Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980 23 KR-ingar sigruðu FH í jöfnum leik * L hi | r. • VÍKnir Baldursson kominn á auðan sjó við mark Víkinga. eitt af mörKum dauðafærum UBK i leiknum. En Diðrik Ólaísson í marki Víkings var starfi sínu vaxinn og varði vel. Ljósm. Kristján. Stórkostlegt mark Sigurðar færði UBK dýrmæt stig UBK REIF sig upp og sigraði Víking með tveimur mörkum gegn einu á íslandsmótinu i knattspyrnu, en liðin mættust á Laugardalsvellinum á sunnudag- inn. Staðan í hálfleik var 1 — 1. Það kom að þvi að hið léttleik- andi lið UBK na‘ði að sýna tennurnar. en til þessa hefur liðið sýnt góða leiki en tapað. Hefur leikmenn liðsins skort grimmd og baráttu, en gegn Vikingi blönduðu þeir þeim kostum við góða knattspyrnu sina og upp- skáru sanngjarnan sigur. Eins og leikurinn þróaðist máttu Vik- ingarnir raunar þakka fyrir að tapa ekki með miklu meiri mun. En það er oft skammt á milli gleði og sorgar í knattspyrnu. Staðan var 1—1 á 64. mínútu og virtist sem Víkingar væru að ná betri tökum á leiknum. Góð sókn þeirra á umræddri mínútu endaði með því að Heimir Karlsson komst einn inn fyrir vörn UBK, en Guðmundur Ásgeirsson í marki UBK varði stórkostlega. Breiða- bliksmenn brunuðu upp völlinn, Helgi Bentsson komst í gegn, en datt um knöttinn. Magnús Þor- valdsson, bakvörður Víkings hugð- ist hreinsa frá marki, en tókst ekki betur til en svo, að hann sendi knöttinn rakleiðis til Þórs Hreið- arssonar, sem stakk honum sam- stundis inn á teiginn til Sigurðar Grétarssonar. Sigurður var ekkert að tvínóna við hlutina, heldur þrumaði knettinum viðstöðulaust í samskeytin og inn í hornið fjær. Stórglæsilegt mark! Þá var staðan orðin 2—1 og úr þessu hófu Blikarnir hreinlega að leika Víkingana sundur og saman. Hvað eftir annað æddu Blikarnar í gegnum gatasíuvörn Víkings og var með ólíkindum hvernig mark Víkinga slapp hvað eftir annað. Diðrik varði nokkrum sinnum og í öðrum tilvikum spyrntu Blika- strákarnir fram hjá. En leikurinn var alls ekki allan tímann svona ójafn og telja verður líklegt að Blikarnir hefðu ekki náð umræddum yfirburðum nema vegna þess að Víkingar misstu Róbert Agnarsson út af þegar 15 mínútur voru til leiksloka. Höfðu Víkingarnir þá notað báða vara- menn sína og léku því aðeins 10 leikinn á enda. Fyrri hálfleikur var mjög jafn Víkingur - 4.A UBK I aC. og var þá hart barist um völdin á miðjunni. Blikarnir léku nettari knattspyrnu eins og vænta mátti, en Víkingarnir voru fastir fyrir og voru fyrir vikið ívið sterkari. Það voru þó Blikarnir sem fengu óskabyrjun, er liðið skoraði strax á 6. mínútu leiksins. Þeir Róbert og Magnús gerðu þá heljar mikið glappaskot í vörninni og Helgi Bentsson stal knettinum af Magn- úsi. Brunaði Helgi að marki og skaut, en Diðrik varði meistara- lega. Hann hélt hins vegar ekki knettinum og Ingólfur Ingólfsson, sem fylgt hafði vel eftir, kastaði sér fram og skallaði í netið. Víkingarnir jöfnuðu aðeins fjór- Siguröur Grétarsson skoraði sig- urmarkið á glæsilegan hátt. um mínútum siðar og var þar Þórður Marelsson á ferðinni með þrumuskot eftir góða fyrirgjöf Hinriks Þórhallssonar frá vinstri, gott mark. Víkingar voru nær því að bæta við marki það sem eftir var fyrri hálfleiks og næst því komust þeir á 40. mínútu, er Þórður Marelsson sendi vel fyrir mark UBK frá hægri. Upphófst rosalegur gaura- gangur og endaði með því að bjargað var af marklínu skoti Aðalsteins Aðalsteinssonar og síð- an varði Guðmundur glæsilega fast skot Ómars í sömu sóknar- lotu. Næst því að skora komust Blikarnir á 41. mínútu, er góðri sókn lauk með skoti Vignis Bald- urssonar, en Diðrik var vel með á nótunum. Lið UBK var eftir atvikum vel að sigrinum komið, liðið lék allan tímann fágaðri knattspyrnu en Víkingur, þó að ekki hafi þetta verið besti leikur liðsins í sumar. Framherjar og miðvallarleikmenn liðsins eru yfirleitt frekar lág- vaxnir, en að sama skapi leiknir og duglegir. Virðist UBK vera komið með vísi að afar góðu liði. Sigurður Grétarsson er eitt mesta efni í íslensku knattspyrnunni í dag og færðist mjög í aukana er á leikinn leið. Mjög góðir voru einnig þeir Helgi Bentsson, Sigur- jón Kristjánsson, Ingólfur Ing- ólfsson og Guðmundur Ásgeirs- son. Á miðjunni voru þeir Þór og Vignir traustir og Einar Þór- hallsson var öruggur í sinni stöðu að vanda. Víkingarnir léku þenn- an leik á köflum mjög þokkalega, en urðu að láta í minni pokann er þeir misstu mann út af. Hinrik Þórhallsson átti góða spretti fyrir Víking, sömuleiðis Þórður Mar- elsson. Aðrir gerðu hvað þeir gátu og Diðrik lék stórt hlutverk er á leikinn leið. í stuttu máli: íslandsmótið í 1. deild, Laugar- dalsvöllur Vík. — UBK 1—2 (1— 1). Mark Víkings: Þórður Marels- son (10. mín.). Mörk UBK: Ingólfur Ingólfsson (6. mín.) og Sigurður Grétarsson (65. mín.). Gul spjöld: Tómas Tómasson UBK. Áhorfendur: 380. — 88- fkhr 1:2 LIÐ FH varð að bíta í það súra epli að tapa 2—1, fyrir KR á heimavelli sín- um í Kaplakrika á sunnu- dag er liðin mættust í 1. deildinni. Leikur liðanna var nokkuð jafn allan tím- ann og sigurinn gat lent hvoru megin sem var. Heilladísirnar voru að þessu sinni með KR og þeim tókst að hala inn bæði stigin en greinilegt er að hvert stig er geysi- lega dýrmætt þar sem keppni liðanna í 1. deild mun verða afarhörð og jöfn í sumar. Þó alveg sérstaklega í neðri helm- ingi deildarinnar. Fyrri hálfleikur í leik FH og KR var nú frekar bragðdaufur en þó brá fyrir góðum sprettum hjá báðum liðum. Liðin skiptust á að sækja án þess þó að skapa sér verulega hættuleg marktækifæri. Þá voru varnir liðanna og mark- verðir vel með í leiknum og gripu vel inní á réttum augnablikum. Á 20. mínútu leiksins átti Magnús Teitsson gott skot sem Stefán varði vel. Fimm mínútum síðar var Pálmi Jónsson á ferðinni en þrumuskot hans sleikti þverslána og yfir. Á 30. mínútu leiksins náðu KR-ingar góðri sókn og góð fyrir- gjöf kemur fyrir markið hjá FH-ingum. Friðrik markvörður þeirra var ekki nægilega vel á verði í það skiptið, missti boltann framhjá sér og ungur nýliði í liði KR Erling Aðalsteinsson bráð- efnilegur knattspyrnumaður skallaði örugglega í netið. Vel gert. Mark þetta má að nokkru leyti skrifa á Friðrik. Lið FH byrjaði síðari hálfleik- inn af miklum krafti og var mun líflegra en í þeim fyrri. Og á 54. mínútu tókst þeim að jafna leik- inn. Vörn KR sofnaði á verðinum og tveir framlínumenn FH komust einir innfyrir vörnina. Pálmi Jónsson náði boltanum og renndi honum af öryggi og yfirvegun í netið framhjá markverðinum. Næstu mínúturnar sótti lið FH ákaft en KR varðist vel. Pálmi á dauðafæri á 60. mínútu og var mjög nærri því að skora. Hann var með boltann á markteig og náði að skjóta góðu skoti en Stefán sá við honum og varði vel. Skömmu síðar átti Helgi Ragnarsson gott tæki- færi en missti boltann frá sér áður en honum tókst að nýta það. Um miðjan síðari hálfleikinn fór leikurinn að jafnast aftur og á 71. mínútu fá KR-ingar innkast. Það er vel framkvæmt, kastað langt inn að vítateig FH, þaðan er boltinn skallaður til Sverris Her- bertssonar sem skaut þrumuskoti beint í markhorn FH. Glæsilegt mark hjá Sverri. Þrátt fyrir ákaf- ar tilraunir tókst liði FH ekki að rétta sinn hlut í leiknum. Þó áttu þeir dauðafæri á 76. mínútu eftir mikinn einleik hjá Þóri Jónssyni, sem lék mjög vel í leiknum. En KR-ingar björguðu á marklínu. Bæði liðin léku á köflum ágætis knattspyrnu, en nokkuð vildi leik- urinn detta niður þess á milli. í liði KR átti Hálfdán Örlygsson góðan leik, Ottó var að venju traustur í vörninni og batt hana vel saman. Sigurður Pétursson og Birgir voru góðir og unnu vel. í lið KR vantaði Sæbjörn Guðmunds- son sem er meiddur og gat ekki leikið með. Besti maður FH-inga var Þórir Jónsson. Þegar boltinn barst til hans út á kantinn gerði hann svo til alltaf mikinn usla í vörn KR og gaf góða bolta fyrir markið. Þá voru bæði Heimir og Pálmi frísk- ir. Valþór og Ásgeir áttu báðir ágætan dag. Ásgeir Elíasson þjálfari FH lék ekki með vegna meiðsla. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild. Kaplakrikavöllur: FH - KR 1-2 (0-1) Mörk KR: Erling Aðalsteinsson á 30. mínútu. og Sverrir Herberts- son á 71. mínútu. Mark FH: Pálmi Jónsson á 54. mín. Gult spjald enginn. Áhorfendur: 764. Dómari: Róbert Jónsson. - ÞR. LIÐ VÍKINGS: LIÐ FII: Diðrik ólafsson 7 Friðrik Jónsson Ragnar Gislason 5 Valur E. Valsson Magnús Þorvaldsson 3 Atli Alexandersson Helgi Helgason 5 Valþór Sigþórsson Róbert Agnarsson 5 Guðjón Guðmundsson Jóhannes Bárðarson 5 Magnús Teitsson Ilinrik Þórhallsson 7 Þórir Jónsson ómar Torfason 6 Ásgeir Arinbjarnarson Aðalsteinn Aðalsteinss. 5 Viðar Halldórsson Þórður Marelsson 7 Heimir Bergsson Gunnlaugur Kristfinnss. 5 Pálmi Jónsson Heimir Karlsson (vm) 5 Benedikt Guðbjartsson Lárus Guðmundsson (vm) 6 Helgi Ragnarsson LIÐ UBK: LIÐ KR: Guðmundur Ásgeirsson 7 Stefán Jóhannsson Helgi Helgason 5 Guðjón Hilmarsson Tómas Tómasson 5 Sigurður Pétursson Einar Þórhallsson 7 Otto Guðmundsson Valdemar Valdemarsson 6 Börkur Ingvarsson Vignir Baldursson 6 Jón Oddsson Þór Hreiðarsson 6 Ágúst Már Jónsson Sigurjón Kristjánsson 6 Birgir Guðjónsson Helgi Bentsson 7 Erling Aðalsteinsson Sigurður Grétarsson 7 Elías Guðmundsson Ingólfur Ingólfsson 6 Hálfdán Örlygsson ólafur Björnsson (vm) 5 Örnólfur Oddsson DÓMARI: Sverrir Herbertsson óli ólsen 5 Dómari: Róbert Jónsson 5 5 6 5 6 7 6 7 7 7 5(vm) 5(vm) 5(vm) 6(vm) 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.