Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Stálbræðsla yrði háð innfluttu hráefni að nokkru leyti fram undir aldamót STÁLFÉLAGIÐ h.f. hefur um árabil unnið að þvi, að hér á landi rísi stálbræðsla til framleiðslu á steypustyrktarjárni úr brota- járni. Hefur stærð fyrirhugaðrar verksmiðju verið miðuð við um 15.000 tonna ársframleiðslu. Við athuganir hefur komið i ljós að brotajárnssöfnun á íslandi hefur undanfarin ár verið um 4000 tonn á ári en i skýrslu, sem Almenna verkfræðistofan hefur tekið saman um þetta efni, er talið að með samstilltu átaki og auknu fjármagni megi auka þessa söfnun og vinnslu upp i 9 til 10 þúsund tonn á nokkru árabili. í skýrslunni er þó tekið fram að ekkert verði fullyrt um hagkvæmni þess að svo komnu máíi. Stálbræðsla, sem framleiðir 15.000 tonn af járni og notar 17.500 til 18.000 tonn af hráefni virðist því verða háð erlendum aðföngum að nokkru leyti fram undir aldamót, segir í skýrslunni. Á síðasta ári gerði sænska fyrirtækið Electro Invest arðsem- isútreikninga fyrir stálbræðslu hér á landi og var niðurstaðan jákvæð á þeim forsendum, sem gengið var út frá. Iðnaðarráðu- neytið hefur nú ákveðið að skipa verkefnisstjórn, til að hafa um- sjón með hagkvæmniathugun fyrir stálbræðslu, þar sem meðal annars verði reynt að meta áhrif óvissuatriða í markaðsmálum og hráefnisöflun fyrir afkomu verk- smiðjunnar. I verkefnisstjórninni eru Frið- rik Daníelsson, efnaverkfræðing- ur, Iðntæknistofnun, formaður, Jafet S. Ólafsson, deildarstjóri, iðnaðarráðuneytinu, Sveinn Erl- ing Sigurðsson, hagfræðingur, Seðlabanka íslands og Haukur Sævaldsson, verkfræðingur, Stál- félaginu. Áætlað er að það kosti tæpa 7 milljarða að koma upp 15.000 tonna stálbræðslu hér á landi miðað við núverandi verðlag. Stúdentar frá Garða skóla vorið 1983 SÍÐAST liðna þrjá vetur hafa nemendur Garðaskóla átt þess kost að stunda framhaldsnám við skólann. Nám þetta hefur þó aðeins náð til fyrstu tveggja ára framhaldsnáms, en nú hefur menntamálaráðuneytið heimilað að hefja þriðja námsárið haustið 1981. Fari svo sem horfir ættu því nemendur kost á að Ijúka stúdentsprófi frá Garðaskóla vor- ið 1983, skv. upplýsingum frá Jóni Gauta Jónssyni bæjarstjóra i Garðabæ. Á komandi hausti verður 2. áfangi nýja skólahússins við Víf- ilsstaðaveg tekinn í notkun að stórum hluta. Þar verður starfsað- staða fyrir 7., 8. og 9. bekk grunnskólans og verður þá tryggt í fyrsta sinn, að allir nemendur grunnskólans sæki nám austan Hafnarfjarðarvegar. Við breyt- ingu þessa verður húsnæði í skóla- húsinu við Lyngás fyrir 200—300 fjölbrautarnemendur. Þar er auk venjulegs kennslurýmis, bókasafn bæjarins og skólans með lesstofu, mataraðstaða fyrir nemendur og setustofa, auk fundarherbergis og félagsaðstöðu fyrir nemendur. Næsta vetur er gert ráð fyrir að um 130—160 nemendur stundi nám við Garðaskóla. Að sögn Jóns Gauta hefur mikill kostnaður verið samfara því, að nemendur úr Garðabæ hafi þurft að sækja nám sitt til ná- grannasveitarfélaganna. Það er því fagnaðarefni fyrir bæjarbúa að menntamálaráðuneytið hefur nú gert framhaldsnemendum kleift að ljúka námi sínu innan bæjarmarkanna. Húsnæðisskorti og hárri húsaleigu mótmælt — á aðalfundi Leigjendasamtakanna Á AÐALFUNDI Leigjenda- samtakanna. sem haldinn var 5. júni sl. var heimild til hækkunar húsaleigu mótmælt og jafnframt Um myndina af Hannesi Það var Þórunn Kvaran, dóttir Hannesar Hafsteins, sem Guðrún Vilmundardóttir, kona Gylfa Þ. Gíslasonar, hafði samband við út af mynd póst og símamálastjórn- arinnar sem sagt var frá í sunnu- dagsblaði, en dóttir hennar Ragn- heiður og Guðrún voru sambekk- ingar í menntaskóla. Þórunn kvað Kristínu hafa málað myndina að beiðni póst og símamálastjórnar- innar í tilefni af afmæli símans, líklega 30 ára afmælinu 1934. Við nánari athugun á myndinni hefur komið í ljós að hún er merkt stöfunum K.J., en þeir eru mjög óljósir. lýst yfir vonbrigðum með að- gerðaleysi núverandi borgar- stjórnarmeirihluta i húsnæðis- málum. Fundurinn bendir á þann hrikalega skort á leiguhúsnæði sem nú ríkir i borginni og skorar á stjórnvöld borgarinnar að bregðast skjótt við og bæta úr þessu ástandi. Fundurinn fagnaði samþykkt nýrra laga um húsnæðismál, þar sem gert er ráð fyrir verulegri aukningu félagslegra íbúðabygg- inga, en harmaði að ekki skuli gert ráð fyrir leiguíbúðum sem eðli- legum valkosti. Loks skoraði fund- urinn á stjórnvöld að hraða sem mest lagasetningu um húsaleigu. Jón Kjartansson frá Pálmholti var endurkjörinn formaður sam- takanna, en í stjórn voru kjörnir Jón Ásgeir Sigurðsson, Birna Þórðardóttir, Bjarney Guðmunds- dóttir, Sjöfn Kristjánsdóttir, Anna Þórðardóttir og Ivar Jóns- son. Trúðurinn vakti mikla lukku. Hér heilsar hann einum áhorfendanum. Els Comediants við Elliheimilið Grund: Hér er sólskin allan sólarhringinn — segir Anna, einn meðlimur leikhópsins SPÁNSKI leikflokkurinn Els Comediants sýndi ævin- týraieik við Elliheimilið Grund um miðjan dag í gær. Nokkrir meðlimir hópsins voru í hinum fjöibreyti- legustu gervum og Iéku þeir listir sínar fyrir gamla fólk- ið, en aðrir úr hópnum léku á hljóðfæri. Brátt dreif að fjölda fólks og ekki var annað að sjá en að allir hefðu mikla skemmtun af. Að vísu voru yngstu áhorfendurnir nokkuð skelfdir að sjá, en skelf- ingarsvipurinn breyttist i bros þegar á sýninguna leið. Blaðamaður Morgunblaðs- ins spjallaði stuttlega við Önnu, unga stúlku sem er einn meðlimur leikflokksins. „Við höfum hlotið góðar undirtektir," sagði Anna. „Að vísu voru áhorfendur nokkuð hissa í fyrstu en það breyttist eftir því sem á sýninguna leið. Fólk virðist ekki hafa séð svona atriði áður, þetta virðist eitthvað nýtt. Við höfum orðið vör við ánægju fólks með atriðin okkar, meira að segja hafa nokkrir komið til okkar eftir sýningar og þakkað okkur íyrir," sagði Anna. „Þetta er í fyrsta skipti sem við komum til íslands, en við höfum ekki sýnt á Norðurlöndum fyrr. Hins- vegar förum við héðan til Danmerkur og sýnum þar seinna í mánuðinum. Það er gott að vera hér, en þó mjög ólíkt því sem er á Spáni. Það sem mér fannst sérkennilegast er að hér sest sólin ekki, það má segja að hér sé sólskin allan sólar- hringinn. Enda voru fyrstu tveir dagarnir erfiðir, maður vissi ekki hvenær átti að sofa. Ég hef þó vanist þessu og þetta er allt í lagi nú,“ sagði Anna úr leikhópnum Els Comediants. Áhorfendur fylgdust vel með þessu stórvaxna pari. Ljósm. Mbl. Emilia

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.