Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Ætla mætti samkvæmt
myndum þessum, að vélhjóla-
iþróttin höfði eitthvað sérstak-
lega til kvenfólks, hverjar svo
sem skýriniíarnar á þvi kunna
að vera. Enjíu að siður er fátitt
mjöK að sjá stúlkur á vélhjólum
hér á Fróni, hvort heldur á
Kötum bæjarins, eða i keppni.
Sú hjálmlausa heitir Gina
Boivard og er bandariskur
meistari i kvennafiokki. Hin
stúlkan er 28 ára gömul leik-
kona að nafni Juliette Ander-
sen. í fristundum sinum hamast
hún i druliulónum á hjólinu
sinu.
„V'aknaðu drengur. þú hefur sigrað.“ hrópa þjálfari ok aðstoðarmenn
kólumbiska hnefaleikamannsins Bernardo Mercado, sem féll óvænt i
yfirlið augnabliki eftir að hann hafði reitt mótherja sínum rothögg i
sjöundu lotu. Atvikið átti sér stað í hnefaleikakrppni i New York fyrir
skömmu er Mercado att kappi við Bandarikjamanninn Ernie Shavers,
en þeir eru báðir í þungavikt.
Gunnar Einarsson handknattleiksmaðurinn snjalli, sem leikið hefur
síðustu fimm árin i V-Þýskalandi, er nú alkominn heim og tekur upp
þráðinn að nýju hjá sinu gamla félagi FH. Gunnar hefur þegar hafið
æfingar með félögum sinum sem æfa þrisvar i viku, og ætla sér stóra
hluti á næsta ári undir stjórn Geirs Hallsteinssonar þjálfara.
beir fjölmenntu við Klt-heimilið á skógræktardaginn þessir kappar, plöntuðu trjám og létu þeir ekki
rigninguna á sig fá. Á myndinni má sjá m.a. Einar Sæmundsson fyrrverandi formann KR lengst til vinstri,
Oskar Guðmundsson badmintonkappa við hlið hans. Heimir Guðjónsson markvörðurinn snjalli hér á árum
áður fyrir miðju og Björgvin Schram stórkaupmaður annar frá hægri. Ljósm Mbl. ól. K. M.
• Hennes Weisweiler tók sem kunnugt er við bandariska félaginu
New York Cosmos, eftir að hafa setið í bilstjórasætinu hjá þýska
liðinu FC Köln við góðan orðstýr. Mynd þessi er tekin, þegar Cosmos
kynnti Weisweiler fyrir bandarisku „pressunni“. Meðal þeirra sem
tóku á móti hinum virta þýska þjálfara, var enginn annar en Pele,
einhver besti knattspyrnumaður sem uppi hefur verið. Pele hefur nóg
að gera þessa dagana, en hann er skólastjóri i knattspyrnuskóla hins
mikla auðhrings„Warner Brothers“, en skólinn er eitt allsherjar net
yfir öll Bandaríkin. Auk þess er Pele gjaldkeri hjá Cosmos.
Nýlega var haldin firmakeppni Badmintondeildar Vals, 22 fyrirtæki
tóku þátt i keppninni.
Til úrslita léku Gleraugnaverslunin Optik og Hverfiskjötbúðin.
Sigurvegari varð Gleraugnaverslunin Optik, en keppandi fyrir það
fyrirtæki var hinn gamalreyndi badmintonkappi Haraldur Kornelíus-
son, á móti Haraldi keppti i úrslitum ungur og efnilegur
badmintonspilari Reynir Guðmundsson.
Sigurvegari i aukaflokki var Yonex-umboðið, keppandi Eysteinn
Björnsson.
Hilmar Pietsch tekur á móti verðlaunum fyrir hönd Gleraugnaversl-
unarinnar Optik sf. Með honum á myndinni er Haraldur Kornelius-
son, sem keppti fyrir það fyrirtæki, en hann hlaut i verðlaun Charlton
badmintonspaða, og Jafet S. Olafsson frá Badmintondeild Vals. sem
afhenti verðlaun.
EINN besti 400 metra grinda-
hlaupari heimsins Ilarald
Schmid Vestur-Þýskalandi er
einn af fjölmörgum iþrótta-
mönnum sem kemur til með að
missa af Olympíulrikunum i
Moskvu. Harald átti alla mögu-
leika á að hreppa gullverðlaunin
í 400 m grind og jafnvel í 4x400
m boðhlaupum. Besti timi hans i
400 m grindahlaupi er 47,80 sek.
Þá hefur hann hlaupið 400 metr-
ana á 45,11 sek.
Meistaramót
þeirra yngstu
MEISTARAMÓT yngstu aldurs-
flokkanna i frjálsum iþróttum
fer fram á Laugardalsvelli dag-
ana 27.-29. júní sem Iiður í
iþróttahátið Í.S.Í.
Keppt verður í þessum grein-
um:
Piltar f. '66 —'67,100 m, 800m.
4x100 m, langstökk. hástökk,
kúluvarp, spjótkast.
Telpur f. '66—'67, 100 m. 800
m, 4x100 m. langstökk. hástökk.
kúluvarp, spjótkast.
Strákar f. '68 og síðar, 60 m,
800 m, 4x100 m, langstökk, há-
stökk, kúluvarp, spjótkast.
Stelpur f. '68 og síðar, 60 m,
800m, 4xl00m, langstökk. há-
stökk, kúluvarp.
Hverju félagi er heimilt að
senda allt að þrjá keppendur i
hverja grein. Þátttökutilkynn-
ingar ásamt þátttökugjaldi kr.
150 i einstaklingsgreinum og kr.
600 fyrir boðhlaupssveit skulu
hafa borist skrifstofu F.R.Í.,
íþróttamiðstöðinni Laugardal,
eða í pósthólf 1099 i siðasta lagi
18. júni. Tilkynningar sem berast
eftir þann tima verða ekki tekn-
ar til greina.