Morgunblaðið - 03.05.1980, Side 31

Morgunblaðið - 03.05.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980 Alþingi íslendinga á miklar þakkir skilið fyrir stofnun starfs- launasjóðs rithöfunda, þá birti fyrir sjónum margra, sem barizt höfðu í bökkum fjárhagslega, en þó ekki gefið upp á bátinli að stunda ritstörf, nokkrir þeirra hafa gert þau að lífsstarfi og þar með búið við mikið efnahagslegt öryggisleysi og ýmiskonar mót- blástur. Flestir rithöfunda gegna föstu starfi með einsmánaðar or- lofi á ári, orlof er ætlað til hvíldar og endurnæringar, rithöfundar, sem nota það til bókmenntastarfa eru ekki of sælir, því að flestum munu reynast ritstörf lýjandi, svo að það getur engan veginn talizt hvíld frá öðrum störfum að vinna nótt með degi að sköpun bók- mennta en til þess freistast nokkr- ir vegna þess hve orlofið hrekkur skammt til að semja bók, eða ljúka við síðustu gerð hennar. Þegar ég skrifa bók á ég við bók, en ekki þau smáverk, sem farið er að kalla bækur, en voru fyrrum nefnd: kver, pésar og bæklingar. Uppsetning ljóða er slík nú að oft eru aðeins fáar hendingar á blaðsíðu. Þeir rithöfundar í fastri stöðu árið um kring, er virðast geta haft skársta aðstöðu til ritstarfa eru kennarar, því hafa allmargir rit- höfundar dregið sig að þessu starfi, ýmisir þessara manna eru nú látnir, en við fljótlega athugun á skýrslu yfir starfslaun Launa- sjóðs frá upphafi, sem er ekki tæmandi, eins og getið er um fyrir neðan skýrsluna, virðist mér, að það séu nær 30 manns, sem hafa lagt stund á kennslu. Aðrar starfsstéttir en kennarar hafa yfirleitt eins mánaðar orlof árlega, þó að þessi tími sé tekinn til ritstarfa segir sig sjálft, að lítið kemst i verk, jafnvel þó að sleitu- laust sé unnið. Vitnað hefur verið til næturvinnu rithöfunda, það er eins og hver önnur þjóðsaga, sem þróast hefur af litlu tilefni, að rithöfundur geti að loknum erfið- um og oft erilsömum vinnudegi varið nóttinni til að semja skáld- verk. Það liggur i augum uppi að rithöfundurinn er orðinn þreyttur að kveldi og hefur svefnþörf eins og aðrir menn. Skapandi starf útheimtir meiri andlega orku en flest önnur störf, skriftir og vélrit- Þórunn Elfa: un er talið til starfa, ef unnið er í skrifstofu, en allar umritanir rit- höfunda, áður en bók er fullbúin, heyrist ekki flokkuð undir vinnu, og hana þreytandi. Varðandi margumtalaða næturvinnu rithöf- unda er rétt að taka fram, að höfundar, sem ráða yfir vinnu- tíma sínum geta leyft sér þá dægurvillu að vinna á þöglum nóttum, en sofna frá ys og þys daganna, en þá eiga þeir konur, sem bægja frá þeim truflunum og amstri daglegs lífs. Vel kvæntur rithöfundur á konu sinni mikið að þakka. Það þarf ekki að fjölyrða um það, að veruleg starfslaun leysa höfund frá oki brauðstritsins með- an þau endast, ef til vill hefur hann ráð til að framlengja þennan tíma, svo framarlega, sem hann vill í sölurnar leggja það, sem honum er fært með tilliti til sinna nánustu, í því efni nýtur hann oft fórnfýsi konu sinnar. Nú vík ég að því, sem ég hef nefnt höfuðmein íslenzkra rithöf- unda. Það er hve fáir þeirra hafa fasta og trausta útgefendur. Jafn- vel þeir, sem komast í fremstu röð hafa komið við hjá mörgum útgef- endum á starfsferli sínum. Skilj- anlega er það rithöfundum mikil raun að ganga á milli útgefenda og falbjóða verk sín. Mér vitan- lega hefur enginn tekið það að sér að vera umboðsmaður fyrir rithöf- unda, það starf mundi varla borga sig, og nú á tímum, þegar hvert stundarbrot er virt til peninga, er ekki hægt að leita kunnáttu- og smekkmanna um bókmenntir til þess að biðja þá að lesa yfir handrit með tilliti til ábendinga og ef til vill meðmæla. Mér hefur lengi fundizt, að við hefðum brýna þörf fyrir höfunda- miðstöð, þar sem vel hæfur og vandaður bókmenntamaður væri i ráðinn til að yfirfara verk höf- j unda og vera þeim til ráðuneytis. Ungum höfundum er það brýn nauðsyn að eiga aðgang að slíkri miðstöð til þess að fá hlutlaust mat á verkum sínum. Séu verk þessara höfunda léleg og ekki finnist í þeim nokkur neisti er þeim hollast að fá vitneskju um þetta sem fyrst. Hvernig þeir bregðast við er þeirra mál. Útgef- endur gætu snúið sér til þessarar höfundamiðstöðvar og fengið að vita um verk, sem mælt er með til útgáfu. Slíkt fyrirkomulag mundi efla íslenzkar bókmenntir, verða til þess, að fullunnin verk kæmust fljótt á markað, bókmenntaleg sjónarmið væru virt, í stað þess, sem nú vill æði oft við brenna, að þau eru látin lönd og leið, en höfðað til lægstu hvata þeirra, sem bækur kaupa með tilliti til æsilegr lýsinga af rekkju-ósiðum, ofbeldi og þar fram eftir götunum. íslenzka ríki hefur stórhækkað söluskatt af bókum sem öðru, og fær hærri greiðslu fyrir hvert eintak en höfundurinn, tekur síðan skatt af hans hluta svo og hverju, sem hann innvinnur sér fyrir ritstörf sín, einnig því, sem hann fær í viðurkenningarskyni. Það væri því engin ofrausn, þó að ríkið setti á laggirnar fyrrgreinda miðstöð, ekki eins og þær upphæð- ir sem skipta skal milli fjölmargra rithöfunda til starfa og til viður- kenningar (listamannalaun) séu svo háar að ekki sé verjandi að eyða nokkru meira til þess að auka veg bókmennta, koma á gæðamati og leiða frá villu síns vegar þá, sem ekkert hafa við það að gera að Bjarni Bernharður: sýsla við skáldskap, yrði það aðeins til ama og vonbrigða. Greindur nærri getur en reyndur veit þó betur. Við, sem reynsluna höfum vitum um hvað við erum að tala. Stofnun starfslaunasjóðs skildi ég þannig, að ætlunin væri að styðja við bakið á þeim höfundum, sem sýnt hafa ótvíræða hæfileika, metnað og ósérhlífni til að vinna verk sín eins vel og þeim er framast auðið og þar með vera vel að komnir sinum starfslaunum. Margir höfundar berjast í bökk- um fjárhagslega og eiga erfitt með að kjúfa ýmiskonar kostnað, sem skáldverk og sannsöguleg verk (minningar o.fl.) geta haft í för með sér auk lágmarks fram- færslukostnaðar. Þessum höfund- um þarf að gera kleyft að standast þau útgjöld, sem þeir telja nauð- synleg vegna verka sinna, enda geri þeir grein fyrir þeim í um- sókn sinni um starfslaun. Aðrir höfundar eru, sem betur fer þannig settir fjárhagslega og þjóðfélagslega, að þeim eru allar götur greiðar, þó sýna sumir þeirra ósmekklega áfergju, þegar aflahvötin vísar þeim á einhverjar leiðir tilað auðgast og þeir eru einkar lagnir við að koma ár sinni fyrir borð. Það getur ekki hafa verið tilgangurinn með stofnun Launasjóðs rithöfunda að bera mest fé í þá, sem bezt eru settir, heldur hefur það verið ætlunin að bæta hag þeirra rithöfunda, sem vinna það til að búa við léleg kjör til þess að geta lagt stund á orðsins list, sem íslendingum á öllum tímum hefur verið svo mikilvægt. Rithöfundasambandið ræður yf- ir Bókasafnssjóði rithöfunda. Sá sjóður var stofnaður til þess að sýna lit á að endurgjalda þeim höfundum, sem áttu bækur í bókasöfnum og lestrarfélögum, í útlánum um allt land, en höfðu aldrei fengið neinar greiðslur fyrir. I þessum efnum vorum við íslendingar langt á eftir grann- þjóðum okkar, og erum raunar enn, þar sem við höfum ekki tekið upp stimpilgjald, sem leiddi í ljós hvaða höfundar leggðu þjóðinni til mest af ókeypis lestrarefni, en þeir áttu að ganga fyrir, þegar farið væri að veita úr sjóðnum upphæðir, sem munaði um. Af þeim rithöfundum, sem fyrst var veitt úr sjóðnum var höfundur með eina bók nýlega útkomna. Ekki þarf að fjölyrða um, hve mörgum fannst þetta óréttmætt, þarna voru beinlínis tekin laun frá einhverjum þeirra höfunda, sem höfðu á löngum tíma til þeirra unnið. Margt þessu líkt hefur átt sér stað, ekki að kynja, þó að smáar að vöxtum hvað blaðsíðu- fjölda varðar, en samt alls ekki hristar framúr erminni. Hvað er með ljóðformið sem stingur í augu? Er hvaða skáldsagnarugl illskárra? Doðrantar þeir sem fjalla um smáborgaralega viður- styggð sem höfundarnir vilja fría sig af að tilheyra? Eða hetjubæk- urnar um súkkulaðidrenginn sem útsvínar foreldrahúsin af því pabbanum líður illa vegna ríki- dæmis og drekkur og hefur ást- konu? Eða segir frá stofukomm- anum sem aldeilis berskjaldaður 31 óánægja hafi komið upp í Rithöf-1 undasambandinu. Um ávarp það, sem 46 rithöf- undar skrifuðu undir vil ég taka það fram, að ég kunni ekki við orðalag þess, og hafði strax orð á því við þá, sem söfnuðu undir- skriftum, hins vegar varð eitthvað að gera til þess að fá hreinar línur varðandi reglugerð Launasjóðs og hvernig henni hefur verið fram- fylgt. Jafnframt ber nauðsyn til, að gá í leiðinni að ýmsu öðru, svo sem úthlutun úr Bókasafnssjóði rithöfunda. Mér er tjáð, að hún hafi fyrir nokkru farið fram, og hafi verið um allverulegar fúlgur að ræða, en þegar þetta er skrifað hefur ekki verið tilkynnt í blöðum um þessa úthlutun, en venja er að slíkt komi fram strax eftir úthlut- un. Er þetta feimnismál —>. eða hvað? Hvað með úthlutun listamanna- launa? Ég ætla að hætta að taka dæmi, þó að það varði mig. Fyrr á árum hafði ég árleg listamanna- laun á annan áratug, síðar annað eða þriðja hvert ár. A því ári, sem ég átti fjörtíu ára rithöfundaraf- mæli var mér síðast veitt, á þessu vori eru sjö ár síðan. Ég þarf varla að taka það fram, að ég hef unnið að ritstörfum öll þessi ár, bækur hafa komið út eftir mig og ég hef frumflutt mikið af efni í Hljóð- varpi, og unnið að stærri og smærri verkum, sem enn eru óbirt. Annað dæmi: Oddnýju Guð- mundsdóttur, rithöfundi, hafa aldrei verið veitt listamannalaun, né nokkur önnur viðurkenning, margar bækur hafa komið út eftir hana, allar blaðagreinar hennar vekja mikla athygli. Berum þetta saman við höfund einnar bókar, sem hoppar inn í raðir rithöfunda, sem var úthlutað eftir verðskuld- an og þá voru komnir talsvert til ára sinna. Væri ekki tímabært að birta reglugerðir þeirra sjóða, er hér að framan hefur nokkuð verið fjallað um? Kannski fengi þá núverandi starfslaunanefnd uppreisn? Er ekki rétt að endurskoða reglugerð- ir þessara sjóða, svo að nefndir þær sem úthluta úr þeim fari ekki eftir einhverju villuljósi? Of langt er að bíða álits þeirrar nefndar, sem kosin var á síðasta fundi Rithöfundasambandsins, aðallega til að kanna vinubrögð núverandi starfslaunanefndar, en á ekki að leggja fram niðurstöður sínar fyrr en á næsta ári, þegar þessi nefnd hefur að fullu lokið sínu þriggja ára hlutverki. Ég endurtek, að fleiru þarf að hyggja, og það sem fyrst. 29.-30. apríl 1980. en grimmur af réttlætistilfinn- ingu ræðst gegn kapitalísku óargadýri og hefur sigur? Heldur eru bækur mínar ekki telgdir kínverksir páfuglar sem svífa yfir vötnum. Nei, málið er einfalt: Ég er rithöfundur og verð það um næstu framtíð hvað sem öðru líður. Og ég reyni í bókum mínum að hafa mannlegt viðhorf að leiðarljósi. Ég sótti um starfslaun til launa- sjóðsins á sínum tíma. Því var synjað. „Það gekk ekki í þá“. Sjálfsagt á þeirri forsendu að ég væri fremur ólíklegur til stór- afreka. En það eru aðrir og aðrir tímar. Þetta mannréttindastríð í menningarheiminum kallar Þor- geir Þorgeirsson: Upphlaup fag- legra og móralskra vanmetageml- inga. Þvílíkt morðkjaftæði frá eins merkum manni. Vér bíðum þess í ofvæni að hið háa alþingi kveði svohljóðandi dóm yfir oss: Ógilt kjaftæði. A meðan kynda stofukommarn- ir kofann sinn. Og skrifi. Því þeir skilja peninga miklu betur ... Bjarni Bernharður, félagi i Rithöfunda- sambandi íslands Ráðstefna um endurhæfing- ar- og atvinnumál blindra BLINDRAFÉLAGIÐ, samtök blindra og sjónskertra á íslandi, efndi til ráðstefnu laugardaginn 29. mars sl. þar sem fjallað var um endurhæfingar- og atvinnu- mál blindra, auk þess sem skipu- lagning umhverfis var tekin til umrseðu. Flutt voru nokkur framsöguerindi og starfshópar fjölluðu um hin ýmsu mál. Verð- ur nú getið hins helsta, sem fram kom á ráðstefnunni: 1. Það kom fram, að aðstaða er ekki fyrir hendi hér á landi til endurhæfingar þeirra, sem missa sjón á fullorðins árum og erlend endurhæfing nýtist ekki sem skyldi vegna þess, að nauðsynlega framhaldsþjálfun skortir. Talið var, að fjárhagslega væri hag- kvæmt að flytja endurhæfingu blindra og sjónskertra inn í landið auk þess sem endurhæfing bætti alla aðstöðu þeirra í þjóðfélaginu. 2. I umræðum um atvinnumál blindra og sjónskertra var það álit manna, að ríki og sveitarfélög hefðu algerlega brugðist þeirri skyldu sinni að hafa frumkvæði um atvinnu til handa öryrkjum þrátt fyrir lagaákvæði um þetta efni. Þá var talið, að reglugerð um öryrkjavinnu væri ekki nægilega sveigjanleg og átöldu menn, að örorkubætur falli niður á því þriggja ára tímabili, sem Trygg- ingastofnun ríkisins greiðir hluta af launum öryrkja, sem ráðnir eru til starfa á almennum vinnumark- aði fjfrir hennar tilstilli. 3. í sambandi við skipulagningu umhverfis var það álit manna, að sjaldnast væri tekið tillit til blindra og sjónskertra. Þar má t.d. nefna lélegt viðhald gangstétta, ógreinilegar merkingar strætis- vagna, trjágreinar, sem slúta fram yfir gangstéttar og óheppilegt val lita á ljósastaurum, skiltum o.s.frv. Þá var harðlega gagnrýnt, að ökumenn leggi bifreiðum sínum upp á gangstéttir og valdi þannig vegfarendum miklum óþægindum og jafnvel stórhættu. Dorgað í flóann Víst, víst er svo, að úthlutunin úr launasjóði rithöfunda er póli- tískt misferli. Og það misferli er með svipuðum hætti og kynþátta- fordómar og ofsóknir á hendur minnihlutahópum víðs vegar úti í hinum stóra heimi. Það hefur verið dregin þráðlaus markalína þar sem verðlaunabesefar með ræði forsendur eru örðum megin en hinum megin við niggarar með ljótt í kollinum, þeim er sparkað oní kjallara við lítinn orðstí. En innan rammans opinberast svo hið pólitíska flokkssjónarmið þegar dulunni er svipt frá, illu heilli. Valdníðsla er friðhelg á íslandi. Fyrirsvarsmaður launasjóðsins, Sveinn Skorri Höskuldsson, hefur útlagt starfsgrundvöll nefndar- innar á undurfurðulegan hátt: Við gerum okkur grein fyrir því hvort ekki megi ætla af umsókninni og fyrri verkum höfundar að hann muni semja gott og nýtilegt verk (Morgunbl. 29/4). Og í öðru dagbl. sama daginn: Við reynum að meta það eftir fyrri verkum höfundar hvort hann sé likelgur til að semja gott verk. Þetta eru gróf sjónarmið. A síðasta ári sendi undirritaður frá sér tvær bækur. Reyndar Höfuðmein íslenzkra rithöfunda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.