Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1980 KAWNO Á þessu heimili geta allir hagað sér eins og heima hjá sér. Þú mátt fara úr skónum! Nei, hann varð ekki fyrir slysi — er bara kulvís! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Þekktasta bridgesveit Banda- ríkjanna síðasta áratug er án vafa Ásarnir, sérstaklega mynd- að lið atvinnumanna með heima- völl í Dallas. Strangar æfingar undir stjórn fyrrverandi herlið- þjálfa áttu sinn þátt í styrk sveitarinnar en aðeins tveir Ás- anna hafa verið í sveitinni allan tímann og í dag sjáum við þá í leik. Austur gaf, norður suður á hættu. Vestur S. K92 H. 98543 T K L. ÁG42 Norður S. Á843 H. ÁKDG6 T. 102 L. K9 Austur S. 5 H. 72 T. ÁDG98743 L. 63 Þetta er nýjasta gerðin með áfastri skál fyrir höfuðverkjapillur, vegna kastljóssins! Áttar fólk sig á raunveruleikanum? „Það væri fullkomið hneyksli í íslenskri pólitík og þingsögunni allri ef þjóðin yrði að þola það hlutskipti að marxisti hefði stjórnarforystu á hendi eins og nú virðist stefnt að í stjórnarmynd- unarviðræðum þriflokkanna, Framsóknar, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks. Já, ef slíkt slys henti okkur nú og það tækist þá gerðu íslendingar sig að viðundri í augum allra frjálsra þjóða í heiminum þar sem fullt frelsi og almenn mannrétt- indi eru í heiðri höfð og hvarvetna eru metin til hinna æðstu lífsgæða. Og spyrja má hvers virði er lífið án frelsis í orðum og athöfnum. Já, þannig lítur þessi stjórn- armyndunartilraun út frá mínum bæjardyrum séð og ég hef sterkan grun um að mikill meirihluti þjóðarinnar sé á svipaðri skoðun, annað væri óeðlilegt að mínu mati. Nú, en hins vegar er á það að líta að nytsamir sakleysingjar munu enn um sinn halda fast fram rússaþjónkun sinni á svipað- an hátt og verið hefur. Slíkum blindingjum er ekki hægt að bjarga frá glötun og eru þeir því sjálfum sér verstir. Þetta fólk áttar sig ekki á raunveruleikanum fyrr en á bak við lás og slá í fangaklefanum. En þá er það bara orðið of seint fyrir það að sjá villu sína. Þessir blessuðu guðsvoluðu vesalingar verða því að bera harm sinn í hljóði í von um betri hag síðar. En hversu vonlaust er það líka. Já, svona er nú ástandið I heiminum í dag, eiginlega hvergi bjart framundan, alls staðar nokkrir erfiðleikar að glíma við, en hins vegar hin eilífa barátta mannanna við að reyna að sigrast á þeim að lokum. Og ekki bæt.ir sá Suður S. DG1076 H. 10 T. 65 L. D10875 Atvinnumennirnir tveir, Wolff og Hamman, sátu í sætum vesturs og austurs. Ilamman byrjaði með að opna á fjórum tíglum og eftir tvö pöss sagði norður fjögur hjörtu, sem vestur doblaði. Suður var smeykur við það spil, breytti í fjóra spaða, aftur doblaði Wolff en þá redoblaði norður og þrju pöss fylgdu. Wolff spilaði út tígulkóng, sem Hamman tók með ás og tók næsta slag á tíguldrottningu. En hvað svo? Hamman var ekki á því, að rétt væri að spila laufi á ás makkers og vonast síðan til, að slagur fengist á tromp. Nei, hann spilaði tígli út í þrefalda eyðu! Þetta tryggði trompslag hjá makker og laufásinn gerði síðan sigurslag varnarinnar. Sé spilið athugað má sjá, að ekki er sáma hvað vestur gerir þegar suður trompar tígulinn með hátrompi. Auðvitað lætur hann ekki kónginn, bíður heldur og lætur lauf. Suður getur þá tekið á hjartatíu, svínað trompi og spilað hjörtunum. En hann losnar ekki við öll laufin, vestur fær á ásinn sinn og trompslaginn, sem beið tilbúinn. Maigret og vínkaupmaðurinn Eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslensku 25 finnst þér ættuð að virða þagn- arskyldu mína. Eftir að hafa hlýtt þolinmóð- ur á hana sagði hann án þess svo mikið scm að hækka róm- inn: — Svarið mér! Og hún vissi fullvel að gagn- vart honum hafði hún ekki siðasta orðið. — Nokkrir þeirra. - Hverjir? — Hr. Gerard Auhin, banka- stjórinn. Hann gætir mjög stíft að þvi að enginn fái neitt um ferðir hans að vita hingað. — Kemur hann oft? — Nokkrum sinnum í mán- uði. — Er einhver með honum? — Daman kemur alltaf á undan. - í hvert skipti sú hin sama? - Já. — Það hefur ekki komið fyrir að hann hafi rekizt á Chabut í ganginum eða á tröpp- unum? — Ég gæti þess jafnan að slíkt komi aldrei fyrir. — Hann gæti hafa séð hann úti á götu eða þekkt bílinn hans. Hefur konan hans verið hér? — Með hr. Oscar, já. — Hverja kannist þér við aðra? — Marie France Legendre, sem er gift verksmiðjueigand- anum. — Ilefur hún oft komið hér? — Fimm eða sex sinnum. — Alltaf með Chabut? — Já. Ég þekki ekki mann- inn hennar, en það getur vel verið hann komi hér og kalii sig öðru nafni. Margir gera það. Til dæmis ráðherrann Andre Thorel. Hann hringir á undan og biður mig að útvega sér unga stúlku, helzt fyrirsætu. Hann kailar sig alltaf hr. Louis, en þar sem oft eru myndir af honum i blöðunum þekkja hann allir. — Eru nokkrir sem koma jafnan á miövikudögum. — Nei. Þeir hafa engan fastan dag. — Er írú Thorel ein aí ást- konum Oscars Chabuts? — Rita. Ilún hefur bæði komið með honum og fleiri karlmönnum. Ilún er lítil, dökkhærð kona sem getur ekki án karlmanna verið. Ég held hún þurfi mjög á því að halda að alíir sýni henni áhuga. — Jæja, ég þakka yður fyrir. — ER ég þá laus? — Það veit ég ekki. — Ef þér eruð tilncyddur að koma hingað viljið þér þá ekki gera mér þann greiða að hringja á undan, svo að ég geti komið í veg fyrir hugsanleg óþægindi sem kæmu sér baga- lega fyrir mig. Ég er yður þakklát að hafa ekkert minnzt á mig við blaðamennina. Maigret gekk út í bílinn. Heimsóknin hafði svo sem ekki hjálpað stóriega, en þar sem hann skorti enn einhvern punkt til að ganga út frá varð hann að leita hvarvetna. — Og hvað nú, húsbóndi? — Heim til mín. Ennið var heitt og hann fann til i höfðinu og kenndi til í öxlinni. — Svona nú, góur, Hresstu þig upp. Þú ert með listann. Farðu á skrifstofuna og láttu taka af honum ljósrit, svo að við þurfum ekki að biðja frúna um annan. Kona hans varð hissa að sjá hann koma svona snemma heim. — Ósköp ertu kvefaður að sjá. Er það þess vegna sem þú kemur svona snemma. Það var eins og móða fyrir augum hans. — Ég held ég sé að fá flensu. Það væri ekki beinlínis heppi- legt eins og málin standa. — Þetta er undarlegt mál, ekki satt? Hún hafði fengið að vita sitt að hverju gegnum fjölmiðlana um hvaða mál hann var að fást við. — Bíddu við. Ég verð að hringja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.