Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI1980 Hlíf gefur frest til 20. iúní AÐALFUNDUR Verka- mannafélags Hlífar álykt- aði um samningamáiin og krefst þess, að samnings- aðilar setjist nú þegar og með fullri einurð að samn- Leiðrétting MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi leiðrétting frá Gísla Ólafssyni: í grein minni „Forsetakjör" í Mbl. 7. þ.m. hafa fallið niður í prentun hlutar af tveim setningum í einni málsgrein- inni. Málsgreinin er rétt þannig: Það er of algengur misskiln- ingur, að forsetinn sé áhrifa- og valdalítill. Æðstu stofnanir þjóðarinnar eru FORSETA- EMBÆTTIÐ OG ALÞINGI. Þjóðkjör er viðhaft til þeirra beggja. Forseta eru m.a. falin afskipti af stjórnarmyndunum og ætlast er til þess, að hann grípi inn í, ef Alþingi tekst ekki að mynda meirihluta- stjórn á eðlilegum tíma. Á þeirri stundu er forseti ís- lands áhrifa- og valdamesti maður þjóðarinnar, hafinn yf- ir dægurþras stjórnmálanna og þá skák, sem leikin er í völundarhúsi þeirra. Við slík- ar aðstæður er örlagastund fyrir land og þjóð, pólitískur þrýstingur flokka eða flokks- brota má þá ekki hafa áhrif á ákvörðun forsetans. Þá verður þjóðin öll að treysta á óhlut- drægni forsetans, reynslu hans og þekkingu. Gísli Ólafsson. Samruni á vinstri vængnum: Kommúmsta- samtökin stofnuð STOFNUÐ hafa vcrið i Reykja- vik ný stjórnmálasamtök, Komm- únistasamtökin. en þau eru sprottin upp úr Einingarsamtök- um kommúnista (marx — lenin- ista) og Kommúnistaflokki ís- lands (marx — leninista). For- maður samtakanna er Ari Trausti Guðmundsson en vara- formaður er Gunnar Andrésson. Mbl. leitaði til Ara Trausta" Guðmundssonar og spurði hann að því, hvers vegna þeir teldu þörf á slíkum flokki. „Við teljum að reynslan hafi sýnt að þeir flokkar sem gjarnan eru kallaðir verkalýðsflokkar eru það ekki, nema að því leytinu til að þeir sækja kjörfylgi til verka- fólks, en það gera reyndar margir flokkar," sagði Ari Trausti. „Okkur finnst þessir flokkar ekki vera málsvarar eða baráttuflokk- ar fyrir verkalýðsstéttina. Þess vegna finnst okkur nauðsynlegt að bæta við flokki, jafnvel þó að það verði bara einn í safnið í viðbót. Hins vegar er aðalatriðið það að vinnandi fólki finnist að það eigi flokk sem því finnst þess virði að styðja, einnig utan kjörklefanna," . sagði Ari Trausti. ingaboröinu. Síðan segir: „Verði ekki orðið við þeirri kröfu fyrir 20. júní, fer Verkamannafélagið Hlíf þess eindregið á leit við Verkamannasamband íslands að það fari eitt og alfarið með samningamál aðildarfélaga sinna.“ Aðalfundur Hlífar átaldi harðlega þann seinagang, sem verið hefur á samn- ingaviðræðum fram til þessa og telur einsýnt, að við svo búið verði ekki lengur unað. Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs var sjálfkjörinn í Hlíf. Stjórn félagsins skipa: Hallgrímur Pétursson, formaður; Guðrii Kristjánsson, vara- formaður; Hörður Sigur- steinsson, ritari; Hermann Valsteinsson, gjaldkeri; Eð- vald Marelsson, fjármála- ritari; Guðmundur Georgs- son, vararitari og Ásbjörn Vigfússon, meðstjórnandi. í varastjórn eru: Ólafur Jóhannsson, Sævaldur Jónsson og Bjarni Guðna- sori. Fyrirlestur í læknavísindum og tölvunarfræði Dr. R. E. Machol, prófessor við Northwestern University í Chicago. mun halda fyrirlestur i dag á vegum rannsóknastofa Háskólans í lífeðlis- og lífverkfræöi, sem hann nefnir „Mathematical methods in mcdical diagnosis“. Á grundvelli umfangsmikilla gagna er gerður samanburður á reiknilíkönum, flóknum og einföld- um, sem notuð hafa verið sem hjálpartæki við sjúkdómsgreiningu. Niðurstaðan virðist sú, að ekki sé á þessu stigi ástæða til að leita að mjög flóknum líkönum. Fyrirlesturinn verður haldinn í kennslustofu Landspítalans og hefst kl. 14. Öllum er heimill aðgangur. QUALITY ESer Viö erum Eflsimo buöir Alfholl, Siglufirði. Sparta, Sauðárkróki. Eplið, isafirði. Þórshamar, Stykkishólmi ísbjörninn, Borgarnesi. Eplið, Akranesi. Bonanza. Laugavegi 20. Karnabær, Laugavegi 66. Karnabær, Glæsibæ. Karnabær, Austurstræti. Bakhúsið, Hafnarfirði. Fataval, Keflavík. Eyjabær, Vestmannaeyjum. Lindin, Selfossi. Hornabær, Höfn Hornafirði. Austurbær, Reyðarfirði. Ram, Húsavík. Cesar, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.