Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 35 Horft út Hornbjarg frá Látravík. borg hafa hins vegar hvatt ferða- menn sína á Hornströndum til að lifa á landinu þ.e.a.s. líta á landið sem almenning, þar sem engan þarf að spyrja leyfis. Jafnvel einstaklingar í skipulögðum ferða- hópi hafa brotist inn í læst íbúðarhús, haft vín um hönd og brotið allt og bramlað. Jóhann Pétursson vitavörður í Hornbjargsvita hefur mesta reynslu af samskiptum sínum við ferðamenn á þessum slóðum s.l. 20 ár. Hann gefur ferðahópum D. Ph. einstaklega lofsamleg ummæli og fráleitt er að vefengja þá umsögn. Vagn Hrólfsson í Bolungarvík sem oft hefur veitt erlendum ferðahóp- um fyrirgreiðslu og flutning m.a. til Hesteyrar og Hornvíkur ber þeim sömuleiðis vel söguna í öllum samskiptum. Hann er annar eigandi skóla- hússins á Hesteyri og þekkir því vel til umgengni ferðamanna, enda margir sem þangað koma og allir velkomnir gangi þeir vel um. Þar stendur ekki á fimm tungu- málum að aðgangur og afnot séu óheimil með öllu, nema í neyðar- tilfellum, en eftirlitsmaður frið- lands og slysavarnaskýla á Hornströndum getur þess að slík skilti hafi verið sett upp við öll skýlin s.l. vor. Um leið kemur það fram að umgengni hefur aldrei verið jafn góð. Eftirlitsmaðurinn lætur þess einnig getið að við nákvæma leit fyrir Vestfirska fréttablaðið í gestabókum slysavarnaskýlanna á átta ára tímabili (19. ág. 1969 — 24. júní 1977) sé nafn D. Ph. nefnt 28 sinnum. Fram að þessu hefur það þótt almenn kurteisi að rita nöfn sín í gestabækur slysavarna- skýianna eða sæluhúsa eigi menn leið um. Sé ferðafólki óheimilt að líta inn í skýlin þá hafa gestabækur lítið þar að gera. Getur það annars verið að allir þeir fjölmörgu, undirritaður meðtalinn, sem hafa skrifað nöfn sín í gestabækur skýlanna hafi eingöngu verið þar í neyðartilfellum eða sem afbrota- menn? Öllum hlýtur að sjálfsögðu að vera ljóst að skýlin eru fyrst og fremst ætluð fólki í neyð, en að öðrum sé óheimilt að líta inn er ofvaxið skilningi margra. Oft kemur fyrir að ferðamenn á vegum D. Ph. tjaldi hjá skýlunum, sem vissulega hlýtur að skapa vissa öryggiskennd, þótt tjöld og annar viðlegubúnaður sé í góðu lagi. Það kom því að góðu gagni s.l. vor þegar blindbylur geisaði í 2 sólahringa að geta leitað skjóls í slysavarnaskýlinu í Hlöðuvík. Þar voru á ferð 3-4 Englendingar á leið til Hesteyrar. Þá notaði D. Ph. í fyrsta sinn talstöð. í slysavarnaskýli til að ná sambandi við ísafjörð ef þörf reyndist fyrir aðstoð. I þakklætisskyni fyrir afnotin sendi hann 50 þúsund kr. til slysavarnadeildarinnar á ísafirði. Þetta sést kannski, ef farið er yfir bókhaldið. Þá kemur sú hlið málsins, að ferðamönnum sé leigð aðstaða í húsum í einkaeign án vitneskju eigenda. Um slíkt er ekki að ræða, en þó er mér kunnugt um mistök, þar sem fólk hefur talið leyfilegt að dveljast, séu hús ólæst og hvergi sjáanleg merki þess að bannaður sé aðgangur. Undirritaður skilur því vel sár- indi Málfríðar Halldórsdóttur, þegar eigendur koma að húsi sínu opnu s.l. sumar og hópur Englend- inga er þar fyrir. Trúlega hefðu viðbrögð flestra orðið á líkan hátt. Mig langar þó til að gera örfáar athugasemdir. Dick Phillips sendir afsökunarbeiðni til Arnórs Stígssonar frá Horni í þeirri von að fá fyrirgefningu, þar sem dvalist var í húsinu án hans vitundar. Hann taldi að hægt yrði að útkljá málið í friðsemd, án þess að blása það út í blöðum. Hluti hópsins hafði ekki búið margar vikur í húsinu eins og segir í grein Málfríðar Halldórs- dóttur. Hámarksdvöl í Hornvík var 2 vikur. Óski húseigendur að geta fylgst með ferðum D. Ph. þá er auðvelt að fá ferðabækling hans: On foot in Iceland 1980. Heimilisfangið er D. Ph. Whitehall House, Nent- head, Alston, Cumbria. Það mun rétt hjá Málfríði að D. Ph. hefur ekki talað við neinn eiganda áðurnefnds húss, en und- irritaður átti símtal við einn af eigendum þess fyrir nokkrum ár- um. Þar spurðist ég fyrir um afnot af húsinu í viku til 10 daga, einkum til fyrirlestrahalds, ef illa viðraði. Því var ekki tekið fjarri, en jafnframt tekið fram að ekki gæti orðið um samfellda notkun að ræða, þar sem sumardvöl eigenda væri af skiljanlegum ástæðum ekki bundin við ákveðna dagsetn- ingu. Þessi samantekt er þegar orðin lengri en til stóð í upphafi, en tilefnið fyrst og fremst hæpnar fullyrðingar um mann sem helst má ekki vamm sitt vita í nokkrum hlut. Hafi grein mín orðið til að rétta nokkuð hlut Dick Phillips og skýra málin þá tel ég tilganginum náð. vegna þess að Bandaríkjamenn geta séð og sjá um þá hlið. í ráðgjöfinni, en þess verður að geta að tillögur Griffiths eru byggðar á viðtölum við nálægt 40 embættismenn, fræðimenn og kaupsýslumenn. Þá skal það einn- ig ítrekað, að hernaðarlegir ráð- gjafar stjórnarinnar virðast hafa þá skoðun að nauðsynlegt sé að færa út varnarsvæði Kanada sem m.a. hefði þær afleiðingar, að kanadískar hersveitir yrðu bæði á Islandi og í Noregi. Það ber hins vegar að taka fram, að þessar tillögur og hugmyndin almennt um útfærslu varnarsvæðis Kan- ada hefur ekki verið rædd opin- berlega af neinum stjórnmála- mönnum eða talsmönnum stjórn- málaflokkanna. Umræðan hefur nánast eingöngu verið bundin við embættismenn í Utanríkisráðu- neytinu og varnarmálaráðuneyt- inu, svo og meðal herforingja í kanadíska hernum, auk að sjálf- sögðu fræðimanna. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem greinar- höfundur hefur aflað sér, þá mun vera minni áhugi á þessu máli í utanríkisráðuneytinu en varnar- málaráðuneytinu, enda hafnaði það skýrslu Griffiths eins og áður hefur komið fram. Hingað til hefur reglan verið sú í kanadíska stjórnkerfinu að við mótun utan- ríkisstefnu eða töku ákvarðana á sviði utanríkismála, þá hefur utanríkisráðuneytið alltaf síðasta orðið, þótt svo að reyndin hafi orðið sú að utanríkisráðuneytið hafi orðið að sætta sig við ein- hverja málamiðlun, hafi borið mikið á milli tillagna þess og annarra ráðuneyta. ® Hins vegar er þegar hafinn undirbúningur að samningu hvítbókar í utanríkis- ráðuneytinu um utanríkisstefnu Kanada næsta áratuginn. Talið er nokkuð víst að við samningu þessarar stefnuyfirlýsingar verði athyglinni beint rækilega að hags- munum Kanada á norðursvæðum með tilliti til varnahagsmuna, þannig að of snemmt er að afskrifa þessar hugmyndir sem einhver hugarfóstur hershöfð- ingja og fræðimanna, sem hafa gaman af því að búa tií stríðsleiki, enda er áhrifastaða kanadískra herforingja í stjórnkerfinu að styrkjast mikið. Þegar litið er yfir þessar tillög- ur og hugmyndir sem ræddar eru í Kanada og snerta ísland, þá kemst maður ekki hjá því að sjá hver meginveikleiki tillagnanna er, en það er algjör vanþekking á íslenskum aðstæðum, pólitískum og efnahagslegum svo og vanþekk- ing á íslenzkum hugsgnarhætti. Tillögurnar og skrifin um þær lýsa eins konar herraþjóðarhugs- unarhætti og hroka og þeirri spurningu er aldrei velt fyrir sér hvort íslensk stjórnvöld eða ís- lensk þjóð kæri sig yfirleitt nokk- uð um og detti í hug að ræða slíkar tillögur, sem snerta aukin hernaðarumsvif við og á landinu. Tiivitnanir: Kingston, Kanada 1. Utanríkismálastofnun Kanada er rann- sóknar- og útgáfustofnun sem rekin er af einstaklingum, aðallega fræði- mönnum, en er opin að því leyti að hægt er að gerast meðlimur í stofnuninni gegn ákveðnu árgjaldi. Það er stefna stofnunarinnar að gera ekki tillögur til opinberra aðila um stefnumótun eða töku ákvarðana. Franklyn Griffiths: A Northern For- eign Policy. Wellesley Papers 7/1979. Canadian Institute of International Affairs, Toronto 1979. 2. Viðtal við N.N. aðstoðardeildarstjóra í kanadíska varnarmálaráðuneytinu, tek- ið í mars 1979 í Kingston. Einnig viðtal við N.N. hershöfðingja í kanadíska hernum, tekið í Kingston 3. desember 1979. Hvorugur þessara manna vildi að þeir yrðu nafngreindir, ef þær upplýs- ingar, sem þeir veittu, yrðu notaðar í grein eða ritgerð. 3. Sjá t.d. Trevor Lloyd: Canada in World Affairs 1957-1959 bls. 23-39, Oxford University Press/Canadian Institute of International Affairs, Toronto 1968. 4. Bruce Thordarson: Trudeau and For- eign Policy; a study in decision-Naking, bls. 16-33 og * 122-135, Oxford University Press, Toronto 1972. 5. General Report on The Security of the Alliance NORTH ATLANTIC AS- SEMBLY, The Millitary Committee, November 1978. 6. „Foreign aid can’t increase until econ- omy improves, MacDonald says.“ The Globe and Mail, 13. júní 1979 (Viðtal við utanríkisráðherra Kanada, Floru Mac- Donald.) 7. Varðandi þennan síðasta lið má benda á „Canada isn’t seeing red in Greenland Home Rule“ í Globe and Mail 16. janúar 1979. Þessir þættir, sem kanadísk yfirvöld skynja sem spennuskapandi á N-Atl- antshafi, voru taldir upp í viðtali greinarhöfundar við aðstoðardeildar- stjórann í varnarmálaráðuneytinu, sem vitnað er til að ofan. Þess má geta að núverandi forsætis- og utanríkisráð- herra íslands, Benedikt Gröndal, hefur í grein sett fram svipaða þætti sem hann telur að kalli á auknar öryggis- ráðstafanir í N-Atlantshafi. Sjá Bene- dikt Gröndal: „Det nordlige Atlant- erhav stadig mer utsatt" í NOREGS FORSVAR no. 10, desember 1978. 8. Viðtal við N.N. hershöfðingja, sem vitnað er til að ofan. 9. Sama viðtal. N.N. hershöfðingi var formaður nefndarinnar. 10. Viðtal við prófessor Nils 0rvik í Kings- ton í október 1979. 11. Nils 0rvik: Our Neighbours to the East. bls. 23, Northern Study Series, 1/79, Centre for International Rela- tions, Queen’s University, Kingston, Canada. 12. Sama rit bls. 24—26. 13. Franklyn Griffiths, A Northern For- eign Policy, bls. 80. 14. Sama rit, bls. 50. 15. Nils 0rvik: Our Neighbours to the East, bls. 31. 16. Sama rit, bls. 21—22. 17. Franklyn Griffiths, bls. 82. 18. Joseph T. Jockel og Joel. S. Sokolsky: „Rmphasizing the assets: A proposal for the restructuring of Canada’s military contribution to NATO“ í CANADIAN DEFENCE QUARTERLY, 9. bindi, hefti 2, haust 1979, bls. 18. 19. Viðtal við prófessor David Cox við Queen’s háskóla í Kingston, tekið 4. desember 1979. GREIÐENDUR vinsamlega veitið ef tirfarandi erindi athygli: Frestur til aó skila launamiðum rennur út þann 23.janúar. Þaö eru tilmæli embættisins til yöar, aó þér ritiö allar upplýsingar rétt og greinilega á miðana og vandiö frágang þeirra. Meó því stuöliö þér aö hagkvæmni í opin- berum rekstri og fírrið yður óþarfa tímaeyóslu. RÍKISSKATTSTJÓRI ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? Þl AL'GLYSIR l M Al.LT LAND ÞEGAR Þl' AL'GLYSIR I MORGLNBLAÐINL'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.