Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 23 KR-ingar 29 stigum betri en Stúdentar KR VANN auðveldan sigur á stúdentum í úrvalsdeildinni á laugardag, 108:79 urðu úrslitin, 50:32 í leikhléi. Síðustu 7 mínút- ur fyrri háifleiksins voru bana- biti IS í þessum leik. Þá breyttist staðan úr 26:26 í 50:32 eða 24:6 á örskömmum tíma og leikmenn ÍS hreinlega réttu KR-ingum bolt- ann hvað eftir annað, auk þess sem allt gekk upp hjá KR þessar mínútur. Er kom fram í seinni hálfleik- inn var aldrei um neina spennu að ræða, til þess var forysta KR og yfirburðir of miklir. Undir lokin var um algjöra leikleysu að ræða, a.m.k. ekki körfuknattleik. Beztur í liði KR að þessu sinni ^108=79 var Geir Þorsteinsson, sem nú er að komast í mikinn ham. Jón Sigurðsson fór rólega af stað, en gerði það sem hann lysti í seinni hálfleiknum. Jackson átti góðan leik og skoraði t.d. 12 af fyrstu 16 stigum KR. Birgir, Garðar og Agúst Líndal léku allir vel og KR virðist eiga nóg af góðum mönnum og þeir fjórir, sem ekki skoruðu í þessum leik, væru allir drjúgir liðsmenn í öðrum liðum deildar- innar og meira notaðir. Trent Smock var yfirburða- maður í liði IS, Jón Héðinsson var einnig ágætur og athygli vakti Gunnar Thors, sem þó á örugglega eftir að verða enn betri. Stig KR: Jackson 29, Jón Sig- urðsson 22, Geir Þorsteinsson 20, Birgir Guðbjörnsson 14, Agúst Líndal 12, Garðar Jóhannsson 9. Stig ÍS: Trent Smock 37, Jón Héðinsson 16, Bjarni Gunnar 10, Gísli Gíslason 7, Gunnar Thors 4, Ingi Stefánsson 2, Atli Arason 2, Jón Óskarsson 1. Dómarar: Ingi Gunnarsson og Hilmar Hafsteinsson dæmdu leik- inn ágætlega. - áij Framarar í vígamóð héldu í við Valsara FRAMARAR veittu Val verðuga keppni í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á sunnudaginn og það var ekki fyrr en um 10 mínútur voru eftir að topplið Vals komst yfir. Sigur liðsins varð að lokum nokkuð öruggur, 82:74, en þeir þurftu að hafa fyrir sínu að þessu sinni. Valsmenn sýndu alls ekki lé- legan leik að þessu sinni, hafa að vísu oft leikið betur, en Framlið- ið hins vegar var i miklum ham, mikil barátta iengst af leiknum. góð hreyfing leikmanna þangað til í lokin, og sérlega snjail leikur tveggja Framara, þeirra Þor- vaids Geirssonar og Darrells Shous. Sá síðarnefndi er nýjastur í „amerísku deildinni" lágvaxinn blökkumaður, stæltur og snögg- ur eins og köttur og bráð- skemmtilegur leikmaður fyrir áhorfendur. Valsarar áttu sinn bjarghring að þessu sinni i -vlr 74:82 Ríkharði Ilrafnkelssyni, sem aldrei hefur leikið betur, hitti úr hvaða stöðu sem var og skoraði 36 stig í leiknum. Leikurin var í jafnvægi allan tímann, en Framarar yfirleitt yfir. Mestur var munurinn 7 stig, 40:33 í leikhléi. Valsarar byrjuðu seinni hálfleikinn vel og tókst að komast yfir þegar rúmar 12 mín- útur voru eftir. Úrslitin urðu 79:73 og því í samræmi við það, sem flestir bjuggust við, en Framarar eiga eftir að gera góða hluti á næstu vikum ef svo heldur sem horfir. Beztu menn beggja liða eru áður nefndir, en auk Ríkharðs í Valslið- inu léku þeir vel Þórir Magnússon, Kristján Ágústsson og Tim Dwyer, sem lét mótlætið og dóm- gæzluna fara heldur mikið í taug- ar snar í leiknum. Þorvaldur Geirsson var beztur Framara, en Símon Ólafsson, Björn Magnússon og Ómar Þráinsson léku allir vel, auk Darrells Shous. Stig Vals: Ríkharður 36, Tim Dwyer 15, Þórir Magnússon 12, Kristján Agústsson 12, Jón Steingrímsson 4, Torfi Magnússon 2, Jóhannes Magnússon 1. Stig Fram: Þorvaldur Geirsson 20, Darrell Shous 21, Símon Ól- afsson 16, Björn Magnússon 7, Ómar Þráinsson 6, Hilmar Gunn- arsson 4. Dómarar: Þeir Ingi Gunnarsson og Hilmar Viktorsson dæmdu leikinn sæmilega, þeir gerðu sín mistök í leiknum og frekar voru þau Valsmönnum í óhag ef eitt- hvað var, en nöldur Valsmanna var til þess eins fallið að þeir fengju dómarana á móti sér. - áij Njarðvíkingar köstuðu frá sér sigri gegn ÍR-ingum NJARÐVÍKINGAR köstuðu frá sér sigri gegn ÍR í orðsins fyllstu merkingu í úrvalsdeildinni í Njarðvíkum á laugardag. Þegar aðeins 3 sekúndur voru eftir þá höfðu Njarðvíkingar knöttinn og leiddu 79—78. Þeir þurftu aðeins að halda knettinum i 3 sekúndur og sigurinn var þeirra en þá urðu Guðsteini Ingimarssyni á óskilj- anleg mistök, hann sendi knött- inn þvert yfir völlinn, ætlaði hann félaga sinum Gunnari Þor- varðarsyni. En Kristinn Jör- undsson komst á milli, sendi fram á Jón Indriðason, sem aðþrengdur skoraði körfu og fékk víti i þokkabót. Þegar knött- urinn fór ofan i var aðeins 1 sekúnda eftir — svo naumt var það og ÍR sigraði 80—79. Jón hitti ekki úr vitinu en það kom ekki að sök. Sigurinn var ÍR og að leikslokum tolleruðu ÍR-ingar Jón Indriðason. — Var það nokk- ur furða? Hann var hreint óstöðv- andi síðustu minúturnar og skor- aði þá 12 stig og lagði þannig grunn að sigri liðs sins. Langskot hans rötuðu hvert af öðru rétta boðleið í körfuna og lögðu grunn að sigri ÍR. Annars var viðureign Njarðvík- inga og IR fremur óburðug eins og raunar hefur verið um marga leiki í úrvalsdeildinni í vetur. En loka- -íRðvík79:80 kaflinn var spennandi, eins og oftar í vetur og hann bætti upp fremur slakan körfuknattleik. Njarðvíkingar byrjuðu vel gegn ÍR, komust í 18—9, síðan 29—18 og 34—22 á 16. mínútu síðari hálfleiks. Mestur varð munurinn 13 stig í fyrri hálfleik, 38—25 en staðan í leikhléi var 40—33. '— Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir höfðu Njarðvíkingar náð forystu, 77—76. ír jafnaði 77—77 með vítaskoti Kristins Jörundssonar. Njarðvík svarar 79—77 og þegar 27 sekúndur voru eftir fékk Mark Christiansen vítaskot — hann hitti úr aðeins einu og sigurinn virtist í höfn hjá Njarðvík. Þeir léku skynsamlega. Héldu knettin- um vel — allt þangað til Guð- steinn fékk hann. Hann hafði marga valkosti, síður en svo að ÍR-ingar þrengdu svo að honum og undir körfunni stóð Jónas Jóhann- esson — aleinn. En ^Juðsteinn gerði það eina ranga, tók þann kost að senda langa sendingu yfir þveran völlinn og kastaði sigrin- um frá liði sínu. Viðureign liðanna í Njarðvíkum var eins og áður sagði ekki leikur mikilla tilþrifa, þvert á móti. Bæði lið duttu niður á plan meðal- mennskunnar og gott betur. Mikill tröppugangur í leik þeirra. IR-ingar voru á köflum ótrúlega kærulausir, margar rangar send- ingar, hittni afleit. Kristinn Jör- undsson stóð uppúr í liði ÍR, hittni hans mjög góð eins og ávallt. Ekki má gleyma Jóni Indriðasyni — hann eins og áður sagði bókstaf- lega vann leikinn fyrir ÍR en í fyrri hálfleik, þegar hann var inná þá hitti hann ekki einu sinni körfuhringinn í skotum sínum. Njarðvík - hefur á skömmum tíma tapað þremur leikjum, og segjast verður eins og er, að eins og liðið lék á laugardag þá getur það ekki gert sér neinar vonir um meistaratign í ár. Sannleikurinn er að ekki eru nógu margir sterkir einstaklingar í liðinu. Stig U.M.F.N.: Gunnar Þorvarðarson 18, Ted Bee 16, Guðsteinn lnuimarsson 14, Jónas Jóhannesson 7. Jón Matthiasson 7, Július Valgeirsson 6, Valur InKÍmundarson ok Brynjar Sigmundsson 4. Iniíimar Jónsson 2. Stig tR: Kristinn Jorundsson 24. Mark Christiansen 19. Jón Indriðason ok Kolbeinn Kristinsson 12, Stelán Bjarkason 5, Guð- mundur Guðmundsson 3, SÍKmar Karlsson og Sigurður Bjarnason 2. Dómarar Jón Otti Ólafsson og Guðbrand- ur Sigurðsson. H. Halls. Bjarni Gunnar skoraði 10 stig á móti KR-ingum. Hér sést hann brjótast í gegn og reyna skot. Fyrsta tap Armanns ÞAU TÍÐINDI urðu í 1. deildinni í körfuknattleik um helgina, að Grindvíkingar unnu Armann með 118 stigum gegn 117. Jafnt var eítir venjulegan leiktíma, 103—103, og þar sem jafntefli þekkist ekki í körfuknattleikn- um var framlengt. Þá höfðu Grindvíkingar betur og unnu með einu stigi. Danny Shous skoraði 78 stig fyrir Ármann, en bezti maður vallarins var þó Mark Holmes í liði UMFG og skoraði hann 67 í bezta leik sínum fyrir Grindavíkurliðið. Þór vann Keflvikinga 85—82 á Akureyri, en Keflvíkingar bættu um betur er þeir mættu Tinda- stóli frá Sauðárkróki fyrir norð- an og unnu Sunnanmenn 101 — 61. - áij Élnkunnagjðfln KR: Birgir Guðbjörnsson 3 Jón Sigurðsson 4 Geir Þorsteinsson 4 Gunnar Jóakimsson 1 Ágúst Líndal 3 Eiríkur Jóhannesson 1 Garðar Jóhannsson 2 Árni Guðmundsson 1 Þröstur Guðmundsson 1 ÍS: Gísli Gíslason 2 Ingi Stefánsson 2 Bjarni Gunnar Sveinsson 2 Gunnar Thors 2 Jón Héðinsson 3 Atli Arason 1 Jón Óskarsson 1 Ólafur Thoroddsen 1 Lið UMFN: Jón Matthíasson 2 Oddur Stefán Björnsson 1 Brynjar Sigmundsson 2. Jónas Jóhannesson 3 Júlíus Valgeirsson 2 Ingimar Jónsson 1 Guðsteinn Ingimarsson 3 Gunnar Þorvarðarson 3 Valur Ingimundarson 1 Lið ÍR: Sigmar Karlsson 1 Kolbeinn Kristinsson 3 Jón Indriðason 3 Stefán Kristjánsson 2 Guðmundur Guðmundsson 1 Jón Jörundsson 2 Kristinn Jörundsson 4 Sigurður Bjarnason 1 Þorfinnur Karlsson 1 Valur: Ríkharður Hrafnkelsson 4 Kristján Ágústsson 3 Jón Steingrímsson 2 Jóhannes Magnússon 1 Þórir Magnússon 3 Guðbrandur Lárusson 1 Torfi Magnússon 2 Gústaf Gústafsson 1 Fram: Guðbrandur Sigurðsson 1 Björn Magnússon 2 Þorvaldur Geirsson 4 Ómar Þráinsson 2 Símon Ólafsson 3 Hilmar Gunnarsson 1 Björn Jónsson 2 Guðmundur Hafsteinsson 2 Lið Vals: Jón Steingrímsson 3 Ríkharður Hrafnkelsson 3 Torfi Magnússon 4 Jóhannes Magnússon 1 Sigurður Hjörleifsson 1 Þórir Magnússon 2 Kristján Ágústsson 3 Gústaf Gústafsson 2 Guðmundur Jóhannesson 1 Lið UMFN: Jón Matthíasson 1 Brynjar Sigmundsson 1 Jónas Jóhannesson 3 Stefán Þórisson 1 Ingimar Jónsson 1 Júlíus Valgeirsson 2 Guðsteinn Ingimarsson 4 Gunnar Þorvarðarson 4 Valur Ingimundarson 1 Lið ÍS: Gísli Gíslason 3 Bjarni Gunnar Sveinss. 2 Jón Héðinsson 4 Albert Guðmundsson 1 Atli Arason 3 Ingi Stefánsson 2 Jón Óskarsson 1 Ólafur Thorarensen 2 Gunnar Thors 3 Lið Fram: Símon ÓLafsson 4 Þorvaldur Geirsson 4 Björn Magnússon 3 Björn Jónsson 2 Jónas Ketilsson 1 Ómar Þráinsson 2 Hilmar Jónsson 1 Guðmundur Hallsteinss. 1 Guðbrandur Sigurðss. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.