Morgunblaðið - 10.06.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980
21
Frábær leikur Teits
skaut Öster á toppinn
— skoraði tvö mörk er
Öster lagði Gautaborg 4—0
TEITUR Þórðarson átti stór-
kostlegan leik fyrir lið sitt
öster, er íslendingaliðin öster
og Gautaborg áttust við á
heimavelli öster. Stórsigur öst-
er kom nokkuð á óvart vegna
þess að Gautaborg hefur sýnt
mjög góða leiki það sem af er
mótinu. En Teitur var óstöð-
vandi, hann skoraði tvö af
mörkum öster og átti allan
heiðurinn af því þriðja. Er
þetta i fyrsta skiptið sem Teitur
skorar tvö mörk í leik í sænsku
knattspyrnunni og voru um
9000 manns vitni að þvi. Staðan
í hálfleik var 3—0 og var
ieikmönnum klappað lof i lófa
er þeir gengu til búningsklefa.
Knattspyrna 1
Að sögn sænskra blaða og
útvarps, átti Þorsteinn Ólafsson
ekki einn af sínum betri dögum
þó naumast sé hægt að saka
hann einan um tapið. Vörn
Gautaborgar var sem gatasía.
Þorsteinn hefði átt að koma í
veg fyrir fyrsta mark Öster, en
hin þrjú, þ.á.m. bæði mörk Teits,
voru óverjandi með öllu. Öster er
nú í efsta sæti sænsku deildar-
innar ásamt Malmö FF með 15
stig. Hefur Öster aðeins fengið á
sig 2 mörk í 10 fyrstu leikjunum
og er það með ólíkindum. Úrslit
urðu annars sem hér segir.
Elfsborg—Kalmar 1—2
Halmstad—Hammarby 2—4
Landskrona—Mjallby 0—1
Norrköping—Malmö FF 3-0
Sundsvall—Atvidaberg 2-0
Öster—Gautaborg 4-0
Dj urgarden—Brage 2-1
Það gengur allt á afturfótun-
um hjá Landskrona. Liðið tapaði
sínum sjötta leik í röð og er
neðst, eftir að hafa verið í efsta
sætinu eftir þrjár umferðir.
Landskrona lék að vísu betur
gegn Mjallby heldur en í siðustu
leikjum og miklu betur en gegn
Malmö í síðustu viku, en sá
leikur tapaðist 0—4. Engu að
síður varð tap hlutskipti Lands-
kronu. Eina mark leiksins skor-
aði Frank Worthington enski
miðherjinn kunni sem skoraði
bæði mörk úrvalsliðs Bobby
Charlton á Laugardalsvellinum
gegn íslenska landsliðinu fyrir
fáum árum. Komst Worthington
einn inn fyrir vörn Landskronu
og skoraði fram hjá Árna Stef-
ánssyni sem freistaði þess að
verja með úthlaupi.
í 2. deild gerðu Kristianstad
og örgryte bæði jafntefli á
útivöllum, 1—1 gegn Hacken og
IFK Malmö. Jönköping tapaði
heima fyrir Sleipner 0—1,
Grimsás með sömu tölu heima
fyrir Helsingör og loks tapaði
Forward heima fyrir Eskiltuna
1—2. Það má því segja, að þetta
hafi ekki verið dagur íslend-
inga-liðanna í heiid, þó að dæm-
ið hafi gengið upp hjá Teiti. Það
er athyglisvert í suðurdeildinni,
þá munar aðeins tveimur stigum
á efsta liðinu og því liði sem er í
tíunda sæti. HH Svíþjóð.
Hannes fór holu í höggi
- og sigraði á P. Robert mótinu
HANNES Eyvindsson sigraði
naumlega á Pierre Robert golf-
mótinu sem fram fór á Nesvell-
inum um helgina. í leiðinni
gerði hann sér lítið fyrir og fór
hoiu i höggi. Gerði hann það á
3. braut og hjálpaði það að
sjálfsögðu mikið, þvi að
Hannes varð að vinna upp
nokkuð forskot Sveins Sigur-
bergssonar. Keppt var i all
mörgum flokkum og urðu úrslit
sem hér segir. En áður skulum
við renna yfir hverjir eru efstir
i stigakeppninni til landslið-
sins. Hannes Eyvindsson
102,50, Sveinn Sigurbergsson
87,80, Óskar Sæmundsson
59,30, Geir Svansson 39,80, Sig-
urður Pétursson 37,40, Þor-
björn Kjærbo 32,50, Sigurður
Hafsteinsson 32,40, Björgvin
Þorsteinsson 28,40, Jón Guð-
laugsson 26,70. Gylfi Kristins-
son 25,50 og Hilmar Björnsson
24,00.
Hér koma siðan úrslit á
Pierre Robert mótinu:
Meintaraflokkur (forsj. undir 7).
Hannes Kyvindsson, GR 151
Sveinn SÍKurberKsson, GK 152
óskar Sæmundsson. GK 152
Gylfi Kristinsson, GS 153
Geir Svansson, GR 153
SigurAur Hafsteinsson, GR 154
Hilmar Björtfvinsson, GS 155
Loftur Öiafsson, NK 155
BjörKvin Þorsteinsson, GA 155
ólafur Skúiason, GR 158
Meistaraflokkur (for^j. 7—23).
Tómas Holton, NK 75
ólafur Skúlason, GR 76
ólafur Á. Þorsteinsson, GK 78
Jón ÖKmundsson. NK 79
Sifturður Ág. Jensson, GR 79
Hilmar Steingrimsson, NK 79
Jóhann Benediktsson, GS 79
Meistarafl. 7—23 með forgj.
Jón öxmundsson, NK 63 nettó
Sitfurður Ák. Jensson, GR 64 nettó
InKólfur Isebarn, GR 67 nettó
Þórir Sæmundsson, GR 67 nettó
Kvennaflokkur
Jakobina (lUðlauKsdóttir. GV 85
Kristin Þorvaldsdóttir, GK 87
Guðfinna SÍKurþórsdóttir, GS 87
Sjðfn Guðjónsdóttir, GV 88
Steinunn Sæmundsdóttir, GR 90
ÁsKerður Sverrisdóttir. GR 90
SÍKrún RaKnarsdóttir, GR 91
Lóa SÍKurbjörnsdóttir. GK 96
Kvennafl. með íorKjöf
Guðfinna SÍKurþórsdóttir, GS 69 nettó
Sjöfn Guðjónsdóttir. GV 70 nettó
Steinunn Sæmundsdóttir. GR 72 nettó
DrenKjaflokkur
HpIkí ólafsson, GR 75
Héðinn SÍKurðsson, GK 77
Jón örn SÍKurðsson, GR 77
ívar Hauksson, GR 77
Gisli SÍKurberKsson. GK 78
Úlfar Jónsson, GK 81
Karl ó. Karlsson, GR 82
Guðmundur Arason, GR 82
Hörður Arnarson. GOS 83
Ásgeir Guðbjartsson. GK 83
UnKlinKaflokkur
Frans P. SÍKurðsson, 74
Kristján Hauksson 81
ólafur Oddsson 105
Óskar Jakobsson kominn yfir tuttugu metra i kúluvarpinu. Óskar
náði frábærum árangri á bandaríska meistaramótinu i frjálsum
iþróttum sem fram fór um helgina, óskar varð annar i kúluvarpi
og þriðji i kringlukastinu. Ljósmynd Mbl. — ÞR.
Óskar kastaði
yfir 20 metra
óskar Jakohsson náði frábær-
um árangri i kúluvarpi á
bandariska meistaramótinu i
frjálsum iþróttum sem fram fór
um helgina. Óskar varð annar i
kúluvarpi náði sinum besta
árangri til þessa kastaði 20,21
metra. Og varð þriðji í kringlu-
kastinu kastaði 61,14 metra.
Hreinn Halldórsson varð í
þriðja sæti i kúluvarpinu
kastaði 19,91 metra. Hreinn
varð fyrir þvi óhappi að togna
illa i baki i fyrsta kasti sinu og
gat ekki beitt sér sem skyldi i
keppninni.
Sigurvegari í kúluvarpinu
varð blökkumaður að nafni Cart-
er, kastaði 20,40 metra. Svíinn
Göran Svensson sigraði í
kringlukastinu kastaði 61,72
metra. Frábær árangur náðist í
flestum greinum á mótinu. Sig-
urvegari í 100 m hlaupi varð
Floyd hljóp á 10.0 sek. Maree
sigraði í 1500 m hlaupi á 3,38,64
mín, Jeff Woodard jafnaði
bandaríska metið í hástökki
stökk 2,32 metra. Sigurvegarinn
í langstökki stökk 8,35 metra svo
nokkur afrek séu nefnd.
Ekki tókst blaðinu að ná
sambandi við Óskar í gær, en
hann mun vera væntanlegur til
landsins á sunnudag. Hreinn
Halldórsson kom til landsins í
gærdag og sagðist hann hafa
haft mjög gott af dvöl sinni
vestra, en þar hefur hann dvalið
í fimm mánuði. Hreinn sagðist
ætla að taka það rólega hér
heima á næstunni og stefna að
því að fá sig góðan af meiðslun-
um sem hann hlaut í bakinu.
Hreinn sagði að mikill hiti um
35 stig og raki hefðu gert ýmsum
erfitt fyrir á meðan á mótinu
stóð. Tuttugu keppendur hófu
keppni í kúluvarpinu en 12
komust í úrslit. Háskóli Hreins
hafnaði í sjötta sæti á mótinu.
Hreinn sagðist stefna að
Olympíuleikunum og það væri
næsta stórmót hjá sér. — þr.
Staðan í 1. deild
STAÐAN í 1. deild eftir leiki
helgarinnar er þessi:
Vaiur - ÍBV 7:2
ÍBK — Fram 0:0
Víkingur - UBK 1:2
FH - KR 1;2
Þróttur — ÍA 1:1
Fram 5 4 1 0 5:0 9
Valur 5 4 0 1 17:5 8
ÍBK 5 2 2 1 6:5 6
ÍA 5 2 1 2 4:6 5
UBK 5 2 0 3 8:9 4
Víkingur 5 1 2 2 5:6 4
KR 5 2 0 3 3:6 4
ÍBV 5 2 0 3 5:10 4
Þróttur 5 113 3:4 3
FH 5 113 7:11 3
Markhæstir eru:
Matthias Hallgrímsson Val 7
Ingólfur Ingólfsson UBK 4
Sigurður Grétarsson UBK 3
Ólafur Danivalsson Val 2
Magnús Teitsson FH 2
Sigþór ómarsson ÍA 2
Pétur Ormslev Fram 2
Albert Guðmundsson Val 2
Magnús Bergs Val 2
Heimir Bergsson FH 2
Steinar Jóhannsson IBK 2
Allt í
járnum í
sundboltanum
ÍSLANDSMÓTIÐ í sund-
knattleik hófst á föstudags-
kvöldið og hafa farið fram
þrír leikir. Fjögur lið keppa
á íslandsmótinu. KR, Ægir,
Sundfélag Hafnarfjarðar og
Ármann.
í fyrsta leik mótsins sigr-
aði KR Ægi 10-8. KR-ingar
töpuðu síðan fyrir Ármenn-
ingum 6—7 í spennandi leik.
Loks vann Ægir nýliðana,
Sundfélag Hafnarfjarðar
9-6.
• «
Völsungar
á toppnum
Völsungarnir frá Húsavik
fara brátt að teljast „spútn-
iklið“ t 2. deild. Liðið kom
upp úr 3. deild á siðasta
keppnistimabili og eftir
þrjár umferðir i lslandsmót-
inu i 2. deild. hefur liðið
forystu með fullt hús stiga.
Og það sem meira er. liðið
hefur ekki fengið á sig eitt
einasta mark. Um helgina
fékk liðið Selfoss i heimsókn
og sigraði örugglega 2—0,
eftir að staðan i hálfleik
hafði verið 1—0.
Það er skemmst frá að
segja að heimaliðið var mun
sterkari aðilinn á vellinum og
sigurinn sanngjarn í sam-
ræmi við það. Framherjar
liðsins fóru illa með nokkur
góð tækifæri, en Selfyssingar
hins vegar ekki. Það var
vegna þess að þeir fengu
hreinlega engin færi. Mið-
vörðurinn sterki ómar Eg-
ilsson, sem áður lék með
Fylki, kom liði sínu á bragðið
með góðu marki og Gísli
Haraldsson innsiglaði sigur-
inn með marki sinu i síðari
hálfleik.
Staðan í 2 deild eftir 3
umferðir er þessi:
Völsungur 3 3 0 0 4—6 6
ísafjörður 3 2 1 0 7—64 5
KA 2 110 5-1 3
Haukar 3 111 5-6 3
Þór 1 1 0 0 3-0 2
Fylkir 3 111 3-3 3
Þróttur 2 10 1 4-4 2
Ármann 3 0 1 2 3—7 1
Selfoss 3 0 1 2 3-6 1
Austri 2 0 0 2 1—3 0
Rifjað upp
til glöggvunar
Eitthvað skolaðist tii frá-
sögn Mbl. af leik Austra og
Þróttar sem fram fór á
Norðfirði á föstudagskvöld-
ið. Skulu helstu punktarnir
rifjaðir hér upp til glöggv-
unar á þvi sem fram fór.
Björgúlfur Halldórsson
náði forystunni fyrir Þrótt á
15. minútu leiksins og
nokkru síðar átti Þróttur.
möguleika á að komast i
2—0. en Benedikt markvörð-
ur Austra varði þá vel víta-
spyrnu. Hjálmar Ingvarsson
skoraði glæsilegt mark fyrir
Austra i siðari hálfleik. en
sigurmark Þróttar skoraði
siðan Bjarni Jóhannesson úr
vafasamri vitaspyrnu þegar
skammt var til leiksioka.