Morgunblaðið - 22.01.1980, Síða 24
24
25
Ljósm: Guðjón Birgisson.
Hilmar Sigurgíslason reynir skot í gegn. Hann skoraði sigurmarkið í leiknum í gærkvöldi er 30 sekúndur
voru eftir af leiknum.
HK sigraði Fram
í æsispennandi leik
Lið HK krækti sér í sín fyrstu
stig í 1. deild er liðið lagði Fram
að velli 17—16 í gærkvöldi í
æsispennandi leik. Ivokamínútur
leiksins eru þær mest spennandi
sem upp hafa komið í vetur í
Islandsmótinu. Þegar fjórar og
Jhálf mínúta voru eftir af leiknum
jvar staðan jöfn 16—16, HK fær
Ivítakast. Ragnar Ólafsson fram-
kvæmir það en Gissur markvörður
Fram ver vel. HK-menn fá bolt-
ann og tekst að brjótast aftur í
gegn en illa er brotið á þeim og
aftur dæmt vítakast. Enn reynir
Ragnar og aftur bregst honum,
skýtur nú í þverslá. HK-menn fá
samt boltann aftur og leika rólega
saman, tíminn líður og Ragnar
reynir að brjótast í gegn en
dæmdur ruðningur. Framarar
hefja sókn og tvær mínútur eru
eftir af leiknum. Þeim tekst að
næla sér í vítakast þegar 1,30 sek
eru eftir. Andrés Bridde tekur
vítið, og það bregst líka. Einar
Þorvarðarson varði glæsilega.
Taugaspennan er í algleymingi.
Fram tekst að ná boltanum eftir
frákastið og Birgir Jóhannsson
fær góða sendingu á línu í dauða-
færi, hann reynir að fippa boltan-
um yfir Einar í marki HK, það
mistekst og HK brunar upp og
þegar aðeins 30 sekúndur eru eftir
-m 16:17
sendir Hilmar Sigurgíslason bolt-
ann í net Fram með lúmsku
undirskoti. Mikill darraðadans var
svo stiginn lokasekúndur leiksins
en HK hafði það og gleði þeirra
var mikil.
HK-liðið barðist af feikilegum
dugnaði í leiknum og vann oft
meira af kappi en forsjá.
HK-ingar gáfu Frömurum aldrei
frið í sókninni og virtist það koma
þeim nokkuð á óvart. HK náði
forystunni í leiknum um miðjan
fyrri hálfleik og komst mest þrjú
mörk yfir um miðjan hálfleikinn
en Fram náði að jafna metin rétt
fyrir leikhlé.
Fyrstu 10 mínútur síðari hálf-
leiksins var aðeins skorað eitt
mark, en allan hálfleikinn á enda
var hart barist og mjótt á munun-
um. Oftast skildi eitt mark liðin
að.
Besti maður HK í leiknum var
Kristján Þór Gunnarsson sem
skoraði falleg mörk, svo og Einar
markvörður. Þá átti Jón Einars-
son ágætan leik. Ragnar var
sterkur í vörninni en brást illa í
lokin í vítaköstunum.
Lið Fram var frekar slakt, og
varla að nokkur hafi risið upp úr
meðalmennskunni. Sóknarleikur
liðsins var afar fálmkenndur og
vörnin og markvarslan ekkert til
að hrópa húrra fyrir. Hannes
Leifsson var einna skástur af
leikmönnum liðsins. En lið Fram
er nú í fallhættu í 1. deildinni.
Mörk HK: Kristján Þór Gunnars-
son 5, Ragnar Ólafsson 4 (2 v),
Hilmar Sigurgíslason 3, Jón Ein-
arsson 3, Kristinn Ólafsson 2.
Mörk Fram: Hannes Leifsson 3,
Atli Hilmarsson 3, Andrés Bridde
3 (2 V), Egill Jóhannesson 2,
Rúnar Guðlaugsson 2, Sigurberg-
ur Sigsteinsson 1, Jón Árni Rún-
arsson 2.
Brottvísun af leikvelli: Kristinn
Ólafsson og Kristján Þór, báðir í
HK í 2 mín. hvor. Andrés Bridde
og Egill Jóhannesson Fram, báðir
í 2 mín.
Misheppnuð vítaköst: Andrés
Bridde Fram skaut yfir á 23. mín.
og lét Einar verja hjá sér á 38 mín.
Gissur varði hjá Ragnari Ólafs-
syni HK á 57. mín og Ragnar
skaut í stöng á 58. mín.
Dómarar voru þeir Björn
Kristjánsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson og komust þeir
þokkalega frá leiknum.
-þr.
Þorbergur Aðalsteinsson hefur snúið á vörn ÍR-inga og stekkur inn í teiginn.
Víkingar með fullt hús
stiga eftir f yrri umf erðina
VÍKINGUR vann yfirburðasigur gegn ÍR í 1. deildinni á laugardag-
inn 26:15, eftir að staðan hafði verið 11:6 í hálfleik. Þar með hafa
Víkingarnir 14 stig út úr fyrri umferðinni eða fullt hús stiga. Þeir
standa því óneitanlega vel að vígi þegar seinni umferðin hefst en það
er þó langt í frá að öll spenna sé úr mótinu, FH-ingarnir koma ekki
langt á eftir og ætla örugglega ekki að gefa eftir sinn hlut.
Víkingur
— ÍR
26:15
Yfirburðir Víkinga voru miklir
á laugardaginn og eiginlega aldrei
vafi á því hvort liðið myndi bera
sigúr úr býtum. Þó komu kaflar í
leiknum þegar Víkingsvélin hikst-
aði en hún fór ætíð í gang aftur og
mörkin komu þá á færibandi.
Víkingarnir náðu góðu forskoti í
byrjun leiksins og staðan var
orðin 3:0 eftir 14 mínútna leik. Þá
komust ÍR-ingar loksins á blað
með marki Bjarna Hákonarsonar
úr vítakasti. IR-ingarnir hresstust
nokkuð við markið og á næstu
mínútum fundu þeir leiðina fram-
hjá fyrrum félaga sínum Jens
Einarssyni í marki Víkings, sem
hafði reynzt þeim erfiður fyrstu
mínúturnar. En Víkingarnir svör-
uðu með þremur mörkum í röð og
í hálfleik höfðu þeir góða forystu,
11:6.
í upphafi seinni hálfleiks skor-
uðu Víkingarnir strax mark en því
næst kom bezti leikkafli ÍR-inga.
Þeir börðust mjög vel í vörninni
og næstu 9 mínúturnar héldu þeir
markinu hreinu en skoruðu þrjú
mörk hjá Víkingunum og staðan
var orðin 12:9. En þá hrökk
Víkingsvélin aftur í gang og
síðustu 20 mínútur leiksins skor-
uðu Víkingarnir 14 mörk gegn 6
mörkum íR-inga. Þegar 10 mínút-
ur voru til leiksloka var staðan
21:13 og þá leyfði Bogdan þjálfari
varamönnum sínum að spreyta sig
og þeir brugðust ekki traustinu
því Víkingur skoraði 5 mörk gegn
2 mörkum ÍR-inga á meðan þeir
voru inná.
Eins og í flestum fyrri leikjum
sínum sýndu Víkingarnir heil-
steyptan og jafnan leik. Sömu
mennirnir voru notaðir lengst af
og stóðu þeir sig allir með mestu
prýði en enginn skaraði sérstak-
lega framúr. Jens, Ólafur, Páll,
Árni, Sigurður G., Þorbergur,
Steinar og Erlendur, allt eru þetta
reyndir og góðir leikmenn sem
sjaldan sýna lélega leiki. ÍR-
ingarnir voru fremur einhæfir í
sóknarleik sínum að þessu sinni og
ekki bætti úr skák að þeirra helsti
sóknarmaður til þessa, Bjarni
Bessason, var eitthvað miður sín
og skoraði ekkert mark. Bjarni
Hákonarson var öruggur í vítak-
östunum og Sigurður Svavarsson
átti einnig góðan leik en var
kannski full harðhentur í vörninni
enda var hann rekinn útaf, fyrir
fullt og allt, 5 sekúndum fyrir
leikslok!
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild, 19. janúar.
Laugardalshöll, Víkingur — IR
26:15 (11:6).
MÖRK Víkings: Páll Björgvinsson
6, Sigurður Gunnarsson 5/2, Er-
lendur Hermannsson 4, Árni Ind-
riðason 3, Ólafur Jónsson 2, Stein-
ar Birgisson 2, Óskar Þorsteinsson
2/2, Gunnar Gunnarsson 1, Þor-
bergur Aðalsteinsson 1.
MÖRK ÍR: Bjarni Hákonarson
6/5, Guðjón Marteinsson 2, Sig-
urður Svavarsson 2, Bjarni
Bjarnason 2, Pétur Valdimarsson
2, Guðmundur Þórðarson 1 mark.
MISHEPPNUÐ vítaköst: Jens
Einarsson varði vítakast Sigurðar
Svavarssonar í f.h.
BROTTVÍSANIR af leikvelli: Sig-
urður Svavarsson tvívegis í 2
mínútur og einu sinni í 5 mínútur,
samtals 9 mínútur, Steinar Birg-
isson í 2 mínútur.
- SS.
Þorbjörn Guðmundsson skor
aði 12 mörk er Valur lagði KR
VALUR vann nokkuð öruggan sigur á liði KR i 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik á sunnudagskvöld i Laugardalshöll.
Þrátt fyrir að aðeins tvö mörk hafi skilið liðin að þegar leik lauk voru
Valsmenn lengst af fjórum mörkum yfir og þrátt fyrir hetjulega
baráttu lokakafla leiksins tókst KR-ingum ekki að jafna metin.
Lokatölur 22—20 fyrir Val eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13—8,
Valsmönnum í vil. Um næstu helgi leikur Valur fyrri leik sinn við
sænsku meistarana Drott í Evrópumeistarakeppninni í handknattleik
og fer sá leikur fram í Svíþjóð. Verða Valsmenn að taka á honum stóra
sinum ytra og sína mun betri leik en þeir gerðu á móti KR ef þeir ætla
að eiga einhverja möguleika^þeim leik.
Valur
— KR
22:20
Fyrri hálfleikur í leik KR og
Vals var eign Valsmanna. Þeir
léku betur allan tímann og voru
lengst af með fimm marka forystu
í leiknum. Létu þeir boltann vinna
vel fyrir sig og voru margar sóknir
þeirra hraðar og vel útfærðar.
Leikfléttur þeirra gengu upp og
síðast en ekki síst var Þorbjörn
Guðmundsson í miklum ham og
skoraði hvert markið af öðru með
miklum þrumuskotum lengst utan
af velli eða þá af línunni. Áður en
yfir lauk hafði hann skorað 12
mörk, og átti stórgóðan leik. Var í
sannkölluðum landsliðsham.
Þrátt fyrir nokkra yfirburði
Valsmanna komu KR-ingar síður
en svo vondaufir til leiks eftir
hléið. Þeir voru fullir af baráttu
og gáfust aldrei upp. Það er líka
rétti andinn. Þegar síðari hálfleik-
ur var um það bil hálfnaður hafði
þeim líka tekist að minnka mun-
inn niður í þrjú mörk og allt
virtist geta skeð. En leikreyndir
Valsmenn létu ekki forskotið af
hendi, heldur tóku hraustlega á
móti hinum baráttuglöðu KR-ing-
um. Og sigur Vals var sanngjarn
eftir gangi leiksins.
Lið Valsmanna lék fyrri hálf-
leikinn vel, en í þeim síðari fékk
boltinn ekki að ganga nóg og of
mikið var um hnoð. Vörn Vals svo
og markvarsla Brynjars Kvaran
var góð allan tímann.
Bestu menn Vals voru Þorbjörn
Guðmundsson sem lék nú sinn
Hinn eldsnöggi Bjarni Guðmundsson Val kominn í dauðafæri.
Ljósm. Rax.
Handknatlielkur
langbesta leik í vetur, þá var nafni
hans Jensson sterkur í vörninni og
bæði Bjarni Guðmundsson og
Gunnar Lúðvíksson áttu ágætan
leik.
Lið KR missti Valsmenn of
langt á undan sér í upphafi
leiksins og þrátt fyrir að aldrei
væri gefist upp tókst ekki að
krækja í stig að þessu sinni. Lið
KR var nokkuð jafnt í leiknum,
Jóhannes Stefánsson átti einna
bestan leik, svo og Haukur Otte-
sen. Einar Vilhjálmsson sem lítið
hefur leikið með í vetur kom inn á
í síðari hálfleik og sýndi að hann á
heima í liðinu og hefði mátt nota
hann meir. Er hann sterkur varn-
armaður og ógnar vel í horninu
þar sem hann er örvhentur.
I stuttu máli:
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 12(4v) Bjarni Guð-
mundsson 3, Þorbjörn Jensson 2,
Gunnar Lúðvíksson 2, Stefán
Halldórsson 2, Brynjar Harðarson
1.
Mörk KR: Konráð Jónsson 4,
Haukur Ottesen 4(lv) Jóhannes
Stefánsson 4, Björn Pétursson 2
víti, Ólafur Lárusson 2, Símon
Unndórsson 3, Friðrik Þorbjörns-
son 1.
Brottvísanir af leikvelli: Þor-
björn Guðmundsson, Steindór
Gunnarsson og Stefán Gunnars-
son allir úr Val í tvær mínútur
hver. Einar Vilhjálmsson KR 2
mín.
Misheppnuð vítaköst: Pétur
Hjálmarsson KR varði tvívegis,
fyrst á 29. mínútu hjá Þorbirni
Guðmundssyni, svo á 42. mínútu
hjá Stefáni Halldórssyni. Brynjar
Kvaran varði hjá Birni Péturssyni
á 54. mínútu og Björn skaut í
þverslá á 30. mínútu.
Dómarar voru þeir Óli Olsen og
Gunnar Kjartansson og voru þeim
frekar mislagðar hendur við dóm-
gæsluna að þessu sinni.
— þr.
• Kraftarnir ekki sparaðir, hálstak á Sæmund Stefánsson og gleraugu kappans fjúka út i loftið.
Sæmundur og félagar hans hjá FH léku sér hins vegar að nágrönnunum, Haukaliðinu. Ljósm.: rax
FH-ingar rassskelltu
litla bróður í Firðinum
ÞAÐ VAR ekki á FH-ingum að
sjá í Hafnarfirði á laugardaginn,
að þeir teldu íslandsmótinu í
handknattleik vera lokið. Það
var greinilegt á leik liðsins, að
það bíður þess eins að Víkingum
fatist flugið og gefi þannig á sér
höggstað. FH mætti Haukum og
er venjan að innbyrðisleikir
Hafnarfjarðarliðanna séu spenn-
andi og jafnir. Því var ekki að
heilsa að þessu sinni, til þess var
lið FH allt of gott og miklu betra
heldur en lið Haukanna. Lið FH
sýndi á sér margar góðar hliðar,
en á sama tima sýndi lið Hauk
anna lítið annað en skipulags-
leysi sitt og veikleika. Lokatölur
leiksins urðu 24—19 FH í hag.
staðan í hálfleik var 12—9, einn-
ig fyrir FH. Sigurinn hefði orðið
enn stærri hefðu FH-ingar ekki
verið kærulausir undir lokin, en
um tíma í síðari hálfleik var átta
marka munur.
Árni Hermannsson var ekki
seinn á sér að skora hjá FH á
fyrstu mínútu leiksins og vantaði
STAÐAN
Staðan í 1. deild
íslandsmótsins í hand-
knattleik eftir leiki helg-
arinnar er nú þessi:
ÍR—Víkingur
FH—Haukar
Valur-KR
Fram-HK
15- 26
24-19
22-20
16- 17
Víkingur 7 7 0 0 160:122 14
FH 7 5 1 1 161:144 11
Valur 7 4 0 3 145:133 8
KR 7 4 0 3 155:148 8
ÍR 7 2 1 4 138:150 5
Haukar 7 2 1 4 143:157 5
Fram 7 0 3 4 136:146 3
HK 7 1 0 6 113:147 2
FH:
Haukar
24:19
ekki að byrjunin var nógu góð hjá
Haukum. En lengra náði það ekki,
FH skoraði fjögur næstu mörkin,
komst í 4—1 og síðan 5—2. Þá kom
dæmigerð Haukasveifla og staðan
var allt í einu orðin 5—5 eftir tvö
snilldarmörk Andrésar af línunni
og langskot Júlíusar. Síðan
kvöddu FH-ingar og náðu mest
fjögurra marka forystu í fyrri
hálfleik, 10—6, þrátt fyrir að þeir
væru um tíma einum færri. í
hálfleik stóð síðan 12—9 eins og
áður hefur komið fram.
Árni Sverrisson hóf síðari hálf-
leikinn eins og þann fyrri, þ.e.a.s.
með því að skora. Munurinn var
þá aðeins tvö mörk, en fór úr því
ört stækkandi. FH skoraði næstu
sjö mörkin og níu af ellefu mörk-
um og staðan breyttist í 20—12 og
úrslitin ráðin þó að enn væri drjúg
stund til leiksloka. Varnarleikur
FH var um þetta leyti sannkall-
aður múrveggur, vissu Haukarnir
vart sitt rjúkandi ráð og var
sóknarleikur þeirra aldrei verri
heldur en um þetta leyti.
Að þessu forskoti fengnu, fóru
FH-ingar mjög að taka lífinu með
ró. Haukarnir hófu að minnka
muninn, en FH-ingar laumuðu inn
mörkum af og til, svona rétt til að
tryggja það að Haukarnir gætu
ekki seilst í stig. Þegar upp var
staðið hafði FH innbyrt fimm
marka sigur og var það í minnsta
lagi miðað við augljósan getumun
á liðunum.
FH lék þennan leik lengst af
mjög vel bæði í sókn og vörn. Geir
lék lausum hala framan af leikn-
um og stjórnaði þá öllu spili
liðsins, en þegar hann var síðan
tekinn úr umferð fór hann út í
hornið og teygði með því á vörn
Hauka. Græddu Haukarnir ekkert
á því að eltast við Geir, því að
FH-ingar hafa þjálfað upp ráð við
því að hann sé tekinn úr umferð.
Hvað eftir annað löbbuðu
FH-ingarnir inn og út um „vörn“
Hauka, ýmist eftir vel útfærð
leikkerfi, eða eftir einstaklings-
framtak. Hjá FH bar mest á þeim
Svérri markverði og Kristjáni
Arasyni. Sverrir varði frábærlega
allan leikinn, þó sérstaklega í
síðari hálfleik. Varði hann alls 19
skot í leiknum, þ.á m. tvö vítaköst.
Kristján var hins vegar klettur
bæði í vörn og sókn og skoraði 9
mörk. í sterku liði FH áttu einnig
stórgóðan leik þeir Valgarður
Valgarðsson og Pétur Ingólfsson.
Þá var Guðmundur Magnússon
góður að venju og Sæmundur
sýndi falleg tilþrif í síðari hálf-
leik.
Allt var þetta hálfnöturlegt hjá
Haukum að þessu sinni. Varnar-
leikur liðsins var í molum og
sóknarleikurinn lengst af skipu-
lagslítill og laus við alla ógnun.
Það var helst einstaklingsframtak
Árnanna tveggja Hermannssonar
og Sverrissonar sem gladdi augað.
Sá síðarnefndi kom einna best frá
leiknum, en einnig átti Gunnar
markvörður Einarsson frambæri-
legan leik. Markvarsla hans var
furðu góð miðað við hvað vörnin
var agaleg. Lítið kom út úr
reyndum köppum eins og Stefáni
Jónssyni, Herði Harðarsyni og
Andrési Kristjánssyni.
í STUTTU MALI:
Islandsmótið í handknattleik, 1.
deild FH — Haukar 24—19 (12—
9) .
MÖRK FH: Kristján Arason 9/5,
Valgarður Valgarðsson 5, Sæ-
mundur Stefánsson og Pétur Ing-
ólfsson 3 hvor, Guðmundur Magn-
ússon 2, Árni Árnason, Geir Hall-
steinsson 1 mark hvor.
MÖRK Hauka: Árni Sverrisson 5,
Júlíus Pálsson 4/2, Sigurgeir
Marteinsson 3/3, Árni Hermanns-
son 3, Andrés Kristjánsson og
Hörður Harðarson 2 mörk hvor.
VÍTI í VASKINN: Sverrir varði
vítaköst frá Sigurgeir og Júlíusi.
BROTTREKSTRAR: Guðmundur
Magnússon FH í 4 mínútur, Sæ-
mundur Stefánsson og Kristján
Arason FH, Ingimar Haraldsson
og Árni Hermannsson Haukum í 2
mínútur hvor.
Leikinn dæmdu Árni Tómasson
og Jón Steingrímsson og var
frammistaðan þokkaleg. gg.