Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 15 Jóna Sigurðardóttir: Baráttan er nú milli Alberts og Guðlaugs, en Vigdís er úr leik Stuðningsmenn eins frambjóð- andans til forsetakjörs hinn 29. júni næstkomandi, hafa undanfar- in hálfan mánuð lagt á það áherzlu í áróðri sínum, að fólk skuli kjósa Guðlaug, til að fyrir- byggja að Vigdís verði kosin. Þetta er hættulegur áróður og stuðningsmenn Alberts Guð- mundssonar og Brynhildar Jó- hannsdóttur verða að vara sig vel á þessum lævísa og órökstudda áróðri. Fólk má undir engum kringumstæðum hætta við að kjósa Albert Guðmundsson á þeim forsendum. að með þvi sé það að tryggja það, að Vigdis komist ekki að. Fólk á einmitt að herða sóknina fyrir Albert til þess að tryggja kosningu hans, enda mun úrslitahriðin standa á milli Alberts Guðmundssonar og Guðlaugs Þorvaldssonar. Sú staðreynd blasir við úr síð- ustu skoðanakönnunum, ef nokkuð mark á að taka af þeim, að Vigdís Finnbogadóttir hefur tapað mestu hlutfallslegu fylgi á siðustu þrem vikum, Guðlaugur kemur næstur, en Albert og Pétur hafa báðir aukið fylgi sitt. Þessu verður ekki á móti mælt og það er alltaf erfitt fyrir frambjóðanda áð stöðva fylgishrunið. Það mun líka sann- ast. Það er eins og þeir, sem um forsetaframbjóðendurna hafa rit- að í fjölmiðla sé feimnir eða jafnvel hræddir við að tala um alla frambjóðendurna í einu — kosti og galla. Þessi tími er liðinn. Héðanífrá er bezt að vera hrein- skilnir og segja það, sem mönnum býr í brjósti í þessum efnum. Albert Guðmundsson byrjaði Jón Bjarman: Framboð Vigdís- ar Finnbogadóttur Allt frá því að mönnum varð kunnugt um stuðning minn við Vigdísi til forsetakjörs, hef ég vart haft undan að svara spurn- ingum, sem flestar hafa byrjað á orðunum „Veiztu ekki að ..." Og ég hef ekkert vitað, því í þessum spurningum hafa verið dylgjur og fullyrðingar um einkahagi fram- bjóðandans, sem mér hafði ekki i dottið í hug að skiptu máli í þessu sambandi. Engu að síður hef ég leitast við að finna svör við þessum spurningum, og er skemmst frá því að segja, að fullyrðingarnar reyndust vera uppspuni, útúrsnúningar og rang- túlkanir þegar bezt lét. Eftir- grennslan mín varð að öðru leyti til að sannfæra mig enn betur um mannkosti Vigdísar. Við sem fylgzt höfum með henni í kosn- ingabaráttunni dáumst að hrein- skilni hennar, einurð, glaðværð og dæmafáu starfsþreki. Háttvísi hennar og nærgætni fer heldur ekki framhjá neinum, sem á hana hlýðir eða kynnir sér verk hennar. Auðsætt er, að þessar kosningar munu fyrst og fremst snúast um framboð Vigdísar. Viðbrögð stuðningsmanna hinna frambjóð- endanna sýna það berlega. Lögð hefir verið áherzla á að auglýsa mannkosti eiginkvenna þeirra, ekki skulu þeir dregnir í efa, en hitt má vera ljóst, að þær eru ekki í framboði til forsetakjörs. Það er rökrétt skref á brautinni til aukins jafnréttis kynjanna, sem stór hluti þjóðarinnr hefir komast hjá að greiða þennan hálfa ferðakostnað veiðivarðanna, og sem sagt svo gert. Þannig voru veiðiréttareigendur gerðir að ann- ars flokks þegnum. Vill nú ekki alþm., sem telur sig jafnaðar- mann, leggja fram lið til að lagfæra þetta. Rétt er að minna á að enn er ekki komin á eðlileg skipan vörslusvæða, þar liggur hlutur ríkisins eftir. Næst skal líta til Fiskræktar- sjóðs. Aðaltekjur hans skulu vera 2% af skírum tekjum veiðifélaga ásamt 3% af óskírum tekjum vatnsaflsstöðva í landinu, sem selja orku til almennings. Vill alþm. taka til umræðu hver skil hafa orðið á tekjum þessum og hver hlutur ríkisins er í þeim málum. Niðurstaðan er sú að sökum fjárskorts hefir sjóðurinn ekki orðið sá aflgjafi veiðimála, sem honum var ætlað og vera þurfti. Betra hefði alþm. verið að nefna snöru í hengds manns húsi en að taka Laxá í Dölum sem dæmi um ár, er íslendingum væru með öllu meinað að veiða í. Þar gerðust fyrir fáum árum atburðir best geymdir í þögn, verða óræddir hér. Forgangsréttur ísl. veiðimanna er þegar nokkur sökum langra og dýrra ferða hinna erlendu. Fleira mætti nefna. Meginhluti brota þeirra sem framin eru gegn veiði- lögum, samþykktum og reglum, mun vera heimaalinn og oft erfitt að koma lögum yfir. Virðist ríkis- valdið og þjónar þess ekki gera sér títt þar um. Áður var drepið á gjaldeyri og fjármuni, sem erl. veiðimenn færa þjóðarbúinu og skylt er að meta að verðleikum. Ósanngjarnt væri að þegja um að stór meirihluti ísl. veiðimanna eru fullkomnir heiðursmenn, vilja ekki vamm sitt vita og ánægja að skifta við, en því miður ekki alveg allir. Gjaldeyrisskilin get ég ekki rætt, veit ekki hvort þau eru góð eða vond og leyfi mér ekki að dylgja um það. Aftur á móti ætlast ég til að löggjafar okkar leggi fram staðreyndir, þá myndi virðing þeirra vaxa. Að endingu þetta: Alþm. virðist hafa tröllatrú, á höftum og skött- um, sem án efa lentu að lokum á veiðiréttareigendum. Þá trú hefi ég ekki. Tel ráðlegra að auka svo veiðimöguleika í ísl. vötnum með framhaldandi ræktunaraðgerðum að fullnægt gæti eftirpsurn bæði ísl. og erl. veiðimanna, jafnvel þótt verð á veiðileyfum lækkaði eitthvað þess vegna. Gætu menn ekki orðið sammála um þá leið? Leysingjastöðum, 28.5.1980 Dalldór Jónsson. Með stuðningnum eru menn ekki að gjalda pólitískar skuldir eða ná sér niðri á einutn eða neinum, heldur gera það, sem þeir telja rétt. Við stuðningsmenn Vigdísar er- um engir sérfræðingar í kosninga- brögðum eða notkun fjölmiðla til að breyta skoðunum manna. En við ættum öll að hafa einhvern tíma og efni til að leggja fram svo við náum sigri í baráttunni. Ég hvet ykkur til að hafa samband við kosningaskrifstofur Vigdísar, hver á sínum stað, og leggja henni þannig lið. Vinnum með Vigdísi. 4. júní 1980, Jón Bjarman. Jóna Sigurðardóttir kosningabaráttu sína seinna - en allir hinir frambjóðendurnir vegna þess, að hann þurfti að sinna þeim verkum á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur, sem fólkið — hinn almenni kjósandi hafði falið honum. Skyldurækni og heiðarleiki Alberts kemur glögglega í ljós í þessum efnum. Áðrir forsetaframbjóðendur hafa beðið um frí frá hinum mestu og æðstu skyldustörfum og því átt þess kost að byrja fyrr en Albert að berjast. Nú er hinsvegar mikill meðbyr fyrir Albert og Brynhildi og það kemur daglega betur og betur í ljós, að hann er að sigra. Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna: Þakkar Birgi og Ólafi heitir Davíð fulltingi EFTIRFARANDI samþykkt var gerð á stjórnarfundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé- laganna i Reykjavik. þann 2. júni sl.: „Stjórn Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík þakkar þeim Birgi ísl. Gunn- arssyni og Ólafi B. Thors, sem nú láta af forystu borg- arstjónarflokks Sjálfstæðis- flokksins frábær störf þeirra í þágu Reykvíkinga og Sjálf- stæðisflokksins. Stjórnin væntir þess jafnframt, að Reykvíkingar fái notið starfskrafta þeirra og reynslu í borgarmálefnum enn um mörg ár. Jafnframt óskar stjórnin nýkjörnum formanni borgar- stjórnarflokksins, Davíð Oddssyni, velfarnaðar í starfi. Stjórn Fulltrúaráðsins væntir sér mikils af forystu- starfi hans og heitir honum fulltingi sínu í þeim þýð- ingarmiklu verkefnum sem framundan eru.“ Jón Bjarman gengið undanfarin ár, að styðja og kjósa konu til embættis forseta Islands. Konur sem veljast til forystustarfa í þjóðfélaginu hafa yfirleitt þurft að leggja enn harð- ar að sér en karlar til að fá verðleika sína viðurkennda, þetta hafa dæmin sannað. Vigdís er í þessu engin undantekning, þeir sem þekkja hana vita það. Fram- boði hennar var komið af stað og það stutt af alþýðu manna um land allt, til sjávar og sveita. Þar eiga hlut ungir og aldnir, fólk úr öllum flokkum og utan flokka. Stakir jakkar með nýju vasasniði Bankastræti 7 Aóalstræti4 ...hér er rétti sta&urínn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.