Morgunblaðið - 19.02.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1980
45
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL 10—11
, FRÁ MANUDEGI
'ir
ógleymdum íslensku lögunum.
Þá vil ég einnig taka undir
hvatningu í lesendabréfi í einu
dagblaðanna nýlega, þess efnis að
í dagskrá sjónvarpsins, sem birt
er í blöðunum, verði ásamt
íslensku heiti hvers þáttar einnig
nefnt útlenda heitið, sé um efni
frá útlöndum að ræða.
Þetta finnst mér alveg sjálfsagt,
því að það auðveldar fólki að átta
sig á hvað í boði er, á hvaða
tungumáli o.s.frv., um leið og
menn kynna sér þær gagnorðu
skýringar sem fylgt hafa hverjum
dagskrárlið.
Auk þess er það rétt sem
bréfritari bendir á, að mikið er
keypt hér af erlendum blöðum og
tímaritum sem mörg skrifa um
sjónvarpsefni, nýjar myndatökur
o.þ.u.l., og þá er gott að geta áttað
sig þegar slíkt „kunnugt" efni
berst hingað í sjónvarpið.
Að lokum get ég ekki stillt mig
um að senda þakkarorð til Matthí-
asar Johannessen fyrir ágæt um-
mæli hans í sjónvarpinu á dögun-
um þar sem rætt var ifm meiðyrði,
gróft tungutak og annað í þeim
dúr.
Ekki man ég orð hans nákvæm-
lega, en þau voru í þá átt að góð
skáld, sem gnæfðu hátt, gætu
fjallað um viðkvæm mál, t.d.
samlíf hjóna, af nærfærni og
listrænni smekkvísi, án þess að
nota eitt einasta klúryrði, — á
meðan sumir höfundar kysu að
sullast sem mest í ósómanum en
yrðu þó aldrei nein skáld.
Þetta kalla ég að hitta naglann
á höfuðið!
Með bestu kveðjum,
Jórunn Halla Jósteinsdóttir.“
• Á að færa
flugvöllinn?
Sjónvarpsáhorfandi:
—Þær voru skemmtilegar
umræðurnar í Kastljósi á föstu-
dagskvöldið þar sem fjallað var
um þann hugsanlega möguleika að
færa Reykjavíkurflugvöll og reisa
íbúAarhverfi í Vatnsmýrinni í
hans stað.
Ómar Ragnarsson kynnti líka
rösklega hugmyndir og áætlanir
um kostnað við hina ýmsu mögu-
leika sem til greina koma við
nýjan flugvöll, á Álftanesi, eða í
Kapelluhrauni eða að hafa jafnvel
allt flug frá Keflavík. Nokkrir
milljarðar færu hér í breytingar
og nokkrir milljarðar þar, allt
voru þetta ævintýralegar upphæð-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi í janúar kom
þessi staða upp í skák þeirra
Yassers Seirawan, Bandaríkjun-
um, sem hafði hvítt og átti leik, og
Guðmundar Sigurjónssonar.
28. Dh6! - gxh5, 29. Hxf7! -
Kxf7, 30. Dxh7+ og svartur gafst
upp. Eftir 30. ... Kf6, 31. Hfl+ —
Ke5, 32. Dg7+ er hann mát í næsta
leik. /
ir sem manni fannst ógnvekjandi
að hugsa um bara til að flytja
flugvöll og reisa íbúðarhverfi.
Þá kem ég að þeirri spurningu,
sem mér finnst þurfa að halda
áfram að leita að svari við: Er
réttlætanlegt að setja niður nokk-
ur þúsund manna byggð á þennan
blett, sem flugvöllurinn er nú á?
Er það víst að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt? Kemur það fleirum til
góða heldur en þeim fáu sem þar
myndu búa? Hafa ekki þeir fjöl-
mörgu, sem fara um flugvöllinn
vegna innanlandsflugs ómæld
óþægindi af því að velkjast suður
með sjó til að bíða eftir flugvél og
þurfa kannski að hanga þar dag-
langt og bíða veðurs, því allir vita
nú hversu erfitt er einatt um
innanlandsflug hér vegna mis-
munandi veðurskilyrða.
Víst yrði gaman að búa í
Vatnsmýrinni, stuttar vegalengdir
og þægilegur staður, rétt við
gamla miðbæinn og Tjörnina, út-
sýni gott o.s.frv. En yrði þessi
flutningaráðstöfun ekki of dýr,
yrði hún ekki til góða fyrir fáa á
kostnað margra?
Menn tala um vegalengdir og að
Reykjavík megi ekki þenjast of
mikið út og er nokkuð til í því. En
í því sambandi má líka segja að á
þessari öld orkusparnaðar og elds-
neytisnýtingar er alltaf verið að
þróa flutningatækni og kemur að
því fyrr eða síðar að íbúar ná-
grannabyggðanna, Mosfellssveit-
ar, Hafnarfjarðar og síðar Úlfars-
fells- og Korpúlfsstaðasvæða ferð-
ast milli síns heima og Reykja-
víkur með hraðskreiðum raf-
magnsfarartækjum, en nota
einkabílana á tyllidögum.
En þetta var nú ekki annað en
smá hugleiðing út frá þessum
umræðum þarna um kvöldið, þessi
mál þarf að skoða vel eins og þau
voru reyndar öll sammála um og
væri ekki úr vegi að halda umræð-
um um þau áfram og fá fleiri til að
tjá sig um málið.
HÖGNI HREKKVÍSI
iiLAttu N[\(y \iita EFþó
ÓKÐ rÓNF IÓK6TÓ0FO.."
St. Jósepsspítali í Hafnarfírði:
Sjúkraliðar söínuðu
4 milljónum fyrir
sjúkrahúsbaðkeri
SJÚKRALIÐAR á lyíja-
deild St. Jósepsspítala í
Hafnarfirði stóðu í haust
og vetur fyrir söfnun til
þess að geta keypt sér-
stakt sjúkrahúsbaðkar
með lyftivagni.
Sjúkraliðarnir gengu í
hús og fyrirtæki í Hafnar-
firði auk sem þeir söfnuðu
á spítalanum sjálfum og
gekk söfnunin vonum
framar og söfnuðust tæp-
lega 4 milljónir króna og
hefur baðið verið keypt.
Það verður að gera nokkrar
breytingar til þess að hægt
sé að setja það upp, en þær
breytingar verða fram-
kvæmdar innan tíðar að
sögn eins aðstandenda
söfnunarinnar.
Vildu sjúkraliðarnir
koma á framfæri sérstöku
þakklæti til allra þeirra er
léðu þessu máli lið.
Rafmaqnshellur
Verö kr.
24.800.-
Verð kr.
44.800.-
\mnai S%gdu>öon h.f.
Suðurlandsbraut 16. Sími 35200.
Finnsku tónlistarmennirnir SEPPO TUKIAINEN, fiðlu-
leikari og TAPANI VALSTA, píanóleikari halda
tónleika í Norræna húsinu þriðjudaginn 19. febrúar
kl. 20:30. Á efnisskrá verða:
Jonas Kokkonen: Duo (1955), Johannes Brahms:
Sónata op. 108 Aulis Sallinen: Fjórar etýður. Claude
Debussy: Sónata (1917) og Henry Wieniawski:
Polonaise brillante.
Aögöngumiðar í kaffistofu hússins og við innganginn.
NORR€NA HÖSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
RK BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331.