Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.01.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980 45 djöfulóði bióðdrekkur og síðskegg- ur í íran ástandið í veröldinni eins og nú horfir. Ber því allt að sama brunni með utanríkis- og varn- armál okkar Islendinga, engra breytinga virðist þörf í bili. En hvergi má þó slaka á klónni í varnarmálum okkar eins og ástandið er í heiminum nú, heldur miklu fremur ber að strengja hana og herða af öllum þeim mætti og krafti er okkur er gefinn til þeirra hluta. Reykjavík 21. jan. Þorkell Hjaltason.“ • Hvar eru góðu barnabækurnar? Átján ára skrifar nokkrar línur um barnabækur: „Ég ætla að taka undir grein, sem birtist í blaðinu þann 12.1. þar sem skrifað var um hinar ýmsu barnabækur, sem komnar eru á markaðinn. Það virðast lítil takmörk fyrir því um hvað Svíar og Danir eru teknir til fyrirmynd- ar af sumum Islendingum því sumar bækurnar frá þeim eru ekki um neitt annað en kynlíf þótt ætlaðar séu börnum. Hvað verður börnum boðið upp á næst? Þessar bækur hafa ekkert gott að innræta börnum síður en svo. Börn eru börn og það er ekki hægt að breyta þeim í fullorðið fólk fyrr en þroski þeirra leyfir. Og hvað er svo orðið af gömlu góðu ævintýrunum, sem maður las svo mikið hér áður fyrr, eins og Ævintýri Æskunnar, Grimms- ævintýri o.fl.? Þetta voru bækur, sem gaman var að, en voru ekki til að seðja „lostann“ eins og í sumum erlendum barnabókum. Nú er bara keppst við að troða í sem yngst börn kynfræðslu. Það væri nær að lesa fyrir börnin úr ævintýrabók- um, það vilja þau sjálf, en ekki vera sífellt að troða inn í þau raunveruleikabókum, þau hafa raunveruleikann í skólanum og daglegu lífi. Svo eru líka til góðar bækur, sem þurfa ekki endilega að vera ævintýrabækur og þá á ég við bækur eftir góða íslenska höfunda eins og (ef mér leyfist að nefna) Stefán Jónsson. Bækur hans eins og t.d. „Hjaltabækurnar" voru geysivinsælar og hafa þær ekki annað en góðan boðskap enda eru þetta með bestu íslensku barna- bókunum, sem hafa komið út. 3800-5243“ Þessir hringdu . . . • Óþarfa smitanir H.G.: Ég vil taka undir það sem kom fram hjá Velvakanda nýlega að aðgæslu er þörf í nærveru ungbarna, að smita þau ekki kvefi og öðrum umferðarpestum, en ég hef margsinnis orðið vör við að fólk gætir sín ekki sem skyldi í þessum efnum. Það getur verið mjög óþægilegt og jafnvel ekki hættulaust þegar mjög lítil börn verða kvefuð, fá flensu eða hálsbólgu, börn geta verið veikluð eða á einhvern hátt ekki vel undir það búin og finnst mér að fólk, sem kemur sem gestir inn á heimili þar sem eru ungbörn, gæti sín ekki nóg t.d. þegar það er kvefað og þar fram eftir götunum. En það er ekki aðeins þörf á að sýna aðgæslu í sambandi við ungbörn. Ekki þarf síður að gæta sín þegar um gamla fólkið er að ræða, SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á minningarmótinu um Chigor- in í Sochi í haust kom þessi staða upp í skák þeirra Augustins, Tékkóslóvakíu, og Rashkovskys, Sovétríkjunum, sem hafði svart á átti leik. 30. — Bxh2+! (En ekki 30. — Rf3+, 31. Rxf3 - Hxf3, 32. Da8+). 31. Hxh2 - Dg3+, 32. Kfl - Rxf3, (eða 32. - Dxh2), 33. Rxf3 - Dxf3+, 34. Kel - Dfl+, 35. Kd2 - Df4+, og svartur vann auðveld- lega. Rashkovsky sigraði í mótinu. Hann hlaut 10 V4 v. af 15 möguleg- um. Sveschnikov varð næstur með 10 v. það getur verið illa á sig komið og þar varlega til að smita ekki að má því ekki við miklum veikindum óþörfu fólk sem er víst nógu veikt til að illa fari og má segja að það fyrir. Mér datt í hug að láta þetta gildi um alla þá sem koma t.d. í koma fram og undirstrika með því heimsóknir á sjúkrahús að fara það sem sagt var hér um daginn. Sœmundur Símonar- son — fáein kveðjuorð Sæmundur Símonarson, frv. símritari, andaðist í sjúkrahúsi 11. janúar síðastl., þá 77 ára gamall (f. 1903). Hann var einn af þeim yfirlætislausu prúðmennum, sem ævinlega komu fram af kurt- eisi og meðfæddri háttvsi við hvern og einn. Þessir eðlislegu þættir hans voru svo áberandi að það hlaut að vekja athygli. Fyrstu ‘kynni okkar Sæmundar urðu um sumarið 1929, þegar hann kom til Akureyrar að leysa af í sumarleyfum starfsfólks á rit- símanum þar. Síðar störfuðum við saman á ritsímanum hér í Reykjavík um fjölda ára. Auk þess hittumst við stundum á sunnudög- um við guðsþjónustu í Neskirkju. — Svo bar til, að einn sunnudag kom Sæmundur ekki til kirkju. Ég hugsaði mér að hann hafi verið forfallaður, ef til vill eitthvað lasinn. Næsta sunnudag fór á sömu leið, Sæmundur kom ekki til kirkju, svo ég fór að athuga það nánar, því að ég vissi að Sæmund- ur var trúaður og kirkjurækinn maður. Þá frétti ég að hann væri veikur. Sæmundur var alla tíð mikill félagsmálamaður. Hann var mörg ár í stjórn Félags íslenzkra síma- manna og nokkur ár stjórnarfor- maður félagsins og lét sér mjög annt um framgang málefna þess. Þá var hánn einnig mörg ár í stjórn Byggingarsamvinnufélags símamanna. Á fjölmennum félagsfundi símamanna var Sæmundur gerður heiðursfélagi og var hann vissu- lega vel að þeirri sæmd kominn. Hann var svo einstaklega vand- aður og góður maður, að honum verður áreiðanlega vel tekið á leiðarenda. I þeirri trú sendi ég og kona mín frú Svanhildi og sonum hennar innilegustu samúðarkveðjur. Theodór Lilliendahl. Kristján Magnússon — Nokkur kveðjuorð Mágur minn, Kristján Magnús- son, andaðist á Borgarspítalanum 16. nóv. sl. Hann hafði gengið undir erfiðan uppskurð fyrir tveim árum og í sumar fór heilsu hans mjög að hraka. Þótt öllum væri ljóst hvert stefndi( og honum áreiðanlega manna best var hann æðrulaus og ekki að sjá að neitt væri að gerast. Hann var haldinn ríkri átthagaást og síðasta ósk hans var að fá að hvíla í Eyjum og að jarðarförin færi fram í kyrrþey. Hann var lagður til hinstu hvíldar í Landa- kirkjugarði 23. nóv. Kristján var fæddur í Dal í Vestmannaeyjum 24. febr. 1909, sonur hjónanna Magnúsar Þórð- arsonar og Ingibjargar Berg- steinsdóttur, sem voru af kunnum bændaættum í Rangárþingi. Magnús í Dal var mikill sjó- sóknari og aflamaður, en fórst í jan. 1915. Börnin voru orðin fjögur, svo mjög reyndi á 'kjark og dugnað Ingibjargar. Kiddi í Dal ólst upp eins og aðrir drengir í Eyjum við fjöl- breytt framleiðslustörf við hlið hinna fullorðnu og sókn eftir feng í björgin. Hann var veiðimaður af lífi og sál eins og svo margir sem alist hafa upp í Eyjum. Hann var hinn liprasti í fjöllum og ágætur fuglaveiðimaður. Hann naut þessara hæfileika þegar hann var fluttur úr Eyjum, því einhverjar mestu gleðistundir hans voru með góðum félögum við laxveiðiá. Stundaði hann veiðar til hins síðasta og skrapp til Eyja í úteyjar, en þar þykir mörgum mikil dásemd og unaður að njóta þeirra töfra er náttúran skartar sínu fegursta. Hann var góður félagi sem gat glaðst á góðri stund og mönnum þótti gott að vera með vegna lipurðar hans og hjarta- hlýju. Þótt Kristján væri vel gefinn var ekki aðstaða til fram- haldsmenntunar. Hann hóf nám í málaraiðn hjá Engilbert Gíslasyni. Árið 1930 kvæntist hann eftir- lifandi konu sinni, Júlíönu Krist- manns. Þau eignuðust fjögur börn og eru þrjú á lífi, Jónína, Magnea og Kristján þór. Árið 1932 fluttu þau til Rvíkur. Starfaði hann þar í mörg ár sem málari, en varð síðar starfsmaður borgarinnar, aðallega á Borg- arspítalanum. Kom sér vel að hann var fjölhæfur hagleiksmaður sem gat unnið hin margvíslegustu störf. Þarna eignaðist hann marga vini vegna hjálpsemi sinnar og lipurðar. Hann var einstakur greiða- maður og hjartalag slíkt að létt var að biðja hann. Það er því miður hæfileiki sem mjög er á undanhaldi á tímum þegar hvert viðvik er vegið og metið við hinn þétta leir. Slíkir menn verða ekki ríkir af veraldar- auði. En þeirra verður því lengur minnst sem manna er vildu leysa hvers manns vanda. Það er auði betra ef segja má um látinn mann hin fleygu orð „jafnan mun ég minnast hans er ég heyri góðs manns getið“. Þau skulu vera lokaorð mín um Kidda í Dal. Vigfús Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.