Morgunblaðið - 03.05.1980, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ1980
43
r
r
• Þessa skemmtilegu mynd tók Ragnar Axelsson ljósmyndari Mbl. er
flautað var til leiksloka i leik Hauka og KR í bikarkeppni HSÍ.
Gífurlegur fjögnuður braust út hjá leikmönnum Hauka eins og sjá má.
Capes hættur í löggunni
Sambandið
styrkir KKÍ
BRESKI kúluvarparinn Geoff
Capes, sagði upp starfi sínu sem
lögregluþjónn. Talið er að hann
hafi gert það vegna deilunnar um
hvort senda skuli breska íþrótta-
menn á Ólympíuleikana i
Moskvu, en breska ríkisstjórnin
hefur látið frá sér fara þá
tilkynningu að enginn íþrótta-
maður sem er opinber starfs-
maður skuli fá fri til þess að æfa
fyrir keppnina. Capes, sem verið
hefur í lögregluliði Cambridge-
shire í 11 ár, neitaði hins vegar
að uppsögn sin væri i tengslum
Tony Knapp. landsliðsþjálfar-
inn fyrrverandi í knattspyrnu
dró ekkert úr umsvifum sínum á
siðum dagblaða þegar hann flutt-
ist til Noregs sem þjálfari
Vikings í Stavangri. Blaðamenn
voru fljótir að sjá sem var, að
Knapp er maður frískur og talar
í fyrirsögnum ef svo mætti að
orði komast. Þessi mynd sem hér
birtist var í Norska Dagblaðinu
og voru þar ýmsar yfirlýsingar
og alhæfingar frá Knapp.
„Ég get stjórnað mínu liði
þannig að við kljúfum vörn and-
stæðinganna, en leikmenn mínir
eru lélegir uppi við markið, okkur
vantar illilega markaskorara. Ef
ég hefði mann eins og Pál Jakob-
sen í herbúðum Víkings, gæti ég í
rólegheitum lýst því yfir að við
við slikt, sagði hana stafa fremur
af því að sér hefði borist álitlegt
atvinnutilboð frá sportvöru-
framleiðanda.
Englendingar litu á Capes sem
eina af helstu vonum sinum í
sambandi við Ólympiuleikana,
kúluvarparlnn þritugi hefur
tvívegis orðið Evrópumeistari og
einnig samveldismeistari. Hann
hefur hlotið fleiri stig á alþjóða-
mótum en nokkur annar Breti og
varð i sjötta sæti á ólympiuleik-
unum 1976.
myndum vinna aftur alla titla sem
möguleiki er á hér í Noregi. Það er
í rauninni mesta furða að við
skyldum vinna tvöfalt í fyrra, við
skoruðum ekki nema 31 mark í 22
leikjum og er það ekki glæsilegt
hjá toppliði. Þrjú næstu liðin í
deildinni skoruðu meira og meira
að segja liðið í 8. sæti skoraði
meira heldur en við“ sagði Knapp
í viðtali við ND.
Knapp verður áfram með lið
Víkings í sumar eins og fram
hefur komið og ætlar karlinn að
tefla djarft eins og vænta mátti úr
þeirri áttinni. T.d. ætlar hann að
tefla fram stórum hóp kornungra
leikmanna, manna sem lögðu lítið
sem ekkert til málanna er Víking-
ur varð meistari á síðasta ári. Á
meðfylgjandi mynd eru þessir
umræddu strákar ...
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem
SÍS boðaði til i gær, var greint
frá þvi að Samband íslenzkra
samvinnufélaga hefur veitt
Körfuknattleikssambandi
íslands veglegan fjárstyrk að
upphæð 5,5 milljónir króna. Mun
þetta vera í fyrsta sinn sem eitt
sérsamband nýtur svo mikils
stuðnings frá einu fyrirtæki.
Sambandið er með þessu að
marka nýja stefnu með styrkveit-
ingum til iþróttastarfseminnar í
landinu.
Um nokkurt skeið hafa forystu-
menn samvinnuhreyfingarinnar
velt því fyrir sér hvort ein öflug
styrkveiting í stað dreifðra
smærri fjárveitinga myndi ekki
nýtast betur' og verða íþrótta-
hreyfingunni til heilla. Við frekari
athugun virtist þetta nýmæli geta
horft til bóta.
Því var ákveðið fyrir alllöngu
síðan að reyna þessa nýbreytni
fyrir árið 1980 og varð Körfu-
knattleikssamband íslands fyrir
valinu. Ástæða þess var sú að
landsliðsnefnd Körfuknattleiks-
sambandsins hafði þá nýverið
farið fram á fjárstuðning til
starfsemi þessarar íþróttagreinar
og þar sem það hafði sjaldan áður
hlotið styrk var það talið vel að
þessari fyrstu útnefningu komið.
Það ætlar að ganga treglega
hjá Liverpool að takast að vinna
tvöfalt í Englandi, þ.e.a.s. bæði
deild og bikar. Allt bendir nú til
þess, að liðið verði deildarmeist-
ari þó ekki sé það alveg i höfn
enn, en bikarinn gekk liðinu úr
greipum í fyrrakvöld er Arsenal
og Liverpool léku f jórða leik sinn
í undanúrslitunum. Loks tókst að
knýja fram úrslit og var það
Arsenal sem hafði heppnina með
sér og kom það i raun og veru
ekki á óvart. Arsenal sigraði með
eina marki leiksins.
Sigurmarkið skoraði Brian Tal-
bot á 11. mínútu leiksins, að sögn
BBC, eftir að Ray Kennedy hafði
runnið kylliflatur með knöttinn á
eigin vítateigslínu. Frank Staple-
ton var þar á vakki, tók knöttinn,
sendi hann fyrir markið á kollinn
á Brian Talbot sem skallaði af
öryggi í netið. Þetta var 24.
Ef þessi nýja aðferð sannar
ágæti sitt er áformað að endur-
nýja styrkveitinguna að ári til
annarrar íþróttagreinar, eða
þeirrar sömu, eftir atvikum, en
styrkveitingin í ár nemur 5,5
milljónum króna.
Við þessa styrkveitingu áskilur
Sambandið sér heimild til að
virkja starfsemi íþróttagreinar-
innar til upplýsinga um sam-
vinnuhreyfinguna í landinu, t.d."
með því að merkja búninga lands-
liðsins með samvinnumerkinu og
öðru því sem gagnkvæmt sam-
komulag næst um við forráða-
menn Körfuknattleikssambands-
ins.
Sambandið væntir þess að þessi
fjárhagur örvi áhuga æsku lands-
ins á heilbrigðum íþróttum og
verði öllum viðkomandi til vel-
farnaðar.
Sambandið hefur tilnefnt tvo
aðila til þess að fylgjast með
starfsemi KKÍ á komandi starfs-
ári, til þess að fylgjast með og sjá
hvort þesi nýja leið reynist sem
skyldi. Lagt verður á það hlutlægt
mat, og í framhaldi af því verður
tekin ákvörðun hvort um áfram-
haldandi styrkveitingar verður að
ræða til sérsambanda innan ÍSÍ.
- þr.
bikarleikur Talbots í röð án taps,
en hann á nú góðan möguleika á
því að verða bikarmeistari þriðja
árið í röð, en hann var í sigurliði
Arsenal gegn Man. Utd. í fyrra og
sigurliði Ipswich gegn Ársenal
árið áður. Ársenal stillir því upp í
úrslitum þriðja árið í röð og fær
nú léttari mótherja en nokkru
sinni fyrr, ef hægt er að nota orðið
„léttur" í þessu tilviki.
Annars var leikur liðanna í
fyrrakvöld lengst af einstefna að
marki Arsenal, en leikaðferð Ars-
enal býður mög upp á það. Liver-
pool var óheppið að skora ekki
nokkrum sinnum í leiknum,
tvívegis björguðu leikmenn Arsen-
al af línu, tvívegis brenndi Ray
Kennedy af fyrir opnu marki og
nokkrum sinnum varði snillingur-
inn Pat Jennings af snilld. En allt
kom fyrir ekki og það voru
leikmenn Arsenal sem fögnuðu í
leikslok.
Armann
mætir
Fylki
EINN leikur verður á
dagskrá á Reykjavíkurmót-
inu i knattspyrnu um helg-
ina, er það viöureign Ár-
manns og Fylkis. Fer ieikur-
inn fram á Melavellinum í
dag og hefst hann klukkan
14.00.
Kylfingar
keppa um
Nesbjöíluna
FYRSTA meiriháttar innan-
félagsmótið hjá Nes-
klúbbnum fer fram í dag er
kylfingar berjast um Nes-
bjölluna. Keppnin hefst
klukkan 13 og ef að likum
lætur verður vel mætt, en
vöilurinn virðist hafa komið
vel undan vetri. Framundan
eru nokkrar framkvæmdir á
veliinum og verður byrjað á
þeim fljótlega.
Ágúst
sigraði
ÁGÚST Guðmundsson sigr-
aði á einnar kylfu keppni
Golfklúbbs Reykjavíkur sem
fram fór á Grafarholtsvellin-
um í fyrradag. Var þar á
ferðinni fyrsta meiri háttar
mót vorsins. Ágúst sló 45
hðgg nettó, einu minna en
Jón Sigurðsson sem varð i
öðru sæti. Þeir Hafsteinn
Júliusson og Sigvaidi Ingi-
mundarson slógu báðir 47
högg en Hafsteinn hreppti
þriðja sætið.
Keppendur voru 61 talsins
og má tii gamans geta þess,
að i fyrra kepptu á móti
þessu 36 manns. Má af tölum
þessum sjá hve vinsældir
goifsins hafa aukist, en nýir
félagar bætast í GR í viku
hverri.
Prohaska til
Inter Mílanó
FREGNIR herma, að austur-
riski knattspyrnusniiiingur-
inn Herbert Prohaska hafi
brotið ísinn sem fyrsti er-
lendi ieikmaðurinn sem und-
irritar samning við italskt
knattspyrnuiið, en að und-
anförnu hafa ítalir að mestu
leyti sæst á að opna deildir
sínar eriendum leik-
mönnum. Talið er að leyfið
verði gefið um miðjan mai.
Sagt er að Prohaska hafi
þegar undirritað samning
við meistaraliðið Inter Mil-
anó, samning til þriggja
ára. Mörg ítöisk lið hafa í
laumi verið að ræða við
þekkta knattspyrnumenn og
má þar nefna hollensku
tviburana Van Der Kerkhof.
Að sðgn mun félag Pro-
haska, Austria Vín fá rúma
milljón Bandarikjadala frá
Inter.
FIMLEIKADEILD Ár-
manns heldur fimieikanám-
skeið fyrir drengi og stúikur
i Feliaskóla dagana 5 — 17.
mai. Kennarar verða Maria
Janson írá Sviþjóð og Þórir
Kjartansson.
• Liverpool og Arsenal hafa marga hildi háð að undanförnu og
Arsenal haft betur ef nokkuð er. Á myndinni fagna leikmenn Arsenal
Dave Price (nr. 4) er hann hefur sent knöttinn í netið hjá Liverpool,
sigurmarkið i þeim leik.
Knapp ætlar að
tefla djarft!
Arsenal á Wembley
þriðja árið í röð
— lagöi Liverpool að velli í fjórðu tilraun