Morgunblaðið - 03.05.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1980
21
Aftökur i Líberíu — hermenn hinna nýju valdhaía taka fyrrverandi ráðamenn i Líberíu af lífi.
Af 13 sem teknir voru af lifi, voru niu skotnir án dóms og laga. Raunar höfðu þrir verið
sýknaðir af ákærum um landráð.
Sænsku hjólin
hætt að snúast
Stokkhólmi, 2. maí. Frá
Guðfinnu Ragnarsdótt-
ur, fréttaritara Mbl.
KLUKKAN 12 á miðnætti aðfara-
nótt föstudagsins 2. maí stöðvuð-
ust sænsku hjólin. 100 þúsund
manns hófu verkfall, 800 þúsund
lentu í verkbanni sænskra
atvinnurekenda. Það var árangur
nærri hálfs árs samningaumleit-
ana. Aidrei fyrr hefur Svíþjóð
staðið andspænis slikum erfiðleik-
um á vinnumarkaðinum: Útflutn-
ingur, innflutningur, iðnaður,
flutningar, framleiðsla, — allt
liggur niðri. Við það bætist svo
verkfalí, verkbann og yfirvinnu-
bann opinberra starfsmanna.
Ekkert sjónvarp nema fréttir,
allar neðanjarðarlestir Stokk-
hólmsborgar stöðvaðar, allt flug
liggur niðri og i sumum þorpum
eru skólar og dagheimili lokuð.
Á flestum sjúkrahúsum er aðeins
tekið á móti neyðartilfellum. Ef
samningar takast ekki á næstunni
verður landið bensínlaust eftir
hálfan mánuð og blöð hætta að
koma út vegna skorts á pappír.
Verkbann vinnuveitenda mun til að
byrja með standa í eina viku en
verkföllin eru ekki tímabundin.
Meðan á verkfallinu og verkbann-
inu stendur tapar Svíþjóð að jafn-
aði 30 til 40 milljörðum íslenzkra
króna á dag.
Samningaviðræðurnar hafa
gengið mjög treglega og Iítið miðað
í samkomulagsátt þrátt fyrir nærri
hálfs árs samningaviðleitni.
Carter ætlar
að ferðast um
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
önnu Bjarnadóttur Washington i gær.
JIMMY Carter forseti Bandaríkj-
anna sagði i dag að hann ætlaði að
ferðast um landið á næstunni og
taka þátt i kosningabaráttunni
þrátt fyrir að gíslarnir 50 séu enn
í haldi í íran. Hann sagði þegar
þeir voru teknir í nóvember að
hann myndi ekki yfirgefa Hv'ta
húsið fyrr en þeir yrðu látnir
lausir.
Carter sagði í dag, að baráttan
við írani væri nú komin á það stig
að hann gæti ferðast um landið.
Hann útskýrði ekki hvað hefur
breytzt og gert honum kleift að
ferðast nú. Hann ætlar ekki að eiga
kappræðu við Edward Kennedy
helzta keppinaut hans um útnefn-
Skutu arki-
tekt í höfuðið
Rómaborg. 2. mal. AP.
FJÓRIR vopnaðir menn réðust i
dag inn á skrifstofu arkitekts í
Rómaborg og skutu hann í höfuðið.
Arkitektinn, Sergio Lenci, liggur
alvarlega slasaður á sjúkrahúsi í
Rómaborg. Hann vann á sínum tíma
að hönnun Rebibbiafangelsisins í
Rómaborg. Fjórmenningarnir til-
heyra öfgahóp sem kallar sig fram-
varðarfylkinguna og hefur á sinni
samvizku morð fjölda manns á
Ítalíu.
ingu demókrata, en mun eiga
kappræðu við frambjóðanda repú-
blikana með haustinu ef hann
hlýtur útnefningu flokksins. Carter
hefur undanfarið verið gagnrýndur
fyrir að láta írani halda sér gísl í
Hvíta húsinu.
ab
Þetta gerðist
1979 — Kosningasigur brezka
íhaldsflokksins undir forystu
Margaret Thatcher.
1977 — Viðræður Bandaríkjanna
og Víetnams í París um eðlilega
sambúð.
1972 — Tyrkneskir skæruliðar
ræna tyrkneskri flugvél sem lendir
í Sofia.
1968 — Samkomulag um viðræður
við Norður-Víetnama í París.
1951 — Bretlandshátíðin hefst.
1945 — Bandamenn sækja inn í
Hamborg.
1898 — Hunguróeirðir í Mílanó.
1859 — Frakkar segja Austur-
ríkismönnum stríð á hendur.
1849 — Prússar bæla niður upp-
reisn í Dresden.
1841 — Nýja Sjáland formlega
yfirlýst brezk nýlenda.
1833 — Tyrkir viðurkenna sjálf-
stæði Egyptalands og láta Sýrland
og Aden af hendi við Mehemet AIi.
1814 — Loðvík XVIII snýr aftur til
Parísar eftir ósigur Napóleons
Bonaparte.
1791 — Pólsku stjórnarskránni
breytt.
1660 — Olivia-friðurinn undir-
ritaður og ófriði Brandenborgara,
Pólverja, Austurríkismanna og
Svía lýkur.
1494 — Kristófer Kólumbus finn-
ur Jamaica.
Afmæli. Niccolo Machiavelli,
ítalskur stjórnmálaheimspekingur
(1469-1527) - William Broome,
enskur fræðimaður & skáld
(1689-1754) - Golda Meir,
ísraelskur stjórnmálaleiðtogi
(1898-1978) - William Inge,
bandarískur leikritahöfundur
(1913-1973).
Ándlát. 1763 George Psalmanazar,
ævintýramaður — 1845 Thomas
Hood, skáld.
Innlent. 1872 Auglýsing um póst-
afgreiðslustaði — 1695 Þrír menn
taka við sem leigutakar konungs-
Aðfaranótt 1. maí í Ósló:
Ungmenni gengu
berserksgang
Sænska alþýðusambandið hefur
krafist 11,3% launahækkana frá 1.
nóvember 1979. Svar atvinnurek-
enda var til að byrja með 0% og
seinasta tillaga sáttasemjara, sem
LO neitaði, en atvinnurekendur
samþykktu, var 30 aura hækkun á
tímann, eða sem svarar 1%. Eftir
að samningar strönduðu og sátta-
semjarar tóku við komu þó LO og
félag atvinnurekenda sér saman
um 15 aura hækkun á tímann á
hvern einstakling í svokölluðum
samtakasjóði. Þá upphæð má hvert
hagsmunafélag ráðstafa að eigin
geðþótta.
En lengra hafa samningaviðleit-
anir þessara aðila ekki náð. Ríkis-
stjórnin mun ekki taka í taumana,
sagði forsætisráðherrann Thor-
björn Falldin á föstudag. Sátta-
semjarar munu halda áfram sínu
starfi og reyna að komast að
samkomulagi. Ríkisstjórnin sat í
dag eftir hádegi á fundi og ræddi
ástandið. Það var í byrjun apríl að
ríkisstjórnin lagði fram tillögur,
sem fólu í sér að sættu launþegar
sig við „svo til engar kauphækkan-
ir“ myndi stjórnin koma á verð-
stöðvun, stöðvun á húsaleiguhækk-
un, lækkun á skatti fyrir vissa
hópa og afnámi söluskatts á
ákveðnum matvörutegundum.
Hvort ríkisstjórnin er reiðubúin að
breyta eða endurbæta þessar til-
lögur sínar mun koma í ljós næstu
daga.
Ósló, 2. maí. Frá Jan Erik Laurie
fréttaritara Mbl.
þAÐ ER að verða sorgleg og föst
venja að afaranótt 1. maí fari
þúsundir norskra ungmenna með
brauki og bramli um götur mið-
borgar Óslóar og valdi þar eigna-
tjóni fyrir milljónir króna. Að
þessu sinni með þeim afleiðingum
að yfir 100 ungmenni voru hand-
tekin, 40 flutt í sjúkrahús vegna
meiðsla, þar af voru 6 lögreglu-
þjónar og tiu verzlanir voru nán-
ast eyðilagðar.
Hvert ár hefjast ólætin á svipað-
an hátt. Þegar líður á kvöldið 30.
apríl fer ungt fólk að streyma inn
til miðborgarinnar og safnast sam-
an á hæðinni fyrir neðan höllina,
efst í Karl Jóhannsgötu. Æsingur
verður fljótlega meðal fólksins og
auk þess flykkjast forvitnir borgar-
ar á vettvang að vita hvort eitthvað
muni ske. Um það bil þrjú þúsund
manns voru samankomnir þarna
nú.
Lögreglan hafði gert ráð fyrir
því að til óláta myndi koma og
hafði kallað varalið til að reyna að
koma í veg fyrir að allt yrði
stjórnlaust. Síðan upphófust lætin
fyrir alvöru undir miðnættið, þegar
ungmennin hófu að kasta flöskum
og steinum að lögreglunni. Lög-
reglumenn sem voru með hjálma
og kylfur réðust til atlögu með
táragas og unda. Æstist þá ung-
mennaflokkurinn um allan helm-
ing og var tveimur eldsprengjum
varpað að lögreglumönnunum hvar
þeir þustu fram. Stóðu átökin nú í
tvo klukkutíma og þegar þeim lauk
að lokum var ástandið sem fyrr
sagði, að 100 voru handteknir og
færðir til yfirheyrslu og 40 voru
meira og minna slasaðir.
1 dag voru 24 ungmenni úrskurð-
uð í fangelsisvist í eina til tvær
vikur og fundin sek um ofbeldi
gagnvart lögreglu og spellvirki.
Portisch
nægir jafn-
tefli í loka-
skákinni
Mexíkóborg. 1. maí. AP.
ÞEIR Lajos Portisch, Ungverja-
landi, og Boris Spassky, Sovétríkj-
unum, sömdu um jafntefli í 13.
einvígisskák sinni, Portisch tefldi
með hvítu mönnunum og hann
bauð Spassky jafntefli eftir 15
leiki.
Spassky hugsaði sig um í 10
mínútur og þáði síðan jafnteflisboð
Portisch. 14. einvígisskák þeirra
verður tefld á föstudag og nægir
Portisch jafntefli til sigurs í ein-
víginu, þar sem hann sigraði
Spassky fyrr í einvíginu og þá á
svart.
1. maí í Moskvu:
15 ríki mættu ekki
til hátiðahaldanna
Moskvu, 1. mai. AP.
SENDIHERRAR 15 ríkja mættu
ekki til hátíðahalda 1. mai á
Rauða torginu í Moskvu til að
mótmæla innrás Sovétmanna i
Afganistan. Meðal Atlantshafs-
bandalagsrikja. sem mættu til
hátíðahaldanna var ísland. Þau
riki sem mótmæltu innrásinni í
Afganistan með fjarveru sinni
voru Bandaríkin, Bretland, Nor-
egur, Danmörk, Holland,
V-Þýzkaland, Kanada. írland,
Portúgal, ítalia, Belgía, Luxem-
bourg, Japan, Ástralia og Kína.
Hundruð þúsunda manna gengu
um Rauða torgið og báru rauð
flögg og borða þar sem á stóð m.a.:
„Moskva bíður gesta á Ólympíu-
leikana". „Svikabandalag Kína og
Bandaríkjanna", „Heimsveldis-
sinnar hætti afskiptum af Afgan-
istan".
Leonid Brezhnef, forseti Sovét-
ríkjanna, var viðstaddur hátíða-
höldin og virtist við betri heilsu en
stundum áður. Hermenn tóku ekki
þátt í göngum á 1. maí en þeir
röðuðu sér meðfram gönguleiðum.
Heitt var í veðri og voru leiðtogar
Sovétríkjanna léttklæddir.
TASS-fréttastofan tilkynnti
hverjir hefðu fengið friðarverð-
laun Lenins árið 1979. Þeir eru
Urho Kekkonen, forseti Finn-
lands, Le Duan, ritari víetnamska
kommúnistaflokksins, Herve Baz-
in frá Frakklandi og A1 Khamisi
frá Egyptalandi.
tekna. /1731 f. Ölafur Stephensen
stiftamtmaður — 1820 Innköllun
peningaseðla — 1913 „Allt í græn-
um sjó“ bannað — 1933 Birgir
Jacobsen dæmdur eigandi land-
svæðis á Jan Mayen — 1943
Yfirmaður Bandaríkjahers í Ev-
rópu, Andrews hershöfðingi, fórst í
flugslysi á íslandi — 1967 Þrír
fórust með Douglas Dakota í
Vestmannaeyjum — 1971 Forseta-
hjónin í heimsókn til Finnlands —
1973 Viðræður við lafði Tweeds-
muir í Reykjavík — 1955 d. Sigur-
jón Pétursson.
Orð dagsins. Gæfan er ekki hlið-
holl hinum hugdeigu — Sófókles,
grískur heimspekingur (um 495—
406 f.Kr.).
VerkföU
vofa yfir í
Færeyjum
Frá Jogvan Arge.
(réttaritara Mbl.
í Fœreyjum. 2. maí.
SAMNINGAR hafa ekki tekist
milli verkalýðsfélaganna og at-
vinnurekenda í Færeyjum.
Verkfall vofir nú yfir en verka-
lýðsfélögin hafa boðað til verk-
falls hinn 8. maí. Ingeborg
Winther, formaður Alþýðu-
sambandsins, sagði á fundi 1.
maí, að verkalýðsfélögin færu
fram á 4.50 d. króna grunn-
kaupshækkanir.
Þá eru prentarar með lausa
samninga en þeir hafa farið
fram á 17,5% launahækkanir
og auk þess lengingu sumarfría
um eina viku á ári.