Morgunblaðið - 20.05.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 1980
45
götum. Hafði hann lagt þetta svo
vel á minnið, að þá, sextán árum
seinna, rissaði hann þarna upp
fyrir mig Reykjavíkurhöfn ásamt
Örfirisey, Engey og Viðey. Var
þetta það rétt gert, að hann
sannfærði mig algjörlega um
sannleiksgildi frásagnar sinnar.
Samkvæmt frásögn hans var
ákveðið að framkvæma árásina
einhverja nóttina í síðustu tveim-
ur vikunum í ágúst, eða í fyrstu
viku septembermánaðar 1941. En
þá í byrjun ágúst var hætt við
árásina, þar sem ófyrirsjáanlegt
atvik hafði skeð. En það var það,
að bandarískur her kom til ís-
lands 7. júlí það ár, og ef árásin
hefði verið framkvæmd, mundi
það hafa kostað styrjöld við
Bandaríkin, samkvæmt því, sem
hann sagði. í staðinn fyrir að fara
drepandi og eyðandi um Reykja-
vík, var þessi herdeild send til
austurvígstöðvanna, þar sem hún
var, þangað til Þjóðverjar lögðu
niður vopn í maí 1945.
Það væri mikill fengur fyrir
íslenska sagnfræði að fá upplýs-
ingar um þennan árásarundirbún-
ing Þjóðverja, einkanlega þar sem
framvindan staðfestir, að sú
ákvörðun ríkisstjórnarinnar og al-
þingis í júlí 1941 að gera her-
verndarsamning við Bandaríkin
var heillarík ákvörðun og forðaði
okkur frá því, að Reykjavík yrði
orrustuvöllur með þeim skelfilegu
afleiðingum, sem af hefði hlotist
fyrir okkur íbúana.
Ásmundur J. Jóhannsson.
• „Tveir ágætir
útvarpsþættir“
Stundum kemur fyrir að
Ríkisútvarpið er skammað fyrir
lélega dagskrá og oftast er lítið
gert úr sígildri tónlist, sem flutt
er, og hún talin lítt hlustunarverð.
Ég held þó, að þetta sé nokkur
misskilningur. Hún á vissulega
erindi til landsmanna, eins og
margt annað. Undanfarið hafa t.d.
verið ágætir þættir með slíkri
tónlist, sem vert er að veita
athygli.
Annars var ekki ætlunin að rita
sérstaklega um tónlistarflutning
útvarpsins, heldur langar mig að
minnast á tvo dagskrárliði, nýlega
afstaðna, sem vöktu athygli mína.
Hinn fyrri eru viðtöl Björns Th.
Björnssonar við menn sem kynnst
höfðu Einari Benediktssyni,
vafstri hans og umsvifum. Sumt
af því sem fram kom var áður lítt
kunnugt. Er að þessum upptökum
hinn mesti fengur, því þegar
rannsaka skal ritstörf Einars, ber
að leggja til grundvallar bak-
grunninn sem starf mannsins
hvílir á, uppruna hans og feril.
Síðari liðurinn er sagan um sr.
Odd V. Gíslason eftir sr. Gunnar
Benediktsson. Enn er sr. Gunnar
kvikur og ern í anda þó aldraður
sé. Og í sögunni var ekki að greina
neina afturför frá fyrri dögum
Gunnars. Það var vissulega tíma-
bært að saman væri tekið yfirlit
yfir ævi og störf sr. Odds. Segja
má, að eldmóður hans hafi neistað
af hverri línu, svo vel komst efnið
til skila úr penna sr. Gunnars.
Táknræn er barátta sr. Odds og
hversu andsnúin sum öfl verða
framfaramönnum. Er það bæði
gömul saga og ný. Viðureign hans
við sveitunga í Grindavík færir
okkur heim sannindin um hvað
þeir voru eiginlega lítt hugsandi,
langt á eftir og uppteknir af eigin
ágæti í allri fáfræðinni, er þeir
lögðust gegn sjálfsögðum félags-
og menningarmálum. Einnig er
varpað öðru ljósi á afstöðu kirkj-
unnar manna í Vesturheimi hvers
til annars en oft er látið í veðri
vaka. Stingur það nokkuð í stúf
við fögur orð, en á bakvið lá
áróðurinn um að hvetja fólk til
vesturfarar.
Baldvin Halldórsson flutti þætt-
ina um sr. Odd ágætavel.
Að lokum vil ég þakka þeim er
stóðu að þessum ágætu liðum, og
um leið drepa á, að mér finnst
Ríkisútvarpið rækja mun betur
menningarskyldur sínar en sjón-
varpið, þó þar komi stundum fyrir
efni, sem fengur er að.
Skúli Magnússon.
• Slysagildra
Laufey Sigurðardóttir hringdi
og vildi benda á það hversu
vegmerkingar á Hellisheiði eru
slæmar. Kvaðst hún hafa keyrt
yfir heiðina í þoku um sl. helgi og
orðið vitni að því að litlu munaði
að einn bíll fullur af fólki keyrði
útaf. Sagði hún að sjálflýsandi
stangirnar lægju brotnar utan við
veginn og málningin við vegkant-
inn væri farin að gefa sig.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á skákmóti í Kiev í Sovétríkj-
unum í ár kom þessi staða upp í
viðuregin meistranna Foigelj, sem
hafði hvitt og átti leik, og Novi-
kovs
28. Bxg6! - Dxc4, 29. Hf8+ -
Kg7, 30. Hlf7+! - Kxg6, 31. Re7+
og svartur gafst upp, því hann er
mát í næsta leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
„EifaOM 'Iig> ^Kki AÍ> r/\Q/\ to vpg>A &LUN6?
. þ*0 VECfetH? e/N5 Oó AO AkJcrrA "FIéa 'i fcrru. . ’’
Ljósm. Arnór.
Örn Arnþórsson og Guðlaugur R. Jóhannsson taka við fyrstu
verðlaunum i íslandsmótinu i bridge. Einn af stjórnarmönnum i
B.S.Í., Rikharður Steinbergsson afhendir verðiaunin.
• •
Guðlaugur og Orn
urðu Islandsmeist-
arar í tvímenningi
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson urðu íslands-
meistarar í bridge. tvimenn-
ingi, en mótinu lauk sl. sunnu-
dag. Hlutu þeir félagar 178 stig
yfir meðalskor. í siðustu um-
ferð spiluðu þeir gegn Sverri
Ármannssyni og Guðmundi P.
Arnarssyni, sem þá voru í öðru
sæti með 166 stig en Guðlaugur
og Örn með 183 stig. Guðmund-
ur og Sverrir unnu síðustu
umferðina en ekki nógu stórt
þannig að Örn og Guðlaugur
stóðu uppi sem sigurvegarar.
Mótið hófst sl. fimmtudag með
þátttöku 64 para víðs vegar að af
landinu. Var spilað í fjórum
riðlum með Mitchel-fyrirkomu-
lagi og komust 24 pör í aðalúr-
slitin. Undankeppnina unnu Óli
einnig athygli góð frammistaða
eins af þremur kvennapörum í
mótinu. Esther Jakobsdóttir og
Ragna Ólafsdóttir urðu í 7. sæti.
Óli Már Guðmundsson og Þórar-
inn Sigþórsson áttu sér aldrei
viðreisnar von í úrslitunum.
Gekk þeim illa eftir mjög góða
spilamennsku i undankeppninni.
Lokastaða efstu para:
Guðlaugur R. Jóhannsson
— Örn Arnþórsson 178
Guðmundur Páll Arnarsson
— Sverrir Ármannsson '170
Ásmundur Pálsson
— Þórir Sigurðsson 141
Guðmundur Pétursson
— Karl Sigurhjartarson 106
Guðjón Guðmundsson
— Viktor Björnsson 103
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og stjórnaði hann mótinu
af sinni alkunnu röggsemi.
Bridge
Umsjón: ARNÖR
RAGNARSSON
Már Guðmundsson og Þórarinn
Sigþórsson örugglega, hlutu 2750
stig sem er nálægt 500 stigum
yfir meðalskqr. Fengu þeir félag-
ar 1034 í skor í síðustu umferð-
inni en meðalskor var um 750.
Úrslitakeppnin hófst á laugar-
dag. Voru 5 pör af 24 utan af
landi, þ.e. ekki af Reykjanes-
svæðinu. Guðlaugur og Orn tóku
snemma forystu í mótinu og
héldu henni fyrstu 11 umferðirn-
ar. Eftir 10 umferðir voru þeir
með 125 stig. Ásmundur Pálsson
og Þórir Sigurðsson höfðu 113
stig og Sverrir og Guðmundur
Páll 83 stig.
Eftir 20 umferðir voru Guð-
mundur Páll og Sverrir Ár-
mannsson búnir að ná foryst-
unni með 154 stig. Guðlaugur og
Örn voru með 144 stig og Ás-
mundur og Þórir voru með 134
stig.
Þessi pör skiptust á um að
hafa forystu þar til í allra
síðustu umferðunum að Guð-
laugur og Örn tóku góðan loka-
sprett sem nægði þeim til sigurs
enda þótt þeir fengju undir
meðalskor í síðustu umferðinni.
Pörin utan af landi stóðu sig
vel í úrslitakeppninni. Þá vakti
Landsliðskeppnin
Þriðja lota í landsliðskeppn-
inni verður spiluð í Hreyfilshús-
inu í kvöld og hefst keppnin kl.
18. Síðasta lotan verður svo í
Domus Medica á miðvikudag og
hefst einnig kl. 18.
I hálfleik gefst spilurum og
áhorfendum kostur á að sitja
aðalfund Bridgefélags Reykja-
víkur sem áætlað er að hefjist kl.
20. Verður síðan lokið við lands-
liðskeppnina.
Bridgefélag Selfoss
Bridgefélag Selfoss hefur nú
lokið vetrarstarfi sínu. Síðasta
keppnin var meistaramót í
sveitakeppni. Úrslit urðu þau, að
efst varð sveit Haraldar Gests-
sonar. Auk hans eru í sveitinni:
Halldór Magnússon, Vilhjálmur
Þ. Pálsson, Sigfús Þórðarson og
Tage R.Olesen.
Sveit nr.
2 Gunnars Þórðarsonar
3 Sigurðar Sighvatssonar
4 Bjarna Jónssonar
5 Steingerðar Steinþórsdóttur
6 Leifs Österby
7 Helga Garðarssonar