Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 19
19 viðstaddur, sem væri ólíklegt, þar sem hann hefði ekkert erindi átt í húsið, væri hans hlutur mjög lítill. Sævar hafi í alla staði verið samvinnufús við lögreglu og m.a. gengist undir lygamælipróf hjá dr. Gísla Guðjónssyni, sem ekki hafi verið nein skylda hjá honum. Geirfinnsmálið Nú var komið að Geirfinnsmál- inu í varnarræðu Jóns Oddssonar. Minntist hann fyrst á frumrann- sókn málsins í Keflavík og taldi hana hafa verið meingallaða og hafa skemmt fyrir seinni rann- sókn málsins. Margar skýrslur í málinu væru óstaðfestar og óund- irritaðar en verst væri að megnið af frumgögnum virtist hafa glat- ast. Hann benti á að leirmyndin væri ekki lögð fram sem sönnun- argagn af hálfu saksóknara og hann teldi að þar með hefði hún verið dregin til baka. Verjandinn taldi að ýmislegt væri fram komið í málinu, sem gæti hugsanlega skýrt hvarf Geirfinns, þar á meðal skýrslur um einkalíf og undarlega hegðun Geirfinns, eins og hann orðaði það. Kvaðst hann ekki skýra það nánar, en dómforseti hafði áður beðið verjandann að sleppa öllum nöfnum í þessu sambandi. Þá nefndi verjandinn spírakaup, bruggtæki og tal ókunnra manna við Geirfinn við Sigöldu, allt vekti þetta tortryggni. Þá vildi verjand- inn vekja athygli réttarins á því að Geirfinnur hefði fengið að- kenningu að hjartveiki og hann hefði einnig þjáðst af þungum astmaköstum. Þá hefði hann átt það til að hverfa heiman að frá sér án þess að kveðja. Heimsóknin á Kjarvalsstaði Jón Oddsson ræddi næst ýtar- lega um heimsókn Sævars, Erlu og Sigurbjargar Guðjónsdóttur móð- ur Sævars á Kjarvalsstaði 19. nóvember, eða kvöldið sem Geir- finnur hvarf. Sagði Jón það koma fram hjá þeim öllum að þau hafi komið þangað klukkan 20.10 og horft á kvikmyndina „Eldur í Heimaey", en sýning hennar hafi byrjað klukkan 20.50. Hafi sýning myndarinnar tekið 30 mínútur. Að henni lokinni hafi hann boðið móður sinni í kaffi en hún ekki viljað þiggja. Hafi þau síðan horft á ljósmyndasýningu en að því búnu haldið að Grýtubakka heim til Sigurbjargar. Móðir Sævars kvaðst muna mjög vel eftir þessu kvöldi, þar sem hún hefði sjaldan farið út. Man hún að þau sáu seinni sýninguna og að henni lokinni hittu þau Vilhjálm Knud- sen kvikmyndagerðarmann. Sig- urbjörg sagðist hafa komið heim til sín klukkan 22.10 og hún hefði ekki séð það á Sævari og Erlu að þau hafi verið að flýta sér. Sagði Jón að framburður Sigurbjargar væri í ollum meginatriðum sam- hljóða framburði Sævars. Hún hafi alls ekki getað borið sig saman við hann þótt hún hefði viljað, því að Sævar hafi verið í einangrun. Því hafi verið um algjörlega sjálfstæðan framburð að ræða. Anna Björg Ciseielski, systir Sævars sagði að móðir sín hefði farið með þeim Sævari og Erlu á Kjarvalsstaði umrætt kvöld. Þau hafi borðað hjá þeim þetta kvöld en síðan var haldið af stað um klukkan 20. Hún kveðst muna það vel að móðir sín hafi komið heim um klukkan 22 því hún átti að taka meðal við sykur- sýki klukkan 21.30 og var Anna farin að hafa áhyggjur af því að hún var ekki komin heim á þeim tíma. Vilhjálmur Knudsen gaf skýrslu. Hann hélt dagbók og samkvæmt henni fór hann á Kjarvalsstaði umrætt kvöld, þar sem kvikmynd föður hans var sýnd. Man hann eftir að hafa hitt Sævar þar með móður sinni. Hann minnti að Sævar hefði sagt við sig að hann væri að fara til útlanda en ekki man hann nákvæmlega hvort það var í þetta skipti eða eitthvert annað skipti. Taldi J'ón Oddsson skýringuna vera þá að Sævar var að fara til útlanda á næstu dögum og hann hefði því auðvitað farið til Keflavíkurflug- vallar. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 Tímamælingarnar staðfestu fjarvistina Jón Oddsson taldi útlokað sam- kvæmt tímamælingum lögregl- unnar að þau Sævar og Erla hafi verið komin til Keflavíkur laust eftir klukkan 22, eins og fram kæmi í atvikalýsingu ríkissak- sóknarans Þórðar Björnssonar. Þar með staðfestu tímamæl- ingarnar, þótt ýmislegt mætti við þær athuga, fjarveru þeirra í Keflavík þetta kvöld. — Ég tel komna fram lögfulla sönnun um fjarvist sakborninganna 19. nóv- ember, sagði Jón Oddsson. Jón kvaðst vilja ítreka það, að hann teldi Karl Schiitz hinn þýzka ekki hafa verið nægilega vel undir það búinn að starfa hér sem lögreglumaður, þar srm hann kæmi hér inn í þjóðfélag sem væri honum framandi og réttarreglur ókunnar. Hann hefði ekkert erind- isbréf haft og væru því lögreglu- skýrslur sem hann tók ekki mark- tækar. Kvað hann Schutz hafa verið með mjög vafasamar full- yrðingar í málinu við fjölmiðla hér heima og erlendis, t.d. hefði hann sagt við þýzkt blað að hann hefði bjargað íslenzku ríkisstjórn- inni. Sævar og Kristján voru óvinir um tíma Jón sagði að fram hefði komið hjá Sigurði Óttari Hreinssyni að mjög ólíklegt mætti telja að þeir Kristján og Sævar hafi hitzt í nóvember 1974 því um þær mund- ir hafi þeir verið hörkuóvinir, eins og Sigurður orðaði það, vegna bílaviðskipta, sem þeir ætluðu að eiga við hann, þ.e. Sigurð. Framburður Guðjóns Skarphéð- inssonar í málinu var næst gerður að umtalsefni. Sagði Jón að mikil tregða hefði verið hjá Guðjóni og hann hefði skrifað Schútz bréf og sagt þar að líklega hafi ferðin til Keflavíkur aldrei verið farin. Þá hafi hann á öðrum stað sagt, að hann treysti lögreglumönnunum og Schútz fyrir því að fara ekki rangt með í ýmsum frásögnum, sem báru um atburði, sem áttu að hafa gerst. Kvað Jón þetta afar athyglisverða bókun. Hann end- urtók að engin sönnunargögn hefðu komið fram en myndast hafi víxlmynstur úr sundurlausum frásögnum, en síðan hafi verið valin einföld saga úr þessu öllu og talið hið sanna í málinu. Sú saga sé engu líklegri en annað, sem fram hafi komið í framburði ákærðu. Svokallaðar játningar í þessum þætti séu ekki marktækar að hans mati. En ef dómurinn sakfelli mennina verði að hafa í huga að þáttur Sævars hafi verið lítill í hinni meintu árás á Geir- finn, enda Sævar ekki líklegur til mikilla afreka í slagsmálum vegna líkamsbyggingar sinnar. Útilokað sé að tala um ásetningsbrot í þessu tilfelli. Jafnvel ráðherrar voru sagðir vera í dráttarbrautinni Jón ræddi því næst um ákæru um rangar sakargiftir og krafðist þar einnig sýknu. Þar hafi Erla eins og fyrri daginn átt upptökin en Sævar hafi leiðst út í víta- hringinn vegna langvarandi ein- angrunar og þungra ásakana, en á þessum tíma hafi verið borin á hann sex mannhvörf, þar af eitt er hann var aðeins 15 ára gamall. Einnig hafi leiðandi spurningar lögreglu haft sitt að segja. Erla hafi fyrst nefnt nöfn Klúbb- manna, Einars bróður síns og Valdimars Olsens, bróður vinkonu sinnar. Síðan hafi fleiri og fleiri nöfn komið til viðbótar svo sem nöfn þekktra kaupsýslumanna og jafnvel ráðherra, sem að sögn Erlu fóru í bátsferðina sem aldrei var farin eða voru staddir í Dráttarbrautinni kvöldið sem Geirfinnur hvarf. Ekki hafi komið fram, hvers vegna fjórmenn- ingarnir svonefndu voru valdir úr þeim stóra hópi manna, sem nefndir voru i málinu. Jón Oddsson sagði að lokum, að gögn málsins væru svo rýr og svo margt benti til sakleysis Sævars, að við mat á sönnunum kæmi ekki til greina að hans mati að sakfella hann. — SS. Dregnr til úrsKta SVAVAR Gestsson skýrir nú forseta íslands frá því, að hon- um hafi ekki tekist að mynda meirihlutastjórn eins og hann fékk umboð til þriðjudaginn 15. janúar. Frá upphafi var aug- ljóst, að Svavari myndi ekki takast að berja saman rikis- stjórn. Tilraun hans hefur verið tímasóun úr þvi hann ræddi ekki i alvöru við Sjálfstæðis- flokkinn. Eina gagnið, sem hún hefur gert er að draga betur fram i dagsljósið en áður þá miklu óeiningu, sem ríkir í röðum kommúnista. Aldrei fyrr hcfur samstaða i stjórnmála- flokki oltið á hlutkesti og aldrei fyrr hefur meiri tilviljun ráðið því, hver tæki að sér forystu um stjórnarmyndun. Þessa tilvilj- un kallar Svavar Gestsson „al- gjöra samstöðu“ innan Alþýðu- bandalagsins. Tilraun Svavars leiddi einnig í ljós, að Alþýðuflokkurinn er ekki einhuga um þá afstöðu formanns síns, sem fram kom 1978, að Alþýðubandalagsmaður geti ekki orðið forsætisráðherra á Islandi. I forystugrein í Alþýðu- blaðinu 19. janúar segir, að Svavar Gestsson hafi „nákvæm- lega jafn mikinn rétt á því að kommúnista í því efni sýndi sig meðal annars í aðgerðum Hjör- leifs Guttormssonar, á meðan hann var iðnaðarráðherra. Með- al fyrstu embættisverka hans var að fresta framkvæmdum við Hrauneyjafossvirkjun og gera tilraun til að leggja stein í götu framkvæmda við álverið og járn- blendiverksmiðj una. Svavar Gestsson beitti þeirri úreltu aðferð við tilraun sína að kalla menn saman til formlegra funda undir ljósi sjónvarps- myndavélanna. Það virtist sér- stakt kappsmál, að fundirnir væru sem lengstir en þó lauk þeim alltaf nægilega tímanlega til þess að þátttakendurnir gátu látið ljós sitt skína á sjón- varpsskerminum án þess þó að segja nokkuð bitastætt. Tillögur Alþýðubandalagsins voru sendar til umsagnar hjá Þjóðhagsstofn- un og Svavar lýsti sig bara ánægðan með einkunnina, þótt hann segðist hafa nokkrar at- hugasemdir og drægi ekki þá tillögu sína til baka, að Þjóð- hagsstofnun skyldi lögð niður. Þolinmæðin minnkar Þolinmæði almennings í bið- inni eftir að starfhæf ríkisstjórn Skynsamlegasti kosturinn Skynsamlegasti kosturinn virðist sá, að forseti íslands kalli stjórnmálaforingjana á sinn fund og tilkynni þeim sameigin- lega að þeir hafi tiltekinn frest til að mynda þingræðisstjórn og láti jafnframt að því liggja, að eftir þann tíma muni hann grípa til þeirra ráða, sem embætti hans veitir honum. Fyrsti forseti lýðveldisins Sveinn Björnsson veitti þing- mönnum slíka áminningu við setningu Alþingis 14. nóvember 1949. Þá hafði stjórnarkreppa staðið í hálfan mánuð og í ræðu sinni sagði forseti, að hefði Alþingi ekki tekist að tryggja nýju ráðuneyti nægan stuðning fyrir 30. nóvember myndi hann líta svo á, að ekki bæri að fresta því lengur, að hann gerði tilraun til að skipa nýtt ráðuneyti, sem Alþingi gæti þá hafnað eða sætt sig við. Við þessar aðstæður varð minnihlutastjórn Sjálfstæðis- flokksins til 6. desember 1949. Þá var þingmönnum í fersku minni utanþingsstjórnin, sem sat frá 1942 til 1944 og þeim þótti hin mesta hneisa fyrir sig. Nú eru aðrir tímar og ekki gerast forsætisráðherra og veita ríkisstjórn forstöðu og t.d. Geir Hallgrímsson.“ Viðræðurnar undir forystu Svavars Gestssonar strönduðu sem sé ekki á þessu atriði né heldur á utanríkismálunum, enda sagði Svavar í sjónvarps- viðtali, að þetta væru „smámál". Að vísu dró hann síðar úr þeirri fullyrðingu sinni um varnarmál- in af flokkslegri nauðsyn en ekki sannfæringu. Önnur umferð vinstri viðræðnanna sprakk á deilum um efnahagsmálin eins og stjórnarsamstarf þeirra í október. Svavar lagði fram ítar- legar tillögur Alþýðubandalags- ins, sem í stuttu máli miða að því, að með íhlutun ríkisvaldsins í stórt og smátt skuli fjármunir færðir úr einum vasa í annan. Flokkurinn hefur haft þessa Lúðvísku lausn á efnahagsmál- unum á takteinum síðan í vinstri stjórninni 1956—58. Hún réð ferðinni á fyrstu mánuðum stjórnarsamstarfsins haustið 1978 og verkaði þá eins og olía á verðbólgubálið. Þegar Svavar lét af ráðherraembætti s.l. haust stærði hann sig af því, að hafa sem viðskiptaráðherra stuðlað að því, að fluttir voru 15 millj- arðar frá atvinnuvegunum í ein- hverja óarðbærari hluti. Það er í sjálfu sér ekki lítill árangur á 13 mánaða stjórnarferli, en hann er ekki til þess fallinn að treysta stoðirnar undir atvinnulífinu. Með þetta í huga og þá stað- reynd, að enn hefur Alþýðu- bandalagið sama markmið, er það öfugmæli, þegar flokkurinn telur tillögur sínar stefna að framleiðniaukningu. Hugur verði mynduð minnkar nú óð- fluga. Nú fer hringekjan aftur af stað og þess er beðið með nokkurri óþreyju, hver verður ákvörðun forseta íslands. Ekki virðist vænlegt til árangurs að veita Benedikt Gröndal umboð til stjórnarmyndunar. Benedikt Gröndal hefur þá sérstöðu, að hann situr í emb- ætti forsætisráðherra. Hann gæti því beitt umboðinu frá forseta íslands með öðrum hætti en hinir stjórnmálaforingjarnir. Innan ríkisstjórnarinnar hefur komið fram óánægja yfir því að þurfa að sitja þannig sem starfs- stjórn, eins og sú ríkisstjórn er nefnd, sem hefur beðist lausnar og situr til bráðabirgða fyrir tilmæli forseta. Menn verða ekki skyldaðir til að sitja þannig til langframa, þótt starfsstjórnir hafi verið við völd í allt að fjóra mánuði 1946/47 og 1956. Hugsanlegt er, að Benedikt sameini stöðu sína sem forsætis- ráðherra og umboðið frá forseta með þeim hætti, að hann leggi fram stjórnarfrumvarp um lausn efnahagsvandans á Al- þingi og leiti þar eftir stuðningi við það. Fái hann meirihluta getur hann annað hvort myndað stjórn á grundvelli hans eða fengið heimild til að mynda minnihlutastjórn í krafti hans. Slíkur leikur af hálfu Benedikts væri nokkuð glæfralegur en kynni þó að losa um þrástöðuna. Eitt er víst, að ekki verður árfam reynt við vinstri stjórn. Benedikt kann að þreifa fyrir sér með þjóðstjórn og kanna síðan þá möguleika, sem honum þykja líklegastir. ólíklegt, að niðurstaðan verði eftir allt þófið utanþingsstjórn skipuð embættismönnum að vali forseta ef til vill í samráði við þingflokkana. 1952 lögðu fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í þáverandi stjórn- arskrárnefnd fram tillögu um breytingu á 15. grein stjórn- arskrárinnar, er fjallar um skip- un og lausn ráðherra. Þar var meðal annars lagt til, að gæti meirihluti Alþingis ekki komið sér saman um ríkisstjórn að afstöðnum kosningum innan mánaðar frá því það kom saman, skyldi forseti skipa stjórn án atbeina Alþingis, hefði hann ekki þá þegar gert það, en sú stjórn láta af völdum, ef meiri- hlutastuðningur á Alþingi feng- ist við aðra stjórn. Hér verður engu spáð um það, hvernig stjórnmálaforingjarnir myndu bregðast við slíkri brýn- ingu frá forseta íslands. Vafalít- ið yrði þó reynt til þrautar, hvort unnt sé að koma á þjóð- stjórn. Enginn möguleiki hefur virst á minnihlutastjórn, en komi hún til álita, er auðvitað eðlilegt, að stærsta þingflokkn- um verði falið að mynda hana, Sjálfstæðisflokknum eins og 1949. Hvað sem þessu líður er ljóst, að til úrslita verður að koma. Fiskverðsákvörðun hefur dregist á langinn, kjarasamn- ingar eru í deiglunni, 15. febrúar rennur út heimild til bráða- birgðagreiðslna úr ríkissjóði, enginn veit hvaða stefna verður tekin í opinberum framkvæmd- um og 1. mars tekur verðbólgan nýja kolldýfu. Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.