Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 23

Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1980 31 Viðræðunefndir um sameiningu Landsvirkjun ar og Laxárvirkjunar VIÐRÆÐUNEFNDIR um sam- eininKU Landsvirkjunar ok Lax- árvirkjunar komu nýlega saman til sins fyrsta fundar. Þessar viðreeðunefndir voru skipaðar aí eignaraðilum Landsvirkjunar og Laxárvirkjunar i framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar Akur- eyrar frá i nóvember á siðasta ári. í samþykkt bæjarstjórnar- innar kemur fram að það er ósk hennar að þessi tvö fyrirtæki verði sameinuð í samræmi við lög frá árinu 1965, en áður verði reynt að ná samkomulagi um sameÍKnarsamning og eignar- hlutdeiid. Áður hafði borgar- stjórn Reykjavikur hafnað til- lögu að samningi um sameiningu fyrirtækjanna tveggja. Hjörleifur Guttormsson, iðnað- arráðherra, sagði á blaðamanna- fundi í vikunni að þessi sameining, sem nú væri til umræðu, væri ekki á sama grundvelli og tillagan, er felld var í borgarstjórn Reykjavík- ur gerði ráð fyrir, en þetta gæti þó verið spor í þá átt. Dr. Jóhannesi Nordal, formanni stjórnar Landsvirkjunar, hefur verið falið að hafa forystu fyrir þessum viðræðum en í viðræðu- nefndunum eiga sæti auk hans sem fulltrúar Akureyrarbæjar Jón G. Sólnes, Ingólfur Árnason og Valur Arnþórsson og Helgi M. Bergs. Af hálfu borgarráðs Reykjavíkur Sigurjón Pétursson, Björgvin Guðmundsson, Birgir ísl. Gunnarsson, Albert Guðmunds- son og Kristján Benediktsson. Af hálfu ríkisins eiga sæti í nefndinni Pálmi Jónsson, Baldvin Jónsson, Helgi Bergs, Tryggvi Sigurbjarn- arson og Páll Flygenring. AUGtVSINGASTOFA MYNDAMÓTA Aðalstræti 6 sími 25810 Ályktun stjórnar SAFF: „Innan örskamms tíma verður greiðslufair í ÁLYKTUN stjórnar Félags Sambands-fiskframleiðenda. SAFF, sem haldinn var i gær, segir m.a.: Að innan skamms verði greiðslufall, því alvarlegra sem lengra líður. Stjórn hvetur sambandsfrystihúsin hvert fyrir sig að skoða f járhagsstöðuna vel og gera allar nauðsyniegar ráð- stafanir til þess að hætta rekstri áður en greiðslufall verður orðið svo alvarlegt, að ekki sé hægt að greiða fyrir nauðsynlegustu að- föng og þjónustu. Ályktunin i heild er svohljóðandi: „Stjórnarfundur haldinn í Reykjavík mánudaginn 9. júní 1980 bendir á að samkvæmt bein- um framreikningi Þjóðhagsstofn- unar má búast við 10% halla að meðaltali á rekstri frystihúsa eftir þær kostnaðarhækkanir sem orðið hafa nú síðustu daga. Við þetta bætist að í þessum tölum eru vextir vanreiknaðir og eins hitt að vegna sölutregðu afurða eykst vaxtabyrðin á næstu mánuðum. Þá er uppistaðan í aflanum nú fisktegundir sem eru miklu óhagstæðari til vinnslu en að meðaltali. Vegna sölutregðu á dýrari framleiðsluvörum verður einnig í mörgum tilfellum að beina framleiðslunni að ódýrari vörutegundum. Þá hefur orðið bein verðlækkun á afurðum eftir að fiskverð var ákveðið. Gengissig síðustu dagana bætir stöðuna lít- illega. Þegar allt þetta er skoðað í samhengi er ljóst að halli fjölda margra húsa er á bilinu 15% — 20%. Slíkur rekstur getur ekki gengið. Innan örskamms tíma verður greiðslufall, því alvarlegra sem lengra líður. Stjórn Félags Sambandsfisk- framleiðenda hvetur sambands- frystihúsin hvert fyrir sig að skoða fjárhagsstöðuna vel og vandlega og gera allar nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að hætta rekstri áður en greiðslufall verður orðið svo alvarlegt að ekki sé hægt að greiða fyrir nauðsynlegustu aðföng og þjónustu. Sérstaka áherslu verður að leggja á að varast sé að halda rekstri áfram þangað til ekki er hægt að standa í skilum með greiðslu vinnu- launa." Frá fundi stjórnar Sambandsfrystihúsanna i gær. (Ljósm. Kristján). Taki ekki að sér störf í skólasöfnum — nema um ársráðningu sé að ræða AÐ GEFNU tilefni vill stjórn Félags bókasafnsfræðinga taka fram, að sent hefur verið bréf til félagsmanna þar sem þess er farið á leit að þeir taki ekki að sér störf á skólasöfnum nema um árs ráðn- ingu sé að ræða. Stjórn félagsins vill ennfremur beina sömu tilmæl- um til bókasafnsfræðinema og annarra sem til greina kæmu við slík störf. Hvort sem ráðinn er í starfið bókasafnsfræðingur með uppeld- isfræðimenntun eða kennari með viðbótarnám í bókasafnsfræði hlýtur sama ráðningarform að gilda og hvorir tveggja ráðnir af sama aðila, en til þessa hefur yfirleitt gilt sú regia að kennarar á söfnum eru ráðnir af ríkinu en bókasafnsfræðingar af sveitarfé- lögum. Lög um grunnskóla tóku gíldi í maí 1974 en í 72. grein þeirra er kveðið svo á um að þannig skuli búið að skólasöfnum „að þau geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpartækjum í skólastarf- inu“. Stjórn félagsins lítur svo á, að hér sé um nýtt starfsvið innan skólanna að ræða sem þarfnist skilgreiningar og því sé það brýn nauðsyn að hraðað verði útgáfu reglugerðar um skólasöfn þar sem m.a. verði kveðið á um starfslið og starfshætti safnanna. Allir sem til þekkja vita að vöntun á reglugerð hefur staðið þróun skótasafna- mála fyrir þrifum og þar með tafið fyrir nýjungum í kennslu- háttum í anda grunnskólalaganna. F.h. stjórnar Félags bókasafns- fræðinga. Anna Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.