Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980
3
Jón Axel
Pétursson
fv. banka-
stjóri látinn
JÖN Axel Pétursson, fyrrverandi
bankastjóri Landsbanka íslands.
er látinn i Reykjavík, 81 árs að
aldri, en hann var fæddur á
Eyrarbakka 29. september 1898.
Jón var sjómaður á Eyrarbakka
og í Þorlákshöfn um hríð, síðan á
skipum Eimskipafélagsins og á
flóabátnum Ingólfi. Hann lauk
stýrimannsprófi frá Stýrimanna-
skólanum 1920. Jón var í sigling-
um fram tii ársins 1925 er hann
réðst sem hafnsögumaður í
Reykjavík. Því starfi gegndi hann
fram til ársins 1946 utan eitt og
hálft ári er hann var fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
íslands. Jón var síðan fram-
kvæmdastjóri Bæjarútgerðar
Reykjavíkur frá 1946 til 1961 er
hann var settur bankastjóri
Landsbanka íslands. Hann gegndi
því starfi til ársins 1969 er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Jón var bæjarfulltrúi og bæj- .
arráðsmaður í Reykjavík í 20 ár
frá árinu 1934 til ársins 1954.
Hann gegndi auk þess ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
flokkinn.
Friðfinnur
Ólafsson
látinn
FRIÐFINNUR ólafsson, fyrver-
andi forstjóri Háskólabiós, er
látinn, 63 ára að aldri, en Frið-
finnur var fæddur á Strandselj-
um, Ögurhreppi við ísafjarðar-
djúp 19. februar 1917.
Friðfinnur lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum á ísafirði
1933, stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1938 og
kandídatsprófi frá Viðskiptadeild
Háskóla íslands 1941.
Upp frá því var Friðfinnur
starfsmaður Viðskiptanefndar,
forstöðumaður innkaupadeildar
Viðskiptaráðs, fulltrúi í Við-
skiptaráði, forstjóri Tjarnarbíós
fram til ársins 1961 þegar hann
tók við forstöðu Háskólabíós, en
þar var hann forstjóri þar til á
síðasta ári er hann lét af störfum.
Friðfinnur gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Alþýðuflokk-
inn, sat m.a. í m iðstjórn hans um
skeið.
Daihatsu Charade á
föstu
verði í gengissigshrynu
Daihatsu
Charade er
margfaldur verö-
launabíll úr
sparaksturs-
keppnum og
sparneytnastl
fólksbíllinn á
markaönum í
dag. Daihatsu
Charade er jap-
anskur gæöa-
bfll, vörn gegn
orkukreppu,
vörn gegn verö-
bólgu.
Getum á næstunni afgreitt nokkra
Daihatsu Charade á föstu verði þrátt
fyrir yfirvofandi gengisfall.
Kr
4.790.000
með ryðvörn
Tæplega 500 ánægðir kaupendur hafa fengio
Daihatsu Charade afhentan frá áramótum og
einsýnt að hann verður metsölubíllinn
á þessu ári.
500
afgreiddir
frá
áramtum
DAIHATSUUMBOÐIÐ
Ármúla 23, sími 85870 — 39179.