Morgunblaðið - 22.01.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIOJUDAGUR 22. JANÚAR 1980
27
Velta KSÍ um 122
milljónir í
ÍÞRÓTTAHREYFINGIN berst í
bökkum fjárhagslega og er þá
sama hvort rætt er um einstök
félög eða stór sérsambönd.
Knattspyrnusambandið stendur
þó betur að vígi en flestir aðrir
aðilar í íþróttahreyfingunni og
hefur orðið merkileg þróun hjá
KSÍ síðasta áratuginn. Er Frið-
jón Friðjónsson tók við gjald-
kerastörfum fyrir réttum 10 ár-
um hafði sambandið verið rekið
með liðiega 300 þúsund króna
tapi árið á undan. Sá halli réttist
þó fljótlega af og á fyrstu reikn-
ingum Friðjóns var hagnaður
fyrra
orðinn hálf milljón. Síðan hefur
sambandið ávallt verið rekið með
hagnaði nema 1978.
Síðastliðið ár var rúmlega 4,6
milljón króna hagnaður á starfi
KSÍ. Veltan nam 122 milljónum
króna, en niðurstöðutölur hljóð-
uðu þó ekki upp á nema 66
milljónir, þar sem aðeins er t.d.
getið nettó-talna af landsleikjum.
A þessu ári er útlitið ekki eins
bjart og reiknað er með tæplega
6 milljón króna halla. Er það
m.a. vegna þess hve dýrar lands-
liðsferðir eru framundan.
— áij.
ÍBK og Magni
prúðustu liðin
AÐ VENJU voru Drago-stytturn-
ar svonefndu afhentar á
KSÍ-þinginu um helgina, en þær
hljóta þau lið í 1. og 2. deild, sem
sýna prúðmannlegasta fram-
komu á leikvelli, „fair-play“. Að
þessu sinni komu stytturnar
glæsilegu í hlut leikmanna Kefla-
víkur í 1. deild og Magna frá
Grenivík í 2. deild.
Sigurlás Þorleifsson, marka-
kóngur 1. deildar síðasta ár,
byrjar næsta keppnistímabil með
tveggja leikja banni og Eyjólfur
Ágústsson KA með 1 leiks banni.
- áij.
Þingfulltrúar á KSl-þinginu, fyrir miðju eru fulltrúar Austfirðinga og í ræðustóli Baldvin Jónsson,
Reykjavík.
Tekjuskiptingu breytt á KSÍ-þinginu:
Heimaliðið fær
nú allar tekjur
• Landsliðsþjálfarinn Guðni Kjartansson lengst t.v. ásamt Eggert
Jóhannessyni formanni Knattspyrnuþjálfarafélagsins og Lárusi
Loftssyni unglingalandsliðsþjálfara. (Ljósm.: RAX).
ÞAÐ MÁL, sem umdeildast var á
KSÍ-þinginu um helgina, var
breytt tekjuskipting á leikjum
íslandsmótsins. Fyrir þinginu lá
tillaga þess efnis að hver deild
fyrir sig réði tekjuskiptingu hjá
sér, en í meðförum þingsins var
tillögunni breytt á þá leið, að
heimalið hirti allan ágóða af
sínum leikjum, nema útvarps- og
Þórsarar sigruðu IBK
sjónvarpstekjur. Þessi tillaga var
samþykkt með 70 atkvæðum
gegn 60. Helztu talsmenn þessar-
ar tillögu voru fulltrúar Vals, KR
og Fram í 1. deild, Akureyringar
og Austfirðingar. Á móti voru
einkum fulltrúar Vestmannaeyja
og Akraness.
Á þinginu var lögð fram tafla
yfir tekjuskiptingu í 1. og 2. deild
1979 og hverjar tekjur hefðu
orðið ef um breytt fyrirkomulag
hefði verið að raeða. Lítur sú tafla
svo út:
brotnar. Reynir tapaði þessum
leik eftir vítaspyrnukeppni, en
kærði síðan úrslitin. Bæði dómstig
dæmdu að úrslitin skyldu standa,
enda höfðu leikmenn og forystu-
menn beggja liða óskað eftir því
skriflega fyrir leikinn að leikið
skyldi til þrautar. í framhaldi af
þessum umræðum var samþykkt á
þinginu að óheimilt væri að brjóta
lög sambandsins!
Samþykkt var að beina þeim
tilmælum til sveitarstjórna, að
vallaleiga verði lækkuð úr 17% í
Þórsarar voru sterkari á loka-
mínútunum er þeir mættu
Keflvíkingum í 1. deild íslands-
mótsins í körfuknattleik um
helgina á Akureyri. Áhorfendur
urðu vitni að spennandi leik, en
ekki að sama skapi vel leiknum,
(iar sem vart mátti á milli sjá.
BK hafði fimm stiga forustu í
leikhléi 41—36, það dugði þó
ekki til, Þórsarar unnu upp það
forskot og sigruðu naumlega 75
stig gegn 72.
Keflvíkingum gekk afar iila að
finna réttu leiðina í körfuna í
upphafi og skoruðu þeir sín fyrstu
stig er fimm mínútur voru af leik,
en þá var staðan 6—2 Þór í vil.
Þórsarar voru sterkari aðilinn
framan af, leiddu 10—2 og síðan
16—8, en eftir það tók að draga
saman með liðunum. Um miðjan
fyrri hálfleikinn komst ÍBK yfir
23—22 og juku þeir þá forustu í
41—36 í hálfleik, sem fyrr segir.
Keflvíkingar héldu forustunni
IBK sigraði slakt
lið Tindastóls
Keflvíkingar unnu góðan sigur
i 1. deildinni i körfuknattleikn-
um er þeir mættu liði Tindastóls
frá Sauðárkróki um helgina.
Leikið var á Akureyri, en þar
spila Tindastóls-menn sína
heimaleiki. Það var fátt um fína
drætti að ræða í leiknum, til þess
voru yfirburðir ÍBK of miklir og
við litla mótspyrnu að etja.
Tindastóll hefur oft leikið betur,
en þeir báru of mikla virðingu
fyrir mótherjanum og með því
hugarfari næst ekki árangur.
í upphafi leiks var jafnræði með
liðunum, ÍBK hafði þó frumkvæð-
ið og eftir átta mínútna leik var
staðan 18—15 ÍBK í vii. Eftir það
skildu leiðir ÍBK skoraði næstu
fimmtán stig gegn aðeins tveimur
stigum Tindastólsmanna svo auð-
séð var í hvað stefndi. í leikhléi
hafði Keflavíkurliðið tryggt sér
yfirburða stöðu 55 stig gegn 27.
Síðari hálfleikurinn var því nán-
ast sagt formsatriði, Keflavíkur-
liðið leyfði skiptimönnunum að
spreyta sig en við það lifnaði
aðeins yfir leikmönnum Tinda-
stóls. ÍBK liðinu tókst þó að rjúfa
hundrað stiga múrinn afsíðustu
sekúndum leiksins og skora 101
stig móti 61 stigi Sauðkræklinga.
Monnie Ostrom lék við hvern sinn
fingur í liði Keflavíkur og skoraði
32 stig, en næstur honum skoraði
Jón Kr. Gíslason 16 stig, aðrir
leikmenn voru nokkuð jafnir að
getu að þessu sinni. Hjá Tindastóli
bar mest á Kára Maríussyni, sem
skoraði 26 stig og sýndi marga
góða takta sem fyrrverandi lands-
liðsmanni sæmdi. Leikinn dæmdu
þeir Hörður Túliníus og Rafn
Benediktsson.
framan af seinni hálfleiknum og
fór munurinn mest í sjö stig.
Þórsarar með Bandaríkjamanninn
Gary W. Schwartz í broddi fylk-
ingar voru ekki á því að gefast
upp, jöfnuðu leikinn og komust
yfir er tíu mínútur voru til
leiksloka. Síðustu mínúturnar
voru æsispennandi, þegar ein og
hálf mínúta var til leiksloka var
staðan 70—69 Þór í vil. Monnie
Ostrom bandaríski leikmaðurinn í
liði ÍBK fékk þá tækifæri á að
koma liði sínu yfir, er hann fékk
vítaköst, en brást þá bogalistin og
hitti ekki og Þórsarar komust þrjú
stig yfir. Liðin skoruðu þrjú stig
hvort á þeim sekúndum sem eftir
voru og var Þröstur Guðjónsson
sterkur fyrir Þór með einstakl
ingsframtaki sínu á lokamínút-
unni. Bandaríkjamennirnir í báð-
um liðum settu mjög svip sinn á
leikinn og eru yfirburðamenn,
Gary W Schwartz hjá Þór er vel
hittinn og hefur ótrúlega yfirferð,
oftast kominn á staðinn að ná
frákasti ef skot geigar. Hann
ásamt Alfreð Túliníus voru bestu
menn Þórsliðsins. Hjá ÍBK gerði
Monnie Ostrom marga góða hluti
og var hann ásamt Birni Skúla-
syni og Sigurði Sigurðssyni besti
maður Keflavíkurliðsins að þessu
sinni. Stigahæstu menn Þórs voru:
Gary W. Schwartz 44, Eiríkur
Sigurðsson 12 og Alfreð Túliníus 8
stig. Hjá ÍBK skoruðu mest:
Monnie Ostrom 27, Björn Skúla-
son 16 og Sigurður Sigurðsson 12
stig.
Þeir Hörður Tuliníus og Rafn
Benediktsson dæmdu leikinn og
gerðu honum góð skil.
Tekjuskiptintt 1979 I. deild
Óbreytt Aukaleikur Breytt Aukaleikur
Valur 7.531.635 (8.604.270) 9.202.220 (10.274.855)+22% (19.4%)+
Í.A. 6.133.562 (7.206.197) 4.658.764 ( 5.731.399)+24% (19.6%)+
Fram 5.487.238 6.001.792 + 9.0%
K.R. 5.231.326 4.827.297 + 7.7%
Í.B.V. 3.908.345 3.262.644 +16.5%
Víkingur 3.865.594 3.634.198 + 6.0%
Í.B.K. 3.938.964 3.510.160 +10.8%
K.A. 3.264.767 3.476.254 + 6.5%
Þróttur 2.588.893 2.105.388 +18.6%
Haukar 1.549.953 1.081.528 +30.0%
Tekjuskipting 1979 II. deild.
Þróttur 703.761 965.128 +37.0%
Fylkir 342.828 324.724 + 5.3%
Reynir 530.194 430.992 +18.7%
Selfoss 451.811 311.588 +31.0%
Þór 641.831 965.784 +50.0%
Austri 409.071 288.862 +29.5%
F.H. 667.068 564.732 +15.0%
Í.B.Í. 300.875 194.610 +35.4%
U.B.K. 985.964 1.152.468 +17.0%
Ákveðið var á þinginu að fella
meistarakeppni KSI niður, en
taka upp leik á milli íslandsmeist-
ara og bikarmeistara. Skal leikur-
inn fara fram í fyrrihluta júní-
mánaðar á grasvelli. Þá var á
þinginu samþykkt, að ef lið úr 1.
deild dregst gegn liði úr undan-
keppninni í fyrstu umferð aðal-
keppni bikarkeppninnar skal leik-
ið á heimavelli þess liðs, sem tók
þátt í undankeppninni. I öðrum
tilfellum skal leikið á heimavelli
þess liðs, sem á undan er dregið.
Samþykkt var að leika tvöfalda
umferð heima og heiman í úrslita-
keppni þriðju deildar í tveimur
riðlum eins og áður. Mikið var
rætt um leik Austra og Reynis um
8. sætið í 2. deild síðastliðið haust
og þingheimur sammála um að
með því að þeim leik var fram-
lengt og síðan háð vítaspyrnu-
keppni hefðu reglur KSÍ verið
15% og til héraðssambanda, að
gjald til knattspyrnuráðs heima-
liðs verði lækkað úr 7% í 3%.
Sektargjöld voru hækkuð á þing-
inu í samræmi við verðlagsþróun
síðustu ára og var á þinginu lögð
fram skrá frá síðasta ári yfir
sektir, sem renna til mótsaðila.
Kemur þar fram að af 28 málum
eiga FH-ingar hlut að sex.
Framkvæmdastjórn KSÍ var
einróma endurkjörin. Hana skipa
EUert B. Schram formaður, Jens
Sumarliðason, Friðjón Friðjóns-
son, Helgi Daníelsson, Árni Þ.
Þorgrímsson, Gylfi Þórðarson og
Hilmar Svavarsson. í varastjórn
eiga sæti Bergþór Jónsson, Karl
Guðmundsson og Helgi Þorvalds-
son. I landsstjórninni eru einnig
þeir Jóhann Ólafsson, Gunnar
Sigurðsson, Rafn Hjaltalín og
Guðmundur Bjarnason.
- áij.