Morgunblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.02.1980, Blaðsíða 4
4 ® \ Tilallia heimshoraa medSAS SAS flýgur alla þriðjudaga frá Reykjavík til Kaupmannahafnar og þaðan áfram til 100 borga í 49 löndum. Frekari upplýsingar eru veittar hjá ferðaskrifstofunum eða x/x Söluskrifstofa Laugavegur 3 Sími 21199/22299 Aætlun: SK 296: brottf. Reykjavík 18.05 komut. Kaupmannahöfn 21.55. SK 295: brottf. Kaupmannahöfn 09.50. komut. Reykjavík 11.50. Partners' rt^tirrt^irrnrfirQ .m/s Baldur fer frá Reykjavík þriðjudaginn 12. þ.m. og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreksfjörö, (Tálknafjörð og Bíldudal um Patreksfjörð) og Breiðafjarð- arhafnir. Vörumóttaka alla virka daga til 11. þ.m. Coaster Emmy fer frá Reykjavík þriðjudaginn 12. þ.m. vestur um land til Akureyrar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Þingeyri, ísa- fjörð, (Flateyri, Súgandafjörö og Bolungarvík um ísafjörð), Akur- eyri, Siglufjörð og Sauðárkrók. Vörumóttaka alla virka daga til 11. þ.m. MYNDAMÓTHF PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI « - SlMAR: 17152-17355 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1980 Þorgeir Ástvaldsson Sjónvarp kl. 20.40: Skonrok(k) „ Skonrok(k) Þorgeirs Ástvaldssonar er á dagskrá sjónvarps í kvöld og hefst þáttur hans klukkan 20.40. í þættinum mun Þorgeir kynna ný og eldri lög með ýmsum þekktum listamönnum ef að líkum lætur. Þáttur þessi hefur verið á dagskrá sjónvarps nú um nokkurt skeið, og virðist njóta talsverðra vinsælda, einkum meðal fólks af yngri kynslóðinni, enda eru þætt- irnir líflegir og Þorgeir þaulvanur framkomu í fjöl- miðlum. Þá virðist ekki vera hörgull á efni, eins og oft var áður fyrr, þegar alþýðutónlist átti í hlut, enda hefur höfundum og flytjendum léttrar tónlistar orðið æ ljósara hve mikil- vægur miðill sjónvarpið er til að koma efni af þessu tagi á framfæri. Útvarp Reykjavík klukkan er 23.00: Næst á dagskrá eru Áfangar ÁFANGAR eru á dagskrá útvarps í kvöld og hefst þátturinn klukkan 23.00 samkvæmt venju. Umsjón- armenn þáttarins eru þeir Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson, en þeir hafa verið með þáttinn frá upphafi og hafa þættir af þessu tagi ekki orðið öllu langlífari í Ríkisútvarpinu. I þáttunum hafa þeir Ás- mundur og Guðni Rúnar tekið fyrir ýmsa tónlistarmennn sem telja má til alþýðutón- listarmanna, bæði þá, sem þekktir eru hérlendis, og einnig þá, sem minna hefur heyrst í. Einkum eru það rokktónlistarmenn, sem þeir hafa kynnt, eða þá flytjendur svipaðrar tónlistar. Hafa þeir félagar leitast við að skýra frá sögu viðkomandi flytj- enda og lagasmiða, útskýra texta þeirra og tónlist og greina frá þeirri þróun sem átt hefur sér stað á ferli þeirra. Hafa þeir þannig auk- Sjónvarp: Myndum þroska- heft börn Lovey nefnist ný bandarísk sjónvarpskvikmynd sem er á dagskrá sjónvarps klukkan 22.10 í kvöld. Myndin er byggð á ævisögu Mari MacCracken, sem starfað hefur að upp- fræðslu og þjálfun þroska- heftra barna. Með aðalhlut- verkið í myndinni fer Jane Alexander, en þýðandi er Kristmann Eiðsson. Umsjónarmenn Áfanga, þeir Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. Myndina tók Kristján Einarsson er þeir voru að undirbúa þáttinn í útvarpssal. ið þekkingu hlustenda á við- þýðutónlist, verða að teljast komandi tónlistarmönnum heldur af hinu góða, því ekki um leið og leikin eru sýnis- er á því vafi að njóta má hörn verka þeirra. tónlistarinnar í mun ríkari Tónlistarþættir af þessu mæli ef áheyrandinn hefur tagi, hvort heldur er um að einhverja þekkingu á því sem ræða sígilda tónlist eða al- um er að ræða hverju sinni. FÖSTUDKGUR 8. febrúar MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Kristján Guðlaugsson heldur áfram lestri þýðingar sinnar á sögunni „Veröldin er full af vinum" eftir Ingrid Sjöstrand (15). 9.20 Leikfimi.- 9.30 Tilkynn- ingar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Tilkynningar. 10.25 „Ég , man það enn“ Skeggi Ásbjarnarson sér um þáttinn. 11.00 Morguntónleikar. Fílharmoníusveitin í Los Angeles leikur forleik að „Töfraskyttunni". óperu eft- ir Carl Maria von Weber; Zubin Metha stj./ Felicja Blumenthal og Kammer- sveitin í Vín leika Píanó- konsert í a-moll op. 214 eftir Cari Czerny; Helmuth Froschauer stj./ Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur „Ur myndabók Jónasar Hall- grímssonar", hljómsveit- arsvitu eftir Pál ísólfsson; Bohdan Wodiczko stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tónleikasyrpa. Léttklassísk tónlist og lög úr ýmsum áttum. SÍÐDEGIÐ 14.30 Miðdegissagan: „Gatan" eftir Ivar Lo-Johansson. Gunnar Benediktsson þýddi. Halldór Gunnarsson les (27). 15.00 Popp. Vignir Sveinsson kynnir. 15.30 Lesin dagskrá næstu viku. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Litli barnatíminn. Heiðdís Norðfjörð stjórnar barnatima á Akureyri. 16.40 Útvarpssaga barnarina: „Ekki hrynur heimurinn" eftir Judy Bloome. Guðbjörg bórisdóttir les þýðingu sína (5). 17.00 Síðdegistónleikar. Hans P. Franzson og Sinfóníu- hljómsveit íslands leika Fag- ottkonsert eftir Pál P. Páls- son; höfundurinn stj./ Sin- fóníuhljómsveitin í Detroit leikur Litla svítu eftir Clau- de Debussy;/ Filharmóníu- sveitin í Vín leikur Sinfóníu nr. 7 í C-dúr op. 105 eftir Jean Sibelius; Lorin Maazel stj. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Til- kynningar. KVÖLDIÐ 20.00 Öperutónlist. Pierette Al- arie, Léopold Simoneau, René Bianco, Elisabeth- Brasseur kórinn og Lamour- eux-hljómsveitin flytja þætti úr „Perluköfurunum", óperu eftir Georges Bizet; Jean Fournet stj. 20.45 Kvöldvaka. a. Einsöngur: Svala Nielsen syngur lög eftir ólaf Þorgrímsson. Guðrún Krist- insdóttir leikur á píanó. b. Brot úr sjóferðasögu Austur-Landeyja; — fyrsti þáttur. Magnús Finnboga- son bóndi á Lágafelli talar við Guðmund Jónsson frá Ilólmahjáleigu um sjósókn frá Landeyjasandi og gömul vinnubrögð. c. Sagan af Húsavíkur-Jóni, kvæðabálkur eftir Sigurð Rósmundsson. Höskuldur Skagf jörð les. d. Langfcrð á hestum 1930. Frásögn Þórðar Jónssonar í Laufahlíð í Reykjadal af ferð hans á alþingishátiðina. Baldur Páimason les. e. Kórsöngur: Karlakórinn Vísir syngur íslenzk lög. Söngstjóri: Þormóður Eyj- ólfsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Lestur Passíusálma (5) 22.40 Kvöldsagan: „Úr fylgsri- um fyrri aldar" eftir Friðrik Eggerz. Gils Guðmundsson les (4). 23.00 Áfangar. Umsjónar- menn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. SKJANUM FÖSTUDAGUR 8. febrúar 1980 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Skonrokk. Þorgeir Ástvaldsson kynnir vinsæl dægurlög. 21.10 Kastljós. Þáttur um innlend málefni. Umsjónar- maður Guðjón Einarsson. 22.10 Lovey. Ný bandarísk sjónvarpskvikmynd, byggð á ævisögu Mary MacCrack- en, sem starfað hefur að kennslu þrosk^heftra barna. Aðalhlutverk Jane Alexander. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 23.40 Dagskráriok ■tí m & * * 'MbflK 4> -m. a « * m t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.