Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 44

Morgunblaðið - 10.06.1980, Page 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 25 Fjölmennasta fimleikamótið sem fram hefur farið til þessa VORMÓT F.S.Í. fór fram í íþróttahúsi Glerárskóla Akureyri lauKarda^inn 31. mai sl. Fimleikaráö Í.B.A. sá um framkvæmd mótsins, sem er hið fjölmennasta sem haldiÖ hefur veriÖ, eöa 90 manns. Keppt var í þrem greinum pilta, fjórum aldursflokkum, einum aldursflokki stúlkna ok auk þess æfingakeppni eins aldursflokks stúlkna á Akureyri. l>á voru sýndar og kynntar ýmsar fimleikaæf- ingar erfiðari en þær sem keppt var í . Einnig sýndu 6 stúlkur úr Fylki, Reykjavik jassleikfimi. ÍJrslit vormótsins voru þessi: Stúlkur 12 ára <>k ynKri: Stokk: 1. IK>ra Sií Óskarsdóttir (ierplu 4.85 2. Illif IsírKPÍrsd. Gerplu Is.runn SÍKuróard. Björk 1.S0 Jóhanna Rúnarsd. Björk 3. VilhorK Víöisd. Gerplu 1.00 Slá: 1. Illlf PorKoirsd. Gerplu 0.2 2. Ásthildur Guömundsd. Björk 1.8 3. borhjörK Kristjánsd. Gerplu 4.35 Tvislá: 1. Illif ÞorKeirsd. Gerplu 15 2. VilborK Viöisd. Gerplu I I 3. PorhjörK Kristjánsd. Gerplu 3.0 Gólf: 1. Illif IxirKeirsd. Gerplu 5.1 2. Jóhanna Kúnarsd. Björk 5.0 3. VilborK Víöisd. Gerplu 1« I*iltar 12 ára <>k ynKri: Dýna: 1. Arnór I>ieK» Armann 0.1 2. Axel BraKas. Ármann 0.1 3. E|(K?rt Guömundsson Ármann 5.9 IlrinKÍr: 1. Axel BraKHson Ármann 5.2 2—3 EKK?rt Guömundsson Ármann 5.0 2—3 Porvaldur Haröarson Ármann 5.0 Stökk: 1. hÍKKert (.uömundsson Ármann 7.1 2. Arnór I)ieK» Ármann 5.0 3. Stefán Stefánsson ÍBA 1.9 Piltar 13—11 ára: Gólf: 1. t>ór Thorarensen Ármann 0.0 2—3 InKÓlfur BraKHson Ármann 0.0 2—3 Guöjón Gislason Fylki 0.0 llrinKÍr: 1. I*ór Thorarensen Ármann 0.3 2. (fUÖjón Gislason Fylki 5.8 3. InK»lfur BraKH.son Ármann 1.2 Stókk: 1. W>r Thorarensen Ármann 7.2 2. Iljálmar Hjálmarss. Ármann 7.0 3. InKÓlfur BraKHson Ármnnn 0.8 Piltar 15-16 ára: Gólí: 1. Kristján Ársælss. Fylki 0.1 2. Atli Thorarensen Ármann 0.3 3. ÁsKeir Þorbjörnss. ÍBA 5.7 IlrinKÍr: 1. Atli Thorarensen Ármann 0.3 2. Guömundur Stefánsson ÍBA 0.0 3. ÁsKeir Þorbjörnss. ÍBA 5.9 Stökk: 1. Atli Thorarensen Ármann 7.0 2. ÁsKeir Þorbjörnsson ÍBA 6.0 3 —4 Guömundur Stefánsson ÍBA 6.5 3—4 Kristján Ársælss. Fylki 6.5 Piltar 17 ára <>k eldri: Gólf: 1. Jónas TryKKvas. Ármann 8.9 2. Ileimir Gunnarsson Ármann 8.8 3. Davíö InKHson Ármann 7.2 IlrinKÍr: 1. Jónas TryKKVHson Ármann 8.5 2. Heimir Gunnarsson Ármann 8.0 3. Davíð InKHson Ármann 7.2 Stökk: 1. Heimir Gunnarss. Ármann 8.8 2. Jónas TryKKvason Ármann 8.6 3. Davlð InKHson Ármann 7.7 Til Akureyrar fóru samtals 83 og skiptist hópurinn í keppendur frá Ármanni, Fylki og K.R. Reykja- vík, fimleikafélaginu Björk Hafn- arfiröi og Gerplu Kópavogi, þjálf- ara, dómara og fararstjóra. Gist var í Glerárskóla við góðan aðbún- aö. Ferðin gekk mjög vel, aöstaða Akureyringa góð og einkar ánægjulegt að hægt sé að halda fimleikamót með svo góðum áhöldum sem raun er á hjá Akureyringum. Móttaka og fyrir- greiðsla Fimleikaráðs Akureyrar var prýðileg og áhorfendur fjöl- margir. Stúlkur 13 árn <>k eldri.samanlaKt: 1. Arna Einarsd. ÍBA 7.75 2. Hafdis HallKrimsd. ÍBA 7.60 3. Guörún I. MaKnúsd. ÍBA 6.95 • Á fimleikamótinu á Akuroyri kepptu 90 manns og fór mótiö vel fram. Einkunnagjöfin „Höfðum gaman af þessu“ — sagði Hermann Gunnarsson LIÐ VALS: Ólafur Magnússon 6 Þorgrímur Þráinsson 7 óttar Sveinsson 7 Sævar Jónsson 8 Magnús Bergs 8 Guðmundur Þorbjörnsson 8 Albert Guðmundsson 8 Matthias Hallgrimsson 7 Hermann Gunnarsson 8 Þorsteinn Sigurðsson 6 Jón Einarsson 7 Magni Pétursson 7 LID ÍBV: Páll Pálmason 5 Þórður Hallgrímsson 6 Gústaf Baldursson 6 Snorri Rútsson 6 Jóhann Georgsson 4 Óskar Valtýsson 4 ómar Jóhannesson 4 Sveinn Svcinsson 5 Hreggviður Ágústsson 5 Sighvatur Bjarnason 4 Sigurlás Þorleifsson 6 Karl Þorleifsson (vm)4 Einir Ingólfsson (vm)4 Dómari: Guðmundur Ilaraldss. 8 — ÉG LÉK síðast í íslandsmót- inu í knattspyrnu árið 1976, og þá með einu besta liði sem Valur hefur átt, sagði Hermann Gunn- arsson eftir leik Vals og ÍBV og hélt áfram: — Það er stórkostlegt að vera kominn í hópinn aftur. Strákarnir hafa tekið mér alveg einstaklega vel. Það var réttur andi í liðinu fyrir þennan leik. Allir voru ákveðnir í að standa sig og um leið að hafa gaman af þessu. Leika góða knattspyrnu. Það tókst. Þá fórum við í einu og öllu eftir þjálfaranum. Var ekki gaman að skora aftur? Jú, stórkostlegt. Ég hélt satt best að segja að ég væri búinn að gleyma því hvernig ætti að skora mörk. Én aðalatriðið er að allt gangi upp og það er ekki síður gaman að leggja upp mörk fyrir félaga sína í leiknum, sagði Her- mann að lokum. En hann skoraði sitt 95. mark í deildarleik á móti ÍBV. - ÞR * Þessi mynd er einkennandi fyrir leik Vals og lBV. fjórir leikmenn iBV reyna að bjarga á marklínu. Ef vel er skoðað má sjá boltann fyrir miðri mynd milli fóta leikmanna ÍBV. Ljósmynd Kristján Einarsson. íslandsmeistarar ÍBV teknir í kennslustund hjá Valsmönnum SÍÐASTLIÐINN laugar- dag íór fram á vpgum listahátíðar sýning jap- anska listamannsins Tan- aka á hreyfilist í Laugar- dalshöllinni. Hófst sýning hans kl. 15.00. Klukku- stund áður hófst sýning knattspyrnuliðs Vals á hreyfilist með fótbolta á knattspyrnuvellinum í Laugardal. Var sú sýning ekki á vegum listahátíðar. En Valsmenn hafa lagt sitt af mörkum til listahátíðar- innar í ár með sannkölluð- um sýningarleik í knatt- spyrnu. Þeir tóku núver- andi íslandsmeistara i kennslustund og léku þá svo illa að ekki stóð steinn yfir steini í liði þeirra. Og var þeim vorkunn er stað- an var orðin 6—0. Senni- lega verður það fastur liður á listahátíð í framtíð- inni að knattspyrnulið Vals sýni stórleik. Fyrir nákvæmlega fjórum árum. er listahátíð stóð yfir eins og nú. sigruðu Valsmenn lið ÍA, þáverandi ís- landsmeistara, 6—1, og lét einn leikmaðurinn er lék með þá og var reyndar líka með á laugardag, Iler- mann Gunnarsson, þau orð falla að þetta væri framlag Vals til listahátíð- ar það árið. Og svo sannar- lega er framlag Vals til listahátíðar í ár komið á daginn. Albert kom félögum sínum á bragðið: Það er Valsveður í dag heyrðist einn áhorfenda segja er hann var á leiðinni á völlinn á laugardag, og hann bætti við, strákarnir í Val ná alltaf toppleik við svona aðstæður. Og hann reyndist sannspár. í sólinni og blíðunni á laugardag kom það strax í ljós í byrjun leiksins að mikill hugur var í leikmönnum Vals. Þeir létu bolt- ann ganga mjög vel á milli sín, dreifðu spilinu vel út á kantana og pressuðu stíft á Eyjamenn. Aðeins átta mínútur voru liðnar af leikn- um er fyrsta markið kom. Albert Guðmundsson skoraði með tilþrif- um. Albert skaut þrumuskoti af um 25 metra færi og hafnaði boltinn í stönginni og inn. Óverjandi skot fyrir Pál Pálmason í marki ÍBV. Forsmekkurinn í leiknum var fenginn. Valsmenn héldu áfram að sækja og léku af hreinni snilld. Sérstaklega var miðvallarspil þeirra gott. Fyrstu 20 mínútur leiksins var um hreina einstefnu að ræða að marki ÍBV. Á 30. mínútu leikins fá Vals- menn aukaspyrnu rétt utan við hliðarlínu vítateigsins. Hermann Gunnarsson framkvæmdi spyrn- Valur - O ÍBV /“L una mjög vel. Sendi boltann vel fyrir markið beint á kollinn á Magnúsi Bergs sem skallaði kröft- uglega í netið. Staðan 2—0. Tíu minútum síðar kom svo þriðja markið. Eftir fyrirgjöf nær Matt- hías Hallgrímsson að skalla í netið en einn leikmanna ÍBV slæddi hendi í boltann áður og dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Guð- mundur Þorbjörnsson tók spyrn- una og skoraði en Páll Pálmason gerði góða tilraun til að verja og var mjög nálægt því að handsama boltann. Staðan í leikhlé var því 3-0. Valsmenn bættu við sig og , yfirspiluðu ÍBV: Eftir góðan fyrri hálfleik og örugga forystu í leiknum, mætti ætla að Valsmenn héldu í horfinu, en þeir komu tvíefldir til leiks í síðari hálfleiknum og léku þá enn betur en í þeim fyrri. Yfirspiluðu þeir lið IBV algjörlega og voru þeim fremri á öllum sviðum. Aðeins tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum þegar fjórða mark leiksins kom. Jón Éinarsson brunaði upp kantinn, gaf vel fyrir markið og þar kom kempan Her- mann Gunnarsson á fullri ferð og skoraði með föstu skoti fallegt mark. Var þetta fyrsta mark Hermanns í 1. deild í sumar en áreiðanlega ekki það síðasta. Jafn- framt var þetta 95. mark Her- manns frá upphafi leikferils hans í 1. deild. Skömmu síðar voru Eyjamenn næstum búnir að skora sjálfs- mark, en Páll var á réttum stað og bjargaði. Hver sóknin af annarri dundi á marki ÍBV og hvert tækifærið af öðru rak á fjörur Vals. Næstur til að skora var Matthías Hallgríms- son, á 60. mín. Góð sóknarlota hjá Val endaði með fyrirgjöf frá Alberti inn á Matthías sem var í góðu færi og hann nýtti sér það vel og skoraði fallega. Staðan 5-0. Albert Guðmundsson sem átti mjög góðan leik var enn á ferðinni á 69. mínútu. Há sending kom fyrir markið frá Alberti fyrir markið og Sævar Jónsson stökk upp og náði að skjóta mjög laglega í markið. Var þetta mark Sævars eitt það fallegasta í leiknum. Staðan 6—0. Næstu mínúturnar rak hvert dauðafærið af öðru við mark ÍBV og oft var bjargað naumlega. Valsmenn fóru aðeins að slaka á og vörn þeirra ver ekki vel á verði þegar ÍBV náði skyndi- sókn á 79. mínútu og Gústaf kom liði sínu á blað með því að renna boltanum í net Vals eftir góða fyrirgjöf. Var Gústaf óvaldaður á markteig er hann fékk boltann. Þessu marki undu Valsmenn greinilega illa, því að þeir hófu stórsókn sem endaði með marki frá Alberti, hans annað mark í leiknum. Skoraði Albert með þrumuskoti eftir góða sendingu frá Matthíasi. • Þessi bráðskemmtilega myndasyrpa sýnir okkur aðdragandann að oðru marki Vals. Matthías Hallgrimsson (nr. 4) fyrir miðri mynd skallar að marki ÍBV, einn varnarmaður reynir að bjarga með hendinni. sner.tir holtann og dæmd er vitaspyrna nokkuð óvænt þar sem boltinn small í netinu eins og sjá má og llermann og Matthias fagna markinu. Guðmundur Þorhjörnsson fyrirliði Vals skoraði svo úr vítaspyrnunni. „Lió ÍBV fór aldrei í gangM GUÐMUNDUR Þorbjörnsson fyrirliði Vals sagði eftir leikinn að í hinu alkunna Valsveðri væri gott að leika knattspyrnu. og liðið hefði náð sér vel á strik. Það á betur við okkur að leika á neðri vellinum heldur en á Valhjarn- arvollum, þar náum við ekki góðum leik. Þá viljum við að Listahátiðin takist vel og leggj- um okkar af mörkum. sagði Gupmundur og ljómaði eins og tungl i fyllingu af ánægju með hinn stóra sigur. Þjálfari ÍBV sagði að lið sitt hefði aldrei farið í gang í leiknum og lið Vals verið langtum betri aðilinn. Við vorum á hlaupum allan tímann án þess þó að vera í boltanum. Þórður Hallgrímsson sagði að leikmenn hefðu aldrei náð að komast í samband við leikinn. Leikmenn hefðu verið í mikilli vinnu að undanförnu og væru þreyttir. Þá eru mikil meiðsli í liðinu og það háir okkur. En bæði Þórður og Viktor voru langt frá því svartsýnir á næstu leiki ÍBV. Staða okkar er ekki verri nú en í fyrra sagði Viktor. — ÞR Á síðustu mínútu leiksins fékk svo markakóngur íslandsmótsins í fyrra, Sigurlás Þorieifsson, stunguboltann inn í vörn Vals, braust í gegn og skoraði örugg- lega. Lokastaðan varð því 7—2. Sjaldan sem níu mörk eru skoruð í 1. deildarleik í knattspyrnu. Snilldartaktar hjá Val: Lið Vals lék sinn langbesta leik um langt skeið. Allir leikmennirn- ir stóðu sig frábærlega vel. Það sem fyrst og fremst einkenndi lið Vals í þessum leik var samvinna leikmanna. Boltinn var látinn vinna. Leikmenn féllu ekki í þá gryfju að reyna einleik, heldur gáfu boltann fljótt og vel frá sér. Þá var mikill hreyfanleiki í liðinu og leikmenn léku sig mjög vel fría til þess að taka á móti sendingum. Oft vill bera á eigingirni er leikmenn eru komnir í góð mark- tækifæri. Það sást ekki hjá Val. Allir voru greinilega að leika fyrir liðsheildina. Enda lét árangurinn ekki á sér standa. Lið Vals lék 4—3—3 og úrslit leiksins sýna árangurinn. Það er erfitt að gera upp á milli leikmanna í liði Vals. Það var fyrst og fremst sterk liðsheild sem var á bak við þennan stóra sigur. Guðmundur Þorbjörnsson og Albert Guðmundsson áttu stórleik á miðjunni. Hermann Gunnarsson sýndi snilldartakta og átti mjög góðan leik. Margar sendingar hans voru eins og þær gerast bestar. Sannarlega ánægjulegt fyrir Hermann eftir að hafa ekki keppt í knattspyrnu í þrjú og hálft ár. Magnús Bergs og Sævar Jóns- son léku eins og þeir sem valdið hafa og voru eins og klettar i vörninni þegar á þá reyndi. Magni kom vel frá leiknum svo og Jón Einarsson. Þorgrímur Þráinsson er traustur leikmaður sem gerir sig varla sekan um skyssu í leik. Yfirvegaður og ört vaxandi leik- maður. Þá kemur Óttar mjög vel frá bakvarðarstöðunni. Sem sagt, valinn maður í hverri stöðu, og margir góðir leikmenn á vara- mannabekknum sem bíða færis til að sýna hvað í þeim býr. Ekki dagur ÍBV: Lið ÍBV átti ekki góðan dag. En leikmenn þess reyndu þó lengst af að reyna að berjast en allt kom fyrir ekki. Það var meira um hlaup en kaup hjá þeim að þessu sinni. Sérstaklega var varnarleik- urinn hjá liðinu mistækur að þessu sinni. Þá voru leikmenn óvenju seinir í alla bolta. En það kemur dagur eftir þennan slæma dag og þá er bara að gera betur næst, og lið ÍBV á eftir að fá Valsliðið til Eyja og þar hafa þeir harma að hefna. Liðið getur nefni- lega svo mikið meira en það sýndi á laugardaginn. Erfitt er að gera upp á milli einstakra leikmanna í liðinu að þessu sinni. Það var greinilega skarð fyrir skildi að Tómas Pálsson lék ekki með, var meiddur. I stuttu máli: íslandsmótið í 1. deild, Laugardalsvöllur: Valur—ÍBV 7—2 (3-0). Mörk Vals: Albert Guðmunds- son á 8. og 84. mín. Magnús Bergs á 30. minútu. Guðmundur Þor- björnsson úr vítaspyrnu á 40. mínútu. Hermann Gunnarsson á 47. mínútu. Matthías Hallgríms- — ÞETTA er besti leikur Vals undir minni stjórn sagði Volker þjálfari liðsins eftir leikinn. Það gekk allt upp hjá okkur sem við vorum að reyna. Þá léku allir leikmenn liðsins mjog vel. Ég hef breytt um leikskipulag og það tókst vonum framar. Það var einna helst að leikmenn Vals skorti einbeitni undir lok leikins þegar staðan var orðin G—0. Voíker sagði jafnframt að hann son á 60. mínútu, Sævar Jónsson á 69. mínútu. Mörk ÍBV: Gústaf Baldvinsson á 79. mínútu og Sigurlás Þorleifsson á 90. mínútu. Áhorfendur: 1566. Gult spjald: Enginn. Dómari Guðmundur Haraldss- on og dæmdi hann leikinn mjög vel - ÞR. Groningen og Wageningen fóru í 1. deild HOLLENSKU knattspyrnunni lauk formlega um helgina með úrslitakeppni efstu liða i 2. deild. I Hollandi flyst efsta lið 2. deildar upp i 1. deild. en þau lið sem verða í öðru og þriðja sæti leika úrslitaleik um laust sæti. Groningen varð meistari i 2. deild, en um lausa sætið léku Wageningen og SC Cambuur. Wageningen sigraði mjög örugg- lega 4—0. Liðin sem féllu niður voru Haarlem og Vitesse Arn- hem. óskaði eftir því að það ka mi fram að sér hefði fundist að Sævar Jónsson hefði fengið ósanngjarna dóma fyrir landsleikinn á móti Wales hjá blaðamönnum. Þetta hefði verið hans fyrsti landsleik- ur og taka yrði tillit til þess. Auk þess hefði Sævar verið Uppálagt að leika eins og hann gerði að elta manninn langt út á völlinn. — ÞR íslandsmðtlð 1. delld „Besti leikur Vals undir minni stjórn“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.