Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1980
3
Samningum stéttarf élaga
sagt upp án samráðs við þau
FARMANNA- og Fiskimannasamband íslands sagði í nóvember
upp samningum fyrir hönd aðildarfélaga sinna og þeirra á meðal
Skipstjórafélags Norðlendinga. Á föstudag dró sambandið síðan
þessa uppsögn til baka og mun hún hafa verið send LÍÚ á sínum
tíma án þess að samráð væri haft við félagið. Á föstudaginn
tilkynnti formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Ægis
einnig, að Ægir hefði ekki sagt upp samningum sínum við LÍÚ.
— I lok nóvember tilkynnti
stjórn FFSÍ, fyrir hönd allra
þeirra félaga, sem tilgreind voru,
að samningum væri sagt upp frá
og með 1. janúar, sagði Kristján
Ragnarsson, formaður LIÚ, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
—Svo gerist það á föstudaginn,
að hingað kemur framkvæmda-
stjóri FFSÍ og segir, að að beiðni
Skipstjórafélags Norðlendinga,
sé uppsögn samninga þeirra
vegna dregin til baka. I ljós
kemur að þetta hafi verið gert
án vitundar og heimildar við-
komandi félags. Síðar um daginn
hringdi hér formaður Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Ægis og tilkynnti okkur, að svo
virtist vera, að samningum hefði
verið sagt upp við LÍÚ. f.h. þess
félags, sem alls ekki sé rétt.
FFSI hafi ekki haft neina heim-
ild til þess og óskaði formaður-
inn eftir að uppsögnin væri
dregin til baka.
— Þetta leiðir hugann að því
hvernig að þessum málum er
staðið. Það virðist svo, að þessi
heildarsamtök ákveði og segi
upp samningum þótt samnings-
rétturinn sé hjá hverju félagi.
Það er ekki hægt og er lögleysa
að segja upp samningum nema
hafa fengið til þess heimild hjá
viðkomandi félagi, sem til þess
þarf að taka afstöðu með lög-
mætum hætti. Eru þessar upp-
sagnir samninga eins og sjó-
mannasamninga meira og minna
löglausar eins og maður getur
ímyndað sér af þessu?
— í öðru lagi veltir maður því
fyrir sér hvað valdi því, að félög
taki sig núna saman um það, að
tilkynna okkur um, að þau vilji
ekki að samningar séu lausir.
Það er hægt að ímynda sér, að
félögin séu beinlínis hrædd við
sína forystumenn og vilji ekki
Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ
láta draga sig út í deilur um
kaup og kjör, sem þeir sjá ekki
ástæðu til að breyta, sagði Krist-
ján.
Morgunblaðið hafði af þessu
tilefni samband við Ingólf Stef-
ánsson framkvæmdastjóra FFSI
og spurðist fyrir um þetta mál.
Ingólfur Stefánsson,
framkvæmdarstjóri FFSÍ
— Það er rétt að Skipstjórafé-
lag Norðlendinga er ekki í hópi
þeirra félaga, sem sagt hafa upp
sínum samningum, sagði Ingólf-
ur.
— Það voru mistök hjá okkur
hér í sambandinu að segja upp
samningum fyrir þeirra hönd.
Það var gert sökum þess, að á
miðju sumri var gert samkomu-
lag hér um ákveðna hluti, sem
sambandið sá um.
Þennan misskilning var verið
að leiðrétta á föstudaginn og
verður að viðurkenna, að við
Norðlendinga var ekki haft sam-
ráð þegar samningum var sagt
upp.
— Samningum er ekki sagt
upp nema við fáum bréf eða
símskeyti frá félögunum um
uppsögn samninga. í þessum
málum er ekki um neina ofstjórn
okkar að ræða heldur mannleg
mistök, sagði Ingólfur.
Aðspurður um Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Ægi, sagði
hann að þar gegndi öðru máli.
FFSÍ hefði ekki skipt sér af
samningum þess félags og hefði
samningum þeirra verið sagt
upp, þá hefðu þeir gert það
sjálfir. Kristján Ragnarsson
sagði hins vegar að þetta væri
ekki rétt og hann hefði undir
höndum bréf frá FFSÍ frá 27.
nóvember þar sem samningum
er sagt upp fyrir hönd Ægis.
Erik Sönderholm fær
styrk til að semja verk
um Halldór Laxnes
DANSK-islandsk Fond ákvað á fundi
sínum nýlega í Kaupmannahöfn að
veita nokkra styrki vegna samskipta
Islands og Danmerkur á sviði vísinda
og menningarmála. Samanlagt nema
styrkirnir um 2,4 millj. ísl. kr.
Styrkþegar eru alls 58. Hæstan styrk
hlýtur Erik Sönderholm forstjóri
Norræna hússins vegna samningar
verks um Halldór Laxness, 365 þús.
ísl. kr.
Lukkudagar
Lukkudagar: Vinningsnúmer
sunnudaginn 20. janúar 4583.
Vinningur Kodak Pocket A1
myndavél.
Vinningsnúmer 21. janúar
29546. Vinningur Kodak EK 100
myndavél. Vinningshafar hringi í
síma 33622.
Magnús H. Magnússon:
„Tillögur
Alþýðubanda-
lagsins of
langt frá raun-
vcrulcikamun"
„FRÁ mínum bæjardyrum
séð og okkar fleiri Alþýðu-
flokksmanna", sagi Magnús
H. Magnússon annar fulltrúi
flokksins i vinstri stjórnar-
viðræðunum, „eru tillögur Al-
þýðubandalagsins of mikið í
ætt við óskalista og of langt
frá raunveruleikanum. Við
teljum að þær skili ekki þeim
árangri í baráttunni við verð-
bólguna sem nauðsynlegt er
að stefna að.“
Sighvatur Björgvinsson
formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins og fulltrúi flokksins
í stjórnarmyndunarviðræðun-
um sagðist ekkert vilja segja
um stjórnarmyndunartilraun
Svavars, hann hefði haft verk-
stjórnina á hendi, hefði ákveð-
ið að réyna þessa tilraun og
það væri hans að meta hvernig
hún stæði.“
VENTILL hf ARMULA 23
VALKOSTUR
T0Y0TAEIGENDA
VIÐ ERUM
ELZTA ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
FYRIR TOYOTABIFREIÐAR
Á ÍSLANDI
BJÓÐUM VIÐGERÐAR- 0G VARAHLUTAÞJÓNUSTU
SÉRÞJÁLFAÐIR STARFSMENN
/ ■■
SERHONNUÐ TÆKI FYRIR
TOYOTABIFREIÐAR
ÞJONUSTAN ER LANDSKUNN
0G RÓMUÐ
VENTILL H/F ARMULA 23 SIMI 30690