Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 27 Gróska FYRIR skömmu lauk keppni í íslandsmótum i blaki 1980. Biak- iþróttinni vex stöðuKt fiskur um hrygg, og er nú keppni komin i gang í flestum aldursflokkum. íslandsmeistarar 1980 urðu þessir: Hér er fyllilega ástæða til að líta nánar á frábæran árangur HK í Kópavogi. • Þó að BJöasl Borg sé búinn að gefa út yfirlýsingar um væntan- legan giftíngardag sinn og Mari- önnu Simonescue, þá umgengst hann ekki annað kvenfólk eins og munkur. Á efri myndlnni krotar hann nafn sitt á gifsið á brotnum fótlegg fyrirsætunnar Cheryl Tiegs, en á hinum myndunum lætur hann þokkagyðjur mata sig á vínberjum. 54 þjóðir eru hættar við HÆTT er við að Olympíuleikarn- ir i Moskvu verði sviplitlir er þeir fara fram i sumar. Fimmtíu og fjórar þjóðir hunza leikana og tuttugu og fjórar eru óákveðnar hvort þær taka þátt, svo að talan getur enn hækkað. Meðal þeirra þjóða sem hætt hafa við eru lönd sem hafa unnið til hvað flestra verðlauna, svo sem Bandarikin, V-Þýskaland, Kanada og Japan. Sviss dregur úr útsendingum frá Olympíuleikunum SVISSLENDINGAR munu draga úr beinum sjónvarps- og útvarpsút- sendingum frá Ólympíuleikunum þótt íþróttamenn þeirra muni keppa í Moskvu. Gizkað er á að Svisslendingar skeri niður útsendingarnar um einn fjórða. Vestur-Þjóðverjar hafa ákveðið að skera niður útsendingar sínar frá leikunum um 90%. Ungir afreksmenn á skíðum: Menn framtiðarinnar í skiðaiþróttinni. Frá v. Gunnar Rúnarsson (sonur Jakobinu Jakobsdóttur), Kristján Valdimarsson RV-meistari i stórsvigi 11 — 12 ára, Þór Ómar Jónsson RV-meistari í svigi, og Gunnar Smárason annar i firmakeppni Skiðaráðs Reykjavikur. Röð liða að móti loknu varð þessi: 1. Mímir með 6 stig. 2. UMFB með 4 stig 3. UMFL með 2 stig 4. ÍMA með 0 stig. Lið Mímis hlaut því fullt hús stiga, sem er frábær árangur. Fyrirliði Mímis varð stigahæsti leikmaður mótsins með 50 stig, en röð stigahæstu manna varð þessi: stig 1. Eygló Ingólfsdóttir Mímir 50 2. Dýrleif Guðjónsd. Mímir 31 3. Unnur Óskarsdóttir UMFL 30 4. Bryndís Róbertsd. UMFB 25 5. Margrét Sverrisd. UMFB 20 Bikarinn sem keppt er um er farandbikar en vinnst til eignar með sigri sama liðs þrjú ár í röð. HSK meistarar kvenna 1 körfuknattlelk, Mimir. Fremri röð frá vinstri: Birna, Eygló fyrirliði, Erla og Svandis. Aftari röð frá vinstri: Hannes þjálfari, Dýrleif, Kristrún, Soffia og Kristín. Ljósmynd B.Ó.M. Mímir sigraói FYRSTA HSK móti kvenna í körfuknattleik er lokið og varð Mímir, sem er félagslið innan Menntaskólans að Laugarvatni, sigurvegari i mótinu. t öðru sæti mótsins varð UMF Biskups- tungna, í þriðja sæti UMF Laug- dæla og lestina rak ÍMA Úrslit leikja urðu þessi: 1. UMFB-UMFL 32-26 2. UMFL-ÍMA 15- 2 3. UMFL-Mímir 16—29 4. Mímir—UMFB 32-17 5. ÍMA—Mímir 20—38 6. UMFB-ÍMA ÍMA gaf í blakdeild HK Karlar: Meistarflokkur, 1. deild Meistaraflokkur, 2. deild 1. flokkur' 2. flokkur 3. flokkur 4. flokkur Öldungaflokkur Konur: Meistaraflokkur 2. flokkur 3. ílokkur 4. flokkur Öldungaflokkur Það var árið 1976 sem stjórn Blakdeildar HK ákvað að leggja höfuðáherslu á yngri flokkana. Vegna skorts á æfingaaðstöðu þýddi þessi ákvörðun að HK varð að hætta þátttöku í meistara- flokkum. Meistaraflokkar þurfa marga æfingatíma ef vel á að vera, og það er staðreynd að yngri flokkarnir hjá flestum íþróttafé- lögum fá of fáa æfingatíma vegna þess að meistaraflokkarnir eru látnir ganga fyrir. Eftir að meistaraflokkur HK var lagður niður varð öldunga- flokkur HK til að og síðan 1. flokkur. Þessir flokkar (flokkar þeirra gömlu) hafa ekki siður en börnin staðið sig vel hjá Blakdeild HK. Ungm.féi. Laugdæla, Árn. Völsungur, Húsavík. HK, Kópavogi. Ungm.fél. Efling, S-Þing. Völsungur, Húsavík. Þróttur, Rvík. HK, Kópavogi Víkingur, Rvík. UBK, Kópavogi. HK, Kópaovgi. HK, Kópavogi. íþr.fél. Eikin, Akureyri. Ævintýrið hófst árið 1978 með því að deildin hlaut tvenn silfurverðlaun í íslandsmeistara- mótum yngri flokka. Árið 1979 h)aut deildin ekki meira né minna en fjögur gull og eitt silfur í Islandsmótunum. Engum datt í hug að þetta „íslandsmet" deildar- innar yrði bætt í bráð, e.t.v. aldrei. En það sem engum kom til hugar, síst forráðamönnum Blakdeildar HK, er nú staðreynd. Blakdeild HK sló sitt eigið met frá því í fyrra og hlaut 4 gull og 2 silfur í íslandsmótunum 1980. Blakdeild HK var stofnuð 1974. Formaður deildarinnar frá upp- hafi er Albert H.N. Valdimarsson, og er hann jafnframt aðalþjálfari hjá deildinni. íslandsmeistarar I 4. flokki stúlkna 1980. Fremri röð (talið frá vinstri): Berglind Harðardóttir, Björg Erlingsdóttir, Valdis Steinars- dóttir og Guðrún Lára Pálmadóttir. Aftari röð: Ragnhildur Þorsteinsdóttir, Berglind Jónsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir, Svava Dögg Gunnarsdóttir og Júlia Jóhannesdóttir. Á myndina vantar Ingibjörgu Sigur jónsdóttur. tslandsmeistarar i 3. flokki stúlkna 1980. Fremri röð (talið frá vinstri): Valdis Steinarsdóttir, Kristin Lilja Þorsteinsdéctir, Björg Erlingsdóttir og Guðrún Lára Pálmadóttir. Aftari röð: Berglind -H. Hrafnsdóttir, Arnheiður Skæringsdóttir, Svava Dögg Gunnarsdóttir og Ragnhildur Þorsteinsdóttir. Á myndina vantar Kristinu Gunnars- dóttur osr Inminni M. Sigurðardóttur. íslandsmeistarar i 1. flokki karla 1980. Fremri röð (talið frá vinstri): Ingi E. Erlingsson, Sigurður Steingrimsson, Július Arnarson, Albert H. N. Valdimarsson og Páll Olafsson. Aftari röð: Sigurður Gunnarsson, Stefán Tómasson, Anton Bjarnason, Skjöldur Vatnar Björnsson, Tómas Tómasson og Halldór Árnason. Á myndina vantar Ómar Geirsson og Sigvalda H. Pétursson. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.