Morgunblaðið - 20.05.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.05.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 1980 13 Guðsteinn Þengilsson læknir: Að vega úr f jarlægð Það hefur verið talið með því óhugnanlegasta við allan þann viðbjóð, sem nútíma styrjaldir hafa í för með sér, að hershöfðingi eða ofursti þarf ekki annað en rita nafn sitt undir skjal eða hringja eina símahringingu, og þá er ótiltekinn fjöldi manna sendur út í opinn dauðann og enn fleiri verða örkumlamenn ævilangt. Herfor- inginn sjálfur kemur ekki nær vettvangi atburðanna en það, að hann er óhultur og öruggur langt að baki víglínunnar. Hann sér ekki liðsmenn sína engjast í dauðateygjunum, hann sér ekki limi þeirra tætast í sundur og honum ber ekki fyrir s jónir blóðug og afskræmd líkin, sem liggja eftir í valnum. Ekki heldur þekkir hann örvæntingu og sál- arkvalir aðstandenda, sem hafa misst föður eða son, bróður eða unnusta. Þó hafa allar þessar skelfingar verið réttlættar með því, að herforinginn hafi verið að þjóna föðurlandinu. Verði tjónið og skelfingin meiri í liði óvinanna en hans eigin her, er vísast að honum séu veitt hin æðstu heið- ursmerki, hann verði stolt og eftirlæti þjóðar sinnar, og að líkindum öðlast hann heimsfrægð. En því miður eru það fleiri en hershöfðingjar á styrjaldartím- um, sem eru of langt að baki víglínunar, fleiri sem valda tjóni og viðurstyggð af því að þeir eru of fjarri atburðunum sjálfum til að gera sér ljósa grein fyrir afleiðingunum af gerðum sínum. Hryllilegustu atburðir gerast iðu- lega langt úti í heimi og við fáum af þeim einhvern ávæning með fréttum, en þeir fá ekkert á okkur, af því að þeir eru svo langt í burtu, við veitum þeim varla hugsun. Og þegar við skynjum ekki samband- ið milli athafna okkar annars vegar og afleiðinga þeirra hins vegar, vegna þess að orsakasam- bandið er of óljóst eða óbeint þá er kannske ekki að furða þótt okkur verði á að vinna óhæfuverk, fremja morð úr fjarlægð. Meðal þess sem flokkast gæti undir slík slys eru gerðir ráða- manna ríkis eða stjórnunarmanna bæjarfélaga. Alls konar tilmæli berast, og þau eru ýmist samþykkt eða þeim hafnað. Þessi mál líta mörg sakleysislega út á yfirborð- inu, en þegar nánar er að gáð skiptir það kannski sköpum um örlög fjölda manns hvort þau hljóta framgang eða ekki. Að rétta upp hönd getur ráðið úrslitum um líf, heilsu og lífshamingju ótal- inna einstaklinga um alla framtíð. Hið alþjóðlega áfengisauðvald heldur stöðugt áfram að smeygja örmum sínum alls staðar inn, líkast risavöxnum krabba. Um- boðsmenn þess hér á íslandi knýja sem víðast á að opna útsölustaði og lengja sem mest sölutíma. Með óhóflegt fjármagn að vopni hefur víngróðavaldið hafið sókn gegn lífi og heilsu þjóðarinnar, og það með góðfúslegu leyfi forráðamanna ríkis og Sæja. Og við hér í Kópavogi höfum ekki fremur en aðrir farið var- hluta af áróðri og þrýstingi víngróðaumboðanna og áfengis- auðvaldsins. Tvívegis á skömmum tíma hefur bæjarstjórninni tekist að bægja frá stórárásum, hinni fyrri þegar leitast var eftir opnun útibús ATVR hér í miðbænum rétt hjá gamla fólkinu og öryrkjunum, hinni siðari þegar farið var fram á að selja hér áfengi í nokkurs konar knæpustíl, þar í grennd sem iðnaðarfólk starfar mest. En stundum koma úlfarnir í sauða- klæðum, og nú tókst einum þeirra að gleypa meiri hluta bæjar- stjórnar Kópavogs. Ekki var farið fram á meira, en að veita létt vín með mat, og á það að vera til að setja kórónuna á glæsileika eins steikarhúss, sem hér er í uppsigl- ingu. Þótti það víst óhæfa að Kópavogsbúar sætu svo aftarlega á meri, að þeir gætu ekki boðið gestum sínum vín með matnum, ef þeir færu með þá út. Þetta var meira en meiri hluti bæjarstjórn- ar þoldi, og mælti hann því með leyfisveitingu fyrir léttum vínum. Gott ef þetta var ekki síðasta verk bæjarstjórnar á barnaárinu. Þess er skylt að geta að ekki greiddu allir bæjarfulltrúar vínveitingum atkvæði sitt, og sé þeim heiður og þökk fyrir skilning sinn, sem þar stóðu á móti. Guðsteinn Þengilsson Flestir þeirra bæjarstjóriw- manna, sem meðmæltir voru leyf- isveitingu, höfðu fengið ítarlega fræðslu um nauðsyn þess að tak- marka dreifingu og sölu áfengra drýkkja. Þeir hafa því tæplega þekkingarskort sér til afsökunar. Hitt mun sönnu nær, að hugur þeirra allur stóð til þjónkunar við peningavald og áfengisauðmagn. Þjónkun undir þessa aðila reyna menn oft að réttlæta með því að segja, að allir eiga að hafa frjáls- an aðgang að lífsins gæðum, og sumir taka sér meira að segja í munn hið útþvælda orðtak: „Eg er á móti öllum boðum og bönnum". Þessi skilningur á frelsishugtak- inu verður væntanlega ræddur síðar. Það er þó eitt í sambandi við þessa „frjálshyggju", sem ég vildi vekja athygli á hér. Þeir sem af henni Státa virftaot m a oiora haft sameiginlega mark að krefjast frelsis til að neyta áfengis í hvaða mynd sem er, hvenær sem er og hvar sem er. Þar sem þessi vínneyslufrjálshyggja hefur feng- ið að dafna óhindruð, eins og t.d. í Danmörku, — en Danir hafa löngum státað af frjálslyndi sínu í meðferð áfengis — hefur neyslan tvöfaldast á tveimur áratugum miðað við áfengismagn á einstakl- ing. Samkvæmd umfangsmiklum rannsóknum, sem gerðar hafa verið, þýðir sú aukning ferföldun tjóns. Sú leyfisveiting, sem leiðir til þess, að áfengisneysla breiðist út, minnir að því leyti á dagskipun hershöfðingjans langt að þaki víglínunnar, að afleiðingar hvors tveggja, dagskipunarinnar og leyf- isins, verða langt frá sínum upp- hafsstað. En þær geta birst með fullum óhugnaði á vígvellinum eða rústum brenndra borga, eða á hrundum heimilum, geðdeildum og sjúkrahúsum. ®AUGLÝSiNG A STOFA MYNDAMÓTA Adalslwti 6 sáni 2S810 „Jafnframt verði lögð fram áætlun um rekstrarkostnað Vinnueftirlits og sparnað, sem sameining stofnana leiðir til.“ Hér er vikið að öðrum megin- tilganginum, sem var að sameina stofnanir og ná fram hagræðingu og sparnaði í rekstri. Nánast ekkert liggur fyrir um hugsan- legan kostnað eða væntanlegan sparnað. I umsögn hagsýslustjóra kemur fram, að hann telji markað tekju- stofna óæskilega. Einnig hefur komið fram sterk gagnrýni á iðgjaldafyrirkomulagið í 77. gr. laganna, þar sem ekki er tekið tillit til áhættuflokka atvinnu- starfseminnar. Jafnframt hefur verið bent á, að nauðsynleg tæki til að bæta aðbúnað, hollustu og öryggi eru í lúxustollum og þess vegna dýr fyrir fyrirtækin. Einstæð tækifæri til samræmingar Hér hfur að framan verið drepið á örfá þeirra óánægjuatriða, sem komið hafa fram við meðferð frumvarpsins á Alþingi. Skylt er þó að sjálfsögðu að geta þess, að margir umsagnaraðilar töldu meginstefnu frumvarpsins til bóta. Einn þeirra aðila, sem stóð að frumvarpsgerðinni, Vinnuveit- endasambandið, óskaði eftir fresti, á afgreiðslu málsins. Stéttarsam- band bænda vildi enn fremur frest og landlæknir og borgarlæknir lögðu fram ítarleg gögn, sem sýndu fram á, að málið þyrfti skoðunar við. Margir fleiri höfðu athugasemdir að gera. Við af- greiðslu málsins skipti þó fyrst og fremst máli sú vitneskja, að ríkis- stjórnin lagði allt kapp á, að málið næði fram að ganga á þessu þingi. Þess vegna valdi félagsmálanefnd þessa sérstæðu málsmeðferð, að láta fara fram „endurskoðun" á nýsettum lögum. Þegar tekið er tillit til þess annars vegar, að búið er að endurskoða lögin um hollustu- hætti og heilbrigðiseftirlit og hins vegar þeirrar endurskoðunar sem nýsett lög hafa fengið og við það bætist, að ráðherra hefur lofað að vinna að þessum málum í sumar, má segja að einstakt tækifæri hafi gefist til samræmingar á þessu sviði. Höfum fyrirliggjandi hina viöurkenndu LYDEX hljóökúta í eftirtaldar bifreiöar: Auatln Allsgro 1100—1300 . 7..........hljóOkútar og púatrör. Auatin Mini ..........................hljóðkútar og púatrör. Audi 100a—LS .........................hljóökútar og púatrör. Badford vörubfla .....................hljóökútar og púatrör. Bronco 0 og 8 cyl ....................hljóökútar og púatrör. Charvrolat fólkabfla og jappa ........hljóðkútar og púatrör. Chryalar franakur ....................hljóökútar og púatrör. Cltroan GS ...........................hljóökútar og púatrör. Cltroan CX ....................................Hljóökútar. Daihatau Charmant 1977—1979 .....hljóökútar fram og aftan. Dataun diaaal 100A—120A—120—1200—1600—140—180 .. htjóökútar og púatrör. Dodga fólkabfla ......................hljóókútar og púatrör. D.K.W. fólkabila .....................hljóðkútar og púatrör. Ffat 1100—1500—124—125—120—127—120—131—132 .................................... hljóökútar og púatrör. Ford, amarfaka fólkabfla .............hljóókútar og púatrör. Ford Conaul Cortina 1300—1000 ........hljóökútar og púatrör. Ford Eacort og Flaata ............... hljóökútar og púatrör. Ford Taunua 12M—15M- 17M- 20M---------hljóökútar og púatrör. Hilman og Commar fólkab. og aandib. . . hljóökútar og púatrör. Honda Clvic 1500 og Accord .....................hljóökútar. Auatin Gipay jappi ...................hljóókútar og púatrör. Intarnational Scout jappi ............hljóðkútar og púatrör. Rúaaajappi GAX 09 hljóökútar og púatrör. Wlllya jappi og Wagonaar .............hljóökútar og púatrör. Jaapatar VO ..........................hljóökútar og púatrör. Lada .................................hljóökútar og púatrör. Landrovar banafn og dlaaal ...........hljóökútar og púatrör. Lancar 1200—1400 .....................hljóökútar og púatrör. Maida 1300—010—818—929 hljóökútar og púatrör. Marcadaa Banz fólkabfla 180—190—200—220—250—280 hljóökútar og púatrör. Marcadaa Banz vörub. og aandib........hljóökútar og púatrör. Moakwitch 403—408—412 hljóökútar og púatrör. Morria Marina 1,3 óg 1,8 ..........hljóðkútar og púatrör. Opal Rakord, Caravan, Kadett og Kapitan .................................. hljóðkútar og púatrör. Paaaat V« p Hljóökútar. Paugaot 204—404—504 hljóókútar og púatrör. Rambler Amarican og Claaaic .......hljóökútar og púatrör. Ranga Rovar ........................hljóökútar og púatrör. Ranault R4—R8—R10—R12—R10—R20 .................................. hljóökútar og púatrör. Saab 90 og 99 ..................... hljóðkútar og púatrör. Scania Vabla L80—L85—LB8S—L110—LB110—LB140 ...............hljóókútar. Simca fólkabfla ....................hljóökútar og púatrör. Skoda fólkab. og atation ..........hljóókútar og púatrör. Sunbaam 1250—1500—1300—1800— ... hljóökútar og púatrör. Taunua Tranait banafn og diael.....hljóökútar og púatrör. Toyota fólkabfla og atation .......hljóökútar og púatrör. Vauxhall og Chavatta fólkab. .,....hljóökútar og púatrör. Volga fólkab. .....................hljóökútar og púatrör. VW K70, 1300, 1200 og Golf ........hljóökútar og púatrör. VW aendiferðab. 1903—77 hljóókútar og púatrör. Volvo fólkabfla .................. hljóökútar og púatrör. Volvo vörubila F84—85TD—N88—N86— N88TD—F86—D—F89—D ...........................hljóðkútar. Púströraupphengjusett í flestar gerðir bifreiöa. Pústbarkar, flestar stæröir. Púströr í beinum lengdum, 1V* “ til 4“ Setjum pústkerfi undir bíla, sími 83466. Sendum í póstkröfu um land allt. FJÖDRIN Skeifunni 2 82944 Púströraverkstæói

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.