Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Skápurinn er úr massífri furu, danskur og kostar 328 þúsund krónur. Borðið er sænskt úr massífri furu og það með 4 stólum kostar 349 þúsund krónur. Borðið má stækka þannig að 8 stólar geta átt við það. Borðmotturnar fást i ýmsum litum og kosta 1450 krónur stykkið, og sessurnar í stólunum 4500 krónur. Ljósið kostar 23.500 krónur. Veggteppin 72 þúsund krónur, íslenzk og handofin. DAGLEGT LIF Linan Sérverzlun með m.a. húsgögn úr furu og reyr VERZLUNIN Línan við Hamra- borg 3 í Kópavogi hefur þá sérstöðu meðal húsgagnaverzl- ana að þar eru eingöngu á boðstólum húsgögn úr furu og reyr. Húsgögnin eru í iéttum og einföldum stil og ódýr ef mið er tekið af verði almenmt á hús- gögnum hér á landi. Þau henta vel ungu fólki, sem er stærsti hópur viðskiptamanna verzlunar- innar. Reyrvörurnar eru italskar og furuhúsgögnin frá Finnlandi, Danmörku og Sviþjóð. Þarna fást líka margskonar körfuvöruteg- undir sem keyptar eru frá Dan- mörku en þær eiga flestar upp- runa sinn i Austurlöndum. Meðal þess sem á boðstólnum er eru sófasett úr furu og reyr, hægindastólar úr furu og margar aðrar gerðir stóla bæði úr furu og reyr, m.a. ruggustólar. Þá eru bæði einstaklingsrúm og hjóna- rúm úr reyr og einstaklingsrúm úr furu. Meðalverð á einstaklings- rúmi úr reyr með dýnu er um 120 þúsund krónur. Rúm úr furu með hillum og náttborði kosta um 210 þúsund krónur. Þarna finnast ennfremur handunnin íslenzk ofin veggteppi, verð um 72—85 þúsund krónur og sams konar borðdreglar sem kosta um 30 þúsund krónur. Hillusamstæður úr furu (3 eining- ar) kosta frá 463 þúsund krónum upp í um 500 þúsund krónur. Grófar bambusrúllugardínur fást í verzluninni í 4 stærðum og kosta 11.400 til 19.900 krónur. breiddirnar eru 0.90 sm, 1.20 sm, og 1.80 sm og allar stærðir eru 1.80 á síddina. Af breidd þeirra má saga eftir því sem hentar hverjum og einum fyrir gluggann sinn. Dyra- og gluggahengi úr tréperl- um fást líka og kosta í ýmsum stærðum og lengdum frá 15.600 krónum til 27 þúsund króna. Af smávöru má nefna körfuvör- urnar (körfur, bakka o.fl.) bast- kistur, korktöflur, sessur í tvær gerðir stóla, blaðagrindur, borð- mottur og margt, margt fleira. Þá má nefna borð og kommóður í ýmsum stærðum og gerðum, og skilrúm úr reyr sem kosta um 80 þúsund krónur. Vöruúrvalið er fjölbreytt og skemmtilegt í þess- ari verzlun og verður ekki allt talið hér. Greiðsluskilmálar verzlunar- innar eru þeir að ef vörur eru Ljósmyndir Kristján keyptar fyrir hærri fjárhæð en 100 þúsund er helmingur kaup- verðsins greiddur út við kaupin og eftirstöðvar síðan á 4 mánuðum. Ef um hærri upphæðir er að ræða getur það verið samningsatriði hvernig greiðslum verður háttað. Staðgreiðsluafsláttur mun einnig veittur sem hjá öðrum verzlunum, þegar keypt er fyrir ákveðnar peninga upphæðir. Þetta sófasett er danskt. Allur sófinn, ásamt þilinu. hillunum og blaðapokanum kostar 644 þúsund krónur. Furuborðið kostar 95 þúsund krónur. 2 einingar þess- ara hillusamstæða kosta 320 þús- und krónur. Hægindastóllinn er úi leðri, sænskur og kostar 256 þúsund krónur. Þess má geta að sófasettið var á sýningu í Laugar- dalshöllinni i fyrra og vakti þar verðskuldaða athygli sýningar- gesta. Enda má koma honum haganlega fyrir í stofu þannig að hann myndi skilrúm milli setu- stofu og borðstofu. Þessir stólar eru úr furu, með strigaáklæði og kosta hver 136 þúsund krónur. Þeir eru frá Finnlandi. Hillusamstæða (3 ein- ingar) kostar 463 þúsund krónur. Gólflampinn er sænskur og kostar 52.600 krónur. Slika lampa má bæði fá i loft og á vegg. Veggteppið cr handofið islenzkt og kostar 72 þúsund krónur. Þar undir má sjá fugla- búr sem kostar 21.800 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.