Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 28

Morgunblaðið - 10.06.1980, Side 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ1980 Min Tanaka Ilreyfilist: Min Tanaka Illjóð: Yoshiaki Ochi, Hisako Horikawa, Takashi Kaieda. Listahátíð 1980/ Laugardalshöll. MIN Tanaka er erfitt að flokka, hann er ekki venju- legur dansari né látbragðs- leikari, nálgast fremur að vera lítill leikþáttur.' Sólin skein er hans fyrsta sýning var og dyrnar opnar á Laug- ardalshöllinni. Slíkt er mjög í samræmi við keaningar Tan- aka sem hann byggir list sína á, tengslum veðurs, líkama og sálar. Og þarna birtist hann, inn úr sólinni móti lítilli lugt sem komið var fyrir á miðju gólfi. Var líkast sem hann vildi þannig þenja líkama sinn milli sólarljóssins sem fylgdi honum á bakinu og gerviljóssins sem ljómaði framhlið hans. Kom þetta ekki skýrt fram í fyrsta atriði, betur í því síðara — er hann var nakinn. Líkami Tanaka er mjög vel þjálfaður og ljós og skuggar leika einkar fallega um vöðvabygginguna og ekki er hári né neinu öðru fyrir að fara sem truflað gæti þennan slöngulaga vöðvaál í að sýna til skiptis: eldhraðan dans þar sem fingurnir þeytast til og undurhægar hreyfingar, sem því miður dreifa athyglinni dálítið hjá áhorfendum. Kom þetta best fram undir lokin er Tanaka lék einn hraðasta dansþátt sem undirritaður hefir séð. Á þessum punkti var líkami hans löðursveittur og glitraði líkt og kobra- slanga. „Þetta móment,“ sagði Tanaka í samtaii eftir sýning- una „... var hið eina í dans- þættinum sem naut óskiptrar athygli áhorfenda." Hljóm- listarmenn þeir er að- stoða Tanaka frömdu á þessu mómenti kraftmikinn trumbuslátt sem hefur vafa- laust átt sinn þátt í samruna áhorfenda við dansinn. En á öðrum tímum hermdu tónlist- armennirnir aðallega eftir náttúruhljóðum, var líkt og maður sæti í mýri og hlustaði á spóann vella eða kríuna garga. En slík nánd við hið upprunalega, i.ióður náttúru er kjarni hugsunar Tanaka bak við dansinn. Varð mér hugsað til iðnaðarborgar.na í Japan, þar sem menn verða hluta dags sums staðar að ganga með grisjur fyrir nefi og munni. Ætli hér sé ekki að leita frumuppsprettunnar að hinni sérstæðu tjáningarlist Tanaka? Gæti verið. Annars er maðurinn dulur eins og þetta japanska fólk yfirleitt. Nokkur svör hans við spurn- Lístatiátíð eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON ingum nærstaddra að lokinni sýningu finnst mér þó gefa dálitla innsýn í hugarheim hans. Einn áhorfandinn spurði meðal annars hvort Tanaka missti ekki mikla orku meðan hann fremdi galdur sinn. Tanaka: Nei. Ekki svo fremi sem áhorfendur gefa frá sér orku meðan á sýningu stend- ur. Eg dreg í mig orku frá áhorfendum, það eru þeir sem gefa mér. Þá spurði annar áhorfandi lymskulega hvort Tanaka væri nokkurn tímann feim- inn. Tanaka: í fyrsta iagi finnst mér ég ekki nakinn, penis minn er vafinn. Og í öðru lagi skynja ég ekki líkama minn meðan ég dansa. Vitund mín færist á æðra stig. Hins vegar finn ég strax ef einhver er feiminn meðal áhorfenda. Ég reyni þá að ná til slíkra feimnisskjóða og lækna feimnina. Þriðji áhorfandi spurði hvort Tanaka væri grasæta. Tanaka: Ég ét allt (hlátur). Fjórði áhorfandi spurði hvort Tanaka hefði fundið einhver sér stök áhrif sálræns eðlis hér á íslandi. Tanaka: Jú, ég fann hér á sýningunni mjög mikla vænt- ingu. Og svo gerðist dálítið undarlegt í morgun þegar ég vaknaði. Venjulega finn ég einhvern blett á líkamá mín- um sem hindrar flæði skynj- unar minnar. En í morgun gerðist ekkert. Ég fann alJs ekki fyrir líkama mínum. Ég hafði eiginlega ekkert til að hugsa um. (Sá þarf ekki að berjast við rafmagnsreikn- inga, símareikninga eða skatta, nú en áfram með smérið.) Fimmti áhorfandi varpaði fram þeirri skynsam- legu spurningu hvort Tanaka ætti ekki erfitt með að ein- beita sér. Þegar til dæmis ljósmyndarar skriðu um öll gólf og bílar rótuðu upp ryki fyrir utan. Tanaka: Það skiptir mig i rauninni ekki máli, hvort áhorfendur einbeita sér alger- lega að dansi mínum. Mér finnst þægilegt að dansa á götum úti, með fólk masandi í kring um mig. Margt annað á að fanga athygli fólks meðan á atriðinu stendur. Ég er bara einn hluti umhverfisins. Fleira mætti tína til af athyglisverðum svörum þessa liðuga Japana. Verður það e.t.v. gert seinna. Ég verð þó að segja, að mér fannst full- yrðing hans um orkutap áhorfenda út í bláinn, því er ég gekk út í sólskinið eftir sýninguna fannst mér þvert á móti hann hafa gefið nokkur wött á sálarbatteríið. En ekki er sagan af Listahátíð þennan daginn búin. Niðri í bæ er myndasýning í Breiðfirð- ingabúð. Og er undirritaður var að lokinni skoðun að búa sig til heimferðar, rak hann augun í kerlingu er var hálf út um glugga á efri hæð verslun- arinnar Pfaff við Skólavörðu- stíg. Var kerla eitthvað að hrópa. Minnti þetta óþægilega á kerlingarnar í gamla daga í sjávarþorpi úti á landi, sem næstum hræddu líftóruna úr krökkum, er þær æptu ókvæð- isorð milli garða. Átti þetta sér einkum stað er konur þessar hengdu út þvott. Nú en við nánari skoðun reyndist þetta vera leikkona ein að kalla á tvær aðrar sem voru í húsi hinumegin við götuna. Þróuðust hrópin brátt í dá- litla leiksýningu sem undirrit- aður getur því miður ekki fjallað um nánar, því engin leikskrá fylgdi, né boðsmiði á þennan óvænta leikþátt. En slíkir hlutir eru forsenda þess að virðulegir gagnrýnendur geti fjallað um málið. Börkur og^Tómas settu nýtt íslands- met í 150 metra skeiði hjá Sörla Hcstamannaíélagió Sörli í Hafnarfirði hélt árlega gæöingakeppni og kappreiðar sínar um helgina. Gæð- ingar voru dæmdir á laugardag o>? verðlaun afhent strax að afloknum dómum. Á sunnudaginn fóru fram kappreiðar félagsins. Það er óhætt að segja að veðurjíuðirnir hafi verið Sörla-félöKum hliðhollir því hlíðskaparveður var báða dagana. I A-flokki gæðinga sigraði Dylgja Sigurðar Sæmundssonar en hann var einnig knapi. Dylgja er 6 vetra, grá, frá Vatnsleysu í Skagafirði, og hlaut hún 7,92 í einkunn. í öðru sæti með einkunn- ina 7,66 varð Þrymur, 13 vetra, grár, frá Haugi í Árnessýslu, eigandi Viðar Sæmundsson, knapi Lísbeth Sæmundsson. Þriðji varð Glæsir, 8 vetra, grár, frá Bjólu- hjáleigu, Rang. Eigandi og knapi Ingólfur Arnarson. Hlaut hann 7,61 í einkunn. I B-flokki sigraði Krummi, 10 vetra, brúnn, úr Skagafirði, eig- andi Böðvar Böðvarsson, knapi Ágúst Böðvarsson, hlaut hann 8,44 í einkunn. Annar varð Blesi, 8 vetra, rauðblesóttur, úr Borgar- firði, eigandi og knapi Jón B. Reynisson, og í þriðja síéti varð Blakkur 12 veíra, brúnn, úr Borg- arfirði, eigandi Guðmundur Þórir Sigurðsson. Kappreiðar hófust með keppni í 150 metra skeiði. Lengi vel leit út fyrir að árangur í þeirri grein yrði rýr, en eftir tvær umferðir var einn hestur aðeins þrem sekúndu- brotum frá íslandsmeti. Þótti Sörla-mönnum það ekki nóg og var ákveðið að leyfa þrem fljót- ustu hestunum að fara aukasprett. Smá vindgola var á móti og var ákveðið að snúa brautinni við, þ.e. láta hestana hlaupa í öfuga átt, og þetta nægði, því metið féll og voru Börkur frá Kviabekk í ólafsfirði setur nýtt tslandsmet í 150 metra skeiði, 14,3 sek. Eigandi Barkar er Ragnar Tómasson en knapi var Tómas Ragnarsson. Áður hafði Börkur hlaupiö á 14.5 sek., sem einnig er undir gildandi meti. Ljósm. V.K. þar tvö hross að verki, Börkur Ragnars Tómassonar, knapi Tóm- as Ragnarsson og Snælda Magna Kjartanssonar, knapi Erling Sig- urðsson. Til gamans má geta þess að þetta er sama Snælda og sigraði á Landsmóti 1978, í flokki hryssna 6 vetra og eldri. Var tíminn 14,5 sek, en gildandi met er 15,0 sek. Voru menn hálfvantrúað- ir á að þetta gæti staðist. Var því ákveðið að láta hrossin fara annan sprett. Þar sannaðist að þetta var engin tilviljun, því þá hljóp Börk- ur á 14,3 sek. En röð efstu hesta var þessi: Fyrstur varð Börkur á 15,3 sek. Önnur Snælda á 16,1 sek. og þriðji Gammur Harðar G. Albertssonar, knapi Sigurbjörn Bárðarson. í 250 metra skeiði sigraði Vill- ingur Harðar G. Albertssonar á 24,0 sek., knapi var Trausti Þ. Guðmundsson. Annar varð Þór Þorgeirs í Gufunesi á 24,5 sek., knapi Sigurður Sæmundsson og í þriðja sæti varð Hjalti, eigandi og knapi Hlynur Tryggvason. Hljóp hann á 25,8 sek. Sérstakur bikar er veittur þeim hesti í eigu félagsmanna í Sörla er bestum tíma nær. Hlutskarpastur varð Hrannar Gunnars Arnars- sonar, sem rann skeiðið á 26,5 sek. I 250 metra unghrossahlaupi sigr- aði Léttir Þrastar Einarssonar, knapi Anna Auðunsdóttir, á tím- anum 21,2 sek. Önnur varð Frenja Sigurðar Ólafssonar, knapi Sævar Haraldsson, tími hennar var 21,2 sek. Léttir og Frenja hlupu auka- sprett um fyrsta sætið. í þriðja sæti varð Dunkur á 21,5 sek., eigandi hans er Arnljótur Tyrf- ingsson, en knapi var Þórir Ás-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.