Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980
35
Solarium
kerlaugar og f leira...
Stöðugt fleiri rækta likamann með þjálfun hans, gufuböðum eða t.d.
sundi a.m.k. einu sinni í viku. Aðrir leita sér fremur afslöppunar í
sauna, hveralaugum og nuddi. Og enn aðrir vilja undirbúa húðina
fyrir sólarlandaferöir sumarleyfisins með því að sækja þá staði sem
bjóða upp á ljós eða svokallaða solariumlampa, sem jafnvel munu geta
gefið húðinni brúnan lit, sem annars sólarljósið eitt getur veitt. Þessi
ljós geta ekki sizt verið t.d. psoriasissjúklingum til mikillar hjálpar i
baráttunni við útbrotin.
(L|6*m. Emllla).
það sem talið er heilsusamlegt og uppbyggjandi fyrir líkamann og
heilsuna.
Við könnuðum verðið á þessari þjónustu sem á boðstólum er í
Heilsuræktinni. Aðgangur að solarium-lampa og sturtubaði (solarium í
10 mínútur í senn) kostar fyrir 8 skipti 8800 krónur, en það mun vera
einna ódýrast að njóta solarium-geisla þarna af þeim stöðum í
höfðuborginni sem bjóða þá þjónustu. Solarium og aðgangur að
hveralauginni, sauna og þjálfunartækin í 8 skipti kostar 20 þúsund
krónur. Heilsuræktin er opin á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 9.00
á morgnana til 23.00 á kvöldin og þriðjudaga og föstudaga frá hádegi til
kl. 21.00 á kvöldin.
Fjöldi annarra aðila bjóða líka þjónustu þeim sem vilja rækta
likamann og heilsuna. Ef ungt fólk á skólaaldri þarfnast leikfimitíma
allt að þrisvar í viku hverri yfir veturinn, hvers þarfnast þá ekki eldra
fólk sem vinnur kannski í stöðugri kyrrsetu allan daginn. Afslöppun i
sauna, hveralaugum eða öðru hefur þá ekki sízt gildi í streituþjóðfélagi
okkar daga.
Daglegt líf renndi við í Heilsuræktinni í Glæsibæ þar sem m.a.
ellilífeyrisþegar njóta endurgjaldslausrar endurhæfingaraðstöðu, — en
almenningi er þjónustan ekki síður til boða. Þar eru solariumljós fyrir
viðskiptavinina, þ.e. ljósböð með bæði infrarauðum geislum og
útfjólubláum í einum og sama lampanum. En læknar hafa m.a. mælt
með slíkum ljósaböðum við t.d. þá sem eiga við psoriasis að stríða. Þá
eru þarna hveravatnslaugar, — laugar með niðurkældu hveravatni, án
klórs. Þá er sauna, þjálfunarsalur með tækjum, háþrýstisturtur og fleira
GRJÓTHLÍFAR
fyrir alla bíla
SÍLSALISTAR
úr krómstáli
YD BIIKKVER ^ ) selfossÍ^
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.
REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ |
Rafritvél meó fisléttum áslætti,
áferðafallegri skrift, dálkastilli
28 eóa 33 sm valsi. ..
Vél sem er peningana virði
fyrir jafnt leikmenn sem
atvinnumenn.
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
Leitió nánari upplýsinga.