Morgunblaðið - 10.06.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980
17
í sól og sumaryl bjóðum við
SÓISK1NSVERÐ * J
Á NÝJUM BÍIUM • :
CHRYSLER
Suðurlandsbraut 10. Simar 83330 - 83454
Við getum boðið fáeina DODGE ASPEN og PLYMOUTH VOLARE 2dr, 4dr og
station 1980, með sérstökum sólskinsafslætti ef samið er strax. Afslátturinn er
kr. 750 þús. á bíl. Bílarnir eru í deluxe útgáfu með 6 cyl. vél, sjálfskiptingu,
vökvastýri og aflhemlum. Þetta er einstakt tækifæri í ólgusjó verðbólgu og
gengisfellinga til aö eignast lúxusbíl á góðu verðl T.d. kostar 2dr bíllinn kr.
8.355.000, fyrir utan ryövörn, og 4dr kr. 8,660.000 miöað viö gengi 04.06.’80.
Sending af hinum eftirspuröa TALBOT SIMCA HORIZON 1980 er væntanleg
seinna í þessum mánuði og verða þeir einnig boönir með sérstökum
sólskinsafslætti til að mæta síhækkandi verðlagi. Verðiö á lúxusútgáfunum á
HORIZON verður frá ca. kr. 6.000.000 miöað viö gengið nú. Tryggið ykkur bíl úr
næstu sendingu í tíma.
UMBOÐSMENN: Bílasala Hinriks, Akranesi, Sniöill h.f., Óseyri 8,
Akureyri, Óskar Jónsson, Neskaupstað, og Friörik Óskarsson,
Vestmannaeyjum.
Við eigum einnig til á boöstólum hina margreyndu og sívinsælu TALBOT
SIMCA 1100 LE og GLS árgerð 1980 á einstöku sumarveröi, sem ekki stendur
lengi ef gengisfellingarstefnan fær aö ráöa. SIMCA 1100 er 4 dyra,
framhjóladrifinn fjölskyldubíll, sem er eini bíllinn á íslandi, sem fjórum sinnum
hefur orðið fyrstur í rallkeppnum. SIMCA er óvenjusparneytinn 4 cyl. btll, sem er
með sérstaklega varinn undirvagn og er 20 cm. undir lægsta punkt. Fáir
smábílar komast það sem SIMCA fer á íslenskum vegum og vegleysum. SIMCA
1100 LE 5dr. kostar kr. 5.110.000, án ryðvarnar, og 1100 GLS 5dr. kr.
5.798.000, miðað við gengi 04.06.’80.
Næsta sending af hinum eftirsótta og vinsæla DODGE OMNI 1980 kemur til
landsíns með M/S Berglind 17. júní nk. Nokkrum bílum er óráöstafaö. DODGE
OMNI er lítill 5 manna bíll með 4 cyl. vél, sjálfskiptingu, vökvastýri og öðrum
deluxe útbúnaöi. Tryggiö ykkur 4dr. OMNI eöa 2dr. 024. OMNI er lúxuslausn í
orkukreppu.
Katalóníumenn
koma með draum
Listahátið:
Els Comediants
á Lækjartorgi og víðar,
einnig í Þjóðleikhúsi.
Leikhópurinn Els Comediants
frá Barcelona hefur að mestu
snúið baki við hefðbundnu leik-
húsi, en iðkar í staðinn list sina
út um götur og torg. Á setn-
ingardegi Listahátíðar komu
þeir mörgum í gott skap á
Lækjartorgi. Leikaðferð þeirra
minnir á trúðleik, hið ýkta og
óvænta er kennimark þeirra. Að
mörgu leyti líkist tjáning þeirra
þýska leikhópnum sem var hér á
ferð á síðustu Listahátið.
Þjóðleikhúsið var eins og sirk-
ustjald daginn sem Els Comedi-
ants fluttu þar þátt sinn Sol
Solet, þar sem menn leita sólar-
innar, týna henni og.finna hana
aftur. Eftir ýmsar þrengingar er
Leikilst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
gleðin svo mikil yfir að hafa
endurheimt sólina að leikhúsið
nægir ekki heldur er haldið af
stað með leikhúsgesti í halarófu
út á göturnar til að fagna dýrð
lífsins. Það sem hefur ekki síst
eflt sýningar Els Comediants er
góða veðrið sem hefur fylgt þeim
alla daga. Á Lækjartorgi setn-
ingardaginn var engu líkara en
áhorfendur væru staddir á
Spáni: leikhópurinn og veðrið
sameinuðust um það.
Sol Solet er í raun einföld
sýning en ákaflega vel unnin.
Barátta fer fram á milli góðs og
ills. Öfl birtunnar og myrkursins
heyja stríð. Brugðið er á leik
með ýmsum táknum, skugga-
myndum á tjaldi og fleiru og
þannig er laðað fram hið barns-
lega og einlæga í lífinu. Það er
draumurinn sem þessir Kata-
lóníumenn færa okkur og vilja
láta okkur taka þátt í. Ekki er
auðvelt að ráða þessa drauma í
fljótu bragði, hér er á ferð
annars konar leikræn tjáning en
við þekkjum. En segja verður
það að áhrifin eru oft sterk þótt
stundum sé ekki öðru komið til
leiðar en minna okkur á gildi
trúðleiksins, barnið í okkur öll-
um.
Líklega hafa Els Comediants
höfðað mest til barna .með sýn-
ingum sínum og er það vel.
Koma þeirra hingað hefur verið
öllum til ánægju.