Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 16

Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980 Listahátíð í Reykjavík: Verk John Cage í máli, tónlist og myndum BANDARÍSKA tónskáldið og nýlistamaðurinn John Cage les upp verk eftir sig í Lögbergi í kvöld kl. 20.30. Nefnist , verkið „Empty words.“ Á morgun, miðviku- dag, flytja nemendur Tónlist- arskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamra- hlíð verk eftir tónskáldið John Cage í Bústaðakirkju kl. 20.30. John Cage fæst við fleira en tónsmiðar. Sl. sunnudag tókst hann á við matargerðarlistina i Félagsstofnun stúdenta og var þá myndin hér að ofan tekin af honum. Verk John Cage „Empty words" byggist á verkum bandaríska heimspekingsins Thoreau, sem uppi var á 19. öld. Notaðar eru litskyggnur, en verkið er úrvinnsla Cages á ritum Thoreaus eftir tilviljun- arlögmálum (change operat- ions) og er það á tilbúnu máli, sem tengir venjulegt tungu- mál við tónlist. Á tónleikunum í Bústaða- kirkju verða flutt þrjú verk, sem heyrast í fyrsta sinn á íslandi. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flytur Sálma og tilbrigði fyrir 12 raddir, sem samið var árið 1979 og byggt á gömlum bandarískum sálmum. Þá mun Hjálmur Sighvatsson, sem 3tundar nám í píanó- kennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík flytja verk frá árinu 1945, sem nefnist Dætur Einmanaeyjar. í lokin leikur Nemendahljómsveit Tón- listarskólans í Reykjavík und- ir stjórn John Cage, Atlas Eclipticalis fyrir 1—98 spil- ara. Það er samið eftir tilvilj- unarlögmálum og er stjörnu- kortið lagt til grundvallar. Mývatnssveit: Hólmfríður Þórðardótt- ir frá Grænavatni látin Mývatnshveif, 9. júni. ÚTFÖR Hólmfríðar Þórðardótt- ur frá Grænavatni var gerð frá SkútiLstaðakirkju s.l. lauvardav Árangurslaus sáttafundur SÁTTAFUNDUR var i gær hald- inn í kjaradeilu Vinnuveitenda- sambands íslands og Alþýðu- sambands íslands. Á fundinum var rætt um kröfur og gagnkröf- ur aðila, en niðurstaða varð engin og fundurinn þvi árang- urslaus. Siðdegis var svo haldinn fundur með Sambandi bygg- ingamanna. Fundurinn með bygginga- mönnum var einn af mörgum fundum VSÍ með sérgreinasam: böndum innan ASI. Þar lagði VSÍ fram kjarnasamninginn og þær kröfur, sem það hefur þegar lagt fyrir Alþýðusambandið. Sjö ára barn varð undir valtara SJÖ ára gömul telpa varð á laugardag undir valtara á túninu við bæinn Hróarsholt í Villinga- holtshreppi. Siysið varð með þeim hætti að verið var að valta túnið og dró dráttarvél valtarann. Telp- an var að leik þarna á túninu en faðir hennar ók dráttarvélinni, og er ekki vitað nánar um tildrög slyssins. I fyrstu var telpan flutt á sjúkrahúsið á Selfossi en þaðan á gjörgæsludeild Borgarspítalans. í gær var talið að telpan væri úr lífshættu. að viðstöddu mjög miklu fjöl- menni. Hóimfriður fæddist i Krossdal í Kelduhverfi 11. mai 1890. Foreldrar hennar voru Jakobina Jóhannsdóttir og Þórð- ur Flóventsson. Ung að árum flutti hún með foreldrum sínum í Svartárkot í Bárðardal, sem var henni heimili þar til hún flutti að Grænavatni í Mývatnssveit og giftist Jónasi Helgasyni 1915. Þau hófu búskap á hluta jarðarinnar. Þau voru mjög samhent og búnaðist vel. Þegar þau svo létu af búskap tók Helgi sonur þeirra við jörðinni. Þau hjónin eignuðust fimm börn, sem öll eru á lífi, það er Árni, erindreki Stéttarsambands bænda, Þóroddur, læknir á Akur- eyri, Helgi, hreppstjóri á Græna- vatni, Jakobína, sem er búsett á Hvanneyri og Kristín, sem starfar hjá Kísiliðjunni. Jónas á Grænavatni andaðist 1970 og bjó Hólmfríður eftir það með Kristínu dóttur sinni að Helluhrauni 7 hér í sveit. Þar lézt Hólmfríður 29. maí s.l. Samferðarfólk og sveitungar þessara heiðurshjóna minnast þeirra með mikilli virðingu og þökk. — Kristján. Philipus prins hafði viðdvöl hér á landi PHILIPUS prins, drottningar- maður, hafði skamma viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli á sunnudag á leið sinni frá Kanada til Bret- lands. Sendiherra Breta á íslandi tók á móti prinsinum. Prinsinn flaug að venju flugvél konungs- fjölskyldunnar. 1 1 j if 1 Wffig; § 1 Þátttakendur i keppninni fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980. (ljósmynd Kristinn). Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980: 17 ára ljósmynda- fyrirsæta ber sigurafhólmi Á sunnudag var fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980 kjörin úr hópi 8 keppenda og fór krýningin fram á Hótel Sögu um kvöldið. Það var Unnur Steinsson sem varð fyrir valinu að þessu sinni og var það samdóma álit dóm- nefndarinnar. í öðru sæti var tris Hreinsdóttir cn þriðja Svava Jo- hansen. Keppnin um titilinn fulltrúi ungu kynslóðarinnar er hæfiteika- keppni fyrst og fremst. Dómnefnd- in var skipuð: Ómari Einarssyni, Henný Hermannsdóttur, Ragnari Th. Sigurðssyni, Pétri Kristjáns- syni og Kristinu Bernhöft. Kepp- endur voru metnir eftir persónu- leika, hæfileikum og útliti. Fyrir keppninni stóðu Hljóm- plötuútgáfan, Vikan og Ferðaskrif- stofan Úrval. Voru fyrstu verðlaun 3ja vikna sólarlandaferð fyrir tvo hjá Úrvali, JVC kassettur og út- varpstæki frá Faco, 100 þús. kr. fataúttekt hjá Plaza og 50 þús. kr. úttekt hjá Hljómplötuútgáfunni. Önnur og þriðju verðlaun voru 50 þús. kr. fataúttekt hjá Plaza og 50. þús. kr. úttekt hjá Hljómplötuút- gáfunni. Unnur var fengin til keppninnar frá París en þar starfar hún sem ljósmyndafyrirsæta. Hún kom til landsins á föstudagskvöld en fer til Unnur Steinsson, fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980. (ljósm. Kristinn). að hún hafi haft töluvert fyrir sinni þátttöku. Morgunblaðið átti stutt spjall við Unni Steinsson og var hún fyrst spurð hvað hún vildi segja um sigur sinn í þessari keppni. „Mér finnst það mjög gaman að hafa orðið fyrir valinu, það er ekki á hverjum degi sem ég fæ slíka viðurkenningu", svaraði hún. Um keppnina sjálfa sagði Unnur að hún hefði verið erfið og mjög lítill Parísar aftur í dag og má því segja tími til undirbúnings. Hún telur að keppni sem þessi eigi fullan rétt á sér, og miklu fremur en hin hefðbundna fegurðarsamkeppni þar sem stúlkurnar eru eingöngu metnar eftir ytra útliti. Aðspurð um hvort henni findist að karl- menn ættu að taka þátt í slíkri keppni, svaraði hún: „Nei.“ og vildi ekki annað um málið segja. Unnur starfar sem ljósmynda- fyrirsæta hjá Chatrin Harlé í París en það er önnur af tveim stærstu umboðsskrifstofum París- ar í þessari grein. Hún segir að þetta sé erfitt starf og samkeppnin gífurleg. Samt sé þetta skemmtileg reynsla en freisti sín ekki sem framtíðarstarf. Unnur stundar nám við Verslunarskólann og ætl- ar að ljúka því námi en hyggur síðan helst á framhaldsnám í kerfisfræði við Háskóla íslands. Unnur Steinsson er 17 ára og hefur ekki tekið þátt í hliðstæðri keppni fyrr, en var nýlega útnefnd Karnivaldrottning Utsýnar 1980. Helstu áhugamál hennar eru: skíðaíþróttir, badminton, dans og ferðalög. í framhaldi af sigri sínum í þessari keppni mun Unnur taka þátt í alheimskeppni um fulltrúa ungu kynslóðarinnar í Manilla á Filippseyjum. Eftir krýninguna á Hótel Sögu. F.v. íris Hreinsdóttir sem varð önnur i keppninni, Unnur Steinsson fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980 og Svava Johansen, sem varð þriðja i keppninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.