tillögunum er mjög athyglisvert, en það eru grundvallarþættir sem ekki ganga upp og þegar slíkt bregst vill niðurstaðan vera skrítin. Það er skynsamlegt að fjalla um aukna framleiðni, en við teljum það ekki raunhæft eins og staðan er í dag nema að mjög litlu leyti. Alþýðubandalagsmenn telja t.d. að framleiðniaukning í fiskvinnslu geti orðið 7% á árinu en við teljum raunhæft að miða aðeins við 2—3%. Atvinnuvegirnir þurfa að vera sterkir ef framleiðni á að aukast. Maður segir ekki drukkn- andi manni að fara að greiða sér. Þá leggja Alþýðubandalags- menn til að niðurfærsla verð- álagningar í verzlun verði 5—10%, en verzlunin þolir þetta ekki. Þetta getur ef til vill gengið hjá toppmörkuðunum í Reykjavík sem nýta ekki fulla álagningu í sumum tilvikum, en þetta gæti keyrt alla dreifbýlisverzlun um koll.“ Spurningunni um það hvort þessum stjórnarmyndunartilraun- um væri lokið án árangurs svaraði Steingrímur: „Svavar hittir for- setann á morgun, þetta var stutt- ur fundur og það má draga sínar ályktanir af því, nema þá að forsetinn leggi mjög hart að hon- um.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.